Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Page 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAl 1985.
3
STORMURILOGALANDI
Heldur minna fór fyrir úti-
samkomum þessa hvítasunnuna en
oft áöur. Þó safnaðist fólk saman
bæði í Þórsmörk og að Logalandi í
Borgarfirði þar sem hátt í þúsund
manns munu hafa verið saman-
komin á laugardagskvöld.
Slæmt veður gerði sam-
komugestum þó erfitt fyrir. Bæði var
rok og mikill kuldi, miðað við að
vorið er opinberlega komið, og setti
þetta greinilega mark sitt á hátíðina.
Tjöld fuku út í á og annað var eftir
því. Að öðru leyti ku hátíð þessi hafa
farið skikkanlega fram.
-IJ.
Skemmtun unglinganna afl Loga-
landi var meO býsna HefO-
bundnum hœtti.
GlaOst A góOri stund — skulum
viO vona.
Sumir voru orönir heldur eymdarlegir i kuldanum.
Þetta tjald er bersýnilega á leiO út
í veflur og vind...
Unga fólkiO reyndi eins og hœgt
var aO halda bústööum sinum
kyrrum.
«C
RokiO var mikiO og tjöldin vildu
illa haldast ó sinum stöflum.
DV-myndir S.
Reynir P. Engvarsson
göngugarpur:
„Algerlega
óþreyttuP1
— sagði hann við DV
eftir að hafa gengið
135 kílómetra
átveimurdögum
„Þetta gengur allt saman mjög vel,
ég er mjög ánægður með veðrið, það
hefur verið hagstætt. Eg er algerlega
óþreyttur, búinn að ganga 135
kílómetra á rúmum tveim sólar-
hringum,” sagöi Reynir P. Ingvarsson
göngugarpur í Vikurskála, Vík í Mýr-
dal, er DV náði tali af honum um
klukkan 16 á mánudag.
Reynir miöar að því að ganga í
kringum landið á 4—5 vikum til
styrktar byggingu íþróttaleikhúss við
Sólheimaheimiliö í Grímsnesi. Reynir
lagði af stað klukkan 11 á laugardags-
morgunfrá ölfusárbrú og hefur síðan
lagt töluvert land undir fót. „A hvíta-
sunnudag gekk ég frá Hvolsvelli í
ágætisveðri að Skógum þar sem ég gisti,
ég stoppa eitthvað hér í Vík, fæ mér
kannski smásnarl en síðan er ætlunin
að leggja í hann aftur og vera á göngu
framundir klukkan 19. Þetta hefur
gengið mjög vel, ég er þegar kominn
töluvert á undan áætlun,” sagði Reynir
Ingvarsson, göngugarpurinn galvaski,
aðlokum. -hhei.
Slökkviliðið á Selfossi
fsexútköll:
„Égermeð
gottlið”
— sagði Eggert Vigfús-
son slökkviliðsstjóri
„Já, það er langt síðan ég hef lent í
svona helgi eins og þessari,” sagði
Eggert Vigfússon, slökkviliðsstjóri á
Selfossi, í gær.
Ohætt er að segja að helgin haf i verið
annasöm hjá slökkviliðinu á Selfossi
eða Brunavörnum Ámessýslu, eins og
hið rétta nafn er á slökkviliðinu.
Otköllin urðu sex þegar upp var staöið.
Það fyrsta á laugardag, fjögur á
sunnudag og eitt í gær.
Útkallið á laugardag var í Vaönes-
land. Þar kviknaði í gróðri eftir að
sumarbústaðafólk hafði farið
ógætilega með eld. Og sunnudagurinn
byrjaði svo með skógareldinum á
svæði Landvemdar í Þrastaskógi,
síðan skammt frá í Þrastarlundi.
Þegar slökkvistarfi var að ljúka við
Þrastarlund, fór slökkviliðið upp að
Álftavatni. Þar vom sumarbústaða-
menn að brenna rusli, fóm ógætilega
og eldur komst í gróöur.
Og um kvöldið kom svo enn einu
sinni upp eldur í gróðri. I þetta skiptið í
landi Miðfells við Þingvallavatn. Þar
var það mosasvæði sem brann.
Astæðan; ógætilegafariðmeðeld.
Um hádegisbilið í gær kviknaði síðan
í bílskúmum að Miðengi ásamt
þremur bílum. „Menn em slæptir • og
þreyttir en ég er með sérlega gott lið,”
sagði Eggert. -JGH.
— sjá einnig bls. 4
og baksíðu
.jrsteinsson
&lohnsonhf.
SlMI 91-685533