Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Qupperneq 6
tí
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
GARDUR UNDIR GLERI
Nýstárleg kedjuhúsabyggö í Garðabænum
Ibúar raöhúsakeðju, Alviðru, í
Garðabænum ættu ekki að þurfa að
hafa áhyggjur a£ íslensku veðurfari í
framtíöinni — í verstu hretunum er
bara að halda sig heima við.
Arkitektamir Kristinn Ragnarsson og
Öm Sigurðsson hafa hannað íbúða-
byggð með eins konar hringformi þar
sem útigaröur undir glerhvolfi er í
miðju. I garðinum er sundlaug, heitur
pottur og annað sem alla dreymir um
að hafa þegar kuldinn úti nístir í
gegnum merg og bein. Að und-
anskildum þessum sameiginlega garði
em flest húsin með litinn einkagarö
undir hvolfinu og þær sex íbúðir sem
ekki hafa garðinn eru með því stærri
svalir sem undir glerinu geta verið.
eins konar gróðurhús. Athyglisverð
nýjung og þess virði að hugleiða hvort
þarna er komin einhver framtíðar-
lausn í baráttunni við kuldabola.
Fyrstu húsin verða afhent tilbúin
undir tréverk að ári og garðurinn
verður tilbúinn með sundlaug og öllu
tilheyrandi ári síðar. Raðhúsin em
mjög stór og svo em þarna einnig
íbúðir allt niður í rúma 100 fermetra.
Hver íbúðareining er á einni til fjómm
hæðum.
Þú gleymir þessu
fyrir ferðalagið
Fæstir gleyma ferðafélögunum og
stærri stykkjum öðrum þegar lagt er
upp í ferðalagið en smáhlutina
nauðsynlegu vantar oft illilega.
Hér er upptalning á því sem oftast
gleymist áður en lagt er af stað úr
bænum:
Upptakari fyrir flöskumar og
tappatogari, dósaopnari fyrir
dósirnar, nál og tvinni í allar saum-
spretturnar, plástur og annað á hæl-
særin og smáskrámumar, vega-
kortiö, krem við varaþurrk og út-
brotum, salemispappír, sápa fyrir
eigin skrokk og matarílát, hnífapör,
nælur, skæri, eldspýtur, tannbursti,
handklæði, sundföt, koddí undir
höfuðið og ferðaútvarp. Kannski er
betra að tína þetta smámgl saman
strax í upphafi — hitt skilar sér yfir-
leittnæstumsjálfkrafa — góöa ferö!
-baj.
Hús á þrettán hæðum
„Það er misskilningur að erfiðara sé
að búa i húsum á pöllum eða hæðum og
slíkt form gefur mun meiri möguleika í
hönnun. Við sáum til dæmis hús i Köln
fyrir skömmu og það var á 13 hæöum
og pöllum. Eitt það stórkostlegasta í
okkar augum til þessa,” sögðu
hönnuðirnir Kristinn og örn þegar þeir
sýndu DV afstöðu húsanna á bygging-
arstaðíGarðabænum. .
„Okkar markmið er að byggja meö
hámarksgæðum og þaö getur vel verið,
að það kosti einhverja peninga
umfram venjulegan byggingar-
kostnað. En við höfum trú á þessu.
Það er allt of lítið gert að því að
reyna nýjar leiðir hérna og íbúðar-
húsnæði er of tilbreytingarlaust. I
þessari byggingu er ekki ætlast til þess
að allir búi í nákvæmlega eins íbúðum
og því eru milliveggir á teikningu
ekkert sem þarf að verða svo í lokin,
ekki er búið að ákveða innréttingu eða
herbergjaskipan á einn eða annan hátt
— þannig að sá sem kaupir getur ráðið
því að miklu leyti sjálfur. Valið um
mismunandi hugmyndir frá okkur eða
komið meðsínareigin.”
. Fimm slíkar einingar eiga eftir að
rísa þarna í litlu hverfi niðri viö sjóinn
og verður framkvæmdum þannig hag-
aö aö ein eining byggist í einu og
gengið verður frá garöi og umhverfi.
Síðan rísa hinar koll af kolli. Ekki eiga
að myndast neinir vindsveipir á milli
húsa eins og við margar aðrar sam-
byggingar og blokkir vegna þess að
húsin eru mjög mjúk í formL
Stærstu raðhúsin eru 220 fermetrar á
þremur hæðum og að auki er bílskúr í
kjallara, aðstaða til guf ubaðs og fleira.
Verðið er 4,9 milljónir tilbúið undir tré-
verk. Minnstu íbúðimar kosta 3,1
milljón, tilbúnar undir tréverk, og
aðrar íbúðaeignimar 3,9 milljónir.
Uppgefnir fermetrar eru allir miðaöir
við íbúðarflöt og að auki er svo sam-
eign, geymslur og bílskúr í kjallara
hússins.
Þegar öllum framkvæmdum er lokið
og frumbyggjar mættir á staðinn er
reiknað með að íbúafjöldi verði álíka
og í smáþorpi úti á landi. En þorpsbúar
í Alviðrahúsunum geta vappað um á
þorpstorginu innan um suðrænar jurtir
og gróður allan ársins hring — hvemig
sem viðrar — og stungið sér í sund-
laugina þegar umræðuefni þrýtur. -baj.
Vldeokjallarinn með
fimmtu hverjafría
IV ideokönnun DV um daginn var
sagt að Videokjallarinn á Oðins-
götu gæfi þrjár spólur fríar eftir að
fimmtán hefðu verið leigðar. Þetta
er hinn mesti misskilningur.
Afsláttarkortin hjá þeim virka
þannig að fimmta hver spóla er
ókeypis.
Notið djúp-
sfeikingarpoff
— þannig kviknar ekki í f eitinni
Einn raftækjasala borgarinnar
hafði samband vegna frétta DV aö
undanfömu um eld sem kviknaö
hefði vegna ofhitnunar feiti í potti.
Hann bentí á að ef fólk fylgdist ekki
gaumgæfilega með feitinni, sem það
' er að hita á eldavélinni, þá vaari voðinn
vís því hún er mjög fljót að hitna.
Eldur k viknar sjálfkrafa strax þegar
ákveðnu hitastigi er náð, 100 gráðum
á Celsíus.
Kjörið úrræði til að verjast svona
óhöppum er að fá sér djúpsteikingar-
pott en þeir fást núorðið í mörgum
stærðum og gerðum. A þeim er hita-
mælir sem kemur 1 veg fyrir að feiti
hitni meira en í 87,7 gráður á Celsíus
sem er það sem þarf í langflestum
tilfellum. Til eru sérstakir hita-
mælar fyrir venjulega potta en þeir
eru dýrir. Noti fólk djúpsteikingar-
potta getur það því haldið ró sinni.
-pá.