Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1985, Qupperneq 36
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1985.
Umræða um
málefni en
ekki persónur
— segir Kristín S.
Kvaran, þingmaður BJ
„Við í Bandalagi jafnaðarmanna
höfum frá upphafi lagt áherslu á
jafnaðarstefnuna en á stundum
meö ólíkum áherslum. Og þaö er
ekki tilefni til umræðna á síðum
dagblaðanna,” sagði Kristín S.
Kvaran, þingmaður BJ, í samtali
viðDV.
Kristín samþykkti tillögu
Garðars Sverrissonar, starfs-
manns BJ, sem hann bar upp á
fundi landsnefndar BJ sl. fimmtu-
dag. Tillagan var um fordæmingu
á einkaskólann og samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta. En án
stuðnings formanns landsnefndar-
innar, Kristófers Más Kristins-
sonar, og varaformannsins, Val-
gerðar Bjarnadóttur. Tillagan og
afdrif hennar hafa oröið tilefni
frekari blaðaskrifa um óánægju
„andófshópsins” svonefnda.
Kristófer Már hefur sagt í DV að
honum sýnist óánægjan beinast
gegn sér.
Kristín var spurð um ummæli
Kristófers Más um að óánægja
manna beindist að honum. „Þetta
er bara umræða um málefni en
ekki persónur,” svaraði Kristín S.
Kvaran.
Kjarninn í „andófshópnum” er
hópur fólks sem hist hefur síöan
’83. Kristín S. Kvaran hefur setiö
fundi meö hópnum. A fundi hópsins
2. júlí í Torfunni var samþykkt
áskorun til þingflokks BJ. Hana
undirrituöu tíu manns. Það var
áskorun um að þingmenn BJ legðu
ríkari áherslu á jafnaðarstefnuna
-ÞG.
Frjálst.óháÖ dagblaö
DV kemur ekki út á morgun, laugar-
dag. Næsta blað kemur út þriðju-
daginn eftir verslunarmannahelgi.
Smáauglýsingadeild DV verður opin í
dag, föstudag, til kl. 22. Deildin verður
lokuð laugardag, sunnudag og mánu-
dag. A þriðjudag verður smáauglýs-
ingadeild DV opin frá ki. 9 til 22. Góða
helgi.
TALSTÖÐVARBÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 68-50-60.
ÞRÖSTUR
SÍÐUMÚLA 10
LOKl
Munið nú eftir góða
skapinu í umferðinni!
Skipstjóri sektaður um rúma milljón — neitar að borga:
Sit frekar af mér”
„Eg ætla ekki að borga þessa sekt,
ég sit hana frekar af mér, eöa að ég
tala við forsetann um leiðréttingu
minna mála,” sagði Guðmundur
Rósmundsson, 63 ára skipstjóri í
Bolungarvík ,í morgun.sem sektaður
hefur verið um rúma milljón krónur
fyrir að fara 103 tonn yfir leyfilegan
aflakvóta á síðasta ári, sem var 100
tonn.
„Ég er sár og mér finnst þetta
svívirðileg framkoma. Ég keypti
viöbótarkvóta í fyrrahaust og talaði
við þá í ráðuneytinu um það, skýrði
þeim frá því, en þeir hundsa þaö al-
gjörlega.
Þá skertu þeir rækjukvótana hjá
Vestfjarðabátum í fyrra, eins og
allir vita, og við fórum aldrei á þær
veiðar, en okkur var á engan hátt
bættur upp sá skaði.”
Guðmundur rekur og er skipstjóri
bátsins Páls Helga IS 142, 30 tonna
báts. Báturinn fékk í fyrra 100
tonna kvóta. Guðmundur keypti auk
þess 52 tonna kvóta á Drangsnesi og
rækjukvótinn sem felldur var niður
nam 50 tonnum.
„Ég sendi ráðuneytinu bréf um
það hverjir hefðu gengið frá kaupum
mínum á kvótanum á Drangsnesi.
Þeir vissu því að bæjarstjórinn hér í
Bolungarvík og sveitarstjórinn á
Drangsnesi samþykktu þess kaup.”
Og Guðmundur bætti við: „Ég er
búinn að standa í þessu alla mína tíð,
aldrei gert neitt annaö. Báturinn
kostaði 8 milljónir króna og ég er iíka
með fiskverkun. 100 tonna kvóti segir
ekkert, hann dugar einfaldlega
ekki.”
-JGH.
Þetta snotra seglskip sigldi inn ó Reykjavíkurhöfn í morgun. Er það
pólskt og heitir Barquentine Pogoria. Hingað kom það fró Gdynia í Pól-
landi ó leiö sinni til Kanada. DV-mynd: S.
Fjársvikamál Blindrafélagsins:
Má/ið mun
víðtækara
—a ð sögn rannsóknarlögreglunnar
I sambandi við rannsókn á fjár-
reiðum happdrættis Blindrafélagsins
hefur komið í ljós að hugsanleg fjár-
svik eru mun víðtækari en talið var í
upphafi. Upphaflega var fram-
kvæmdastjóri félagsins sakaöur um að
hafa tekið sjálfur happdrættisvinninga
á árunum 1983, ’84 og ’85. Að sögn rann-
sóknarlögreglunar hefur nú komið sitt-
hvað í ljós og málið ekki lengur bundiö
við happdrættisvinninga heldur ýmsar
aðrar greiðslur sem hafa farið í
gegnum bókhald félagsins.
Á miðvikudag var framkvæmda-
stjórinn handtekinn eftir að handtöku-
heimildar hafði verið aflað. Einnig var
gerð húsleit heima hjá manninum. I
framhaldi af þessu hefur verið krafist
gæsluvarðhalds fram til 14. ágúst.
Sakadómur mun taka ákvörðun um
gæsluvaröhald í dag.
APH
Veiðiþjófar að ganga af Gilsá dauðri:
VEIÐIVÖRÐURINN VILL
VAKTA ÁNA ÚR HOLU
Veiðiþjófar, sem staönir voru aö því
að leggja ólögleg net í ósnum á ánni
Gilsá í Hvalvatnsfirði í nágrenni
Grenivíkur nýlega, hafa gefið sig
fram. Er þetta í fyrsta skipti sem næst
í veiðiþjófa á þessum stað. I ánni hefur
verið stunduð fiskirækt um árabil án
nokkurs afrakstur vegna þess að öllu
er stolið.
„Þetta hafa verið vandræði í fjölda
ára,” sagði Pétur Axelsson, formaöur
veiðifélagsins, en hann selur einnig
veiðileyfi í ána. „Við höfum sleppt
þarna bæði bleikju og laxi en áin hefur
alltaf gefið voða lítiö beinlínis út af
veiðiþjófnaðL Maður er að heyra allt að
fimmtán ára gamlar sögur af veiði-
þjófum í ánni núna þegar allt er fyrnt
og ekkert hægt að gera.
Gilsá í Hvalvatnsfirði er mjög af-
skekkt og erfitt að hafa eftirlit meö
henni. „Nú ætlum við að byrja aö
vakta ána,” sagði Pétur. „Við látum
fara eins lítið fyrir okkur og við getum
— ætli við skríðum ekki ofan í holu.”
-EH.
Brottrekstrarmálið hjá Varnarlidinu:
UM120 STARFSMENN
VALLARINS MÓTMÆLA
Um 120 íslenskir starfsmenn
Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
hafa sent varnarmáladeild utan-
ríkisráðuneytisins bréf þar sem lýst
er furðu á þeim aðferðum sem beitt
var þegar Jónasi Guðmundssyni,
skrifstofustjóra hjá Fjármála-
stofnun Varnarliðsins, var vikið úr
starfi 2. júlí síðastliðinn.
Segir ennfremur að óviðunandi sé
að einn aðili þessa máls,
bandariskur yfirmaður Jónasar,
Mallone að nafni, skuli vera farinn
úr landi áður en varnarmáladeild
tekur það til athugunar. Mallone
lýkur störfum á Islandi 5. ágúst næst-
komandi en varnarmáladeild hyggst
halda fund meö Félagi íslenskra.
stjómunarmanna á Keflavíkurflug-
velli daginn eftir.
Eins og greint var frá í DV á
sínum tíma var ástæðan fyrir upp-
sögn Jónasar sögð sú að hann hefði
boðiö starfsstúlku hjá sér launa-
hækkun gegn því að hún veitti honum
blíðu sína. Jónas hefur vísað þessum
ásökunum á bug og telur þœr runnar
undan rifjum Mallones. Þá þótti
Félagi íslenskra stjómunarmanna á
Keflavíkurflugvelli ómaklega vegið
að Jónasi með uppsögninni og ákvaö
á fundi 15. júlí siðastliðinn að skjóta
málinu til varnarmáladeildar og
utanríkisráðherra. En nú hefur
varnarmáladeild ákveðið að taka
málið til umfjöllunar 6. ágúst næst-
komandi, daginn eftir að Mallone fer
úr landi.
„Venjan er að hermenn sem lenda
í vandræðum hér séu kyrrsettir þar
til mál þeirra eru upplýst,” sagði
fslenskur starfsmaður Varnarliðsins
í samtali við DV í gær. „En þessi
málsmeðferð varnarmáladeildar
sýnir að búið er að hvítþvo MaUone
fyrirfram. Hún sýnir að unnt er að
reka menn að geðþótta héma á
veUinum. FóUt er hrætt. Það þorðu
ekki nema um 120 manns að skrifa
undir bréfið sem við sendum. MóraU-
inn er í lamasessi. Þetta mál á eftir
aðdragadilkáeftirsér.” EA