Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Síða 10
10 DV. LAUGARDAGUR15. JUNI1985. Alþjóðamótið \Vestmannaeyjum: Duttlungar Lombardys settu svartan blett á mótið Skák Alþjóðamótiö í Vestmannaeyjum verður lengi i minnum haft. Sjaldan hefur ríkt annaö eins upplausnar- ástand á nokkru skákmóti og er Lombardy lét sig hverfa og gerð var dauöaleit að honum um alla eyju. Hann var löngu fallinn á tíma á móti Jóhanni Hjartarsyni þegar hann fannst, sitjandi í makindum sínum á setustofunni á Hótel Gestgjafanum og hripaði niöur mótmælabréf. Hann var argur út í skákstjóra mótsins, kvaðst hafa verið beittur órétti og lýsti því yfir að hann væri hættur þátttöku í mótinu. Síöar um kvöldiö mætti hann ekkí í biöskák sína á móti Ingvari As- mundssyni, sem að vísu var töpuð, en er líða tók á nóttina var komiö annað hljóð í strokkinn. Jóhanni Þóri tókst með löngu símtali aö telja hann á að halda áfram taflmennsk- unni. Daginn eftir var hann aftur mættur til leiks og tefldi síðan þær skákir sem eftir voru. Framkoma hans þótti til skammar fyrir svo æru- verðugan prest og þetta hafði slæm áhrif á keppnisandann. I Safnahús- inu var eins og allt dytti í dúnabgn og friösemdarjafnteflum fjölgaöi til muna, þar til í síöustu umferðunum. Deilurnar vöknuðu í skák Lomb- ardys við Ingvar. Klerki fannst Karl Þorsteins standa of nálægt borðinu og rak hann burt með látum. Þetta gerðist tvívegis og í bæði skiptin átti Ingvar leik. Nærvera Karls heföi miklu fremur átt aö trufla hann en það er alkunna að sá sem á lakari stöðu er næmari. Lombardy barðist nefnilega fyrir lífi sínu, tókst reynd- ar að klóra í bakkann rétt áöur en skákin fór í bið en átti þó erfitt upp- dráttar. Drottning hans og þrj . peð máttu sín lítils gegn riddara, hrók og fimm peöum Ingvars. Peö Lombard- ys féllu eitt af öðru en Ingvar var hins vegar ekkert að flýta sér og lét prestinn þjást eins lengi og hægt var. Eftir 104 leiki var mælirinn fullur og Lombardy hætti í mótinu til bráöa- birgöa. Lein varö efstur eins og meðfylgj- andi tafla sýnir, hlaut 9 1/2 v. Tryggði sér sigurinn að eigin sögn með því að tapa fyrir Short í síðustu umferð. Það var einkennilegt að horfa á sigurvegarann gefa síðustu skák mótsins. Annars tefldi Lein vel og var vel að sigrinum kominn. Hann taldi skákina við Plaskett úr 1. um- ferð vera sína bestu. Helgi tefldi af gifurlegu öryggi og hefði náð Lein ef B jörn Ivar Karlsson hefði ekki þvælst fyrir honum í síð- ustu umferðinni og náð jafntefli. Sumum áhorfendum fannst Helgi samt ekki nógu grimmur — gerði ein sex jafntefli sem vart náðu tíu leikj- um en einbeitti sér að því að vinna „minni spámennina”. Jóhann Hjartarson var ófarsæll framan af og Lombardy sló hann endanlega út af laginu. Þar sem hann hreyfði ekki peð í skákinni fékk hann bókað núll en skákin telst hins vegar ekki meö við útreikning titil- áfanga. Hreinn stórmeistaraáfangi var því úr sögunni og Jóhann kærði sig ekki um að hafa óhreint mjöl í pokanum. Ef fram heldur sem horfir kemst Guömundur í flokk hinna ósigrandi ásamt Capablanca og Knezevic. Þetta var þriðja mótið í röð sem hann tekur þátt í og tapar ekki skák. Samtals 35 skákir án taps og geri aörir betur. Þó var langt frá að tafl- mennskan væri litlaus. Engu var lík- ara á stundum en allt kom fyrir ekki. Einhvem veginn leystust flækjumar upp í jafntefli. Sá er þetta ritar var lengi að kom- ast í gang, tapaði í 2. og 3. umferö á klaufalegan hátt. Karl átti skák mótsins í næstsíöustu umferð. Vann hann Lombardy snoturlega eftir tímahraksdans og taugastríð. Þeir tókust ekki í hendur fyrir skákina og er mát blasti við kvittaði Lombardy á pappírana og var farinn næst er Karl kom að borðinu. Bragi fékk oft góöar stöður sem honum tókst ekki að nýta sér og Ingvar tefldi betur eftir því sem leið á mótið, var búinn að snúa á Short í erfiðu riddaraendatafli en lék af sér og var hrikalega óheppinn gegn Plaskett. Er hann féll á tíma í væn- legri stöðu taldi hann sig hafa náö leikjunum en varð það á að rita einn leikinn tvisvar og skákin var töpuð. Bjöm skorti greinilega keppnis- reynslu á svo sterku móti. Hann er með um 40 bréfskákir í gangi og býr yfir góðri byrjanaþekkingu sem oft kom að góðu gagni. Hann fékk ekki teljandi lakara eftir fyrstu leikina nema gegn Lein er hann beið of lengi með að ná peði aftur sem hann hafði fómað. Enski alþjóðameistarinn Jim Plaskett tapaði sjö fyrstu skákunum og var greinilega í miklu óstuði. Við skulum líta á skák hans við Braga, sem er gott dæmi um sambandsleysi hans á mótinu. Bragi drepur riddara en í staö þess að drepa aftur freistar Englendingurinn þess að skjóta inn sóknarleik en yfirsést svarleikur mótherjans. Hvítt: Jim Plaskett Svart: Bragl Kristjánsson Frönskvörn. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rc6 4. Rgf3 Rf65. e5 Rfd7 6. Bd3 Þetta er lakara en 6. Bb5, 6. Be2, eða 6. Rb3 sem er algengasta framhaldið. 6. —Rb4 7. Be2 c5 8. c3 Rc6 9.0—0 Be7 10. Bd3 Db611. HelO-O Vel kemur til greina að hirða peðið með 11. —cxd4 12. cxd4 Rxd4 13. Rxd4 Dxd4, þó svo hvítur hafi viss færi eftir 14. Rf3. Sú staða hefði verið Englendingnum að skapi, sem er hvergi banginn þrátt fyrir fáa vinninga. Bragi fer „öruggu leiðina”. 12. dxc5 Rxc5 13. Bc2 f614. exf6 Bxf6 15. Rfl Dd816. Be3 b617. Dd2 He818. Hadl Bb 7 19. Rg3 Re5?! 20. Rxe5 Bxe5 21. De2 Hótar 22. Dh5 og 22. Bxh7 og 22. Bxc5 er einnig á döfinni. Svartur hefur fengið lakari stöðu. 21. — Bxg3 Nú er sjálfsagt að leika 22. hxg3 og hvíta taflið er betra. Plaskett átti 25 mínútur eftir af umhugsunar- tímanum, notaði 20 minútur á næsta leik, sem reyndist herfilegur afleikur. 22. Dh5?? abcdefgh Jón L. Ámason 22. — Dh4! Svartur svarar í sömu mynt og nú kemst hvítur ekki hjá mannstapi. Plaskett sást augljóslega yfir þennan leik og nú stendur hann uppi með tapaða stööu. 23. Bxh7+ Kh8 24. Bg6+ Dxh5 Fleiri er einn keppandi sem fylgdist með skákinni stakk upp á millileiknum 24. —Bxh2+ en Short benti á að svarti kóngurinn stendur í skák. 25. Bxh5 Bc7 26. Bxe8 Hxe8 27. c4 Re4 Með tvo menn fyrir hrók er vinningurinn einungis tæknilegt atriði. 28. f3 Rf6 29. Bg5 Bd6 30. Bxf6 gxf6 31. cxd5 Bc5+ 32. Khl e5! 33. d6 Hd8 34. d7 Kg7 35. h4 Kf7 36. He2 Bd4 37. f4 Hh8 38. Kh2 Hxh4+ 39. Kg3 Hh8 40. fxe5 fxe5 41. Hc2 Hd8 42. Hc7 Bd5 43. Hxa7 Ke6 44. b3 Hg8+ 45. Kh2 Hxg2+ 46. Kh3 Hg8 47. Hcl Hd8 48. Kg4 Kd6 49. Hdl Be6+ 50. Kf3 Bxd7 51. Hxd4+ exd4 52. Ke4 Kc5 53. Hc7+ Bc6+ — Og hvítur gafst upp. JLÁ. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 I4 3oint. 1. lAnatoli Lein X Vt 1 o •k •4 '4. 'k A 1 A A 1 1 °l'k 2. Helgi Ólafsson !4 X 'k 'k 'k 'k •k 'k 1 1 1 1 1 'k 3. Jóhann Hjartarson 0 '/i X 'k •k 'k 1 r •k 1 1 'k 1 1 4. Nigel Short A 'L '4 X o 'k 1 'k 'k o 1 1 1 1 Sí 5. Jón L. Árnason •k '4 'k 1 X 'k o 'k A 1 1 1 o 'k s 6. Guömundur Sigurjónsson 'k 'L 'k Vz 'k X A 'k •k •k 'k A 'k 1 t 7. Karl Þorsteins 'll 'k o 0 A O X 1 0 1 1 'k A 1 l'k 8. William Lombardy 'k ‘4 o Vi 'h 'k O X 'h 1 o 1 1 1 % 9. Jonathan Tisdall o o 'k •k O 'k 1 'k X ' 1 'k 'k •4 1 C'k 10. Jim Plaskett 0 o o 1 O Vz o 0 O X 1 0 1 1 Vi 11. Ingvar Ásmundsson 0 0 o o o Vz o 1 'k o X 'k 1 ií h 12. Bragi Kristjánsson 0 o 'U o 0 o •k o 'k 1 'k X 'k 'k h 13. Ásgeir Þ. Árnason o o o o 1 •k 0 o 'k o o 'k X 1 l'k 14. Björn Karlsson o •i 0 o ‘k o 0 o o o 'k 'k O X Hugmyndaríkt höfuð á ungum öxlum Tíunda Fríverslunarbandalagsmótið var haldið fyrir stuttu í Bordeaux. B-sveit Frakka, sem skipuð var eft- irtöldum spilurum, sigraði: Mouiel— Sussel—Levy — Abecassis—Crozet — De rousseaux. Christian Desrousseaux er sonur kunns bridgemeistara sem spilaöi í landsliði Frakka um árabil. I leiknum við England sýndi júniorinn að hann er síst eftirbátur föður síns í bridgespil- inu. Frakkar unnu leikinn 25—5 og eft- irfarandi spil átti talsverðan þátt í þvi. Allir á hættu/norður gefur: Vf.sti h Nokduh A AG53 v ADG •> G4 + AK65 Ausnm A 104 * 8 i? 10843 9765 O 93 > KD765 + D9872 * 1043 Sl'DIJH * KD9762 K2 O A1082 + G 1 opna salnum sögöu Englendingam- ir Smolski og Stanley sex spaöa á n-s spilin sem þeir unnu auðveldlega. Slemman virðist auðveld í sögnum og úrspili og allar likur voru á því að spil- ið félli. En margt fer öðruvísi en ætlað er. I lokaða salnum hófust sagnir með einu laufi í norður, F. Crozet. Austur strögglaöi á einum tígli og síðan klifr- aði suöur, Christian Desrousseaux, alla leið upp í s jö spaða. Vestur spilaði út tígulníu, fjarkinn, drottning og ás. Utlitið var allt annað Bridge Stefán Guðjohnsen en glæsilegt fyrir sagnhafa en þrátt fýrir æsku sína — hann er aðeins 19 ára — hefur hann töluveröa reynslu. Hann var fljótur aö átta sig á stöðunni og spilaði strax laufgosa meö þeim ásetn- ingi að svína honum. Vestur lagöi hins vegar á og ekki batnaði ástandið við það. Nú var ekkert eftir nema nota hugmyndaflugið. Eftir að hafa tekiö tvisvar tromp spilaði suður þrisvar hjarta og kastaði tígultíu. Síðan tók hann trompin án þess að skeyta um þaö aö engin innkoma var eftir til þess að taka á laufás. Þegar síðasta trompinu var spilað varstaðanþessi: Vl.STl K NORIIUK ♦ — — O G * Á6 Austuk A - A — V — 'v’ — 0 3 O K + 98 + 104 ■Sl'KDII + 2 _ O 82 * - Tígulgosa var kastað út úr blindum og draumar suðurs rættust þegar aust- ur kastaði tígulkóngi og suður átti tvo síöustu slagina á 8 og 2 í tígli. Sannarlega hugmyndaríkt höfuð á ungum öxlum. Mikill spilaáhugi í Reykjavík Þátttaka í sumarbridge í Reykjavík hefur verið með eindæmum góð, það sem af er. Fyrstu 3 kvöldin í sumar- bridge í Borgartúni 18 hafa samtals 170 pör spilað. Það gerir að meðaltali 57 pör á kvöldi. Hjá Skagfirðingum hafa 86 pör spilað á sama tima þannig aö vikulega hafa rúmlega 85 pör spilað. Er upp verður staöið í lok sumars munu tæplega 1.500 pör hafa tekið þátt í sumarkeppni í Reykjavík ef þátttaka verður svipuð út sumarið. Það er um 3.000 manns. Annars staðar á Norðurlöndunum hafa einnig verið í gangi sumarkeppn- ir, en þátttaka þar er hvergi nærri eins mikil og hér í Reykjavík. Hver skyldi vera ástæðan fyrir því? Af hverju eru aðeins um 60 pör að spila vikulega í Osló yfir sumartímann? Og svipuð tala í Kaupmannahöfn? Minni þátttaka er í Finnlandi en um Svíþjóð veit umsjón- armaður ekki. Trúlega er þátttakan þar þónokkur yfir sumartímann enda Svíar mikil spilaþjóö og vel skipu- lagðir. I framhaldi af þessari spílamennsku hafa komið upp hugmyndir hjá nokkr- um mönnum í Reykjavík hvort ekki sé tímabært að huga aö spilamennsku allt áriö í þvi f ormi sem nú er. Aö spila eins kvölds keppni þar sem enginn er bund- inn af einhverjum félagsskap eða öör- um þeim langtímaáætlunum sem i gildi eru hjá öllum félögum. Og um- s jónarmaöur spyr sig, hví ekki? Slikum spilaáhuga verður aö mæta á heimavelli og gera eitthvað fyrir. Því málið er þaö aö stór hluti þess fólks sem sækir sumarspilamennsku er ekki kenndur við neitt félag umfram annað. Þaö hefur einungis gaman af að grípa í spil þegar því hentar. Hvemig væri að athuga málið fyrir næsta haust? Frá sumarbridge Skagfirðinga Góð þátttaka er hjá Skagfirðingum í sumarbridge. Sl. þriðjudag mættu 32 pör til leiks og var spilað í 2x16 para riðlum. Urslit urðu þessi (efstu pör): A) stie L Sigrún Pfctursd.—Rísa Þorstcinsd. 267 2. BakhirÁniasoii—HaukurSigurjónss. 236 3. Magnús 232 4^-6. Ingóllur Lillcndahl—Jön Björnss. 231 4. -6. Lárus Hermannss.—Þérarinn Arnas. 231 B) Stíg 1. Anton R. Gunnarsson—Guðmundur Auó- unss. 271 1. Anton R. Gunnarss.—Guómundur Auóunss. 271 2. MagnúsTorfas.—Guómundur Auóunss. 264 3. ErlaSigurjónsd—DröfnGuömundsd. 247 4. Högni Torfason—ÖskarKristjánsson 246 Meðalskor í báðum riðlum var 210 stig. Spilað verður á þriðjudögum í Drangey v/Síðumúla í allt sumar. Spilamennska hefst kl. 19.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.