Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Síða 27
DV. FÖSTUDAGUR 2. AGUST1985.
39
f f Cttll'l c-l'U-f U- X/ r, 1 UofVf utföf C-f VI-.
i< f u jfvriötwtuöyiH’,
Bílvelta varð á Suðurfjarðavegi sunnan Dalsárbrúar í Fáskrúðsfirði aðfaranótt
31. júlí. Ökumaður, sem var einn í bifreiðinni, slapp ómeiddur, en bifreiðin er mikið
skemmd. Ökumaður var með bílbelti er slysið varð en hefur að sögn lítið notað þau,
og má eflaust þakka bílbeltinu að meiðsli urðu lítil sem engin. Ökumaður, sem er
aðkomumaður, var ölvaður, er hann velti bifreiðinni, en fyrr um daginn hafði hann
ekið mjög gáleysislega um götur bœjarins og mesta mildi að ekki hlaust slys af hröð-
um akstri hans.
Þingflokkur Alþýðuf lokksins:
Kjamfóðurgjald
verði afnumið
Þingflokkur Alþýöuflokksins hefur
sent frá sér ályktun í tilefni verhækk-
ana á eggjum, kjúklingum og svína-
kjöti, í kjölfar hækkaös kjarnfóöur-
gjalds. Lögö er áhersla á áð þingmenn
Alþýðuflokksins hafi lagt til á síðasta
þingi aö framleiösluráösfrumvarpinu
yröi vísað frá. Þeir bentu þá á að frum-
varpið byggöi á úreltum stjórnsýslu-
hugmyndum um ríkisforsjá, ein-
okunarverðmyndun og þvinganir sem
_ mga í berhögg við stjórnarskrár-
ákvæði um atvinnufrelsi. Einnig benti
þingflokkurinn á aö lögin myndu úti-
loka samkeppni framleiðenda um verö
og gæði og stuðla að offjárfestingu
vinnslu- og dreifingaraðila. Enn-
fremur fælu lögin í sér hóflausa skatt-
lagningu á þær búgreinar sem Fram-
sóknarkerfinu eru vanþóknanlegar.
Þingflokkur Alþýðuflokksins telur að
afnema beri kjarnfóðurgjaldið þegar í
stað, að verðmyndun í landbúnaði
eigi að byggjast á beinum samningi
vinnsluaðila og smásala, að neytendur
eigi að njóta samkeppni vinnsluaðila
um lækkun tilkostnaöar í formi lækk-
aðs vöruverðs og að afnema beri ein-
okunaraðstöðu og stuðla að frjálsri
samkeppni um útflutning landbúnað-
arafurða.
-pá
Reglugerð um endurgreiðslu f óðurgjalds:
Nær eingöngu til svína-
og alif uglabænda
sauðf járbændur næstir í röðinni
Reglugerð um endurgreiðslur kjarn-
fóðurgjalds er nú á lokastigi vinnslu í
landbúnaöarráðuneytinu, en að sögn
Guðmundar Sigþórssonar, skrif-
stofustjóra þar, mun hún eingöngu ná
til alifugla- og svínabænda. Tekið
verður til við samningu endur-
greiðslureglna fyrir sauöfjárbændur, í
framhaldi af þeirri fyrri.
1 reglugerð þeirri sem gildir fyrir
alifugla- og svínagændur er gert ráð
fyrir að af hinu svonefnda 80% gjaldi
komi 6/8 hlutar til endurgreiðslu við
fóðurkaup hvers bónda. Misjafnt er
eftir fóðurtegundum hve endur-
greiðslur verða miklar en þaö getur
munað á tonni af fóðri sem kostar t.d.
3800 krónur, sem er í lægri kantinum,
og tonni sem er á 6000 krónur sem er
með því hærra.
1 reglugerðinni er einnig ákveðið, að
15/80 hlutar af 80% gjaldinu komi til
endurgreiðslu samkvæmt framleiðslu,
og er sú greiðsla fyrirhuguð eftir
hverja þrjá mánuði. Öllum
framleiðendum endurgreiðist þá sama
tala á afurðamagn. 5/80 hlutar renna
síðan til Framleiðnisjóðs, eins og
komiö hefur fram.
Að sögn Guðmundar Sigþórssonar
hefur fóðurverð á erlendum
mörkuðum farið lækkandi og í sumum
tilvikum hefur oröið 3—4% lækkun á
fóðri frá áramótum. Einnig hefur
komið í ljós að hækkun á fóðurverði
hérlendis verður innan viö 10% þegar
endurgreiðslu 15% hlutans er lokið.
-pá
Innbrotsþjófur með
grænan bakpoka
Brotist var inn í Kramhúsiö á Skóla-
vörðustíg aðfaranótt þriðjudagsins.
Þaöan var stolið myndbandstæki og
upptökuvél. Sama kvöld var nýlokið
sýningu dansara frá Senegal ásamt
bandarísku dansmeynni Adrienne
Hopkins.
Tækin sem stolið var eru af gerðinni
Olympus VX301 og National NV-100
ferðaupptökutæki í tösku. Þessu var
öllu stungið í grænan bakpoka sem
fröken Hopkins átti. Engin sjáanleg
ummerki eru á staðnum. Þeir sem eitt-
hvað vita um þetta mál eru beðnir að
hafa samband við Kramhúsiö.
VATNSSALERNI
Kemisk vatnssalerni fyrir
sumarbústaði, hjólhýsi
og báta.
Atlashf
Ármúla 7 — Sími 26755.
Pósthófl 493, Reykjavík.
Halldór Ámason skip-
aður fiskmatsstjóri
Halldór Árnason, efna- og hag-
fræðingur hefur verið skipaður fisk-
matsstjóri til næstu fjögurra ára.
Sjávarútvegsráðherra skipar í
stöðuna, að höfðu samráði við
Fiskmatsráö. Umsækjandi auk
Halldós var Guðrún Hallgrímsdóttir
matvælaverkfræðingur, forstöðu-
maður afurðadeildar Ríkismats
sjávarafuröa.
Halldór Árnason er fæddur 21.
október 1950. Hann lauk prófi í efna-
fræði frá Háskóla Islands árið 1977 og
hagfræði frá Háskólanum í Lundi árið
1980. Hann var iðnráðgjafi hjá
Samtökum sveitarfélaga á Austur-
landi 1980—82 og starfaði hjá Iöntækni-
stofnun við samræmingu á störfum
iönráðgjafa fyrir allt landið á árunum
1982—84. Þá sat Halldór í stjórn Kísil-
málmvinnslunnar hf. og var formaður
stjórnar 1982—84. Nú síðast var
Halldór verkefnastjóri Markaðsverk-
efnis sjávarútvegsráöuneytisins.
Halldór er kvæntur Þórimni S.
Einarsdóttur meinatækni og eiga þau
þrjú börn.
-pá.
Vegaeftirlitið f jar-
lægir auglýsingar
við þjóðvegi
„Við erum bara að framfylgja
reglugerð dómsmálaráðuneytisins
um umferðarmerki,” sagði
Hjörleifur Ölafsson hjá vega-
eftirlitinu, en starfsmenn þess hafa
að undanförnu tekið niður skilti og
auglýsingar við þjóövegi landsins
sem ekki falla undir reglur um unv
ferðarmerki.
Þgar blaðamenn DV voru á ferö á
Norðurlandi fyrir skömmu kvartaði
atvinnurekandi, sem er með
þjónustu við þjóðveginn, yfir því að
starfsmenn vegaeftirlitsins hefðu
tekið niður skilti sem kynntu
þjónustu hans. Setti hann þá upp ný
skilti inn á eigin landareign en var
engu að síður beðinn um aö f jarlægja
þau.
Hjörleifur Olafsson sagði að sam-
kvæmt lögum ætti að kynna sams
konar þjónustu á sama hátt og væri
kveðið á um hvers konar merki þetta
eru. Mynd af rúmi stendur til dæmis
fyrir gistiaöstöðu. Hingað til hefðu
hins vegar aöeins örfáir fariö eftir
þessu. Þar sem það væri í verka-
hring vegaeftirlitsins aö sjá um aö
lögunum væri fylgt heföi verið á-
kveðiö að þaö gerði gangskör að
þessum málum í sumar. ,,Ég vil
ráðleggja þeim sem ætla að kynna
sína þjónustu að lesa sér til um
hvernig merkingar þeir megi setja
upp og hvar, svo þeir verði ekki fyrir
óþægindum,” sagði Hjörleifur Ölafs-
son.
-JKH.
ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
LAUSAR STÖÐUR:
SJÚKRALIÐAR ÓSKAST TIL STARFA VIÐ EFTIR-
TALDAR DEILDIR:
- LYFLÆKNISDEILD II—A
- HANDLÆKNISDEILDIR II —B OG III —B
- BARNADEILD
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í
síma 19600 frá kl. 11.00—12.00 alla virka daga.
Skrifstofa hjúkrunarforstjóra.
VANTAR
EFTIRTAUN0
HVEm /S:
KOPAVOGUR: GARÐABÆR
Hófgarði Blikanes
REYKJAVIK:
Gunnarsbraut
Guðrúnargötu
Kjartansgötu
Ármúla
Síðumúla
Kastalagerði
Birkigrund
Furugrund
Grenigrund
Haukanes
Kriunes.
Suðurlandsbraut.
HAFID SAMBAND VID AFURBOSIUNA 06 SKRIFH) YKKUR A BIÐUSTA.
AFGREIÐSLA 1~¥V SÍMI27022
-EH.