Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR 2. ÁGUST1985.
15
Ingunn Ingimarsdóttir, 9 ára, var
aö reyta arfa í garðinum sínum þeg-
ar DV kom í heimsókn í skólagarö-
ana vestan Árbæjarsafns.
Er mikið af arfa hjá þér?
„Nei, ekki mikið en mér finnst
skemmtilegast að reyta arfa, svo er
líka svo mikið af honum, miklu
meiraenheima,” sagðilngunn.
SJ.
AÐ REYTA ARFA
Ingunn Ingimarsdóttir. Henni fannst vera mikið af arfa ■ skolagorðun-
um, en það væri allt í lagi þvi það væri svo gaman að reyta hann.
DV-mynd Bj.Bj.
SKEMMTILEGAST
Skólagarðar Árbæ jar:
Meira af stelpum
enstrákum
I skólagörðunum í Arbæ eru í
sumar um 70 böm og eru stelpurnar í
meirihluta þar. Garðurinn í Árbæn-
um er vestan Árbæjarsafns og
þangað koma krakkar úr Arbænum
og nýja hverfinu í Ártúnsholti.
Krakkarnir, sem koma í garöana,
eru á aldrinum 9—12 ára og kostar
sumariö 200 krónur.
Anna Gunnarsdóttir veitir garðin-
um forstöðu og sagði hún að aðsóknin
í sumar væri svipuð og í fyrra. I júli-
mánuði eru margir í fríi en þá fá
krakkarnir yfirleitt einhverja til að
sjá um garðana fyrir sig. Anna sagði
að núna mættu krakkarnir a.m.k.
tvisvar í viku til að hugsa um garð-
ana, en einn dagur í viku er notaður
til aö fara í leiki og einn dagur er
notaður í ferðalög, vítt og breitt um
bæinn. Á föstudögum eru gefnar
einkunnirfyrir hverja viku.
Auk garðanna í Arbæ og Skerja-
firði em starfræktir garðar í Laugar-
dal, við Ásenda og í neðra Breiðholti
og vom krakkar úr neðra Breiöholti
einmitt í heimsókn í Árbænum þegar
við litum þangaö. I Reykjavík eru
rúmlega 600 böm í skólagörðunum,
vítt og breitt um borgina.
SJ.
Guðrún og Linda að hreinsa göt-
urnar i garðinum hennar Guðrún-
ar. DV-mynd Bj.Bj.
Radísurnar
eru
ofsagóðar
Guðrún, 8 ára, og Linda, 9 ára,
vom aö hreinsa götur og reyta arfa í
garðinum hennar Guðrúnar, Linda
kom meö til að hj álpa vinkonu sinni.
Hvað er nú skemmtilegast að gera
í skólagöröunum?
„Það er bara gaman að vinna í
garöinum, en skemmtilegast er að
taka upp. Ég er byrjuð aö taka upp
radísur og þær voru ofsagóðar,”
sagði Gúðrún og leit stolt yfir garð-
inn sinn.
SJ.
Skólagarðar við Víðistaði i Hafnarfirði:
Svipaður fjöldi
ogi
I skólagörðunum við Víðistaði í
Hafnarfirði eru í sumar 128 börn, sem
er svipaður fjöldi og í fyrra, að sögn
Höllu Þórðardóttur, forstöðukonu
skólagarðanna þar. I Hafnarfiröi er
líka annar garður þar sem em 110
börn, hann er við Öldugötu. Víöistaða-
garðurinn þjónar norður- og vesturbæ
Hafnarfjarðar og kostar 200 krónur að
fyrra
vera í skólagöröunum í Hafnarfirði
yfir sumarið.
Vinnan í görðunum hefst í byrjun
júní og stendur til mánaðamóta ágúst-
september, eftir því hvernig uppsker-
an gengur. Halla sagöi að yfirleitt væri
ekki mikið um ferðalög hjá krökkunum
en þau færu a.m.k. eina ferð yfir
sumarið en þær mættu gjarnan vera
fleiri. sj.
Oðinn ræktar rauðkál
ígarðinum sfnum
Oðinn Rafnsson hefur aldrei áöur
veriö í skólagörðunum en hann bjóst
svo sannarlega við að koma aftur
næsta sumar. Hann sagði að sér þætti
flest sem hann gerði í görðunum
skemmtilegt, en skemmtilegast væri
samt að núna hefði hann lært að þekkja
plönturnar. Oðinn er með rauðkál í
garðinum hjá sér en það hafði hann
náð sér í sjálfur í gróðrarstöð nálægt
garöinum.
Hvers vegna gerðirðu það?
„Nú, mér finnst rauðkál mjög gott
og ég hlakka mikiö til að boröa það í
haust,” sagöi Öðinn.
SJ.
Óðinn stillti sér upp fyrir Ijósmynd-
arann við garðinn sinn sem er
númer43. DV-myndVHV
Hjördis og Harpa máttu varla vera að því að lita upp við vinnuna
DV-mynd VHV
LEIÐINLEGAST
AÐ REYTA ARFA
Hjördís, 10 ára, og Harpa, 8 ára,
hafa ekki verið áður i skólagöröunum
og sögðu að leiðinlegast væri að reyta
arfa en skemmtilegast væri að setja
niður.
Hvers vegna fóruð þið í skólagarð-
ana?
„Það er gott að eiga grænmeti fyrir
veturinn,” svöruðu garðyrkjukonum-
araðbragði.
Hvað mætið þið oft í viku?
„Við fáum stundum frí, núna þarf
helst að vökva og reyta arfa en það er
alveg óþarfi aö koma á hverjum degi
og vökva, þannig getur maður drekkt
plöntunum,” sagði Hjördís.
SJ.
„Þetta er alveg hundleiðinlegt,”
sagði Stefán Freyr, þegar við spurð-
um hann hvemig honum líkaði aö
vera í skólagörðunum. „Mér finnst
mest gaman að setja niður, arfa-
hreinsunin er alveg til vandræöa,”
bættihannvið.
Hann sagöist ekki vita alveg hvað
hann væri að rækta, en gat taliö upp
radísur, kál, gulrætur og kartöflur.
Hvað ætlarðu svo að gera við upp-
skeruna?
„Ég ætla að biðja mömmu að gera
mísósúpu.”
Hvaðernúþað?
„Það er grænmetissúpa, sem
amma kann að gera, og hún kenndi
mömmu að búa hana tll. Það er ofsa-
góð súpa og mjög holl,” sagði
Magnús og hélt áfram að reyta arf-
ann.
Stefán Freyr að reyta arfa, hvað
honum finnst alveg hundleiðín-
legtverk. DV-myndVHV
„ÆTLA AÐ BIÐJA
MÖMMUAÐ
GERA MÍSÓSÚPU”
— sagði Stefán Freyr
„Ferfskóla-
garðanatilað
hafaeitt-
hvaðaðgera”
— sagði Hiidur Brynja
í Snælandsgarðinum
Hildur Brynja er með garð með
vinkonu sinni sem er úti á landi eins
og stendur og þarf hún því að sjá ein
umhannámeðan.
Hildur Brynja er ekki óvön í skóla-
görðunum því þetta er þriðja
sumariðhennar.
Hvers vegna feröu í skólagarðana?
„Sko, ég fer ekki í sund og svoleiðis
og þess vegna fer ég í garðana til aö
hafa eitthvað að gera,” sagði Hildur.
Hún sagðist mæta á hverjum degi og
stundum þyrfti hún að vera lengi.
Hildi finnst skemmtilegast að setja
niður og taka upp, lika finnst henni
skemmtilegtaðvökva. SJ.
Hildur Brynja, 8 ára, sór ein um
garðinn, sem hún og vinkona
hennar eru með, og segist stund-
um þurfa að vera svolitið lengi.
DV-mynd VHV