Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Blaðsíða 28
40
DV. FÖSTUDAGUR 2. AGUST1985.
Andlát ■ Tónleikar
Björgvin Kárason lést 26. júli sl. Hann
var fæddur 11. mars 1971, sonur hjón-
anna Kristínar Björgvinsdóttur og
Kára Kaaber. Útför hans fer fram frá
Bústaðakirkju í dag kl. 13.30.
Hólmfríður Ingimundardóttir lést 27.
júlí sl. Hún var fædd á Hvannadalskoti
í Dalasýslu þann 22. mars 1922, dóttir
hjónanna Ragnheiðar Jóhannsdóttur
og Ingimundar Gíslasonar. Eftirlif-
andi eiginmaöur hennar er Ágúst Frið-
þjófsson og eignuðust þau tvö börn.
Hólmfríður veröur jarösungin frá
Langholtskirkju í dag kl. 15.00.
Þorvaldur Þorvaldsson, kennari á
Akranesi, lést 27. júlí sl. Hann var
fæddur í Hafnarfirði 13. febrúar 1929.
Eftirlifandi kona hans er Olína Jóns-
dóttir og eignuðust þau fjögur börn,
Utför hans fer fram frá Akraneskirkju
í dag kl. 14.30.
Guðrún Gísladóttir, Skólavörðustíg 28,
andaöist í gær, 1. ágúst, í öldrunardeild
Borgarspítalans.
Sigurður S. Haukdal, fyrrverandi
prófastur, andaðist 31. júlí.
Ingveldur Eyjólfsdóttir, Grettísgötu
50, sem andaöist 26. júlí, verður
jarðsungin frá nýju kapellunni í Foss-
vogi miðvikudaginn 7. þ.m. kl. 10.30.
Messur
Þingvallakirkja: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14.00. Kristján Björnsson
guðfræðinemi prédikar. Organisti
EinarSigurösson.
Sóknarprestur.
Kolbeinn Bjarnason og
Páll Eyjólfsson
spila í Árbæjarkirkju
Sunnudaginn 4. ágúst verður fitjað upp á
þeirri nýbreytni í Árbæjarsafni aö bjóða safn-
gestum upp á tónleika.
Þeir Kolbeinn Bjamason, flautuleikari, og
Páll Eyjólfsson gítarleikari munu halda
stutta tónleika í Árbæjarkirkju. Á efnis-
skránni verða tónverk frá 18. öld.
Kolbeinn og Páll hafa haldið nokkra
sameiginlega tónleika á undanförnum árum,
núna siðast á Sigurjónsvöku, þann 30. júní sl.
Er það von safnsins að gestir þess noti
þetta tækifæri til að njóta fagurrar tónlistar í
sérstæðu umhverfi.
Tónleikamir hefjast kl. 15.00. Þeir verða
endurteknir kl. 16.15.
Tilkynningar
Hækkun bóta
almannatrygginga
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
Matthías Bjamason, hefur í dag gefið út
reglugerð um hækkun bóta almanna-
trygginga. Um er að ræða ákvörðun um 2,4%
hækkun allra bóta frá 1. ágúst frá því sem þær
voru í júli en frá 1. júlí hækkuðu þær um 7,5%
frá því sem þær voru í júní.
Upphæöir einstakra bótaflokka verða frá 1.
ágúst sem hér segir: .
Elli- og örorkulífeyrir 5.123
Hjónalífeyrir 9.221
Hálfurhjónalífeyrir 4.611
Full tekjutrygging einstaklinga 7.506
Full tekjutrygging hjóna 12.690
Heimilisuppbót 2.258
Barnalífeyrir vegna 1 bams 3.137
Mæðralaunvegnalbams 1.966
Mæðralaun vegna 2 bama 5.151
Mæðralaun vegna 3 bama 9.136
Ekkjubætur 6 mán. og 8 ára 6.419
Ekkjubætur 12 mán. 4.813
Fæðingarorlof 22.826
Vasapeningar samvk. 9. gr. 3.158
Vasapeningar samkv. 51. gr. 2.654
Verða hinar hækkuðu bætur afgreiddar við
afgreiðslu bóta í ágúst.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
l.ágústl985.
Tapað -fundið
Seðlaveski
tapaðist í austurbænum í gær milli kl. 10 og 15.
Talsverðir peningar voru í veskinu. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 24629. Fundar-
laun.
Forskot
á ölvun
á Akureyri
Mikil ölvun var á Akureyri í nótt.
Voru þar aöallega á ferð gestir á tjald-
stæðum bæjarins. Að sögn lögreglunn-
ar var þetta fólk sem var á leiö austur
yfir til Atlavíkur.
„Lögreglan hafði nóg að gera og hér
voru fangageymslurnar hálffullar,”
sagði varðstjórinn þar nyrðra í
morgun. Ekki mun þó hafa komið til
neinna alvarlegra átaka. -APH.
Banaslys
Banaslys varð viö Vík í Mýrdal á
þriðjudagsnótt. Bifreið sem var á
leið austur hafnaði á brúarstólpa
brúarinnar yfir Uxafótarlæk. Bíl-
stjórinn, sem var einn í bílnum,
mun hafa látist samstundis.
Hann hét Ársæll J. Sigurbjörns-
son, 35 ára, búsettur í Reykjavík.
Hann lætur eftir sig eitt barn.
APH
Þökkum öllum auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginkonu minnar og móður okkar,
Katrínar Björnsdóttur.
Sturla Hjartarson,
böm, tengdabörn og barnabörn
I gærkvöldi_______ í gærkvöldi
Stefog íþróttafréttir
Margir hafa nú þegar orðið til að tjá
sig um stefið sem sífellt er skotið inn
með eða á milli tilkynningahrina í út-
varpinu. Og svo ég taki nú undir þann
söng aðeins, ekki þó til að nöldra neitt
ákaflega, þá verður að segjast að þetta
er heldur þreytandi músík. Sennilega
er þetta bara spilað allt of oft. Og ég er
raunar á því að það hafi ekki þurft að
búa til svona stef, síbylja tilkynninga-
lestrarins er þjakandi erfið á að hlýða,
jafnvel þó í smáum skömmtum sé, og
það er vandséð að svona stef bæti
nokkuð úr þeirri raun. Eg hefði gjarn-
an viljað fá gamla tsland ögrum skoriö
á píanó í þess stað en það er náttúr-
lega bara gamaldags þjóðernishyggja
á hljóðgervlaöld.
En nóg um aukaatriði. I Daglegu
máli í gærkvöldi var í enn eitt skiptið
fjölyrt um málfar þeirra víöfrægu
manna, íþróttafréttamanna. Þetta fer
nú að veröa nokkuð gott um það mál-
efni. Margar voru rósirnar sem tíndar
voru til, en þaö kom þó engan veginn
nógu skýrt fram hvernig stíl umsjónar-
maður þáttarins vill aö íþróttafrétta-
menn temji sér frekar, eða á hvern
hátt þeir geti bætt sig. Iþróttafrétta-
menn eru undir sömu sök seldir og aðr-
ir blaöaskríbentar, aö festast gjarnan í
klisjum, en þeim er kannski enn hætt-
ara viö slíku þegar viðfangsefnið, t.d.
boltaleikir, fylgir alltaf sama ferli og
sömu reglum. Er þá nema von að þeir
reyni að liöka aðeins um í frásögnun-
um? Það tekst auðvitaö misjafnlega.
Af öörum dagskrárliðum útvarps í
gærkvöld má nefna hið áheyrilegasta
leikrit eftir Andrés Indriðason,
Fiðrildi, og einnig þáttinn Gestagang á
rás 2. sem var ekki jafnvel heppnaður.
Hann var því miður allt of mikið
klipptur í sundur af órólegum
auglýsingum svo að sú þægilegheita-
stemning sem reynt er að ná upp fór
forgöröum. Ef vel á að vera þurfa
þættir af þessu tagi að vera ein sam-
fella.
PéturÁstvaldsson.
Sýningar
Slunkaríki, Isafirði.
Á morgun 3. ágúst, opnar Lára
Gunnarsdóttir sýningu. Á henni eru 14
teikningar unnar með blýanti, litblý-
anti og kolum. Lára var við nám í
Myndlista- og handíðaskóla Islands frá
1978—’83. Þessi sýning er fyrsta einka-
sýning Láru en hún hefur áður tekið
þátt í nokkrum samsýningum. Sýn-
ingin verður opin frá 4—6 þriðjudaga
til föstudaga og frá 3—6 um helgar.
Sýningunni lýkur 15. ágúst.
Afmæli
Sextugur er í dag Kristinn Björnsson
rafverktaki, Ásgaröi 3 Keflavík. Hann
veröur að heiman.
Sjötugur er í dag Sigurður Einarsson
leigubílstjóri frá Kárastöðum í Þing-
vallasveit. Hann veröur að heiman í
dag.
Fimmtug verður á mánudaginn, 5.
ágúst, Kristín Þorvaldsdóttir, Stíflu-
seli 5. Hún tekur á móti gestum á
heimili sínu laugardaginn 3. ágúst eftir
kl.5.
Sjötug er í dag frú Jóna Guðmunds-
dóttir, Vitastíg 4 Hafnarfirði. Hún
tekur á móti gestum á veitingahúsinu
Gafl-inn við Reykjanesbraut eftir kl. 20
í kvöld.
Tveir ungir menn frá Seyðisfirði
sluppu ómeiddir úr nauðlendingu á
Jökuldalsheiði í gærkvöldi. Voru þeir á
leið frá Herðubreiðarlindum til Egils-
staða þegar hreyfill flugvélarinnar
stöðvaðist í 500 til 1000 feta hæð, senni-
lega vegna bensínleysis. Eftir að hafa
Mótorhjólaslys:
Ók á tvær
bifreiðar
Mótorhjúlaslys varð í Kópavogi í
gær. Maður á mótorhjóli ók á tvær
kyrrstæðar bifreiðar. Hann slasaðist
nokkuö við áreksturinn og liggur nú á
gjörgæsludeild Borgarspítalans. Ekki
er vitað hver orsök slyssins var. APH
Kerti á
Tjörninni
Frá stríðslokum hefur það verið
venja að fleyta kertum niður ár til að
minnast þess að kjarnorkusprengju
var varpaö á Hiroshima. Klukkan 23.15
að kveldi 5. ágúst verða rétt 40 ár liöin
frá þeim atburði. Á þeirri stundu munu
friöarsinnar víöa um heim fleyta
kertum á ám og vötnum í minningu
fórnarlamba sprengjunnar í Japan. I
Reykjavík verður kertum rennt út á
Tjörnina umrædda kvöldstund enda
ekki um kröftugri straumvötn að ræða
í hjarta borgarinnar.
látiö flugradíóið á Egilstööum vita,
lenti flugmaðurinn vélinni á melöldu í
Fiskidalshálsi. Tókst lendingin vel,
þannig aö vélin, sem er lítil eins hreyf-
ilsvél í eigu flugklúbbs á Egilsstöðum,
er óskemmd og mennirnir heilir á húfi.
EA
Kona varfl fyrir bil á Hringbrautinni i gœr. Hún var að fara suflur yfir götuna
á móts vifl Björnsbakari. Bifreifl sem var á leifl austur náfli ekki afl stöflva
timanlega mefl fyrrnefndum afleiflingum. Konan var flutt á slysadeild en er
ekki iífshættulega slösufl.
DV-mynd: S.
Sluppu ómeiddir
iír nauðlendingu
Fiskf ramleiðendur bíða átekta í hvaladeilunni:
„Miklir hagsmunir í veði fyrirokkur"
„Viö höfum lagt áherslu á að fariö
verði varlega í sakirnar í þessum
málum,” segir Guðmundur H.
Garöarsson hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna þegar DV spurði hann
hvort ekki væri ástæða til aö óttast
aðgerðir af hálfu friðunarhópa í
Bandaríkjunum sem gætu skaðaö sölu
á fiski þar.
„Við höfum margsinnis ítrekað að
ekkert verði gert sem geti skaðaö
hagsmuni okkar í Bandaríkjunum.
Seinast var þetta ítrekað í vor,” segir
Guðmundur.
„Við bíðum átekta. Það eru miklir
hagsmunir í veöi fyrir okkur. Viö
vonum bara að þessir hópar virði þá
staðreynd að Alþjóða hvalveiðiráðið
hefur samþykkt þessar veiðar,” segir
Sigurður Markússon, framkvæmda-
stjóri sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins, aðspurður um viðbrögð
vegna hugsanlegra aðgerða friðunar-
hópa í Bandaríkjunum. -APH.