Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1985, Síða 36
36
DV. FIMMTUDAGUR15. ÁGOST1985.
Skölastjóri — Kennarar
Skólastjóra og kennara vantar við grunnskóla Skeggjastaða-
hrepps, Bakkafirði. Kennt verður í nýju húsnæði, fæði og
húsnæði á staðnum. Upplýsingar gefur Járnbrá Einarsdótt-
ir, formaður skólanefndar, sími 97-3360, og Guðríður Guð-
mundsdóttir skólastjóri, sími 97-3385.
Bræðratunga
Þjálfunar- og þjónustumiðstöð fatlaðra á Vestfjörð-
um.
Þroskaþjálfar
Óskum eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa strax eða
eftir samkomulagi.
Um er að ræða bæði störf á þjónustumiðstöðinni
sjálfri svo og á sambýli sem rekið verður í tengslum
við hana. Upplýsingar um starfið, launakjör og hús-
næði, veitir forstöðumaður í síma 94-3290.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Laus staða við framhalds-
skóla:
Við Menntaskólann við Hamrahlíð er laus til umsókn-
ar staða kennara í tölvufræðum, stundakennsla
kemur einnig til greina.
Upplýsingar veitir rektor skólans.
Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu, Hverf-
isgötu 6,101 Reykjavík fyrir 26. ágúst.
Menntamálaráðuneytið.
______________________________________________/
FERÐAMALARAÐSTEFNAN
1985
Ferðamálaráðstefnan verður haldin í
Vestmannaeyjum dagana 13.-15. september
r,k. og hefst kl. 14:00.
Aðalræðumaður verður Jón Sigurðsson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
Væntanlegum ráðstefnugestum er bent á að
panta gistingu hjá Ferðaskrifstofu
Vestmannaeyja og flugfar hjá Flugleiðum hf.
Ferðamálaráð íslands
*
qjzVANTAR
I EniRTAUNM
HVERFh IBe-
Arnarnes:
Blikanes
Haukanes
Kríunes
Hof íVatnsdal:
Gisli Pálsson i refahúsinu á Hofi í Vatnsdal. I bakgrunni glittir í silfurrefahvolpa.
□NA SILFURREFA-
BÚ k LANMNU
Á bænum Hofl í Vatnsdal er eina
silfurrefabúið á landinu. Þar eru um
360 dýr, þar af 94 læður. Voru refirnir
fluttir hingað til lands frá Noregi i
desember 1983 og hafa þeir verið i
sóttkvi á Hofi síðan.
Eyrnamaur í refunum
„Þessi dýr voru upphaflega flutt
hingað á vegum Samtaka íslenskra
loðdýraræktenda,” sagði Gísli Páls-
son en hann er með refabúið á Hofi
ásamt Jóni Gíslasyni. „17 loðdýra-
bændur keyptu þessi dýr en þess var
krafist að þau dveldu í algerri ein-
angrun fyrstu 16 mánuðina. Við tók-
um þau að okkur með því fororði að
við værum skyldugir að kaupa inn-
fluttu dýrin að ári liðnu en eigend-
umir fengju hvolpana undan þeim.
Upphaflega var ákveðið að dýrin
yrðu í sóttkví í 16 mánuði en það
fannst eyrnamaur í þeim og því var
ákveðið að framlengja sóttkvína um
óákveðinn tíma. Refimir hafa nú
verið sprautaðir tvisvar við þessum
maur og það verður gert einu sinni
enn. Eymamaurinn er ekki beint
hættulegur en menn vilja ógjarnan
bæta honum i lífríkið. Hann lifir á
eymamerg, refina klæjar undan hon-
um og húðin bólgnar.”
Kynblöndun blá-
og silfurrefa
Til þessa hafa refabúin hér á landi
verið svo til eingöngu með blárefi og
eru skinnin af þeim frekar verðlægri
en silfurrefa. Á móti kemur að frjó-
semi blárefanna er mikil þannig að
margir yrðlingar komast á legg und-
an hverri læðu. (6—7 hvolpar að
jafnaði). Skinn silfurrefa eru hins
vegar mjög eftirsótt og hátt metin en
frjósemi þeirra minni (2 til 3 yrðling-
ar).
„Tilgangurinn með innflutningi á
silfurrefum er að blanda þeim viö
blárefina. Áfkvæmi þeirra eru kölluð
blue-silver. Þau eru ófrjó en skinnin
verðmæt. Á siðustu uppboðum í
Helsingfors var meðalverð á skinn-
um af blárefnum um 2100 krónur en
um 4000 krónur fengust fyrir blue-
silver skinn. Við þessa blöndun nýtist
frjósemi blárefanna þannig að hver
læða eignast allt að 6 til 7 hvolpa. ”
Gísli sagði aö nú veltu menn fyrir
sér að koma upp sæðingarstöðvum í
sambandi við þessa kynblöndun.
Venjan væri að sæða blárefalæður
með sæði úr silfurref. Nota þyrfti
sæðið ferskt og væri hugmyndin að
bændur kæmu með læður sínar á
þessar stöðvar og þar færi sæðingin
fram.
Erfiðir í skapi
Hluti af refahúsinu á Hofi er ný-
bygging en hluti þess er gamalt f jár-
hús sem þeir GisU og Jón létu breyta.
Þegar gengið var um húsið ókyrrð-
ust refimir nokkuð og sagði Gísli að
skaplyndi silfurrefanna væri einn
erfiðasti þátturinn í ræktun þeirra.
Læður eiga það til dæmis til að éta af-
kvæmin eftir got. Veí er fylgst með
dýrunum, bæði því hvernig skinn
þeirra eru og skaplyndi enda erfast
þessir eiginleikar í ríkum mæU.
1 einu búranna voru tveir yrðlingar
öllu gæfari en gerist og gengur og
sagði Gísli skýringuna þá að þeir
hefðu verið í fóstri heima við um
tíma. „Mæður þeirra köstuðu þeim
út og við höfðum þá heima. Þeir eru
nýkomnir hingað í refahúsið aftur. ”
-JKH
Á búinu é Hofi eru nokkrir platinurefir en þeir eru afbrigði af silfurref.
AFGREIÐSLA