Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Síða 18
18
DV. LAUGARDAGUR15. JtJNl 1985.
fLausar stöður hjá
Rey kja víkurborg
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Matreiðslumeistara — forstöðumann mötu-
neytis. Um er að ræða 100% starf. Vinnutími er
frá kl. 8—16. Óskað er eftir starfsmanni með
meistararéttindi eða sambærilega menntun.
Starfsstúlku í mötuneyti, 75% starf. Um fram-
tiðarstarf er að ræða.
Starfsstúlku á dagdeild þjónustuíbúða frá 1.
sept., 100% starf. Vinnutímifrá kl. 8—16.
Upplýsingar um stöður þessar veitir skrifstofa
þjónustuíbúða frá kl. 9 til 13 daglega í síma
685377.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn
26. júní 1985.
iG'TÆTT
VERB !
Viðskiptavinir Heklu.
Við bendum á hagstætt
verð á stýrisendum
og spindilkúlum.
Komið og gerið góð kaup.
Stýrisendar í: Verð kr.:
Golf —► ’84 ............580
Jetta —> ’84 ...........580
RangeRover..............690 *
Land Rover..............295
Allegro ................195
Mini ...................195
Spindilkúlur í: Verðkr.:
VW 1200,1300 ...........460
VW Fastback ............330
VW Transporter ’80 .. 880
VHDURKENND VARA
MEÐ ÁBYRGÐ
SAMA VERÐ
UM LAND ALLT!
Fallhlífarstökkvari kemur niður með fána A-Þýskalands á Laugardalsvellinum.
Óstöðvandi munn
ræpa á HM-leik
— setti Ijótan blett á landsleik íslands og Spánar
Það vakti mikla athygli á Laugar -
dalsvellmum, i landsleik Islendinga
og Spánverja, að leikmenn íslenska
liðsins hreinlega gáfust upp eftir að
þeir voru búnir að skora fyrsta mark
leiksins, 1—0. Leikmenn íslenska
liðsins drógu sig þá aftur í vörn —
gáfu eftir miðjuna þannig að Spán-
verjar tóku öll völdin í leiknum.
Sókn er besta vörnin, er oft sagt.
Það 2r þvi furðulegt að leikmenn ís-
lenska liðsins skuli hafa dregið sig til
baka og enn furöulegri var sú liðs-
uppstilling sem Tony Knapp lands-
liðsþjálfari tefldi fram. Janus Guð-
laugsson var látinn leika stööu bak-
varðar og Sigurður Grétarsson í
stöðu miðvallarspilara en það hefur
ekki verið hans sterkasta hliö. Sig-
urður leikur ávallt sem fremsti mað-
ur — hefur ekki yf ir að ráða þeirri út-
sjónarsemi sem góöur miövallarspil-
ariþarf aðhafa.
Af þeim fjórum miðvallarspilurum
sem hóf u leikinn var aðeins einn leik-
maður sem gat unnið boltann fiá
Spánverjum. Það var Omar Torfa-
son. En hann náði sér þó aldrei á
strik — saknaði greinilega kraftmik-
illa leikmanna viö hliðina á sér.
Innáskiptingar Knapp vöktu at-
hygli þvi aö hann áttaði sig ekki á aö
margir leikmenn voru hreinlega
búnir með krafta sína. Þeir voru ekki
teknir út af. Gunnar Gíslason,
óþreyttur maðurinn, var látinn inn á
— og þá í stöðu bakvarðar — og Guð-
mundur Steinsson, sem er okkar
hættulegasti sóknarleikmaður, kom
inn á völlinn of seint. Þegar hann
loksins kom inn á gerði hann mikinn
usla í vöm Spánverja.
Ánægðir með tapið
Ég var ekki ánægður með hvemig
leikurinn þróaðist, eins og svo marg-
ir. Þess vegna kom það á óvart að
nokkrir voru ánægðir með leikinn.
Bent var á að Island hefði aðeins tap-
að með eins marks mun fyrir Wales,
Skotlandi og Spáni — og engin
skömm væri að tapa gegn atvinnu-
mönnum. Það er hreint furðulegt að
menn séu ánægðir með tapleiki.
Knattspyman byggist upp á því að
skora mörk og sigra. Olympíuhug-
sjónin, að vera með, þekkist ekki í
knattspyrnu og er það vel.
Góð aðsókn
Það er greinilegt að áhuginn er
mikOl fyrir landsliði Islands. Þaö
sást best á landsleikjunum gegn
Skotum og Spánverjum. Nær 27 þús.
áhorfendur komu til aö sjá þessa
leiki. Þeir hefðu orðiö fleiri ef Ásgeir
íþróttir í
vikulokin
SigmundurÓ.
Steinarsson
Sigurvinsson og Arnór Guðjohnsen
hefðu leikið með.
Já, vel á minnst. Menn mega ekki
gleyma því að íslenska landsliðið var
ekki skipað mörgum af okkar bestu
leikmönnum. Asgeir, Pétur Péturs-
son, Arnór og Sigurður Jónsson léku
ekki með. Fjarvera þessara manna
veikti að sjálfsögöu landsliðið. Is-
lendingar eiga að geta átt gott lands-
liö þegar allir leikmenn okkar em
heilir.
„Sjároðanní
austri”
Leikurinn gat ekki hafist á réttum
tíma og mátti sjá óhressa spánska
sjónvarps- og útvarpsþuli. Sjónvarp-
að var beint til Spánar. Hver var
ástæðan fyrir 9. mín. töf á leiknum?
Jú, það var beðið eftir fallhlífar-
stökkvurum sem áttu að koma meö
knöttinn sem leikið var með. Sex fall-
hlífarstökkvarar komu svífandi inn á
völlinn. Hefði ekki verið réttara að
láta þá stökkva löngu fyrir leik.
Loksins þegar þeir komu komu
fram ljót mistök. Einn stökkvarinn
kom niður með fána A-Þýskalands
en ekki Spánar. Það vantaði aöeins
að leikið væri, JSjá roðann í austri” á
orgelið í sendiferðabílnum.
Hermann — ð eftir að lýsa aftur.
Östöðvandi
munnræpa
Það sem setti ljótan blett á leikinn
var þulur nokkur sem var með
óstöðvandi munnræpu í hátalara-
kerfi vallarins nær allan leikinn. Það
er hreint furðulegt að menn komist
upp meö það að vera að reyta af sér
fimmaurabrandara í miðjum HM-
leik. Þaö er óþolandi að maöur sé lát-
inn blaðra í hátalarakerfi þegar
áhorfendur eru spenntir að horfa á
landsleiki. Já, það er vægast sagt
furðulegt að maður geti tröllriðið
hátalarakerfinu — verið með glósur
á leikmenn sem eru að leika fyrir
hönd Islands. Lágkúran var þama í
hámarki og mér var hugsaö til
spönsku þjóðarinnar sem sat fyrir
framan sjónvarpstæki sín á Spáni og
einnig Islendinga sem horfðu á leik-
inn beint á Spánarströnd. Þeir fengu
að heyra óstöðvandi munnræpu
mannsins sem sat við hátalarakerfi
Laugardaisvallarins.
Hvar er gamla, góða
lúörasveitin?
Þá var það eitt sem áhorfendur
vom ekki ánægðir með í landsleikj-
unum gegn Spáni og Skotlandi — það
var hvemig farið var með þjóð-
söngvana. A landsleiknum gegn
Skotum söng kór þjóðsöngvana. Það
var allt í lagi, en gallinn var bara sá
að það vom aðeins örfáir sem heyrðu
sönginn. A landsleiknum gegn Spán-
verjum vora þjóðsöngvamir leiknir á
orgel inni í sendiferðabíl. Orgelleik-
urinn heyrðist vel en hrikalega voru
þjóðsöngvamir falskir — það var oft
eins og leikið væri með einum putta.
Hvar er gamla, góða lúðrasveitin
sem hefur sett svo skemmtilegan
svipálandsleiki?
Hermann fjarri
góðu gamni
Það voru 10 þús. áhorfendur sem
sáu landsleikinn en margir hlustuðu
á beina útvarpslýsingu frá honum.
Og þeir era margir sem sakna hressi-
leika Hermanns Gunnarssonar sem
gerði leiki lifandi og skemmtilega.
„Eg er hættur að hafa gaman af að
hlusta á lýsingar frá leikjum eftir að
Hermann hætti,”hafa margir sagt við
mig. Eg hef svarað þessum mönnum
að Hermann eigi eftir að koma aftur
og ylja útvarpshlustendum um
hjartaræturnar. Hermann verður
kominn í slaginn þegar frjálsu út-
varpsstöðvarnar byija að útvarpa
eftir næstu áramót.
-SOS