Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Síða 20
20
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI1985.
REIKNISTOFNUN
HÁSKÓLANS
óskar að ráða tölvara á VAX-tölvur. Stúdentspróf eða
starfsreynsla við tölvur æskileg. Umsóknir sendist til
Reiknistofnunar Háskólans, Hjarðarhaga 2—6, 107
Reykjavík, fyrir 5. júní nk. Upplýsingar fást í síma 25088.
SUMARTILBOÐ -
10% AFSLÁTTUR
l tilefni sumars bjóðum við 10% afslátt af öllum vörum
dagana 28. maí til 8. júní. Stórkostlegt úrval af fyrsta
flokks postulíns- og kristalsvörum á góðu verði frá heims-
þekktum enskum fyrirtækjum: Wedgwood, Spode,
Aynsly, Poole, Dartington, Metropolitan o.fl.
Verslunin
Keieöal
Laugavegi 61 — 63.
p en»«
Blomberg
Heimilistækin.
EINAR FARESTVEIT &. CO. HF.
BERGSTAÐASTRA.TI I0A - SlMI 16995
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsmann til
eftirtalins starfs. Starfskjör samkvæmt
kjarasamningum.
• BÓKASAFNSFRÆÐINGUR hjá Borgarbókasafni
Reykjavíkur.
• BÓKAVÖRÐUR hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur.
Upplýsingar veittar á skrifstofu Borgarbókasafns í síma
27155.
Umsókn ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16 fimmtudaginn 13.
júní 1985.
^ YFIRLÆKNIR
Reykjavíkurborg auglýsir stöðu yfirlæknis lausa til
umsóknar.
Starfið felur í sér að veita forstöðu atvinnusjúkdómadeild
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur í hálfu starfi og
trúnaðarlæknisstörf fyrir Reykjavíkurborg í hálfu starfi.
Æskilegt er að umsækjendur hafi sérmenntun á sviði at-
vinnulækninga.
Upplýsingar veitir borgarlæknir í síma 22400.
Umsókn ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 14.
júní 1985.
Nauðungaruppboð
’á eigninni Bassastaðir (úr landi Úlfarsfells), Mosfellshreppi, þingl. eign
isfoldar Aðalsteinsdóttur, fer fram vegna vangreiöslu á uppboðsand-
virði á eigninni sjálfri fimmtudaginn 30. .naí 1985 kl. 18.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Litla-Laxáí
Hreppum:
G0Ð VEIÐI í HENNI
TIL F0RNA - VERDUR
ÞAÐ ENDURTEKIÐ?
Áin hef ur verið leigð út til stangveiði eftir 15 ára f riðun...
Litla-Laxá er allmerkileg veiðiá
enda bendir nafn hennar til þess að
mikill lax hafi verið í henni til forna.
Hún hefir mikla kosti sem laxá, svo
sem góða hrygningarstaði og allgóð
uppeldisskilyrði, einkum þegar lækir
þeir sem í hana falla eru taldir með. Á
hinn bóginn hefir hún þá ókosti, sem
margar veiðiár hafa, aö vatnsmagnið
og hitinn er mjög breytilegt, að hún
ryðursig,o.s.frv.
Litla-Laxá er fremur lítil bergvatns-
á. Hún er um 37 km á lengd og þar af
eru um 25 km laxgengir. Litla-Laxá á
upptök sín í Laxaklettsmýrum, norðar-
lega í Hrunaheiði. Rennur hún fyrst
lengi til suðvesturs. En þar sem hún
streymir ofan úr skarðinu milli Foss-
öldu og Launvatnsheiðar er foss í ánni
og gljúfur að henni. Þar beygir hún til
suðurs og fellur ofan í Fagradal.
Neðan við dalinn eru líka gljúfur en of-
arlega í þeim Kiukkufoss. En þar sem
þau enda er Hildarselsfoss sem heitir
eftir eyðibýlinu í Hildarseli. Foss þessi
er allhár (yfir 10 m) og langt frá því að
vera fær nokkrum fiski. En upp aö
þessum fossi kemst bæöi lax og
silungur svo hér tekur við hin eiginlega
laxá. Meðfram Litlu-Laxá er mikið
gróðurlendi, eru eyrar allmiklar, sums
staðar uppgrónar, en annars staðar
eru valllendisbakkar. Aðalhrygningar-
staðir laxins í Litlu-Laxá eru frá
Högnastöðum eða Gröf og upp að Berg-
hyl en þó mun hann eitthvað hrygna
niður hjá Hrafnkelsstöðum og Seli og
einnig dálítið ofan við Berghyl. Svo
hrygnir hann í Reykjadalslæk og
líklega eitthvað í Kluftá. Engar
ábyggilegar skýrslur eru til um
veiöimagn í Litlu-Laxá. Veiðiaöferðin
hefir frá fornu fari veriö ádráttur,
enda er áin mjög auðdræg. I Litlu-
Laxá veiðist lax, urriöi, bleikja, áll og
homsíli.
En hvers vegna erum við að tala um
Litlu-Laxá í Hreppum, má hún ekki
muna sinn fífil fegri? Er eitthvað að
hafa í henni? Gengur lax nokkuð í ána
fyrr en í október?
„Eg hef oft gengiö meö Litlu-Laxá og
aðeins prufað að veiða í henni, líst
mjög vel á ána og það eru margir
skemmtilegir veiðistaðir í henni,”
VEIÐIVON
GunnarBender
sagði Ámi B. Guðjónsson, einn af
leigjendum Litlu-Laxár í Hreppum, en
hann hefur ásamt fleirum tekið þessa
fornfrægu veiðiá á leigu til fjögurra
ára. „Þaö hefur verið lítið veitt í ánni
síðustu 15 árin en menn hafa víst
aðeins reynt og eins og gengur og
gerist hafa sumir veitt vel. Fyrir
nokkrum ámm fengust 400—500 laxar í
ádrátt, aðstæöur virðast góðar og ég
hef séð silung í ánni allt árið. Að
Skjólborg veröur veiöibók og þar er
hægt að fá gistingu. Lax getur gengið í
ána í júli, ágúst, ef það er vætusamt
sumar. Það hefur gengið vel að selja í
ána og ódýrast kostar dagurinn 600 kr.
og svo upp í 3000 en það er veitt á þrjár
stangir.”
En hvað gerið þið ykkur vonir um
marga laxa í sumar, Ámi?
„25—30 laxar veiðast og mikið af
silungi, gæti maður reiknað með.”
Það verður spennandi að fylgjast
með þessari fyrrum góðu veiöiá.
Heimildir um Litlu-Laxá í Hreppum,
Vötn og veiðimenn, uppár Áraessýslu,
Guðmundur Danielsson.
„FENGUM EITT SINN 400 -
500 LAXA í ÁDRÁTT’
— segir Eiríkur Jónsson, bóndi íBerghyl
Hver veiöiá á sína sögu og okkur
langaöi til að forvitnast um Litlu-Laxá
í Hreppum. Við náðum í Eirík Jónsson,
bónda á Berghyl. Er hann fróður mjög
um ána þó hann segist engan áhuga
hafa á stangveiði, „leiðinlegasta sem
ég geri”. Við spurðum fyrst um neta-
veiði. „Það var veitt í klak og fékkst
oft ótrúleg veiði, um 1970 fengum við
400—500 laxa í ádrátt. En hin síðari
árin hefur netaveiðin snarminnkað og
það er líklega vegna kulda. Laxinn
kemur yfirleitt ekki fyrr en á haustin, í
september, október. Strákarnir hér
hafa verið að reyna að veiða og fengið
bleikjur og urriða, ef það er þurrka-
sumar gengur fiskur seint,” sagði
Eiríkur að lokum. G. Bender.
Langholtskirkjukór
leggurland undirfót
„Tilgangur þessarar farar er sá að
kynna íslenska kórtónlist, gamla og
nýja, og gefa sýnishorn af öflugri
kórmenningu Islendinga,” sagði
Guðlaug Guömundsdóttir, félagi í
Kór Langholtskirkju, en um
mánaðamótin leggja kórfélagar
land undir fót og heimsækja þrjú
Evrópulönd.
Guðlaug sagði að fyrsti áfanga-
staður kórsins yrði Austurríki þar
sem kórinn myndi syngja í Karls-
kirkjunni í Vín og síðar taka þátt í
mikilli kórahátíð í Pernitz. Þá ætlaði
austurríska útvarpið að taka upp
þátt með kórnum. Einnig myndi
mórinn syngja í Krems og Salzburg.
Síðan lægi leiðin til Vestur-Þýska-
lands, til Miinchen, þar sem kórinn
træði upp. Síðasti viðkomustaðurinn
yrði Italía þar sem kórinn syngi í
Feneyjum og Flórens.
„Við munum syngja við hámessu í
Markúsarkirkjunni í Feneyjum og
— heimsækir
þrjúEvrópulönd
Dómkirkjunni i Flórens. Er það í
fyrsta sinn, svo vitað er, sem
íslenskur kór mun aðstoða við
messuhald í þessum hákaþólsku
messum,” sagði Guðlaug.
Sóknarprestur Langholtskirkju,
séra Sigurður Haukur Guðjónsson,
verður með í för kórsins. A meðan
mun séra Pétur Maack messa þar og
Ljóðakórinn og Kristín ögmunds-
dóttir munu sjá um tónlistina.
-KÞ.