Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Blaðsíða 4
4
DV. LAUGARDAGUR15. JUNl 1985.
Fréttaljós — Fréttaljós — Fréttaljós
HVAÐ GERDISTI
NORDURLANDAHÚSINU?
„Hjörtur Pálsson átti alla sökina
af samstarfsöröugleikunum í
Noröurlandahúsinu og hann tók
afleiöingum geröa sinna meö því aö
segja af sér.” Þetta var niðurstaða
stjórnar Norðurlandahússins i Fær-
eyjum eftir aö hafa þingaö um
tveggja daga skeið í maíbyrjun.
Niöurstaöan, sem ekki var kunngerð
fyrr en þremur vikum eftir fundinn,
er þó ekki studd neinum nýjum
rökum eöa upplýsingum og þar er
ekki aö finna neinar nýjar staö-
reyndir um aðdragandann aö upp-
sögn Hjartar. Ekki er skýrt hvers
vegna stjórnin taldi sig knúna til aö
reka Hjört eftir aö hann var búinn aö
segja upp og skipa honum aö skila
öllum lyklum aö húsinu. Engin til-
raun er gerö til aö svara aðfinnslum
hans og athugasemdum varöandi
rekstur hússins og afskipti fyrrv. for-
stjóra þess. Ef niðurstaöa stjómar-
innar er lokaorð hennar í þessu máli,
má ætla aö erfiöleikar Norðurlanda-
hússins séu rétt aö byrja.
Fjölmörgu ósvarað
Stjómin kom saman í Þórshöfn í
maí til aö ræöa f jaörafokiö sem oröiö
haföi vegna uppsagnar Hjartar og til
aö ráöa nýjan forstjóra aö húsinu.
Stjómarmenn neituðu allir sem einn
aö ræða viö fréttamenn íslenskra og
færeyskra blaöa sem óskuöu eftir
viðtölum viö þá og í ljós kom aö for-
maöurinn, Jan Stiemstedt, haföi lagt
þunga áherslu á aö engar upplýs-
ingar bærust til fjölmiöla. Hinsvegar
var þaö loforð gefiö aö fréttatilkynn-
ing yröi send út að loknum fundi.
Fréttatilkynningin barst þremur
vikum síöar í fjarriti á sænsku til
færeysku blaöanna og kjarni hennar
er ásökun á hendur Hirti Pálssyni
sem vitnað er í hér aö ofan.
Fjölmörgum fyrirspurnum er því
enn ósvarað um starfsemi hússins,
meinta valdníöslu fyrrv. forstjóra,
Steen Colds, og núv. varaforstjóra,
Ásu Justiniussen. Þaö hefur ekki
heldur verið útskýrt hvers vegna
ógjörningur er aö útvega sundur-
liöaöa reikninga yfir byggingar-
kostnaö og aöra framkvæmdaþætti
tengda Noröurlandahúsinu, svo sem
rekstur grafísks verkstæðis og kaup
hússins á aflóga tékkneskri grafík-
pressu frá Kaupmannahöfn. Engin
tilraun hefur heldur veriö gerð til að
skýra þaö framferði Steen Colds aö
láta breyta áætlunum Norðurlanda-
hússins eftir aö Hjörtur var tekinn
við starfi, né hversvegna bréf voru
send út á bréfsefni hússins án vitund-
ar Hjartar. Ekki er heldur minnst á
það fræga samkvæmi, sem Steen
-Cold og Jan Stiernstedt létu halda
dönskum grafíklistamanni, vini sín-
um, á kostnað Norðurlandahússins
þar sem kynntar voru grafíkmyndir
(sem reyndust vera steinþrykk þeg-
ar betur var aö gáð) en stuðningur
hússins viö þennan listamann, Ivan
Edeling, hefur aö öllum likindum
fært honum ágóöa sem nemur hundr-
uðum þúsunda danskra króna. Þetta
fé hefur hvergi komið fram í bók-
haldi hússins. Grafíksýninguna til-
einkaöi Edeling vini sínum, Steen
Cold.
Flestir Færeyingar lita á þetta
mál sem meiriháttar hneykslismál í
norrænu samstarfi þar sem allt
kapp hefur verið lagt á aö leyna upp-
lýsingum og hundsa fyrirspurnir og
þar sem frá upphafi hefur verið
unniö i anda fleygra ummæla Jan
Stiernstedts i færeyska blaðinu
Sosialnum í nóv. 1983: „Almenn-
ingur hefur enga möguleika til að
skilja þessa umfangsmiklu starf-
fom*
Norðurlandahúsið í Færeyjum.
semi og því teljum viö rétt aö upp-
lýsa eins litið og við getum.”
Stjórnin
Stjórn hússins er skipuö full-
trúum frá öllum Noröurlöndunum og
þremur aukafulltrúum frá
Færeyjum. Islenski fulltrúinn er
Birgir Thorlacius. Kjarni stjórnar-
innar er þremenningarnir Jan
Stiemstedt, Steen Cold og Danjál P.
Danjálsen. Sá síöastnefndi er Færey-
ingur, kúabóndi frá Velbastaö og
fyrrverandi menntamálaráöherra
Færeyinga. I ráöherratíð hans
starfaði Ása Justiniussen sem einka-
ritari hans.
Stiemstedt er Svíi sem klifið hefur
margan brattann í sænska og sam-
norræna skrifstofuveldinu. Hann er
nú forstjóri stofnunar sem nefnist
..Sænska geimferöaáætlunin”. Steen
Cold er lögfræöingur og starfaði viö
Norðurlandahúsiö frá byrjun. Hann
situr nú sem fulltrúi i danska
menntamálaráðuneytinu og hefur
sem sérsviö menningartengsl Dan-,
merkur og Búlgaríu. Haft er eftir
honum aö honum leiðist aö skipu-
leggja ballettferöir til og frá
Búlgaríu og langi aftur til Færeyja.
Ritari stjómarinnar er Ása
Justiniussen. Hún var ráðin aö
Norðurlandahúsinu sem skrifstofu-
dama í tíö Steen Colds. Tveimur
dögum áöur en Cold lét af störfum
skipaði hann Asu varaforstjóra þótt
engin heimild væri til þess í lögum
hússins. Um svipaö leyti flutti Ása
inn í skrifstofu forstjórans í Noröur-
landahúsinu en Hjörtur fékk skrif-
stofu Ásu.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem DV hefur aflaö sér tók Ása
völdin af Hirti strax á fyrsta fundi
hans meö starfsfólki hússins. Þeim
sem til þekktu varö brátt ljóst aö
Steen Cold fjarstýröi Noröurlanda-
húsinu frá Kaupmannahöfn í
gegnum Ásu. Sá starfsmaöur hússins
sem Hjörtur átti best samstarf viö
var tæknistjóri þess og húsvörður,
Kartni Olsen. Kartni, sem lá undir
stöðugum brottrekstrarhótunum frá
Ásu, gafst að lokum upp og sagöi af
sér starfi og lýsti því síðan yfir í sam-
tali við dagblaöiö 14. september aö
frekja og ofríki varaforstjórans hefði
staöiö starfinu í Noröurlandahúsinu
fyrir þrifum. Kartni sagöi enn-
fremur aö Hjörtur hefði reynst góöur
og samstarfsfús forstjóri og taldi
mikla eftirsjá aö honum. Samtök
færeyskra listamanna, LISA, tóku
undir þessi sjónarmið og lýstu því
yfir aö þau mundu ekki nota húsiö
fyrr en stjóm hússins heföi gert
hreint fyrir sínum dyrum.
Ágreiningur um bygg-
ingarkostnað
Allt þetta er þó aðeins efsta borð
<*aa6otf**
-•iiS&S&ih.* • •**>"* ■
ísjakans. Enn er allt á huldu um
kostnaðinn við byggingu Norður-
landahússins þótt tvö ár séu síðan
þaö var tekiö í notkun. I skýrslu sem
Steen Cold lét nýlega fara frá sér, og
sem vakið hefur miklar deilur í Fær-
eyjum, er staöhæft aö endanlegur
kostnaður viö byggingu hússins sé 61
millj. d.kr. Engin sundurliðun á
kostnaöinum kemur fram í skýrshi
Colds en Færeyingum þótti einkenni-
legt að sjá þar fullyrðingu þess efnis
aö færeyska landsstjómin skuldaði
enn milljónir króna í gömlum tollum.
Ur tölunum má annars lesa aö Cold,
sem var annar af tveimur
byggingarstjórum hússins, haföi
notað 15% umfram áætlaðan
kostnaö en norski arkitektinn Ola
Steen aöeins 6%. Arkitektinum lenti
saman við Jan Stiemstedt og hús-
stjómina og fór frá verkinu í fússi. I
bréfi, sem hann skrifaði færeysku
blööunum nýlega, segir hann að toll-
arnir, sem Steen Cold hafi nefnt í
skýrslu sinni, séu ofreiknaöir um 2
millj. d.kr. Arkitektinn upplýsti aö
tveir miklir gámar hefðu staöiö lengi
við Noröurlandahúsiö og heföi annar
þeirra innihaldiö áfengi og drykkjar-
föng byggingarstjómarinnar. Spurt
er síðan hvort tollamir, sem nefndir
eru í skýrslu Colds, séu líka
14
SEPTENBER
FOROySHT TJOÐVELD/ ©
Mikudagur 5. )unl 1985
UyUMta kr. 5.00
ígoyg.Bjót” Tíiihavn III 13434 Lavvlk lll «3038 Klakksvik tll 55454 SkSlavlk ill 61231 Bryggjari tlf 1 Svarar aiti
Tvaroyri Ul 71025 & SIOAN 1888 arbaiðalið Umboð 1 Vági Tll 7: iSandi Tll 6 i Sandavkgi Tll 3
kki orð
lalgirs
winaHa blað.
rður ein sv limunum
ndirgmodarnevndini
ilgir Winther Poul-
í andurgivin tyri at
va sagt. at lagtinga-
ntyktin um undir-
nd og havbotn Utki
mdin helat ikki kann
ast uttan broyt-
heimaatýríslóg-
Vit toaaðu við llalgir
i viidi ikki úttala
um arheiðið hjá
dirgnindarnev ndin i
gnamtyktunum um
dirgrundina, aum
n ikki roknaði við
verða rndurgivin
Vit hava tivrrrí mia-
ilt okkurt av tl, aum
Igir aegði, og av
agivum hava vit
[t honum orð i munn-
Við heaum verður
■annað. at llalgir
Poulaen hevur aagt.
undirgrundin hrlat
i kann yvirtakaat
an broytingar I
maatýrialógini. og
lagtmgaaamtyklin
yvirtaku av undir-
ind og havbotni er
aamavarí við
POLITISKT MAKTSTRÍÐ
TJÓÐVELDISFLOKKINUI
— skrivar donaka blaðið Informatión um striðið í Norður-
landnhúainum.
Eriandur Patursson avsannar at tað skal vara maktstrið í
Tjóðvaldisflokkinum, eins og hann undrast é, at flokkurin
yvirhevur varöur settur í samband viö ósamjuna i Noröur-
landahúsinum. Hon ber á ongan hátt brá av at vera av floks-
politiskum slag.
Finnbogi Isaksen, ið verður nevndur sum annar mótpart-
urin i Tjóðveldisflokkinum, vil ikki úttala seg til blaðið.
Málíð um ósemjuna i
Norðurlandahúsinum I
fleirí av teimum norður-
lendsku bleðunum. M.o.
skrívaði norska vikublaðið
• Dag og Tid- um ósemj-
una fyri einum mánaði
siðan. og seinasta mána-
dag hevði danska dag-
blaðið Informatión eina
fnformatión skri
tann burturvlsta
ingin Hjort Pálss
um skrívingina i fi
rtil
0R- -vág
)YA >
yum - farmunn
Nú er tað ■avgjert í sjónvarþinum:
Senda landsdystin
Danmark-Sovjett
frá einum satelitti sum
iirst úr Feroyum við
parabolantennu, men
msiningin hjá xjónvarp-
danaka frásegumannin til
myndimar. istaðm fyrí
Ein roynd
Jógvan Asbjorn sigur. ai
sjónvarpið hevur ikki
- Harer tiverri ik
sum kann geva okkui
nágreiniligt svar
nakað sum helst.
Hann hevur ti n
seg við Danmarks h
sum hevur maelt hom
at senda dyslin. t
Hjörtur Pðlsson, fyrrverandi for-
stjóri Noröurlandahússins i
Færeyjum og só sem um er deilt.
Færeysku blöðin hafa mikið
fjallað um striðið í Norðurlanda-
húsinu ó undanförnum món-
uðum. Hór er það forsiða
Föroyskt Tjóöveldi sem leggur
forsiðuna undir mólið 5. júnf
síðastliðinn.
Texti: Eðvarð
Jónsson, fréttaritari
DV íFæreyjum
reiknaðir af brennivíni byggingar-
stjóranna. Það er dæmigert fyrir allt
málið að ekki er vitað hvort tollamir
eru byggðir á einhverjum sérstökum
reikningum eða hvort þeir eru fram-
reiknaöir frá einhverri ákveöinni
upphæð.
Þegar færeysku blöðin,14. sept-
ember og Sosialurin, byrjuðu að
kanna þetta mál kom í íjós að þær 61
millj. kr. sem Cold nefnir í skýrslu
sinni sem endanlegan kostnaö, eru í
rauninni aðeins kostnaöurinn viö
húsið síöan byggingarframkvæmdir
hófust 1980. Sjálf undirbúnings-
vinnan var hafin sjö árum áöur og
bæöi Steen Cold og Jan Stiernstedt
ferðuöust víöa um lönd til aö skoöa
líkön af húsum o.þ.h., en kostnaðurinn
viö þessa undirbúningsvinnu kemur
hvergi fram. Hann er ekki reiknaður
ineö í endanlegu veröi hússins.
Hvorki norræna ráðherranefndin,
færeyska landsstjórnin né
byggingarnefnd danska mennta-
málaráðuneytisins hafa getaö staö-
fest aö tölur Steen Colds séu réttar.
Arkitektinn, Ola Steen, hefur mót-
mælt skýrslunni og segir að ekkert
uppgjör sé endanlegt nema hann
skrifi undir þaö og hann hafi ekki
skrifaö undir neitt uppgjör ennþá.
Spumingunni um hvert vextimir af
þeim fjárhæöum sem Norðurlanda-
húsiö hefur fengiö til umráöa undan-
farin ár hafa farið er einnig ósvaraö.
Edelings þáttur
Eins og fyrr var nefnt stóðu um
langt skeiö tveir stórir gámar viö
Norðurlandahúsiö. Annar var fullur
af áfengi byggingarstjóranna, í
hinum var gömul tékknesk grafík-
pressa. Danski listamaöurinn Ivan
Edeling útvegaði Norðurlandahús-
inu þessa pressu sem sjónarvottar
hafa lýst sem „aflóga garmi”.
Edeling var ráðinn umsjónarmaöur
grafíska verkstæðisins í Norður-
landahúsinu í tið Steen Colds. Vitaö
er aö Edeling seldi sína eigin pressu
og keypti sér nýja en hvort gamli
garmurinn í Noröurlandahúsinu er
upprunninn úr verkstæöi Edelings í
Kaupmannahöfn er ennþá óupplýst.
öllum spumingum þar aö lútandi
hefur veriö svaraö meö þögn.
Hneykslið í Norðurlandahúsinu
hefur haft pólitískar afleiöingar i
Færeyjum. Málgagn Þjóöveldis-
flokksins, 14. september, hefur
haldið uppi hörðustu gagnrýni á
stjórn hússins og jafnframt stutt
málstað Hjartar Pálssonar. Svo vill
til að „krónprinsinn” í Þjóðveldis-
flokknum, sá maöur sem líklegastur
hefur veriö talinn til aö taka við af
Erlendi Paturssyni, er giftur Ásu
Justiniussen. Maöur þessi, Finnbogi
Isaksen, er jafnframt dagskrárstjóri
færeyska sjónvarpsins. Finnbogi
réöst harkalega gegn sínum eigin
flokki og gegn Hirti Pálssyni í blaöa-
grein nýlega og einnig er talið aö
hann hafi staðið gegn því að
færeyska sjónvarpiö skýröi frá gangi
mála í Noröurlandahúsinu.
Norræna ráðherranefndin hefur
þegar vísað því frá sér að fjalla um
vandamál Norðurlandahússins.
Menningarmálanefnd Norðurlanda-
ráös hefur hinsvegar, fyrir þrábeiöni
Erlendar Paturssonar, í hyggju að
fara fram á skýrslu um máiið.
Listamenn í Færeyjum héldu hóf
til heiðurs Hirti og konu hans
skömmu áöur en þau fóru aftur til ls-
lands og leystu þau út með veglegum
gjöfum. Margir þeirra hafa lýst því
yfir aö á því hálfa ári sem Hjörtur
starfaði viö Norðurlandahúsiö hafi
hann áunniö sér traust og velvild
allra færeyskra listamanna og sé það
nokkuð sem hvorki Steen Cold né Ásu
Justiniussen hafi tekist. Mjög hæfur
starfskraftur hefur verið flæmdur úr
lykilstarfi í norrænu menningarlífi,
segja listamennirnir, en um leið
hefur norrænt samstarf sett niður í
augum Færeyinga og allra þeirra
sem láta sig slíkt samstarf einhverju
varða.