Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Qupperneq 48
FRETTASKOTIÐ (68) • (78) • (58) Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og rfreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 15. JUN11985. Birgir ísleifur: Áf ram landbún- aðarvitleysa — verði framleiðslu- ráðslögin ekki samþykkt „Ef fnunvarpið verður ekki sam- þykkt á þessu þingi heldur sama vit- leysan áfram í landbúnaði. Afram verða bullandi útflutningsbætur og engin stjórn á einu eða neinu. Einnig verður ekkert átak gert til að stuðla að nýjum búgreinum eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Þetta er meginástæðan fyrir því að viö leggjum áherslu á að frumvarpið verði samþykkt núna,” sagði Birgir Isleifur Gunnarsson al- þingismaður, aðspuröur um ástæðuna fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn leggur svo mikið kapp á að koma frum- •A varpinu gegnum þingið fyrir þingslit. Eins og kunnugt er hafa heyrst óánægjuraddir frá bændum, neytend- um og verslunarráöi, svo einhverjir séu nefndir. „Ef þetta frumvarp dagar uppi núna er ég hræddur um aö þaölíði langur tími áður en nýtt frumvarp lítur dagsinsljós.” -APH Þjóðaratkvæði um bjór: Kostar5millj. ~ Ef gengiö yrði til þjóöaratkvæða- greiðslu um bjórinn mundi það kosta þjóðina 5 milljónir samkvæmt útreikn- ingum fjármálaráðuneytisins. Bjórinn var eitt af viðfangsefnum allsherjamefndar neðri deildar i fyrra- kvöld. Nefndarmenn. sumir hverjir, töldu nauðsynlegt að kynna hina nýju stöðu málsins nánar i þingflokkum. sínum. Einnig var óskað eftir kostnað- aráætlun frá fjármálaráöuneytinu um atkvæðagreiðslu um bjórinn sem hugs- anlega getur orðið. Þá var ákveðið að ræða bjórinn á þriðjudag og þá verður hann væntanlega settur á dagskrá neðri deildar. -APH DV kemur næst út þriðjudaginn 18. júní. Smáauglýsingadeild DV í Þver- holti 11 er opin í dag, laugardag, kl. 9— 14 og á morgun, sunnudag, kl. 18—22. Deildin er lokuð 17. júní. Siminn er 27022. Anægjulega þjóöhátið. TALSTÖÐVARBÍLAR UM ALLA BORGINA SÍMI 68-50-60. D|BlLASrc ÞRDSTUR SÍÐUMÚLA 10 LOKI Sjóararnir virða a.m.k. kaffitimaákvæði samn- inganna! Kjaraviðræðurnar aftur í gang: Stefnir í skammtíma ? QAmnmM * aaniiiiiiga ■ Samningaviöræður hófust aftur í gær. Klukkan fimm hófst fundur hjá Vinnuveitendasambandi Islands með formönnum allra landssamtaka Alþýðusambandsins og forseta þess. Framkvæmdastjórn Verka- mannasambands Islands samþykkti á fundi í gærdag aö óska eftir við- ræðum við VSI. I ályktun VMI, sem samþykkt var samhljóöa, var hvatt til gerðar skammtimasamnings til áramóta og að í þeim samningi yrði lögð áhersla á að hindra kaup- máttarhrap sem nú er, einnig að á þessu tímabili yrði unnið aö sér- stökum úrbótum fyrir fiskverkunar- fóik. Samkvæmt heimildum DV fór fram umræða á sömu nótum um skammtímasamning til áramóta, á miðstjómarfundi ASI í fyrradag, þó var ekki gerð formleg ályktun' þar. Því virðist staðan vera sú að flest landssamtökin séu horfin frá sér- kjarasamningum og allt stefni í skammtímasamninga til áramóta. Að sögn Magnúsar Gunnarssonar, framkvæmdastjóra VSI, rétt áður en DV fór í prentun, var lítið hægt aö segja umframgang viðræðnanna.ÞG mmx Harður fjögurra bfla árekstur varð á Stekkjarbakka f gær. skemmdust töluvert, þar af einn bfll er hann fór á hliðina. Engan f bflunum sakaði en ökutœkin fjögur DV-mynd S. ikaffi: Stoppa sjómenn gamautflutning? „Við munum grípa til harðra ráð- stafana og munum við einkum beina augum okkar að gámaútflutningi á ferskum fiski,” sagöi Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómanna- félags Reykjavíkur, í samtali við DV. Deilur risu um borð í fiskiskipinu Freyju RE-38 á fimmtudag þegar senda átti skipið tU veiða. Þustu verkfallsverðir um borð til að hefta för skipsins. Ákvaö þá útgerðarmað- urinn aö fresta för skipsins. Verk- fallsverðir gættu skipsins vel fram eftir degi í gær. Voru þeir um átta talsins og höfðu ekki augun af skip- inu. Svo var það um kaffileytið í gær að þeir brugðu sér frá í kaffi. Á meðan notuöu Freyju-menn tadcifær- iðoghélduúttUveiða. Sjómenn töldu Freyju-menn.vera aö f remja verkf allsbrot þar sem þeir ætluðu að taka með sér háseta, skráðan sem kokk, en hannað er að breyta skráningu skipverja í verk- faUi. Og ef þeir færu án hásetans væru yfirmenn að ganga í störf undirmanna sem einnig er bannað i verkfalli. Freyju-menn tóku síðari kostinn þegar þeir héldu til veiða í gær og settu hásetann í land. „Við ætlum að koma saman um helgina og ræða þessi mál,” sagði Guðmundur. „Dtgerðarmaður Freyju byggir sína atvinnu á því að flytja út ferskan fisk i gámum. Við munum gripa til ráðstafana á þeim vettvangi.” — Attu við að þiö hyggist stoppa allan gámaútflutning eða ertu aðeins að tala um útflutning útgerðarmanns Freyju? „Eg er að tala um allan gámaút- flutning á ferskum fiski. Hvort viö stoppum hann get ég ekki svarað á þessari stundu.” „Við teljum okkur fara að lögum. Meira hef ég ekki að segja um málið,” sagði Gunnar I. Hafsteins- son, útgerðarmaðurFreyju. -KÞ. Stjórarnir á Selfossi: Stríðinu að Ijúka? Líkur eru á að stjórastríðinu á Sel- fossi ljúki með samkomulagi án upp- sagnar bæjarstjóra eða veitustjóra samkvæmt upplýsingum DV. Eins og kunnugt er hefur meirihluta- samstarfið þar í bæ verið í hættu vegna þessa máls. Á fimmtudag hugðust framsóknannenn leggja fram tillögu á bæjarráðsfundi að veitustjóranum yrði sagt upp svo bæjarstjórinn gæti starf- að þar áfram. Tillagan var ekki lögð fram þar sem meirihlutinn hafði gert með sér eins konar samkomulag. Samkomulag það felst í því að meiri- hlutinn, það er að segja sjálfstæðis- menn og framsóknarmenn, hyggst ganga í þaö í sameiningu að koma öllu bókhaldi bæjarins undir einn hatt, eins og bæjarstjórnin hefur löngum viljað. Veitustjórinn hefur hins vegar verið andvígur því af einhverjum ástæðum. Þá mun vera komin formleg beiöni frá meirihlutanum til bæjarstjórans um að hann dragi uppsögn sína til baka. Bæjarstjórinn staðfesti það í samtali við DV. Hann mun hafa beðið um nokk- urra daga frest til að hugsa máliö. Fékk hann frest þar til á þriðjudag, en þá kemur meirihluti bæjarstjórnar saman til skrafs og ráðageröa. -KÞ Útvarps- stöðvar í startholum A fyrirtækjaskrá Hagstofunnar hafa nokkrir aðilar látið skrásetja nafn á út- varpsstöðvum. Þar á meðal er Otvarp Reykjavík, Otvarp Keflavík og Otvarp Vestmannaeyjar. Fréttaútvarpið var skráð á síðasta ári en nýlega var Kap- alsjónvarp hf. skrásett, en það á lög- heimili í Húsi verslunarinnar i Kringl- unni. Fjölmargir virðast hyggja á út- varpsrekstur, hér eru aðeins nokkrir nefndir. Isienska útvarpsfélagið er í startholunum. „Við munum opna útvarpsstöö klukkan tólf á miðnætti 1. janúar ef allt gengur upp,” sagði Magnús Axelsson, forvígismaður þess félags. Nýju útvarpslögin taka gildi 1. janú- ar 1986. En þá fyrst verður kjörin út- varpsréttarnefnd sem leyfin veitir. Þýski fálkaunga- þjófurinn: Dómsaðvænta Mál þýska fálkaungaþjófsins, Martin Horst Kilian, sem tekinn var á Keflavíkurflugvelli fyrir skömmu með þrjá fálkaunga í farangrinum, kemur fyrir Sakadóm eftir helgi. Jón Erlendsson hjá Sakadómi sagði að munnlegur málflutningur í málinu yrði á þriðjudag og dóms mætti vænta strax á miðvikudag. Jón sagðist ekki geta sagt til um hvem dóm Martin Horst Kilian mætti búast við að fá. Hins vegar væri ekki óeðlilegt að sá dómur tæki mið af hæstaréttardómi þýska fálkaþjófsins Bali í fyrra, en eins og menn muna fékk Bali 3ja mánaöa fangelsi og 100 þúsundkrónasekt. -kþ Þjóðhátíðarveður Gert er ráð fyrir vestanátt og skýj- uðu veðri sunnanlands í dag en björtu annars staðar. A sunnudag gengur hann í sunnan- og suðaustanátt og gera má ráð fyrir vætu sunnanlands í kvöld. A mánudag, 17. júni, má reikna með vætu suðvestanlands en þurru og ágætu veðri í öðrum landshlutum. Sæmilega hlýtt verður á landinu. 5 i i \ i i i i i i i i i i i i i i i é

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.