Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Síða 17
DV. FÖSTUDAGUR 2. ÁGOST1985.
17
Rokkspildan
Rokkspildan
Rokkspildan
HVER ER ÞESSI
JENS HANSSON?
I tilefni af útkomu tveggja hljóm-
platna frá stúdió Mjöt voru haldnir
hljómleikar á Lækjartorgi föstudag-
inn 26. júlí. Hljómsveitimar sem
plöturnar eiga, Meö nöktum og
Fásinna, komu þar fram í blíö-
skaparveðri aö viðstöddum nokkrum
mannfjölda.Vandræði voru með
„sándið”. Eg heyrði Fásinnu flytja
Hitt lagið sitt en ekkert heyrðist í
söngvaranum sem þó virtist gera sitt
besta. Þetta reyndist jafnframt síð-
asta lag þeirra Fásinnu pilta og Meö
nöktum tóku við. Þeir eyddu þrem
eða fjórum lögum í að reyna aö ná
þolanlegu „sándi” og tókst það aö
lokum, heyrðist mér. Þá varð ég aft-
ur á móti að hverfa af vettvangi
vegna óviðráðanlegra ástæðna.
En þó að „sándið” margumtalaða
hafi ekki verið sem skyldi er samt
vert að þakka þetta framtak. Meira
af sliku, takk fyrir. Og plöturnar báö-
ar á ég eftir að heyra. Bæti úr því á
næstunni og í framhaldi af því mun-
um við heyra meira um þessar
hljómsveitir á væntanlegum Rokk-
spildum. -ÞJV
„Ja, ég er Reykvikingur, svona að
mestu leyti og er fæddur tuttugasta
og sjöunda október, nítjánhundruð
sextíuogþrjú.”
Svo mælir Jens Hansson sjálfur.
Gestir á Megasarhljómleikum
spuröu margir hverjir aðra ofan-
greindrar spumingar. Mér fannst
eiginlega liggja beinast við að bera
hana undir Jens sjálfan. Það var
gert með viðhöfn á heimili hans að
Grettisgötu 31a fyrir skemmstu og
svarið kom hér á undan. Við sátum
inni í eldhúsinu og drukkum
Melroses.
— Fy rstu kynni af tónlist?
„Eg byrjaði að læra á klarínett
þegar ég var átta ára og lærði í þrjú
ár. Pabbi er saxófónleikari (Hans
Jensson) og okkur báðum fannst
heppilegt að byrja á klarínettinu.
Eftir þessiþrjú ár hætti ég og byrjaði
ekki aftur fyrr en fimmtán ára, þá á
saxófón. Gelgjuskeiöið skiluröu.”
Æskufélagar
úr Vogunum
„Eg hef lært í tónlistarskóla FlH í
tvö og hálft ár,” sagði Jens
aðspurður um nám sitt í saxófónleik.
— Hvað með spilamennsku?
„Eg byrjaði að spiia á Oiafsfirði
eitt sumar þegar ég var þar á vertíð.
Eg var í ýmsum hljómsveitum,
Þúfnabönum, Klakabandinu og
Utrás, þetta vom allt strákar sem
voru búnir að spila lengi á böllum. ”
— Hvernig atvikaðist það að þú
f órst aö spila með Das Kapital?
„Það var nú í gegnum kunnings-
skap okkar Gumma (áður trommu-
leikari í Tappa sáluga tíkarrassi).
Við emm æskufélagar, bjuggum
báðir í Vogunum. Eg kom inn í þetta
rétt áöur en upptökur hófust og
spilaði í einu lagi á plötunni, Blind-
sker. Eg var svo með hljómsveitinni
þangaö til hún hætti um áramótin. ”
— Hvernig var að spila í Fjár-
magninu?
„Bara gaman. Eg var að gera
þama nýja hluti eins og til dæmis að
vinna í stúdíói. Það var mjög gaman
aðprófaþetta.”
Aldrei heyrt
passíusálmana
— Næst spilar þú með Megasi?
NEKTAR-FÁSINNA Á LÆKJARTORGI
Jens i eldhúsinu é Grettisgötunni. „Ég er ekkert spenntur fyrir aö lœra
of mikið á saxóföninn"
DVmynd VHV
„Já, upphaflega átti Das Kapital
að spila meö honum á þessum hljóm-
leikum í Austurbæjarbíói. Hljóm-
sveitin hætti hins vegar en Megas
var búinn að tala við mig áður og
biðja mig um að vera með. Eg var
heldur ekkert sérstakt að aðhafast
þá stundina svo ég hafði nægan tíma
til þessarna.”
— Hvernig var að vinna með
Megasi?
„Mér líkaði vel að vinna með
honum. Við vorum að vísu allir dá-
lítið stressaðir fyrir fyrstu
tónleikana í Austurbæjarbíói en það
tók fljótt af. Megas er mjög ljúfur
maður og ákaflega skemmtilegur.
Eg hafði töluvert hlustað á hann þeg-
ar ég var yngri og það var gaman að
fá þetta tækifæri til að spila meö
honum. Eg spilaði svo líka með
honum í Gamla biói á Passíusálmun-
um. Það var í fyrsta skipti sem ég
heyrðiþá.”
Tónlist með húmor
Haldið ykkur fast. Næst kom hin
klassíska spurning: Hvað finnst þér
um íslenska popptónlist?
„Eg veit eiginlega ekki hvað skal
segja. Sumt af því sem gefið er út er
gott. Það er margt frísklegt að ger-
ast hér. En við eigum engin
reglulega stór bönd hérna sem eru að
gera meiriháttar hluti. Ekkert miðað
við það sem er erlendis. Hér er líka
mjög lítið að gerast í elektrónískri
tónlist sem mér finnst mjög áhuga-
verð.”
— Hvers konar tónlist hlustar þú
mest á?
„Eg hlusta á alls konar tónlist. Að
vísu ekki óperur. Hvað mér finnst
skemmtilegast að spila? Það er svo
margt. Tónlist er víðfemt orð og það
er erfitt að taka eitthvað fram yfir
annaö. Rokkið finnst mér þó alltaf
skemmtilegt og tónlist með smá-
húmor í hefur líka alltaf heillaö
mig.”
„Ég er á lausu... "
— I hverju ertu að vinna núna?
„Eg er dúkari. Það er ágætis-
vinna og stór plús að geta ráðið
vinnutímanum að nokkru sjálfur.
Hvað tónlistina varðar þá er ég á
lausu. Hugsanlega verður eitthvað á
döfinni hjá mér eftir áramót en ég
læt ekkert uppi um það að svo
stöddu.”
— Hvað með frekara nám?
„Ég ætla allavega í FIH í haust,
annars stefni ég á að fara til Banda-
ríkjanna ískóla.”
— Að læra meira á saxóf óninn?
„Bæði og. Eg ætla mér líka að læra
stúdíóupptökur (pródúseringu). Eg
er í sannleika sagt ekkert spenntur
fyrir að læra of mikið á saxófóninn.
Mér finnst ekki eftirsóknarvert að
vera of skólaður I þessu. Þegar
rútína er komin á þetta er ekkert
gaman lengur.”
— En ef við lítum okkur nær. Hvað
ætlar þú að gera um helgina?
„Egverðí Atlavík.”
— Aðspila?
„Nei, ferðin var nú hugsuð sem
einskonar sumarfrí. Þaö er ekkert
ákveðiö með spilamennsku, ég tek
saxófóninn með svona til öryggis. En
það geturalltskeð.”
— Jens, einhver fróm lokaorð?
„Nei.”
-ÞJV.
I dag hefst formlega ungmenna-
hátiðin í Atlavík. Eins og venjulega
er margt skemmtiatriða á þessari
hátíð sem og öðrum. Mesta athygli
vekur þó vafalaust hin árlega hljóm-
sveitakeppni þeirra austanmanna.
Hún er-nú haldin í fjórða sinn og hafa
hvorki fleiri né færri en 16 hljóm-
sveitir skráð sig til leiks. Og til mik-
ils er líka að vinna. Veitt eru þrenn
verðlaun, 70.000, 30.000 og 20.000 kr.
Sannarlega dágóöar upphæðir sem
ættu að geta borgað upp helgina hjá
Flakavirkið — færeyskt
frystihús
Það var hljómsveitin Fásinna sem
bar sigur úr býtum í fyrra. Sú hljóm-
sveit hefur nýlega sent frá sér sina
fýrstu plötu eins og greint er frá hér
annarstaðar á síðunni. Hljóm-
sveitirnar í ár eru víðsvegar af land-
inu og bera þær að vanda hin skrýtn-
ustu nöfn. Deleríum tremens, Flaka-
virkið (færeyskt orð, ku þýða frysti-
hús), Deopoeh (?), Bara í Sunnudal,
Coma, Hross í haga og Skriðjöklar
svo dæmi séu tekin. Þrjár þær síöast-
töldu tóku líka þátt í keppninni i
fyrra.
Reglurnar eru einfaldar. Hver
hljómsveit leikur tvö frumsamin lög
og má flutningurinn ekki taka lengri
tíma en níu mínútur. Sveitirnar
byrja að spila klukkan fjögur á
Hljómsveitakeppnin
íAtlavíkhefstídag
Deleríum
tremens
meðal
keppenda
morgun, laugardag.og aö loknum
leik hljómsveitanna allra mun sér-
stök dómnefnd velja þrjár bestu.
Þær spila síöan aftur á sunnudag og
verður röð þeirra í verðlaunasætum
þá ákveöin.
Ringo (fyrra, Dylan í ár?
Eins og alkunna er var það sjálfur
Ringo Starr er afhenti verðlaunin í
hljómsveitakeppninni í fyrra. Þeir
UIA menn hafa víða skimaö eftir
frægum nöfnum til að afhenda verð-
launin í ár. Bæði George Best og
Bobby Moore voru tilbúnir til að
koma en þeir ungmennafélagsmenn
taka ekki við hverju sem er. Þegar
síðast fréttist var verið að reyna að
fá Bob Dylan, sem nýverið hefur lok-
ið hljómleikaferð um Sovétríkin, til
aö koma við í Atlavík. Allt er hins
vegar á huldu hvort það hefur tekist
og væntanlega skýrist þaö á sunnu-
dagskvöldið.
Dóu á sviðinu
Þessi hljómsveitakeppni, sem nú
er orðin að árlegum viðburði, er
feikilega skemmtileg uppákoma.
Það er gaman að upprennandi tón-
listarmenn skuli fá tækifæri til að
koma fram opinberlega, þó að stutt
sé i flippið hjá sumum. Mig minnir til
dæmis aö ein hljómsveitin hafi dáiö
drottni sinum á sviðinu í fyrra og
hreinlega verið borin út án þess að
koma upp hijóði. Þaðskal tekið fram
að frumleg framkoma þessara fé-
■ laga kom þeim ekki i úrslit, því er nú
ver og miður.
Þeir UlA menn hyggjast eftir
mætti reyna að komast hjá svona
„skandalíseringum” í ár og verður
áberandi ölvuðum hljómsveitum
ekki hleypt inn á sviðið.
En sem sagt, hin árlega Atlavíkur-
keppni í hljóðfæraslætti og söng hefst
á morgun og ég óska keppendum vel-
farnaðar. Megi þeir vonlausustu
vinna.
-ÞJV
Hljómsveitin Mefi nöktum 6 Lækjartorgi.
Söngvari Fásinnu þenur raddböndin.
Það kom þó afi litlu gagni í Hinu laginu.
DV-mynd Gunnar Bender