Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Page 31
DV. FÖSTUDAGUR2. AGUST1985.
43
-nglinga — Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga — Knattspyrna unglinga
5. flokkur — A-riðill:
2 stig til Fram
í tvísýnum leik
— unnuÍA, 2:1
Fram og tA léku á Framvellinum i 5.
fl. A-rlðils sl. þriðjudag. Leikurinn var
afar þýðingarmikill fyrir bæði liðin,
einkum þó ÍA þar sem það tapaði fyrir
UBK á dögunum. En ekki cr öll von úti
fyrirþá um úrslitasæti.
UMSJÓN:
HALLOÓR
HALL-
DÓRSSON
Hringiö í 686627 á miöviku-
dögum milli kl. 18 og 20.
Framarar tryggðu stöðuna mjög
með þessum sigri. I,eikurinn var
annars jafn á köflum og spennandi.
Staðan í hálfleik var 0—0.1 síðari hálf-
leik fóru hlutir að gerast og á 9. mín.
skoraði Rúnar Gíslason fyrir Fram
eftir gott upphlaup Framara á vinstri
kanti. Staðan 1—OfyrirFram.
Akurnesingar reyndu nú hvað þeir
gátu til að jafna en inn í mark vildi
boltinn ekki þrátt fyrir góö tilþrif IA-
strákanna. En það var aftur á móti
Hallmundur Albertsson sem skoraði 2.
mark Fram á 15. mín. með góðu skoti,
efst í bláhornið. Má segja að þetta
mark hafi gert út umleikinn.
iA-strákamir löguðu stöðuna á 18.
mín. þegar Amar Guðmundsson lagaði
stööuna í 1—2 fyrir Fram. Hætta
skapaöist við Frammarkið undir lokin
þegar lA-strákarnir fengu 3 horn-
spyrnur í röð. Þetta var góður leikur.
Jafntefli hefði kannski verið réttlátari
úrslit. En þaðeru mörkin semráöa.
Hér sést Steinar Ingimundarson 3. fl. KR skora 4. markið gegn Stjörnunni í
Garðabœ.
Frá 5. flokks leik Fram og ÍA. Mikili darraðardans fyrir framan mark Framara eftir hornspyrnu. Staðan er
2—1 fyrir Fram og ÍA-strákarnir reyna allt til að jafna. (DV-myndir HH)
3. flokkur — A-riðill:
KR-strákarnir
í sérklassa
— sigruðu St jörnuna í Garðabæ, 5:0
— Steinar með þrennu
Stjarnan og KR léku í A-riðli 3.
fl. í Garðabæ sl. þriðjudag. Búist
var við spennandi viðureign en
Stjörnustrákanir náðu aldrei að
sýna hvað í þeim býr. Reyndar
gáfu KR-ingar þeim aldrei tíma til
þess því þeir mættu mjög
ákveðnir til leiks.
Eftir aðeins 5 min. spil skoraði
Heimir Guðjónsson 1. mark KR-inga.
A 20. mín. bætti Steinar viö 2. markinu
og þannig var staðan í hálfleik. Yfir-
burðir KR-inga voru miklir í fyrri hálf-
leik og samleikur þeirra oft með
ágætum.
I síðari hálfleik byrjuöu Stjörnu-
strákarnir af miklum krafti en allar
sóknartilraunir þeirra stoppuöu á
sterkri vörn KR-inga. Siguröur
Bjarnason, snjall framherji
Stjörnunnar, komst aldrei framhjá
Þorsteini Guðjónssyni og félögum
þrátt fy rir góðar tilraunir.
Smátt og smátt fóru KR-ingar að
koma meira inn í leikinn, eftir þennan
f jörkipp Stjörnustrákanna fyrstu 5—10
mín., og réðu öllu um gang leiksins
sem eftir var. Steinar bætti við 3.
marki KR-inga á 15. mín. 4. markiö
gerði Steinar einnig skömmu síðar
eftir skemmtilegt gegnumbrot. 5.
markið var sjálfsmark þeirra Stjömu-
manna og reyndist þaö vera lokamark
þessa leiks. Yfirburðasigur KR-inga
var staðreynd. Ekkert virðist geta
stöðvað sigurgöngu KR-inga. Þetta lið
á einstæðan feril að baki. Það hefur
ekki tapað leik hátt í þrjú ár og stefnir
nú hraöbyri á Islandsmeistaratitil.
ísland - Danmörk, 4:3
Islenska drengjalandsliðiðsigraöi Dani
4—3 á Norðurlandamóti drengjalandsliða
sem fer iram í Bergen. Þetta er stórglæsi-
legt hjá strákunum — þeir unnu upp
þriggja marka forskot Dana og sýnir það
að þeir eru til alls vísir í næstu leikjum.
Egill Örn Einarsson heitir drengurinn á
myndinni og er hann í Þrótti R, fyrirliði
drengjalandslisins.
5. flokkur — A-riðill
Fram, KRog Valur eru komin i úrslit.
Fram 8 7 0 1 38-5 14
KR 8 6 2 0 37-8 14
Valur 7 3 3 1 22-13 11
UBK 8 5 0 3 28-13 10
IA 7 3 2 2 21-12 8
5. flokkur - B-riðill
Afturelding—Stjaman 7—1
Selfoss—FH 0-3
Þór, V,—Stjarnan 6—2
FHerkomiðíúrsIitásamtGrindavík.
FH
Grindavík
Þór.V.
TýrV.
LeiknirR.
8 4 1 3 34-17 9
8 3 3 1 24-20 9
8 3 2 3 13-15 8
5. flokkur - C-riðill
Skallagrímur—Víðir 1—5
Reynir—Grótta 0-0
Grótta—Skallagrímur 3—2
SkaUagr,—Vík.Ol. 1-2
Haukar—SkaUagr. 13—0
Armann—SkaUagr. 4—0
Þróttur kominn i úrslit.
9 8 0 1 59-6 16
8 6 0 2 31-18 12
Þróttur
Haukar
Vík.Ol.
8 8 0 0 41-4 16
9 7 0 2 45-14 13
6 4 11 14-9 9
5. flokkur
Þór-KA
D-riðill
3-2
Þór þar með kominn í úrslitakeppnina.
Þór 13 stig, KA 9, KS 8, Völsungur 7,
TindastóUS, SvarfdæUr3,Leiftur2ogHvöt
1.
5. flokkur — E-riðill
Einherji—Höttur
Valur—Þróttur
1-2
0-3
Hötturerbúinnaðtryggja sér úrsUtasæU.
Höttur 13 sUg, Huginn 10, Þróttur 7, Austri
6, Einherji 2, Sindri 2, Leiknir og Valur ekk-
ert.
I
I
I
I
I
1
I
I
I
I
Pollamótið á Akureyri
íslandsmót 6. fl. (pollamót Eim-
skips og KSÍ) var haldið á Akureyri
sl. laugardag og sunnudag. Mikið
fjör var á KA-vellinum en þar fór
mótið fram. i keppni A-liða sigraði
KA og áttu þeir sigurinn fyllilega
skilinn. t keppni B-liða vann KR
sanngjarnan sigur. Úrslit einstakra
leikja hafa áður birst í blaðinu svo og
verölaun til einstakra leikmanna.
Unglingasíðan óskar drengjunum tU
hamingju með glæsUegan árangur.
Myndin tU vinstri er af KA-liðinu
með þjálfara sínum Njáli Eiðssyni.
TU hægri eru KR-ingarnir með
þjálfurum sínum, Geir Þorsteinssyni
og Einari Sigurðssyni.