Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Blaðsíða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 2. AGUST1985.
! í
,Þetta er bara snakk um leiðsögumannsstarfið," segir Vilhjálmur.
DV-mynd PK
„Leiðsögumaðurinn” íMjóafirði
sótturheim
Ég geri þetta
fyrir kunningjana”
— segir Vilhjálmur Hjálmarsson
„Ég er nú bara hérna í verka-
skiptingu. Þetta er bara til aö fá lit-
inn,” sagöi Vilhjálmur Hjálmarsson,
fyrrverandi alþingismaöur og
menntamálaráöherra, er DV hitti
hann í Mjóafirði þegar sólin skein,
aldrei þessu vant, í sumar.
„Ég minnist þess reyndar aö ég
var hérna í verkaskiptingu fyrir um
40 árum fyrir bóndann á næsta bæ.
Þá var líka svona heitt í veöri og hit-
inn var yfir 30 stig,” segir Vil-
hjálmur. Þessa stundina er hann aö
vinna fyrir hana Önnu á Hesteyri.
Hvers vegna hann sé í þessari verka-
skiptingu vill hann ekki gefa upp i
fyrstu, en segir aö Anna hafi unniö
fyrir hann verk, sem henni einni sé
lagið. Seinna kemur þó í ljós að Anna
hefur tekið aö sér aö búa til gjöf
handa forseta Islands sem kom viö í
Mjóafiröi á ferö sinni um Austfiröi í
sumar. Anna er sérlega lagin í
höndunum og hefur gert nokkuö af
því aö búa til myndaramma úr
skeljum. Og þaö er einmitt slíkur
rammi sem hún hefur gert handa
forsetanum.
Fyrir nokkru bárust þær fréttir úr
Mjóafirði að Vilhjálmur væri orðinn
leiösögumaöur í ferðum sem nú eru
farnar þangað reglulega. Hann
neitar því aö hann hafi tekið að sér
nýtt starf, þegar viö spyrjum hann
um leiðsögumannsstarfiö.
„Ég er aöallega að skrifa um
þessar mundir. Þriðja bindið um
Eystein er nú komiö í setningu. Svo
er ég einnig byrjaður aö skrifa um
sögu Mjóafjaröar,” segir Vil-
hjálmur. Hann dvelur í Reykjavík á
veturna og í Mjóafirði, nánar tiltekið
á Brekku, á sumrin. „Ég hef haldiö
þessu flökkulífi áfram síöan ég var
þingmaður.”
Þegar hér var komiö sögu ók til
okkar jeppi, fullur af Skaftfellingum,
sem voru aö skoða sig um í Mjóa-
firði. Þeir voru með sveittan
skallann aö fletta upp í ferðahand-
bókinni. Þeir stoppuðu bílinn og
skrúfuðu rúðuna niður.
„Blessaöur, heyrðu þaö er ekkert
að marka þaö sem stendur í Ferða-
handbókinni um veiöina í Fjarðará,”
sögðu þeir.
„Jú, jú, þaö hlýtur aö vera, því aö
ég hef skrifað allt sem stendur þar
um staöinn hérna,” sagöi Vilhjáimur
og brosti breitt. Aö því loknu gat
hann leyst úr vandamáli Skaftfell-
inganna.
En víkjum aftur að leiðsögu-
mannsstarfinu.
„Það er bara snakk. Ég hef ekki
tekiö þetta að mér sérstaklega. Þeir
feröamálamenn eru aö segja þetta til
aö trekkja út á þaö. Ég fer jú og leið-
beini kunningjum mínum sem koma
hingað. Nú má ég hins vegar ekki
vera aö þessu því ég er á fullu í bú-
skapnum.
Þegar ég var á Egilsstöðum til aö
taka á móti forsetanum voru menn
aö stríöa mér á þessu leiösögu-
mannsstarfi, sem ég hefði tekið að
mér í ellinni. Ég svaröi þá aö þetta
væri mismunandi hjá fólki. Sumir
byrjuöu á því að vera leiðsögumenn
og gerðust svo forsetar í ellinni,”
segir Vilhjálmur og er ánægöur með
lífiö og tilveruna.
„Ég er búinn aö vera hérna frá
fæöingu, að undanskilinni veru minni
í pólitíkinni, og hér líður mér vel,”
segir ráöherrann fyrrverandi og
dýfir málningarpenslinum í græna
málningu.
APH
Sauðfjárbændur ætla að
stofna landssamtök
Hríplekt Ríki á Seyðisf irði:
Erum að drepast úr
kulda yf ir veturinn
Halga Martína afgreiflir einn viflskiptavin.
Stefnt er að því að stofnuð verði
landssamtök sauöfjárbænda á Hvann-
eyri 17. ágúst nk. Landssamtökin eru
stofnuö í framhaldi af fyrri sam-
þykktum sauðfjárbænda.
Ráögert er aö stofna félög sauöfjár-
bænda 11. og 12. ágúst í Rangárvalla-
sýslu og Árnessýslu.
Höfuötilgangur þessara félaga er aö
efla samstööu meöal sauöfjárbænda,
vinna aö bættum hag þeirra, auka
neyslu kindakjöts og koma á framfæri'
upplýsingum til framleiöenda og neyt-
enda.
APH
„Þaö er mjög mikiö aö gera þessa
stundina. Líklega er þaö vegna
verslunarmannahelgarinnar. Þegar er
mikið um pantanir. Á fimmtudag og
föstudag býst ég viö því að hér veröi
allt fullt út aö dyrum,” sagöi Helga
Martína Emilsdóttir, afgreiöslumaöur
í „Ríkinu” á Seyðisfirði, í samtali viö
DV í gær.
Áfengis- og tóbaksverslunin þarna
fyrir austan er sú eina sem Austfirö-
ingar hafa. Næstu verslanir af svipuöu
tagi eru á Akureyri og Selfossi.
Húsiö, sem verslunin er í, er mjög
forneskjulegt og byggt um aldamótin.
Ekki stendur til aö flytja í nýtt og betra
húsnæöi þó aö þetta sé algjörlega
óviðunandi.
„Viö erum aö drepast úr kulda
Jóhannes Eðvaldsson.
„Vita ekkert
hvað það er
að vinna”
— sagði Jóhannes
Eðvaldsson um
Þróttaraliðið en hann
hefur nú látið af störfum
sem þjálfari þess
„Þróttaraliðið hefur aldrei unnið til
neinna verölauna og þeir vita ekkert
hvernig tilfinning þaö er. Þess vegna
eru þeir ekki tilbúnir aö leggja á sig þá
aukaorku sem til þarf til að vinna sigur
í keppnum,” sagöi Jóhannes
Eövaldsson, fyrrum þjáifari 1. deildar-
liðs Þróttara í samtali viö DV en hann
hefur nú látiö af störfum hjá Þrótti.
„Ég hef minn metnaö þegar að
knattspyrnunni kemur og þaö segir sig
sjálft að ef minn metnaður og
metnaöur liösins fer ekki saman þá
þýöir ekkert að vera að hanga í þessu,
enda var þaö gagnkvæmt samkomulag
á milli mín og Þróttara aö ef ekki gengi
vel þá færi ég,” sagöi Jóhannes.
Staöa Þróttaraliösins í 1. deildinni er
nú oröin slæm; liöið er í 7.-8. sæti
ásamt FH-ingum. Þaö var því ákveðið
í gær aö Jóhannes skyldi láta af
störfum þjáifara. „Þetta eru ágætis
strákar sem eru að æfa meö
Þróttarliöinu en þeir eru ungir og
viðkvæmir. Það hefur kannski ekki
alveg farið í samræmi viö kröfuhörku
mina og þeir voru hlaupnir í aöra
menn um leið og þeim fannst aginn of
mikill. Maöur veröur náttúrlega að
gera sér grein fyrir aö þetta eru bara
áhugamenn en mér finnst þaö pirrandi
ef leikir eru famir að tapast vegna
baráttuleysis,” sagði Jóhannes
ennfremur.
Eiríkur Þorláksson, gjaldkeri knatt-
spyrnudeildar Þróttar, sagöi: „Þaö
var oröiö ansi þungt í mönnum í
restina, bæði þjálfara, leikmönnum og
svo hjá stjórninni og þaö þótti sýnt aö
þetta gengi ekki. Við erum nú aö ræöa
viö ákveöinn mann um aö taka viö
félaginu, en ef það hefst ekki þá ætlum
við að hjálpast aö innan félagsins með
þjálfunina.” SigA
hérna á veturna. Það er ekkert hitað
upp hérna á bak viö. Það blæs í
gegnum rifur og þakiö lekur. Þaö kom
fyrir aö þaö lak niöur á búöargólfiö. Nú
hefur hins vegar veriö sett plast á
loftiö svo vatniö kemst ekki alla leiö
niöur og viö sleppum við aö setja
vaskaföt undir lekann,” segir Helga.
I versluninni vinna tveir afgreiðslu-
menn, auk verslunarstjóra, sem heitir
Brynjar Júlíusson.
APH
Shellstöðin á Húsavík:
„Bensín, gegn
framvísun Visa”
en skyndilega kom babb í bátinn, hvers vegna?
„Húsvikingar og ferðamenn fá nú
afgreitt bensín á bifreiöar sínar,
gegn framvísun VISA. Það er Shell-
stöðin á Húsavík sem býður þessa
þjónustu, auk þess að hafa á boðstól-
um heita grillrétti og nýlenduvörur. ”
Þannig hljóöaöi iokafréttin í nýj-
asta fréttabréfi Visa Island, frá 22.
júli síðastliðnum. En allt kom fyrir
ekki, hvorki Húsvíkingar né feröa-
menn geta fengiö bensín á Shellstöö-
inni á Húsavík gegn framvisun krít-
arkorts.
En hvers vegna? Hvers vegna
varö ekkert úr þvi aö Shellstöðin á
Húsavík yröi fyrst bensínstöðva á Is-
landi að taka við krítarkortum? Viö
höfðum samband viö Visa Island
sem og kaupmanninn i Shellstöðinni
á Húsavík. -JGH
„Vil alls ekki tjá mig um
þetta mál”
segir kaupmaðurinn, Richard Sigurbaldursson,
í Shellstöðinni á Húsavík
Shellstöðin á Húsavík selur fjöl-
margt fleira en bensín, þar er hægt
að fá heita grillrétti, nýlenduvörur
og sælgæti. „Visa gildir yfir þessar
vörur,” sagöi Richard.
Viö spuröum Richard hvort hann
stundaði lánsviöskipti á oliuvörum
til einstakra viðskiptavina sinna eins
og tíökaöist svo víöa úti á lands-
byggöinni.
„Þaö hefur jú tíðkast hjá mér eins
og svo víða úti á landsbyggðinni,”
sagöi Richard Sigurbaldursson í
Shellstöðinni á Húsavík.
„Þetta var misskilningur, aö öðru
leyti vil ég alls ekki tjá mig neitt um
þetta mál,” sagöi Richard Sigur-
baldursson, framkvæmdastjóri
Shellstöðvarinnar á Húsavík.
DV spurði hann hvers vegna aug-
lýst heföi verið í fréttabréfi Visa að
Shellstööin tæki við Visa sem
greiðslu fyrirbensín.
Richard var þá spurður hvort í
samningi hans viö Visa ísland heföi
orðiö bensín staöiö yfir þær vörur
sem hægt væri aö fá hjá honum gegn
framvísun krítarkortsins. „Já, en
þaö var misskilningur. ”
-JGH
Olíufélagið bannaði honum
að selja bensín útá krítarkort
segiröm Petersen hjá Visa íslandi
„Ég setti þessa frétt inn vegna
þess aö viö gerðum samning viö
kaupmanninn í Shellstöðinni á Húsa-
vík um að hann seldi bensín gegn
framvísun Visa, svo einfalt er það,”
sagði öm Petersen hjá Visa Islandi í
gær.
„Hér var alls ekki um neinn mis-
skilning að ræöa,” sagöi Örn. „Þver-
öfugt, bensínið var kveikjan aö
samningnum. Máliö er að kaup-
maöurinn hefur selt bensín og iánaö
einstökum viðskiptavinum sínum
þaö út i reikning.
Hann viidi koma betra lagi á þessi
mál, sérstaklega innheimtuna. Þess
vegna óskaöi hann eftir samningi við
okkur, hann ætlaöi að koma sínum
heföbundnu reikningsviðskiptum
yfirá Visa.
Við vorum ánægðir með þennan
samning. En skyndllega hætti kaup-
maðurinn við. Mér er kunnugt um að
olíufélagið harðneitaöi honum að
selja bensín út á kritarkort.”
örn sagði ennfremur aö þaö væri
svo aftur sérkapítuli út af fyrir sig.
„Sjálfum finnst mér svona
vinnubrögð undarleg. Maður hefði
haldið að það sem skipti olíufélagið
fyrst og fremst máU væri hvort
kaupmaöurinn stæöi i skilum viö þá
eöa ekki. Og þaö væri svo aftur mál
kaupmannsins hvort hann seldi
mönnum bensín með því að lána
þeim þaö um stundarsakir eöa ekki.
Ég sé ekki betur en að í þessu tilviki
sé kaupmaðurinn meðhöndlaður eins
og ófjárráöa unglingur.”
-JGH