Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Blaðsíða 10
10
DV. FÖSTUDAGUR2. AG0ST1985.
(Jtlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Heróín eins
og hver vill
í Nýju Delhí
Þórir Guðmundsson, DV, Nýju
Delhí:
Opíum- og heróín-kóngamir í
landamærahéruðum Afganistans og
Pakistans eru óðum að leggja nýtt
flutnings- og markaðssvæði undir
smyglverslun sína með þessi lyf
dauða og eyðileggingar. Þetta nýja
markaðssvæði er höfuðborg
Indlands, Nýja Delhí.
Eftir aö heróínsmyglleiðin til
Evrópu um Afganistan og Iran hefur
nær lokast hafa sölumenn hvíta
dauöans snúið sér meira að leiðinni
um Indland. — Þótt þessi út-
flutningur taki miö af endastöð á
svartamarkaðnum á Vesturlöndum
þá er það eitt af lögmálum eiturlyfja-
smyglsins að eitrið markar slóð sína.
Ibúar viðkomustaða og svæðanna við
smyglslóðina verða brátt fómar-
lömbeiturlyfjanna.
IMóg framboð
Blaöamaður DV í Nýju Delhí hefur
orðið áþreifanlega var við þessa
versiun í þessari og fyrri heim-
sóknum. Þaö er minnsta mál í heimi
að veröa sér úti um eiturlyf af hvaða
tegund sem er. Sérstaklega
auðfengnar eru þær tegundir sem
framleiddar eru hér eða í nágranna-
ríkinu, Afganistan, en það eru
aðallega hass og heróín.
ökumenn þríhjóla leigubíla eru
gjaman farandsalar þessara
viðskipta. Það eru oft slíkir sem
snara sér að útlendingum á aírætum
og byrja á að bjóða þeim far en
fylgja síðan eftir með tilboöum um
gjaldeyrisverslun þar sem eiturlyf
eru boðin í skiptum fyrir erlendan
gjaldmiðil.
Verðið hér á eiturlyfjunum er svo
margfalt ódýrara en á svartamark-
aðnum í New York, Amsterdam,
London eða Reykjavík, að mörgum
verður þetta ómótstæöileg freisting.
Jafnvel þeir, sem hingað em annars
komnir fyrst og fremst til þess að
þroska anda sinn eða til að nálgast
æðri máttarvöld og hefja tilveru sína
á hærra plan í gegnum leyndardóma
dulspekinnar, geta fallið í slíkt
prang, auralitlir eftir langa dvöl,
eygjandi möguleika á að fjármagna
heimferðina meö slíkum kosta-
kaupum.
Eiturlyfjamafíur
En eíturlyfjabraskið er einnig til í
stærri mynd. Myndast hafa
indverskir mafíuhringir og er svo
komiö að almennt er talið að það sé
fimm manna klíka sem að mestu
stjómar heróínumsetningunni héma
í höfuðborginni. Eöa öllu heldur
aðeins fjórir eftir að einn var hand-
tekinn núna á dögunum.
Umfang þessara viðskipta er
geysilegt því aö aukningin hefur
verið ótrúlega mikil og ör.
I fyrra lagöi lögreglan í Delhí hald
á 33 kg af heróíni samtals á öllu
árinu. A fyrstu sex mánuðum þessa
árs komst hún y fir 120 kg og þessum
mánuði gómaði húnrikksjárekilmeð
126 kg af hreinu heróíni i fórum
sínum. Og í Rajastan fundust 329 kg
af heróíni í yfirgefinni úlfaldalest.
Þegar lögreglan kemst yfir hass er
venjulegast um að ræða magn sem
mælist í hundruðum kílógramma en
................. i .......»"nn
ráðiö heldur að flytja eitrið fyrst
landleiöina um Pakistan til Indlands
eða Nepal þar sem auðveldara er um
vik aö koma farminum burt til
Vesturlanda. Nepal er nefnilega
einnig að verða vinsæl útflutnings-
miðstöð smyglara.
Frá Afganistan
Þótt hluti eiturlyfjanna, sem fara í
gegnum Nýju Delhí, sé framleiddur
Smygislóð eiturlyfjabraskaranna markast fljótt af eitrinu. Eftir að Nýja
Delhí varð útflutningsmiðstöð heróínheildsala hefur neysla þarlendra
margfaldast á örskömmum tima.
Kort af gullna hálfmánanum, Iran, Afganistan og Pakistan, en þaðan hefur heróínstreymið beinst til Indlands.
ekki nokkrum grömmum eins og
heima.
Þetta sýnir kannski fyrst og fremst
að lögreglunni hefur vaxiö fiskur um
hrygg í viðureigninni við þessa iðju
en gef ur þó um leið eitthvað tU kynna
hvOík ógrynni hljóta að vera hér í
umferð í Nýju Delhí.
íran lokaðist
Þessi aukna umsetning eiturlyfja-
verslunarinnar í gegnum Nýju Delhí
stafar af því hve erfitt er orðið að
koma eiturlyfjunum út úr löndunum
sem liggja aö „gullna hálfmán-
anum”, eins og svæðið Iran,
Afganistan og Pakistan er kallað.
Viðurlögin við eiturlyfjasmygli í
Iran eru orðin svo ströng (háar
sektir eða líflátsdómar) að þaö þykir
of dýru verði keypt.
Vera sovéska innrásarliðsins í
Afganistan hefur bundið enda á að
það væri meginútflutningsstöð
ópíums og heróíns. Ekki nema þá
miklu minni farmar og aðeins stutt-
an veg yfir landamærin til næsta ná-
grannaríkis.
Pakistan var orðin Ulræmd
uppspretta heróíns en stjórn Zia Ul-
Haqs hefur látið undan þrýstingi
Vesturlanda og fylgt afstöðu strang-
trúarmúslima klerkaveldisins í Iran
tU heróínverslunarinnar með því að
leita gaumgæfilega á öllum flugfar-
þegum sem frá Pakistan fara. Og
refsUög Kóransins eru ekkert mUd-
ari í Pakistan en í Iran.
Því taka margir smyglarar það
innanlands í Indlandi sjálfu fer það
ekki leynt að meginhlutinn kemur
frá Afganistan í gegnum Pakistan.
Það fór áður í gegnum Iran til
Tyrklands og síöan þaðan til Vestur-
landa (gjaman með farandverka-
fólkinu). AðaUega viröist smyglaö
um Punjab- og RajastanfyUci á
Norður-Indlandi.
Þórir Guðmundsson,
DV, Nýju Delhí
Aður runnu eiturlyfin frá Punjab
eða Rajastan suðurtU Bombay, enda
samgöngur greiöar þangað, en Bom-
bay er svo hins vegar almennur
áfangastaður alþjóðaleiða í þessum
heimshluta, hvort sem um er að ræða
flugleið eða sjóleið. — En löggæslan í
Bombay herur hert mjög aðgeröir
sínar gegn eiturlyfjaverslun og aukið
eftirlitið svo að smyglarar hafa
hopað undan til Nýju Delhí, þar sem
yfirvaldið hefur ekki haft eins mik-
innandvaraásér.
Flæðir þess vegna yfir Nýju Delhí
mikiö magn af „brúna sykrinum”
sem er óhreinsað og ódýrt vinnslu-
stig heróíns. Og ekki er hassflóðiö
minna. Verðið á heróíninu er þetta
frá 200 upp í 1600 krónur grammiö.
Slíkt geta jafnvel fátækustu
neytendur látið eftir sér að kaupa
eða að minnsta kosti „púður-
sykurinn” því að grammið af honum
kostar innan við 100 krónur.
50.000 heróínsjúklingar
Afleiðinganna er þegar tekið að
gæta. Opinberar skýrslur greina frá
um 50 þúsund heróínsjúklingum í
Nýju Delhí einni. — Bevenora
Muhan, sem veitir forstöðu af-
vötnunarhæli hér í borg, segir líklegt
að heróínneytendur í höfuöborginni
séu vart undir 240 þúsund.
Það kemur heim við reynslu
flestra þeirra, sem DV hefur talað
við og eitthvað þekkja til mála, að
margfalda megi opinberar tölur með
4 eða jafnvel 5 til að fá sannari út-
komu um raunverulegan f jölda neyt-
enda. — En 240 þúsund af sex
milljónum, sem er íbúafjöldi Nýju
Delhí, erunær4%.
Lögreglustjóri einn, sem mikla
reynslu hefur af viðureign við eitur-
lyfjaþrjóta, sagði í viðtali viö DV að
væg viöurlög væru meginástæöa
þess að ekki hefði betur gengið í bar-
áttunni við eiturdreifinguna.
„Jafnvel illræmdir eiturlyfjasaiar
ganga hér út úr réttarsölum með
hlægilega mUda dóma,” sagði hann.
,,Þaö ætti að hafa að minnsta kosti
sjö ára lágmarks fangelsisvist við
eiturlyfjadreifingu. ’ ’
Spilling
En vandinn liggur ekki aöeins í
iagasetningunni. Hann er ef svo má
segja landlægur einnig í lögreglu-
stöðvunum. Indverska lögreglan
hefur miöur gott orð á sér og þykir
ekki ganga mjög vasklega fram í lög-
gæslunni. Mútuþægni hefur lengi
loðaövið hana.
Háttsettur lögregluforingi í
Bombay viðurkenndi í spjalli við
blaðamann DV að spiUingin næði frá
hinum lægst setta lögregluþjóni upp
tilmanna í æðstu stöðum. Eitt dæmið
þar um nefna menn gjaman eitur-
lyfjasalana í Nýju Delhí sem aUir
vita orðið um en fá þó alveg að vera í
friði fyrir lögreglunni utan einstaka
skyndileitir sem leiða sjaldan tU
handtöku glæpamannanna (sem
kannski hafa verið varaöir við í tæka
tíð).
Slakari þjónusta
Um daginn ætlaði blaðamaður DV
að fá sér far meö rikksjá. Það var
sægur af þeim á einu götuhominu. I
stað þess aö rjúka upp og bera sig
eftir viðskiptunnm, því aö nógir eru
um hituna,hreyfði sig enginn. Og þeir
vom ófáanlegir til vinnu enda alUr
uppdópaðir af „púðursykri” —
lDdega skammtinum sem þeim haföi
ekki tekist aðselja þann daginn.