Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1985, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1985, Side 5
DV. FIMMTUDAGUR 20. JUNI1985. 5 „Helvítis ormurinn .»» „Helvítis ormurinn” var tll um- ræðu á Alþingi fyrir nokkru og kallaði Karvel Pólmason alþingismaður hann þessu nafni og sagði ennfremur að sélurinn væri eitt mesta óargadýr á IslandL Dregur stóriega úr nýtingu físks Skýringin á því gæti verið sú að við strendur Danmerkur er nær enginn sei- ur en hann er talinn vera mikilvægur milliliður í sambandi við útbreiðslu ormsífiskL Karvel Pálmason sagði að selur væri hið mesta óargadýr og það væri ægilegt til þess að hugsa að á Alþingi væru menn sem reyndu að haida hlifi- skildi yf ir þessu dýrL Guðmundur Einarsson alþingis- maður lagöi til að fyrirliggjandi frum- varp um selveiöar yrði afgreitt nú á síðustu dögum þingsins. Frumvarpið er nú í annarrí umræöu í neðri deild. I því er gert ráð fyrir að selveiðar falli undir sjávarútvegsráðuneytið og stjórnvöldum sé heimild aö setja reglur um selveiðar hver ju sinni. APH Umræður um orminn eða hringorm í fiski, hófust er Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra gaf upplýsingar um könnun er gerð var i vetur i frystihúsinu Hjálmi á Flateyri. Niðurstöður hennar benda til þess að hlutf all sé milli nýtingar f isks og orma- fjölda í hverju kílói. Könnun á þessu hefur farið fram i frystihúsinu í vetur. Nýtingarhlutfall eru þau flök sem fást úr innvegnu magni af fiski eftir aö hann hefur verið flakaður og roðfeltt- ur. Þetta hlutfall er gjaman um 50 prósent. I þessari könnun kom í ljós að ef ormafjöldi fer yfir 4—5 i hver ju kílói minnkar nýtingarhlutfalliö allmikið. Svo virðist sem það minnki um eitt prósentustig fyrir hvem orm. I umræöunum á Alþingi nefndi for- sætisráðherra aö nýtingartilutfailiö á fiski væri mun hærra i Danmörku. Tvö nákvæm- lega eins frumvörp — lögð fram af stjórnar- andstöðu ogfram- sóknarmönnum Nokkuð fátið staða er komin upp á Alþingi. Tvö f rumvörp voru lögð f ram í gær sem eiga það sameiginlegt að vera nákvæmlega eins. Frumvörp þessi eru um húsnæöis- samvinnufélög og búseturétt. Stjórnar- andstaðan hafði áöur sagt aö hún myndi leggja fram frumvarp um þetta efni ef stjórnarflokkarnir myndu ekki gera þaö. Nú hefur þaö gerst. Jóhanna Siguröardóttir sagöi i viðtali við DV að framsóknarmenn hefðu ver- ið beðnir aö vera með. Þeir hefðu hins vegar neitaö þvi. Hún sagði að ætlunin væri að koma þessu frumvarpi inn í umræðu á þessu þingi. En hvers vegna hafa framsóknarmenn boriö upp sams konar frumvarp og stjómarandstaðan og hvers vegna ekki með henni? Stefán Valgeirsson var spurður aö því. „Þegar menn eru aðilar að ríkisstjórn flytja þeir yfir- leitt ekki frumvörp með stjórnarand- stöðunni. Það gat verið aö það myndi vaida erfiðleikum ef þannig yrði staðið aö málum. Eg vildi ekki gera neitt til að hætta á slíkt. Samstarfsflokkur okk- ar er ekki tilbúinn með afstöðu i þessu máli,” sagði Stefán. Hann sagði aö nú væri frumvarpið flutt til kynningar og það yrði ekki afgreitt núna. Hann sagði einnig að þaö væri afar óvenjulegt aö flutt væri frumvarp með þessum hætti sem í ofanálag, i þessu tilfelli, væri samið af félagsmáiaráöherra. Stjóm- arandstaöan heföi vitaö afþviaðfram- sóknarmenn ætluðu að flytja frum- varpið. „Eg er nærri búinn að vera 18 ár á þingi og man ekki eftir svona upp- ákomu,” sagði Stefán Valgeirsson. APH Misskilningur á Skaganum: Lögreglumenn „stela” vörubfl Fyrir nokkru keyptu tveir lögreglu- menn á Akranesi gamlan vörubíl af út- gerðarmanni þar í bæ. Útgerðar- maðurinn átti einnig annan vörubil, aiveg nákvæmlega eins, sem hann haföi bútað niður og hugsað sér að nota sem varahluti i þann heila. Viöskipti lögreglumannanna og út- geröarmannsins gengu vel og greiölega fyrir sig þar til sá síðar- nefndi tók eftir þvi að búiö var aö „stela” vömbiinum sem nota átti í varahluti. Utgerðarmaðurinn hafði aldrei gert ráð fyrir að varahlutimir fylgdu með i kaupunum en lögreglu- mennirnir vom vist á öðm máli. Nú kannar lögreglan á Akranesi málið og beðiö er eftir vitni sem haföi milligöngu um viðskipti þessi en vitniö dvelur erlendis um þessar mundir. EIR. . Við rymum Seljum síðustu tækin af ’84 — ’85 gerðunum frá Technics og Sony á stórlækkuðu verði. Er hér því einstakt tækifæri til þess að eignast alvöru hljómtæki í hæsta gæðaflokki. Magnarar Su-V505 2x65 sinus í New Class A 4:9488- 12.400 Útvörp. ST-Z35 7t900~ 5.900 ST-Z55 T2r520~ 9.900 ST-S505 45t632- 12.400 Plötuspilarar. SL-B21 9^50^7.500 SL-5 19860 11.300 Kassettutæki. RSM216 með Dolby «7959- 9.900 RSM-233 með DolbyB og C - DBX 12.900 RSM-235 með DolbyB og C - DBX 19^89 16.400 Sýnishorn af úrvali: Magnarar. TA-AX44 T4ÆY8- 9.900 TA-AX548r?39~ 15.700 Plötuspilarar. PS-LX1-9t575- 7.500 PS-LX22 14:209-8.500 PS-LX5 L5Æ44-11.900 Útvörp. ST-JX44 44486- 9.900 ATH. í mörgum tilfellum eru aðeins til örfá eintök, svo nú dugar ekkert hangs. Öll verð miðast við staðgreiðslu «JAPIS hf BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.