Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 21
21
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ1985.
íþróttir íþróttir íþróttir
Elnar Vilhjálmsson.
„Mest ánægður
með seríuna”
— sagði Einar Vilhjálmsson en hann kastaði 88,28 m
í Kaliforníu á laugardag
„Ég er mjög ánsegöur, það var
nauösynlegt fyrir mig að ná slikum
árangri. Ég hef veriö sl. mánuö aö
brölta með nýja tækni. Með breytt
æfingaprógramm og því seinna á
ferðinni i sumar en veriö hefur undan-
farin ár. Mest er ég ánægður með hvað
kastserían var jöfn, fjögur köst yfir 86
metra,” sagði Einar Vilhjálmsson
eftir að hann sigraðl i spjótkasti á
fyrsta grand prix mótinu i frjálsum í-
þróttum i Kaliforníu á laugardag.
Kastaði 88,28 m og sigraði fyrrum
heimsmethafa, Tom Petranoff.
Þessi árangur Einars hefði nægt til
sigurs á ólympíuleikunum í Los
Angeles í fyrrasumar.
„Árangurinn kom mér ekki beint á
óvart því á móti fyrir hálfum mánuði
kastaði ég 84,50 m og öll köst mín þá
voru yfir 80 metra. En ég verð að
viðurkenna aö það léttist á mér brúnin
Richard Gough, Dundee Utd., skoraði
sigurmarkið á Hampden Park.
við þennan árangur á laugardag í San
Jose. Fyrsta kast mitt var ógilt, síðan
kastaði ég 83,34 - 87,56 - 86,12 -86,98
og 88,28 m. Atrennubrautin var gras
sem gerir atrennuna mun hægari.
Árangurinn er því athyglisverðari þess
vegna,” sagði Einar.
Á blaðsíðu 28 er nánar sagt frá
mótinu í San Jose og rétt að geta þess
að Einar sigraði ekki Petranoff með
síðasta kastinu. I þriðju umferðinni
náði hann betri árangri en Petranoff
best. -hsím.
Staurakast
íhálfleik
— HM-leiksins íkvöld
I sambandi við HM-leik Islands og
Skotlands á laugardalsvelli í kvöld
verður staurakast í háifieik. Jón PáU,
sterkasti maður heims, mun etja kappi
vlð Skotann Dougias Edmund. Rod
Stewart, popparinn heimsfrægi, sem
verður meðal áhorfenda á leiknum,
mun hvetja sinn mann en hvort það
dugar gegn Jóni PáU er önnur saga.
Dómari á leiknum verður Ánatoly
MUchenko frá Sovétrikjunum og Unu-
verðir eru elnnig þaðan. EftirUts-
maður FIFA á leiknum verður Anton
BucheU, Sviss. Öperukórinn syngur
þjóðsöngva landanna fyrir ielkinn.
Forsala að leiknum verður í Bona-
parte við Lækjartorg fram að leik og í
aUan dag á Laugardals veUi.
„Alltaf bjart-
sýnn er ísland
er annars vegar”
—segir Tony Knapp um HM-leikinn við Skota í kvöld
Hef ur valið íslenska Siðið
„Ég er aUtaf bjartsýnn þegar Island
er annars vegar og ég er bjartsýnn
fyrir HM-leikinn við Skota á Laugar-
dalsveUi í kvöld. Auðvitað veit ég að
Skotar eru með sterkt Uð. Það sá ég á
Hampden Park á laugardag þegar þelr
sigruðu Englendinga. Skoska liðið lék
mjög vel þó marga þekkta leikmenn
vantaði. En Skotar hafa svo mikið úr-
val leikmanna að það breytir engu
fyrir þá þó nokkra vanti,” sagði Tony
Knapp landsUðsþjálfari þegar DV
ræddi við hann.
„Viö erum óheppnir aö Asgeir Sigur-
vinsson og Arnór Guðjohnsen geta
ekki leikið vegna meiðsia. Þá eiga þeir
Teitur Þórðarson, Guðmundur Þor-
björnsson og Sigurður Jónsson við
smámeiðsli að stríöa. Eg vona að þeir
hafi alveg náð sér fyrir leikinn,” sagði
Knapp.
Hvemig verður
byrjunarlið islands?
„Ég get sagt þér það nema hvað
markvörð snertir. Hef ekki alveg
ákveðið hvort Eggert Guðmundsson,
Halmstad, eða Bjarni Sigurðsson,
Brann, verður í markinu. Aðrir
leikmenn eru:
Þorgrimur Þráinsson, Val, Magnús
Bergs, Braunschweig, Sævar Jónsson,
Val, Janus Guðlaugsson, Fortuna
Köln, Guðmundur Þorbjörnsson, Val,
Átli Éðvaldsson, Diisseldorf, Sigurður
Jónsson, Sheff. Wed., Ami Sveinsson,
Akranesi, Pétur Pétursson,
Feyenoord, og Teitur Þórðarson,
Yverdon. Teitur verður fyrirliði.
Varamenn eru því annað hvort
Bjarni eöa Eggert, Ragnar
Margeirsson, Keflavik, Sigurður
Grétarsson, Irakles, Guðmundur
Steinsson og Omar Torfason, Fram.”
Nú er Lárus Guðmundsson,
Uerdingen, ekki í liðinu?
Nei, Lárus hefði, vegna úrslitaleiks-
ins í þýsku bikarkeppninni sl.
sunnudag, ekki náð nema litlum hluta
af undirbúningi leiksins við Skota. Það
heföi sennilega verið of seint að fá
hann til landsins í gærkvöld. Svo er
annað: Skotar eru með mjög sterka
leikmenn líkamlega og það hentar
Lárusi ekki beint. Hann hefur varla
nægan kraft til að leika gegn þessum
líkamlega sterku vamarmönnum. En
hvað með það, hann hefði komiö svo
seinttillslands.”
Treysti á áhorfendur
„Eg vona að áhorfendur fjölmenni á
leikinn. Viö þurfum á stuðningi þeirra
að halda og ég mun meta það mikils
persónulega ef þeir hvetja íslenska
liðið virkilega vel.
Það hefur verið vandamál fyrir mig
að stjóma íslenska landsliöinu í
þessum HM-leik. Norska liðið, sem ég
þjálfa í Stavanger í Noregi, lék í gær
og það kann að skapa vandamál þegar
ég kem aftur til Noregs. En ég er mjög
ánægður meö að vera með lið Islands í
þessum HM-leik og það mun gleöja
mig ef það verður metið. Stuöningur
áhorfenda verður mér því mikils
virði,” sagðiTony Knapp.
Það var létt yfir íslensku strákunum
á æfingum í gær. Æft fyrir hádegi og
einnig á sama tíma í gærkvöldi og HM-
leikurinn fer fram á. Einnig voru tvær
æfingar á sunnudag. Þá voru ekki allir
íslensku leikmennimir mættir til leiks.
Sumir, Atli, Magnús og Teitur, komu á
sunnudag og Sigurður Grétarsson kom
ígær.
Tony Knapp mun eflaust — eins og
alltaf áður — ná upp mikilli stemmn-
ingu hjá íslensku leikmönnunum.
Hann hefur einstakt lag á því, bjart-
sýnn og glaður og nú er að fylgja því
eftir frá áhorfendasvæðunum. Það
stefnir í miklað aðsókn aö leiknum og
stuöningur áhorfenda getur skipt
sköpum.
hsím.
I
Tony Knapp meö islensku landsliðsmönnunum á æfingu í nepjunni í gærmorgun. Efri röö: Tony, Pótur,
Guömundur Steinsson, Eggert, Bjarni, Guðmundur Þorbjömsson, Sævar, Þorgrimur og Magnús. Fremri
röð. Ámi, Teitur, Sigurður Jónsson, Ómar, Ragnar og Atli. DV-mynd Bjarnleifur.
„Þýðingarmikill sigur fyrir
HM-leikinn erfiða á íslandi”
Skotland sigraði England, 1-0, á Hampden Park á laugardag
„Þetta var þýðlngarmikill sigur
Skota fyrir ferðina til Islands — í
erfiða HM-leikinn á tslandi,” sagði
fréttamaðurinn kunni hjá BBC, Peter
Jones, eftir að Skotar höfðu sigrað
Éngland, 1—0, i landsleik í knatt-
spyrnu á Hampden Park í Glasgow á
Iaugardag. Fyrsti slgur Skotlands á
Énglandl í niu ár eða frá 1976 og fyrsti
tapleikur enskra i niu landsleikjum.
Ausandi rigning var meðan leikurinn
fór fram og aðstæður allar hinar
erfiðustu.
Tony Knapp, landsliðsþjálfari
Islands, var meöal áhorfenda á
Hampden og sagði eftir leikinn. „Það
er ljóst að Skotar eru með sterkt lið
þegar þeir sigra England án margra
þekktustu leikmanna sinna. Það
stefnir í skemmtilegan leik og erfiöan
á Laugardalsvelli.”
Hvar eru...
Það voru ekki allir hrifnir af því sem
þeir sáu á Hampden Park á laugardag.
Kappinn kunni, Dennes Law, sem
hefur leikið fleiri landsleiki fyrir Skot-
land en flestir, sagði eftir fyrri hálf-
leikinn. „Hvar eru leikmennimir góðu,
sem þessi lönd eiga. Þeir eru ekki á
þessumvelli.”
Það var afrek hjá Skotum að sigra
England því þeir voru án fjölmargra
landsliösmanna, sem hafa verið fasta-
menn skoska landsliösins síöan Jock
Stein tók við því, eða þeirra Dalglish,
Nicol og Wark, Liverpool (einnig
Hansen), Albiston, Man. Utd., Cooper,
Rangers, Johnston og McStay, Celtic.
Það var ekki búist við miklu af liði
Stein nú en það fór á aðra leið. Sigur á
ensku liði sem var þó betra liðið
lengstum í leiknum en enginn broddur
í sóknarleik þess. Skotar áttu þó besta
mann á á vellinum, James Bett, sem
mun, eftir því sem BBC sagði, gera
samning við Aberdeen síðar i vikunni.
Eina mark leiksins var snjallt. Það
var á 68. mín. Eftir góða sókn Skota
fékk Bett knöttinn út á vinstri kant.
Gaf vel fyrir og bakvörðurinn Richard
Gough, Dundee Utd, skallaði í mark
óverjandi fyrir Peter Shilton. 74
þúsund áhorfendur fögnuðu innilega en
skoska iiðið fékk gífurlega hvatningu
frá þeim í leiknum. Tiu mín. síðar kom
Shilton í veg fyrir stærra tap þegar
hann bjargaði vel skalla frá Bett. Liðið
voruþannig skipuð:
Skotland: Jim Leighton, Aberdeen,
Richard Gough og Maurice Malpass,
báöir Dundee Utd., Alex McLeich og
Willie Miller, báðir Aberdeen, Gordon
Strachan, Man. Utd., (Murdo
MacLeod, Celtic), Graeme Souness,
Sampdoria, Roy Aitken, Celtic, James
Bett, Lokeren, David Speedie, Chelsea,
og Ateve Archibald, Barcelona. — Þeir
Speedie og MacLeod léku sinn fyrsta
landsleik fyrir Skotland. England.
Shilton, Anderson, Sansom, Butcher,
Fenwick, Hoddle (Lineker), Robson,
Wilkins, Barnes (Waddle), Francis og
Hateley. Fyrsti tapleikur Englands frá
því í Uruguay í fy rrasumar.
Keppt var um nýjan bikar sem ber
nafn sir Stanley Rous og afhenti Sir
Stanley, sem varð níræður fyrir
nokkrum dögum, bikarinn í leikslok.
hsím.