Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI1985. FráAlþmgi Ríkislögmaður ogsjúkraliðar I núgildandi lögum um sjúkraliöa nr. 58/1984 segir að sjúkraliðar skuli aðeins starfa undir stjúrn og á ábyrgð h júkrunarfræðings. Tveir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um breytingu á þessum lögum. Það eru þau Kolbrún Jóns- dóttir og Stefán Benediktsson, basði í Bandalagi jafnaðarmanna. Þau vilja bæta lækni og ijósmóður við á yfirmannalista sjúkraliða. Þau telja ekki rétt að einskorða starfs- vettvang sjúkraliða eingöngu við störf undir stjórn hjúkrunarfræö- inga. — Þaö er fráleitt að það skuli nú brjóta í bága við lög ef læknar fá aðstoð fólks sem telst vera á starfs- sviði sjúkraliða, segja flutnings- menn í greinargerð frumvarpsins. Mývatnssveit Hvað varðar þá áætlun sem tillag- an gerir ráð fyrir að unnin verði er þar átt við úttekt á möguleikum til atvinnuuppbyggingar í Mývatns- sveit sem komið gæti í staöinn fyrir rekstur Kísiliöjunnar hf. ef til þess kæmi að'hún yrði að hætta rekstri. Ef sú verður niðurstaðan i framtiöinni er mikilvægt að nýta sem best þann tima sem gefst til aðlögunar aö breyttum aðstæðum svo að komast megi hjá röskun á högum fólks eftir þvisemkosturer. Þetta eru orð flutningsmanns til- lögu um atvinnulíf í Mývatnssveit, sem er Steingrimur J. Sigfússon (ABL.). Steingrímur vill fela ríkis- stjórninni að hefjast strax handa við gerð áætlunar um uppbyggingu og eflingu atvinnuiífs þarna af áður- nefndum ástæðum. Landflutningasjóður Samkvæmt frumvörpum sem Uggja fyrir Alþingi um Byggöastofn- un og Framkvæmdasjóö Islands verður Framkvæmdastofnun ríkis- ins lögð niður. En Byggðastofnun og Framkvæmdasjóöur Islands munu taka við tilteknum verkefnum stofnunarinnar. Framkvæmdastofn- un hefur haft umsjón með Land- flutningasjóðl Nýtt frumvarp var lagt fram í síð- ustu viku um breytingar á lögum um Landflutningasjóð sem er á þá leið að fela Byggðastofnun að taka yfir það hlutverk Framkvæmdastofnun- ar er varðar Landflutningasjóðinn. Ríkislögmaður I fyrra var breytt reglugerð um Stjórnarráð Islands. Sú breyting á reglugerðinni var á þá leið að sér- stökum ríkislögmanni skuli falinn ákveöinn málflutningur vegna mál- sókna á hendur ríkissjóði. Fyrir nokkru var frumvarp til laga um ríkislögmann lagt fyrir efri deild Alþingis. Frumvarpið hefur verið til umfjöllunar i fjárhags- og viöskiptanefnd neðri deildar. Svavar Gestsson hefur skiiað sérnefndar- áliti. I þvi leggur hann til að embætti ríkislögmanns heyri undir dóms- málaráðherra. I frumvarpinu er aftur á móti tilgreint aö embætti ríkislögmanns, sem yrði sjálfstæð stofnun, skuli heyra undir fjármála- ráðherra. Um langt árabil hefur meðferð mála, sem beint er gegn ríkissjóði, verið i höndum lögfræðinga sem starfaðhafa í fjármáiaráðuneytinu. Þetta er venja sem hefur myndast í samræmi við rikjandi tíðaranda en þarf ekki að hafa frambúðargildi, aö mati annars nefndarmanns, Guðmundar Einarssonar. Hann leggur til að frumvaipið verði fellt. Að mati Guðmundar er rangt að binda i lög starfsskipulag á þann hátt sem frumvarpið gerir ráð fyrir. „Með þessari lagasetningu er verið að leggja grunn að útþenslu ríkis- kerfisins og geirnegla starfshætti þess,” segir Guömundur Einarsson umfrumvarpið. Líleyrísmál Skýrsla um heildarendurskoðun lífeyrismála hefur veriö lögð fram á Alþingi. Frá JóhönnuSigurðardóttur og fleiri kom fram beiðni til fjár- málaráðherra um þessa skýrslu. -ÞG Nýtt iðnfyrirtæki íólafsfirði: Ætla að sauma fyrir Alafoss I undirbúningi er stofnun sauma- stofu í Olafsfirði er kemur tii með að veita 14 manns atvinnu. Þrjú fyrirtæki hafa staöið fyrir þessu, hlutafélagið Valberg, hluta- félagið Sæberg og Sigvaldi Þorleifsson. Valberg stundar verslunarrekstur en hin tvö eru í útgerð og fiskvinnslu. Að sögn Gunnars Sigvaldasonar, framkvæmdastjóra Sæbergs hf., eru í burðarliðnum samningar viö Alafoss hf. í Mosfeilssveit um að sjá vænt- anlegri saumastofu fyrir verkefnum. Með þvi yrði hægt að tryggja reksturinn. Saumastofunni er ætlað húsnæði á þriðju hæð í sjóhúsi Sigvalda Þorleifs- sonar og þar veröur fljóöega lokiö við að innrétta og undirbúa reksturinn. Vélar eru í pöntun en ekki er búið að ganga frá kaupsamningum á þeim. Ekki hefur heldur verið formlega gengiö frá stofnun félags um rekstur saumastofunnar. -JBH/Akureyri. Stykkishólmur: Breikað á samvinnudegi Frá Róbert Jörgensen Stykkishólml: Kaupfélag Stykkishólms stóð fyrir yfirgripsmikiili iðnsýningu í Félags- heimili Stykkishóims fyrir skömmu. A síðasta þingi Landssambands íslenskra samvinnustarfsmanna var samþykkt að koma upp sýningu á iönaðarvörum framleiddum af samvinnustarfsmönnum. Auk samvinnufyrirtækja voru það sex fyrirtæki sem tóku þátt í sýningunni, m.a. tvö úr Hólminum. Sýndar voru vörur af ýmsu tagi s.s. franskar kartöflur, grænmeti, súpur, mjólkurvörur, brauð, ýmis heimilis- tæki, raftæki, tölvur, kjötvörur frá afurðasölunni, sánaklefi og þannig mætti lengi telja. Meðan á sýningunni stóð var starfrækt sérstakt dagheimili þar sem ýmiskonar leikföng voru til frjálsra afnota. Auk þess var barnaefni sýnt í sjónvarpi. Þá voru skemmtiatriði i gangi allan daginn. Samvinnutríóið söng, sýndur breik-dans og tískusýn- ing á fatnaði frá iðnaöardeild SlS. Módelin voru öll frá grunnskólanum í Stykkishólmi. Aöspurður um árangur erfiöisins sagði Asmundur Karlsson kaupfélags- stjóri að aðstandendur sýningarinnar hefðu verið mjög ánægðir. -EH. Frá fundi forystumanna tannlækna á Norðurlöndum. íslendingar eru á eftir í tannheilbrigði Við Islendingar erum aftar á merinni í tannheilbrigðismálum en frændur okkar . á hinum Norður- löndunum. Þetta kom meðal annars fram á fundi forystumanna tannlækna á Norðurlöndum sem haldinn var hér á landi fyrir skömmu. Meginviðtangse&ii fundarins var umfjöllun um þær opinberu aðgerðir sem nú er unnið að og geta dregið úr tannskemmdum og munnsjúkdómum. Aðgerðir þessar hafa í mörgum tilvikum minnkað tannskemmdir og að sama skapi leitt til atvinnuleysis í stétt I tannlækna. Þessarar þróunar hefur ’ gætt í minna mæli hér á landi en á hin- um Norðurlöndunum en í frétt Tann- læknafélags Islands frá fundinum er því spáð að um síðir komi til þess að dragi úr tannskemmdum hér á landi og atvinnuleysi skapist hjá tannlækn- um. Hvers vegna f jölgun vínveitingaleyfa? Helgi Seljan hefur lagt fram tvær fyrirspumir í sameinuðu þingi. Sú fyrri er til dómsmálaráðherra um fjölgun vínveitingaleyfa. Þingmaður- inn spyr hvort ráðuneytið hafi í hyggju að draga úr leyfisveitingum eða koma í veg fyrir frekari fjölgun. Hvaða skýr- ingar eru á 50% fjölgun vínveitinga- leyfa síðastliðin tvö ár? spyr Helgi dómsmálaráöherra, Jón Helgason, einnig. Siöari fyrirspum Helga er til Matt- híasar Bjamasonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, varðandi störf nefndar um stefnumörkun í áfengismálum. Hvað líður störfum nefndarinnar? spyr þingmaðurinn meðal annars og einnig hvort þess sé að vænta næsta haust að lögð verði fram tillaga um stefnu i áfengismál- um. -ÞG Sigurður Bjarnason. Myndin er tekin á siðasta þingi Norður- landaráðs sem haldið var i Reykjavik. Sigurður var einn þeirra sem stuðlaði að stofnun Norðurlandaráðs. Sigurður Bjarna- sonfær heiðursmerki Akveöið hefur verið að veita Sigurði Bjarnasyni, sendiherra og fyrrverandi alþingismanni, heiðursmerki sem Letterstedska félagið veitir. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs þings, mun afhenda Sigurði merkið við hátíðlega athöfn í sumar. Þetta heiðursmerki er veitt þeim mönnum sem lagt hafa af mörkum veigamikinn skerf til norræns samstarfs. Sigurður hlýtur þennan heiður vegna starfs síns við stofnun Norðuriandaráðs. Aðeins fjórir menn hafa fengiö þetta heiðurs- merki áður. Letterstedska félagið var stofnað 1875 í því skyni að stuöla að norrænu samstarfi. Frá þeim tima hefur félagiö gefið út tímarit og árlega úthlutað styrkjum til verkefna á sviði norræns samstarfs. -APH. Enn frjálsarl verðlagning Verðlagsráð hefur ákveöið að gefa verðlagningu frjálsa á eftir- töldum vöruflokkum: fatnaði, íþróttaáhöldum, búsáhöldum, rit- föngum og pappir. Akvörðun þessi tekurgildil. júní. Meö þessari ákvörðun Verðlags- ráðs hefur verðlagning verið gefin frjáls á nær öllum vöruflokkum. Þeir vöruflokkar sem enn eru undir verðlagsákvæðiun eru landbúnað- arvörur, að hluta, einnig ýsa og þorskur. APH ————^™ RAKATÆKI í ÚRVALI Hugsið um heilsuna! Of þurrt loft er óhollt. — Það hefur áhrif á mótstöðu líkamans gegn kvefi og ýmsum kvillum. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 Sími 91 35200 VERÐ FRÁ KR. 1.739,- ___________________________J V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.