Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Síða 43
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI1985.
43
Orkubú Vestfjarða:
Hagnaður í fyrsta
skipti frá 1978
I fyrsta sinn í sjö ár var rekstraraf-
koma Orkubús Vestfjarða jákvæö en
hagnaður þess nam 6,8 milljónum á
síðasta ári. Engu að siöur voru gjald-
skrár fyrirtækisins óbreyttar allt
sfðastliðið ár og höfðu ekki tekið
neinum breytingum frá þvi 1. ágúst
1983.
Þetta kom meðal annars fram á
aðalfundi Orkubúsins sem haldinn var
fyrr í þessum mánuði. Rekstrartekjur
fyrírtækisins námu samtals 328
milljónum en stærstu kostnaöarliðirnir
voru fjármagnsgjöld og orkukaup frá
Landsvirkjun og RARK.
Stærstu verkefni Orkubús Vestfjarða
á liönu ári var lagning aðalorku-
flutningslinu frá Mjólká til Tálkna-
fjarðar og var línan tekin í notkun til
bráðabirgða um miðjan desember.
Auk þess var fjárfest fyrir verulegar
upphæðir í aðveitustöðvum, aðveitulin-
um, innanbæjarkerfum og fasteignum.
Orkusala fyrirtækisins á árinu var um
147 GWst og er það 5,4% aukning frá
árinu áöur. Á aðalfundinum voru
meöal annars kynntar niðurstöður
rannsókna á surtarbrandi á Vestfjörð-
um. I greinargerð Jakobs Björnssonar
orkumálastjóra kom fram aö íslenskur
surtarbrandur sé, sem stendur, langt
frá því að vera samkeppnisfær við inn-
flutt steinkol og hafi ekki verið það
a.m.k. um tiu ára skeiö. Hann sagöi
ennfremur að þetta væri í fyrsta skipti
sem alvarleg tilraun væri gerð til aö
meta íslenskt eldsneyti sem orkugjafa
eða iðnaðarhráefni út frá nútímaleg-
um viðhorfum og tækni.
Guðlaug Sigmarsdóttir, hjúkrunarforstjóri Húsavík. Sigþrúflur Ingi-
mundardóttir, formaður Hjúkrunarfólags Íslands. Þuriður Ingimundardótt-
ir, formaður deildar hjúkrunarforstjóra.
DV-mynd Ingibj.
Hjúkrunar-
forstjórar
fundaá
Húsavík
Frá Inglbjörgu Magnúsdóttur, Húsa-
vik:
Félag hjúkrunarforstjóra er deiid
innan Hjúkrunarfélags Islands. Fé-
lagiö heldur tvo stóra fundi á árí og
vorfundinn reyna þær aö halda úti á
landsbyggðinni. 54 hjúkrunarforstjór-
ar hafa þvi setið fund á Hótel Húsavík
nú um helgina og eru þátttakendur alls
staöaraf landinu.
Þær Sigþrúður Ingimundardóttir,
formaður Hjúkrunarfélags Islands, og
Þuríður Ingimundardóttir, formaður
deildar hjúkrunarforstjóra, létu mjög
vel af aðstöðu til fundarhalda á hótel-
inu, aðbúnaður væri góður, allt hefði
leikið við þær, sérstaklega veðurguð-
irnir og Guðlaug Sigmarsdóttir,
hjúkrunarforstjóri á Húsavík, sem
annaöist undirbúning fundarins. Þátt-
takendur fundarins eru stjórnendur í
hjúkrunarþjónustu á Islandi. Auk al-
mennra fundarstarfa er rætt á fundin-
um um gæði hjúkrunarþjónustu og
ákveöin stefnumörkun á því sviði.
A dagskrá fundarins voru ýmis fag-
leg málefni. Framsögueríndi fjölluöu
um gæði hjúkrunarþjónustu og hvemig
markvisst skuli unnið aö þeim málum
og yfiriýsingu Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar, „Heilbrígði
öllum til handa árið 2000”. Einnig
fjallaði fundurinn um það alvarlega
ástand er ríkir á heilbrigðisstofnunum
vegna skorts á hjúkrunarfræðingum.
Fundurinn skorar því á stjórnvöld að
gera ráðstafanir til þess að ráöa bót á
því ástandi sem nú ríkir í samvinnu við
hjúkrunarstjómir.
Umhyggja, f élag til stuðnings sjúkum börnum:
„Vantar alla endur-
hæfingaraðstöðu”
„Endurhæfing bama eftir slys og
sjúkdóma” er yfirskrift fundar sem
Umhyggja, félag til stuönings sjúkum
börnum, gengst fyrir að Hótel Loft-
leiðum í kvöld, þriðjudag.
„Með þessu erum við aö vekja
athygli á þvi aö viö hér i þessu landi
búum við góöa bráðaþjónustu og slysa-
varöstofu en hins vegar er litil sem
engin endurhæfingaraðstaöa fyrir
þessi böm,” sagði Sævar Berg
Guðbergsson, formaður Umhyggju, í
samtaliviðDV.
Félag þetta var stofnað fyrir réttum
fimm árum. Era félagsmenn um 50
talsins.
„Tilgangur félagsins er að reyna að
efla skilning á þörfum veikra barna og
að tekið sé tillit tii þarfa þeirra,” sagði
Sævar. „Þeir sem vinna mikið og eiga
veik böm reka sig fljótt á það að það er
hreinlega ekki gert ráð fyrir veikum
bömum. Þetta fólk á oft erfitt með að
fá frí frá vinnu sinni vegna bamanna
og verða af þeim sökum oft fyrir meiri
og minni tekjumissi. Þá má nefna þaö
aö eigi bam við langvarandi veikindi
aö stríða og þurfi ítrekaö aö leita sér-
fræðings þurfa foreldrarnir að greiða
fuUt göngudeildargjald í hvert sinn,
270 krónur. Til viðmiöunar má nefna
að fullorðinn maður, sem á við sömu
vandamál að striöa, þarf ekki að
greiða nema helminginn af því gjaldi í
hvert sinn. Þessu þarf að breyta.”
Félagsskapur þessi er aðili að
norrænum samtökum sem fjalla um
þessi mál á ráðstefnu er haldin er einu
sinni á árí. Umhyggja, félagiö sjálft,
heldur svo tvo til þrjá fræðslufundi á
ári.
„Félagið beitti sér til dæmis fyrir því
aö foreldrar mjög veikra bama fengju
aðstöðu til aö gista á sjúkrahúsunum
hjá bömum sínum þegar svo ber
undir,” sagöi Sævar. „Það hefur okkur
tekist, þótt sú aðstaða sé ekki mjög
góð. Viö viljum auka þessa þjónustu
viðforeldrana.”
Fundur Umhyggju hefst klukkan
20.30. Þar mun Sveinn Már Gunnars-
son læknir, sem sérhæft hefur sig í
endurhæfingu bama eftir sjúkdóma og
slys, flytja erindi. -KÞ.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
j REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsmenn til
eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt
kjarasamningum.
• HJÚKRUNARFRÆÐINGA við hinar ýmsu deildir hjá
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
• AÐSTOÐARMANN viö skólatannlækningar.
• SKRIFSTOFUMANN við skólatannlækningar í 50%
starf, frá 1. júní nk. Starfsreynsla æskileg.
Upplýsingar gefa yfirskólatannlæknir eða hjúkrunarfor-
stjóri í síma 22400.
• HEILSUGÆSLUSTÖÐIN ASPARFELL óskar eftir að
ráða læknaritara í 50% starf. Starfsreynsla æskileg.
Einnig vantar læknaritara í sumarafleysingar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 75100.
Umsókn ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 7.
júní 1985.
TIMAPANTANIR
ÍSÍMA 621166
■ LIÓSMYNDASTOFA REYKIAVlKUR
■J^y'CRFISGOTU
NEYTENDUR ATHUGIÐ
VERZLUIMARMAIMIMAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og Kaupmannasamtök íslands vilja minna neytendur á
að samkvæmt kjarasamningi verða verslanir lokaðar á laugardögum yfir sumarmánuðina,
frð 1. júní til 31. ágúst.
Á sama tíma er heimilt að hafa verslanir opnar sem hér segir:
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga til kl. 18.30,
fimmtudaga til kl. 20.00 og föstudaga til kl. 21.00. KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANDS