Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Síða 48
FRETTASKOTIÐ
(68) • (78) • (58)
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og rfreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 15. JUN11985.
Birgir ísleifur:
Áf ram landbún-
aðarvitleysa
— verði framleiðslu-
ráðslögin ekki
samþykkt
„Ef fnunvarpið verður ekki sam-
þykkt á þessu þingi heldur sama vit-
leysan áfram í landbúnaði. Afram
verða bullandi útflutningsbætur og
engin stjórn á einu eða neinu. Einnig
verður ekkert átak gert til að stuðla að
nýjum búgreinum eins og frumvarpið
gerir ráð fyrir. Þetta er meginástæðan
fyrir því að viö leggjum áherslu á að
frumvarpið verði samþykkt núna,”
sagði Birgir Isleifur Gunnarsson al-
þingismaður, aðspuröur um ástæðuna
fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn
leggur svo mikið kapp á að koma frum-
•A varpinu gegnum þingið fyrir þingslit.
Eins og kunnugt er hafa heyrst
óánægjuraddir frá bændum, neytend-
um og verslunarráöi, svo einhverjir
séu nefndir. „Ef þetta frumvarp dagar
uppi núna er ég hræddur um aö þaölíði
langur tími áður en nýtt frumvarp lítur
dagsinsljós.” -APH
Þjóðaratkvæði um bjór:
Kostar5millj.
~ Ef gengiö yrði til þjóöaratkvæða-
greiðslu um bjórinn mundi það kosta
þjóðina 5 milljónir samkvæmt útreikn-
ingum fjármálaráðuneytisins.
Bjórinn var eitt af viðfangsefnum
allsherjamefndar neðri deildar i fyrra-
kvöld. Nefndarmenn. sumir hverjir,
töldu nauðsynlegt að kynna hina nýju
stöðu málsins nánar i þingflokkum.
sínum. Einnig var óskað eftir kostnað-
aráætlun frá fjármálaráöuneytinu um
atkvæðagreiðslu um bjórinn sem hugs-
anlega getur orðið. Þá var ákveðið að
ræða bjórinn á þriðjudag og þá verður
hann væntanlega settur á dagskrá
neðri deildar. -APH
DV kemur næst út þriðjudaginn 18.
júní. Smáauglýsingadeild DV í Þver-
holti 11 er opin í dag, laugardag, kl. 9—
14 og á morgun, sunnudag, kl. 18—22.
Deildin er lokuð 17. júní. Siminn er
27022. Anægjulega þjóöhátið.
TALSTÖÐVARBÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 68-50-60.
D|BlLASrc
ÞRDSTUR
SÍÐUMÚLA 10
LOKI
Sjóararnir virða a.m.k.
kaffitimaákvæði samn-
inganna!
Kjaraviðræðurnar aftur í gang:
Stefnir í
skammtíma
?
QAmnmM *
aaniiiiiiga ■
Samningaviöræður hófust aftur í
gær. Klukkan fimm hófst fundur hjá
Vinnuveitendasambandi Islands
með formönnum allra landssamtaka
Alþýðusambandsins og forseta þess.
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambands Islands samþykkti
á fundi í gærdag aö óska eftir við-
ræðum við VSI. I ályktun VMI, sem
samþykkt var samhljóöa, var hvatt
til gerðar skammtimasamnings til
áramóta og að í þeim samningi yrði
lögð áhersla á að hindra kaup-
máttarhrap sem nú er, einnig að á
þessu tímabili yrði unnið aö sér-
stökum úrbótum fyrir fiskverkunar-
fóik.
Samkvæmt heimildum DV fór
fram umræða á sömu nótum um
skammtímasamning til áramóta, á
miðstjómarfundi ASI í fyrradag, þó
var ekki gerð formleg ályktun' þar.
Því virðist staðan vera sú að flest
landssamtökin séu horfin frá sér-
kjarasamningum og allt stefni í
skammtímasamninga til áramóta.
Að sögn Magnúsar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra VSI, rétt áður en
DV fór í prentun, var lítið hægt aö
segja umframgang viðræðnanna.ÞG
mmx
Harður fjögurra bfla árekstur varð á Stekkjarbakka f gær.
skemmdust töluvert, þar af einn bfll er hann fór á hliðina.
Engan f bflunum sakaði en ökutœkin fjögur
DV-mynd S.
ikaffi:
Stoppa sjómenn
gamautflutning?
„Við munum grípa til harðra ráð-
stafana og munum við einkum beina
augum okkar að gámaútflutningi á
ferskum fiski,” sagöi Guðmundur
Hallvarðsson, formaður Sjómanna-
félags Reykjavíkur, í samtali við
DV.
Deilur risu um borð í fiskiskipinu
Freyju RE-38 á fimmtudag þegar
senda átti skipið tU veiða. Þustu
verkfallsverðir um borð til að hefta
för skipsins. Ákvaö þá útgerðarmað-
urinn aö fresta för skipsins. Verk-
fallsverðir gættu skipsins vel fram
eftir degi í gær. Voru þeir um átta
talsins og höfðu ekki augun af skip-
inu. Svo var það um kaffileytið í gær
að þeir brugðu sér frá í kaffi. Á
meðan notuöu Freyju-menn tadcifær-
iðoghélduúttUveiða.
Sjómenn töldu Freyju-menn.vera
aö f remja verkf allsbrot þar sem þeir
ætluðu að taka með sér háseta,
skráðan sem kokk, en hannað er að
breyta skráningu skipverja í verk-
faUi. Og ef þeir færu án hásetans
væru yfirmenn að ganga í störf
undirmanna sem einnig er bannað i
verkfalli. Freyju-menn tóku síðari
kostinn þegar þeir héldu til veiða í
gær og settu hásetann í land.
„Við ætlum að koma saman um
helgina og ræða þessi mál,” sagði
Guðmundur. „Dtgerðarmaður
Freyju byggir sína atvinnu á því að
flytja út ferskan fisk i gámum. Við
munum gripa til ráðstafana á þeim
vettvangi.”
— Attu við að þiö hyggist stoppa
allan gámaútflutning eða ertu aðeins
að tala um útflutning útgerðarmanns
Freyju?
„Eg er að tala um allan gámaút-
flutning á ferskum fiski. Hvort viö
stoppum hann get ég ekki svarað á
þessari stundu.”
„Við teljum okkur fara að lögum.
Meira hef ég ekki að segja um
málið,” sagði Gunnar I. Hafsteins-
son, útgerðarmaðurFreyju.
-KÞ.
Stjórarnir á Selfossi:
Stríðinu
að Ijúka?
Líkur eru á að stjórastríðinu á Sel-
fossi ljúki með samkomulagi án upp-
sagnar bæjarstjóra eða veitustjóra
samkvæmt upplýsingum DV.
Eins og kunnugt er hefur meirihluta-
samstarfið þar í bæ verið í hættu vegna
þessa máls. Á fimmtudag hugðust
framsóknannenn leggja fram tillögu á
bæjarráðsfundi að veitustjóranum yrði
sagt upp svo bæjarstjórinn gæti starf-
að þar áfram. Tillagan var ekki lögð
fram þar sem meirihlutinn hafði gert
með sér eins konar samkomulag.
Samkomulag það felst í því að meiri-
hlutinn, það er að segja sjálfstæðis-
menn og framsóknarmenn, hyggst
ganga í þaö í sameiningu að koma öllu
bókhaldi bæjarins undir einn hatt, eins
og bæjarstjórnin hefur löngum viljað.
Veitustjórinn hefur hins vegar verið
andvígur því af einhverjum ástæðum.
Þá mun vera komin formleg beiöni frá
meirihlutanum til bæjarstjórans um
að hann dragi uppsögn sína til baka.
Bæjarstjórinn staðfesti það í samtali
við DV. Hann mun hafa beðið um nokk-
urra daga frest til að hugsa máliö.
Fékk hann frest þar til á þriðjudag, en
þá kemur meirihluti bæjarstjórnar
saman til skrafs og ráðageröa. -KÞ
Útvarps-
stöðvar í
startholum
A fyrirtækjaskrá Hagstofunnar hafa
nokkrir aðilar látið skrásetja nafn á út-
varpsstöðvum. Þar á meðal er Otvarp
Reykjavík, Otvarp Keflavík og Otvarp
Vestmannaeyjar. Fréttaútvarpið var
skráð á síðasta ári en nýlega var Kap-
alsjónvarp hf. skrásett, en það á lög-
heimili í Húsi verslunarinnar i Kringl-
unni. Fjölmargir virðast hyggja á út-
varpsrekstur, hér eru aðeins nokkrir
nefndir. Isienska útvarpsfélagið er í
startholunum.
„Við munum opna útvarpsstöö
klukkan tólf á miðnætti 1. janúar ef allt
gengur upp,” sagði Magnús Axelsson,
forvígismaður þess félags.
Nýju útvarpslögin taka gildi 1. janú-
ar 1986. En þá fyrst verður kjörin út-
varpsréttarnefnd sem leyfin veitir.
Þýski fálkaunga-
þjófurinn:
Dómsaðvænta
Mál þýska fálkaungaþjófsins,
Martin Horst Kilian, sem tekinn var á
Keflavíkurflugvelli fyrir skömmu með
þrjá fálkaunga í farangrinum, kemur
fyrir Sakadóm eftir helgi.
Jón Erlendsson hjá Sakadómi sagði
að munnlegur málflutningur í málinu
yrði á þriðjudag og dóms mætti vænta
strax á miðvikudag.
Jón sagðist ekki geta sagt til um
hvem dóm Martin Horst Kilian mætti
búast við að fá. Hins vegar væri ekki
óeðlilegt að sá dómur tæki mið af
hæstaréttardómi þýska fálkaþjófsins
Bali í fyrra, en eins og menn muna
fékk Bali 3ja mánaöa fangelsi og 100
þúsundkrónasekt. -kþ
Þjóðhátíðarveður
Gert er ráð fyrir vestanátt og skýj-
uðu veðri sunnanlands í dag en björtu
annars staðar. A sunnudag gengur
hann í sunnan- og suðaustanátt og gera
má ráð fyrir vætu sunnanlands í kvöld.
A mánudag, 17. júni, má reikna með
vætu suðvestanlands en þurru og
ágætu veðri í öðrum landshlutum.
Sæmilega hlýtt verður á landinu.
5
i
i
\
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
é