Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Blaðsíða 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 2. ÁGUST1985.
Helgi Ásgrímsson framkvœmdastjóri stendur hér fyrir framan hluta af
framleiðslu fyrirtœkisins. Á myndinni sést plattaframleiðslan sem á
miklum vinsældum að fagna.
DV-mynd PK.
Athyglisvert fyrirtæki á Borgarf iröi
, eystra: r
SLIPA STEINAI
ÖLLUM MYNDUM
Á Borgarfirði eystra er starfrækt
fyrirtæki sem vekur athygli. Þetta
fyrirtæki heitir Álfasteinn h/f og fram-
leiðir slípaöa steina í öllum myndum
og gerðum. Steinarnir koma flestir úr
fjöllunum fyrir austan enda fjölbreytt
steinaríki þar.
„Þetta er hlutafélag og eru hlut-
hafanir 85 talsins,” segir framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, Helgi Arngríms-
son.
Hann segir aö fyrirtækið hafi verið
stofnað í kjölfar átaks um að auka at-
vinnutækifærin á Borgarfirði. Fyrir-
tækið var stofnað 1981 og hóf starfsemi
árið eftir. I fyrstu voru nær einungis
slípaðir hinir ýmsu eðalsteinar sem
finnast í fjöllum þarna fyrir austan.
Nú er hins vegar lögð aðaláhersla á að
framleiða platta af hinum ýmsu
gerðum. 1 þessa platta er notaður
venjulegur steinn úr fjörunni eða
basalt. Þessir steinar eru sagaðir
þannig að á þeim myndist sléttur flötur
þar sem síöan er letraö á.
Nú vinna fjórir starfsmenn hjá
fyrirtækinu aö staðaldri. Helgi, fram-
kvæmdastjóri, segir að þetta starf sé
tímafrekt. „Það tekur 40 daga að slípa
skrautsteina. Það þarf aö setja þá í
mismunandi slípimassa þar sem þeir
eru í slípun í fleiri daga,” segir Helgi.
„Við erum nýlega byrjaðir að búa
til legsteina. Til þess notum við
reyndar innflutt granít frá Noregi. Við
sáum ekki ástæðu til að láta Reykvík-
inga standa eina að þessum iönaöi,”
segir framkvæmdastjórinn.
Hann segir að reksturinn gangi
nokkuö vel og plattanir séu orönir
nokkuð vinsælir. Algengt er að slíkir
plattar séu gefnir sem gjafir við hátíð-
leg tækifæri.
APH.
Hér er Helgi við sögina sem sagar í sundur grjótið sem notað er i platta.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
um helgina:
SUMARHÁTÍÐ SEMBALSINS
Verslunarmannahelgin er fjórða
hátíðarhelgi Sumartónleika í Skál-
holtskirkju. Þá mun finnski sembal-
leikarinn Elina Mustonen leika tón-
smíöar eftir Bach, Hándel og Scarlatti
en árið 1985 hefur verið nefnt Tón-
listarár Evrópu í minningu þessara
þriggja tónskálda.
Á morgun, laugardag, klukkan 15,
leikur Mustonen svítur í d-moll og F-
dúr eftir Handel, tvær sónötur í C-dúr
eftir Scarlatti og þátt úr Tónafórninni
eftir Bach.
Klukkan 17 leikur hún svítur í g-moll
og f-moll eftir Handel, tvær sónötur í A-
dúr eftir Scarlatti og tokkötu í e-moll
eftir Bach.
Á sunnudag leikur Mustonen fyrri
hluta efnisskrár sinnar frá deginum
áður og hefst flutningur hennar
klukkan 15. Klukkan 17 er síðan messa
og er prestur sr. Guðmundur Óli Ölafs-
son í Skálholti en listamenn sjá um tón-
listarflutning.
I tengslum við tónlistarhátíðina er
sýning frá Goethe-stofnunni um ævi
Bachs, Handels og Schutz. Sýningin fer
Sembal eftir Mark Stevenson frá
1980.
fram í Lýðháskólanum í Skálholti. Þar
verða ennfremur seldar veitingar.
Áætlunarferðir eru báða dagana í
Skálholt og er farið kl. 13 frá Um-
feröarmiðstöðinni í Reykjavík.
Okeypis aðgangur er að tón-
leikunum og er fólki ráölagt að koma
tímanlega.
Istak og Landssmið jan
gera tilboð
í stórverk í Oman
„Þarna eru menn sem gera hlutina.
Þaö má segja að höfuöborgin, Muscat,
hafi nánast verið byggð alveg upp á
siðustu tíu árum,” sagði Halldór Árna-
son, efna- og hagfræðingur hjá sjávar-
útvegsráðuneytinu. Hann er nýkominn
frá Oman. Þar er geysilega mikil upp-
bygging á flestum sviðum. „Þeir eiga
passlega lítið af olíu til að huga að því
sem gerist þegar holurnar þorna,”
sagöi Halldór.
Islensk sendinefnd var í Oman
dagana 18,—23. júli. Auk Halldórs voru
í nefndinni Einar Benediktsson, sendi-
herra í London, Ólafur Gíslason, verk-
fræðingur hjá Istaki, og Þorleifur
Markússon hjá Landssmiðjunni.
Þaö liggur fyrir eftir þessa ferö að
ístak og Landssmiðjan munu gera til-
boö í flutning á fiskimjölsverksmiðju í
Oman. Mun þetta vera verkefni upp á
100 milljónir króna. Fyrirhugaðri
verksmiðju er ætlað að framleiða úr ca
40 þúsund tonnum af hráefni á ári, sem
þýðir um 8 þúsund tonn af mjöli.
Yfirvöld í Oman hafa valið staðinn
fyrir fiskimjölsverksmiöjuna. Það er
við lítið fiskiþorp sem heitir Duqm.
Það er rétt sunnan við miðjan
Masirah-flóann í Indlandshafi.
Fyrir u.þ.b. ári var Halldór Arnason
ráðinn til að sinna markaðsverkefnum
fyrir sjávarútvegsráðuneytið. I kjölfar
starfa hans aö fyrstu athugunum var
skipuö nefnd til að vinna frekar að
markaðsmálunum. Formaður þeirrar
nefndar er Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSI. Aðrir nefndarmenn
auk hans eru Gunnlaugur M. Sig-
mundsson (Framkvæmdastofnun),
Ingjaldur Hannibalsson (Iöntækni-
stofnun), Friðrik Pálsson (SlF), Þor-
steinn Olafsson (SlS) og Brynjólfur
Bjarnason (BUR). Nefndin hefur
haldið 24 fundi á þessu ári.
I apríl sl. komu hingaö til lands þrír
fulltrúar frá Oman til viðræöna viö
íslensk stjórnvöld og ýmsa aöila vinnu-
markaðarins. Og síðan fór íslenska
sendinefndin nú til Oman.
„Ef af þessu verkefni verður má
segja að við séum komnir með fót inn
fyrir dyrnar þarna,” sagði Halldór
Árnason.
I olíuríkjunum, nágrannalöndum
Oman, er vaxandi markaöur fyrir
ísaöan og frystan fisk. Mikinn tegunda-
fjölda fiska er hægt að veiöa í Ind-
landshafinu. Og mikill innflutningur er
til Oman frá Evrópu. Ekki er vitað til
að íslenskar sjávarafurðir hafi verið
fluttar á þennan markað. Hann er
mjög eftirsóttur af fyrirtækjum í
Vestur-Evrópu, sem framleiða unnar
fiskafurðir.
Eitt íslenskt fyrirtæki, Entek í
Hverageröi, hefur gert samning viö
fyrirtæki í Oman. Þaö er um sölu á
pípum í áveitukerfi. -ÞG
Evrópumótshestar íslenska
landsliðsins eru komnir
um borð í Reykjafoss á leið
til Svíþjóðar. Hestunum var
komið fyrir í skipinu 31. júlí
síðastliðinn og er œtlunin að
ferðin til Gautaborgar, þar
sem þeim verður skipað upp,
taki sjö daga. Tveir
knapanna, Aðalsteinn Aðal-
steinsson og Hreggviður
Eyvindsson, fara með hest-
unum til að líta eftir líðan
þeirra. Hestarnir hafa nokk-
urt pláss um borð. Verða í
lestinni en hœgt er að taka
þá út. Ef til vill munu þeir
félagar Aðalsteinn og
Hreggviður keppa í fetgangi
á leiðinni eða œfa hlýðni-
œfingaprógrammið.
Vart nýrra LSD-
geðveikitilfella
„Það eru nokkrir einstaklingar
sem hafa dvalið langdvölum á geð-
sjúkrahúsum vegna notkunar á
LSD,” sagði Jóhannes Bergsveins-
son, yfirlæknir á áfengisdeild geö-
deildar Landspítalans, í samtali við
DV. „Á síðasta ári og á þessu ári
höfum við fengið nokkur ný tilfelli
þar sem menn hafa orðið geðveikir
af völdum LSD. Stundum hafa þær
geðtruflanir staðið stutt. Við vitum
að LSD getur flett ofan af geðsjúk-
dómum, sem eru undirliggjandi, og
framkallað þá. Sumir sjúklinganna
fá langvarandi geðræna sjúkdóma.
Við urðum varir við LSD-notendur
á árunum í kringum 1970 og fram til
1975. Síðan dró mjög úr þessu eða
hvarf alveg. Ég tel að þetta hafi
gerst vegna þess að þeir sem upp-
Ufðu þetta af eigin raun urðu hræddir
við LSD og áhrifin af því. Undir
áhrifum geta menn skaðað sjálfa sig
og aðra og notkun á LSD hefur tengst
voveiflegum dauösföllum.”
— Hvað getur sá átt á hættu sem
prófar einn skammt af LSD?
„Hann á á hættu að verða tíma-
bundið geöveikur, a.m.k. Ef við-
komandi hefur í sér geösjúkdóm,
sem ekki hefur komið fram, gæti
svona neysla flett ofan af sjúk-
dómnum og framkallað hann. Þetta
er stórhættulegt efni, sem getur
skapað lífshættulegt ástand,” sagði
Jóhannes Bergsveinsson að lokum.
-EH.