Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Side 14
14 DV. LAUGARDAGUR15. JUNI1985. ÚTBOÐ Vegagerð ríkisins óskar eftir til- boðum í Krýsuvíkurveg — Bláfjallaveg: Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykja- vík (aðalgjaldkera) frá og með 20. júní 1985. Vegamálastjóri. KENNARAR Eftirtaldar stöður eru lausar í Hveragerði. Við grunnskólann: Staða smíðakennara og staða myndmennta- kennara. Við gagnfræðaskólann: Tvær stöður. Kennslugreinar: stærðfræði, eðlis- fræði, samfélagsfræði og íslenska. Við barnaskólann: Tvær stöður í almennri kennslu. Upplýsingar veita: Skólastjóri gagnfræðaskólans í síma 99-2131 eða 4232, skólastjóri barnaskólans í síma 99- 4326 og formaður skólanefndar í síma 99-4430. Skólanefndin. HAGvfMTf VERÐ! j Viðskiptavinir Heklu! Við bendum á hagstætt verð á dempurum. Komið og gerið góð kaup. Demparar í: Verðkr.: (Solffr. .............. ... 1.390 Jetta fr. ... 1.390 Pajero fr. ... 1.250 Itfr'm .............. ... 1.550 Galantfr. ... 1.550 Galant aft. ... 990 Range Rover ... 1.220 VIÐURKENND VARA f E I ivitu nu i nuu ' ' SAMA VERÐ UM LAND ALLT I MITStJ&tSHI RAMGE ROVER m HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240 Og allir tóku und- irmeðTheBOSS — DV meöal 60 þúsund áhorfenda á tónleikum Bruce Springsteen íGautaborg Frá Glssurl Pálssyni, fréttaritara DV í Gautaborg: Rúmlega 60 þúsund manns troðfylltu Ullevileikvanginn öðru sinni nú um helgina er ameríska rokkgoðið Bruce Springsteen sótti Svía heim í Gauta- borg. Hann sigraði Ullevi. Hann lagði alla að f ótum sér og breytti leikvangin- um í stærsta dansgólf í heimi. Með ótrúlegri sviðsframkomu dró hann alla með sér í sönginn og rokkið. Það var stórkostleg upplifun að heyra 60 þúsund manns syngja einum rómi með „The Boss” sem f orsöngvara. Um leið og fyrsta lagið „Born in the U.S.A.” byrjaði að hljóma fékk maður þá tilfinningu að maður væri að fara að upplifa eitthvað stórkostlegt. Hvert gullkornið á fætur öðru: „The River”, „Dancing in the dark”, „Cover me” flaut af vörum meistarans og þetta var bara upphafið. Hann spilaði öll þau lög sem maður átti von á og mikið meira. Leikvangur- inn gekk í bylgjum og hefur skjálftinn örugglega mælst hátt á Richterskalan- um. Við innganginn var dreift textablöð- um sem innihéldu „Hungry heart” og „Dancing in the dark”. Hver einasta læs sála tók undir með „The Boss”, „Everybody’s got a hungry heart” og „You can’t start a fire without a spark”. Aldrei áður hefur ríkt þvílík stemmning á hljómleikum. Haft var eftir einum gestanna: „Þetta var eins og að vera á Stones, Bowie og Dylan-hljóm- leikum, öllum samtímis, Hver hljóm- ur, hvert hljóö var eins og dælt beint í æð.” Stórkostlegast af öllu var lokalagið „Twist and shout”, þá þurfti maöur ekki að dansa lengur, leikvangurinn dansaði undir fótum manns. Það síöasta sem foringinn sagði áöur en hann hvarf: „Eg er fangi, fangi rokksins”. EftirhljómleikanasagðiBruce: „Eg er mjög ánægður með þessa hljóm- leika. I kvöld spilaði ég af nautn. Eg og hljómsveitin gáfum aUt sem við áttum i kvöld, við getum ekki betur.” Hann leit mjög þreytulega út eftir þessa tæplega fjóra tíma. „I byrjun hljómleikaferðalagsins spiluðum við ennþá lengur, rúmlega f jóra og hálfan tíma,” sagði Bruce. ,Jín til þess aö geta spilað á útopnu aUan timann, urð- um við að stytta hljómleikana þegar þeimfór aðfjölga.” UUevi leikvangurinn skUaði hlut- verki sínu vel, þó að hann hafi upphaf- lega verið hannaður sem íþróttaleik- vangur. Tveir risavaxnir videoskermar voru við sviðið og sýndu stöðugt það sem var að gerast á sviðinu. Hætt er við að ef þeirra hefði ekki notið við þá hefðu þessir hljómleikar ekki heppnast eins vel og raun varð á. Mikið var um að vera í Gautaborg þessa helgi og voru götusalar á hverju horni að selja minjagripi um þessa hljómleika. Þar kenndi ýmissa grasa: treflar, ennis- bönd og T-boUr merktir „The Boss” í bak og fyrir. Þrátt fyrir að reynt hafi veriö að koma í veg fyrir svartamarkaðsbrask, með því að selja síðustu 1000 miðana sama dag og hljómleikamir fóru fram, var það ekki hægt. Miðaverð var um 500 ísl. krónur og fór í um 2000 krónur fyrir utan leikvanginn. Þeir sem ekki náðu sér í miða með nokkru móti reyndu að klífa veggi leikvangs- ins. Reyndist það með öUu ógerlegt og einn hinna kUfurglöðu hrapaði niður á malbikiö og stórslasaðist. Mörg þúsund Springsteen-aðdáendur máttu því standa úti fyrir leikvanginum þó að þeir hefðu ferðast langar leiðir til að. komast á hljómleikana. GP/Gautaborg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.