Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Side 23
DV. MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER1985.
23
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
Sjðmörkog
mikið fjor
— þegar Leiftur vann
KS, 3:4, í 2. deild
Leiftur kom mjög á óvart með því
að sigra KS á Siglufirði á laugardag-
inn, 3—4, í mjög fjörugum og
skemmtilegum leik. Siglfirðingar
voru reyndar mun betra liðið og oft á
tíðum var sóknarþunginn á mark
Ólafsfirðinga mikill en fáar sóknir
Leifturs reyndust árangursríkari er
upp var staöið. Leikar stóðu 1—2
Leiftri í vil í hálfleik og það var kom-
ið fram yfir venjulegan leiktíma þeg-
ar sigurmark þeirra leit dagsins ijós.
Jóhann Örlygsson kom Leiftri á
sporið á 10. minútu en eftir það sótti
KS mun meira. Óli Agnarsson og
Ólafur Ólafsson voru til að mynda
báöir mjög nálægt því að skora en
allt kom fyrir ekki. Það var Jóu Kr.
Gíslason sem náði að jafna leikinn
fyrir KS með fallegu skoti eftir und-
irbúning Mark Duffíeld, 1—1. Olafs-
firðingarnir svöruðu tíu mínútum
fyrir hlé með marki Sigurbjörns Jak-
obssonar úr víti og þannig stóðu leik-
ar í hiéinu.
Óli Agnarsson náði að jafna leikinn
fyrir KS á 60. mínútu með lúmsku
skoti frá vítateig og stuttu seinna
skoraði Hörður Júlíusson mark fyrir
KS sem dæmt var af vegna rang-
stæðu. Umdeildur dómur. Er átta
mínútur voru til leiksloka náði Olafs-
fjörður forystunni f annað skiptið I
leiknum er glæsiskot Guðmundar
Garðarssonar hafnaði í samskeytum
KS-marksins. Baldur Benónýsson
jafnaði er tvær minútur voru eftir til
leíksloka fyrir KS en lokaorðið var
Leifturs, mark Hafsteins Jakobsson-
ar á elleftu stundu.
Þrátt fyrir óvæntan sigur bendir
allt til að liðið þurfi að leika ásamt
Fylki í 3. deildinni á næsta sumri þó
vissulega geti ýmislegt breyst.
Jón Kr. Gíslason, Hörður Júlíusson
og Baldur Benónýsson voru bestir
Ieikmanna KS.
Guðmundur Garðarsson og mark-
vörður þeirra Ólafsfirðinga áttu báð-
ir mjög góðan dag. -fros
Real vann
Bayern, 4:2
— fyrír framan 90 þús.
áhorfenduríMadrid
Niutíu þúsund áhorfendur sáu
spánska liðið Real Madrid leggja
Þýskalandsmeistara Bayern
Múnchen að velli er liðin mættust í
vináttuleik í Madrid á föstudags-
kvöldið.
Leiknum lyktaði með 4—2 sigri eft-
ir að Þjóðverjar höfðu skoraö tvö
mörk fyrri hálflelksins.
Það var Daninn Sören Lerby scm
skoraði fyrsta mark leiksins og
Lothar Matthcaus bætti öðru við. I
seinni hálfleiknum tóku Spánverj-
arnir öll völd og skoruðu fjórum
sinnum. Sanches úr vítaspyrnu,
Butraguewo, Santiltana og Valdano.
Bayern Múnchen er nú á keppnis-
ferðalagi og lék af þeim shkum ekki í
Bundesiigunni um heigina. -fros
ErlasáumKA
— skoraðieina mark
leiksins fyrírUBK
Frá Stefáni Arnaidssyni, fréttarit-
ara DV á Akureyri:
Lið Breiðabliks i 1. dcild kvenna
sótti lið KA heim til Akureyrar á
laugardaginn og hefur með sér öll
þrjú stigin heim í Kópavoginn með
1—0 sigri. Breiöablik er eina kvenna-
liðið sem einhverja möguleika hefur
á að veita tA keppni um meistaratit-
ilinn en þeir möguleikar eru litlir.
KA er hins vegar í mikilli fallhættu
og vist er að með smáheppni hefði
sigur getað fallið þeim í skaut.
Lið Breiðabliks var meira með
boltann en Utið skapaðist af færum í
fyrri hálflciknum. í þeim seinna
skoraði Erla Rafnsdóttir eina mark
leiksins fyrir Blikastelpurnar -fros
Úr leik Vals og Viðis á laugardaginn. Heimir Karlsson, Val, og Sigurður Magnússon, Viði, berjast hér um knöttinn. Valsmenn höfðu betur i viðureigninni.
sigruðu 3 — 1 og skutust upp i toppsæti 1. deildarinnar.
DV-mynd Bjarnleifur.
Erum i fullu fjöri
— og ætlum okkur að vinna þá leiki sem eftir eru, sagði Guðmundur Þorbjörnsson, Val,
„Við erum í fullu f jöri og ætlum okk-
ur að vinna þá leiki sem eftir eru. Það
er bara timaspursmál hvenær hin liðin
tapa stigum. Við áttum að vinna þenn-
an leik með meiri mun en ég er
ánægður með sigurinn. Það er alltaf
erfitt að leika gegn Víði,” sagði Guð-
mundur Þorbjörnsson, Val, eftir að lið
hans hafði sigrað Vfði á vellinum við
Hlíðarenda á laugardaginn, 3—1. Guð-
mundur reyndist félögum sínum vel í
leiknum, hann skoraði tvö mörk en átti
auk þess mjög góðan leik.
Fyrstu tíu mínútur leiksins voru
mjög rólegar og segja má að þær hafi
aðeins verið lognið á undan stormin-
um. Fyrri hálfleikurinn var mjög op-
inn. Valsmenn öllu grimmari en Víðis-
menn fengu einnig sín færi. Á 17.
mínútu skoraði Víðir fyrsta mark
leiksins. Olafur Róbertsson lék þá að
Valsvörninni og hugðist gefa á einn
samherja sinn inn í vítateig Vals. Mið-
vörður Vals, Guðni Bergsson, var hins
vegar fyrstur á boltann og hugðist
skalla hann aftur til markvarðar, Stef-
áns Arnarsonar. Stefán átti hins vegar
ekki von á þessari „sendingu” Guðna
og boltinn sveif í fallegum boga í mark-
horn Valsmanna, 0—1.
Heimamenn voru ekki ýkja lengi að ná sér
eftir áfallið og skoruðu á þarnæstu mínútu.
Var það mark i svipuðum gæðaflokki. Heimir
Karlsson reyndi þá árangurslaust að ná bolt-
auum frá einum varnarlcikmanna Viðis sem
virtist hafa fulla stjórn á boltanum. Ekki fór
þó betur en svo að ieikmaður hitti ekki bolt-
ann og Heimir stóð cinn og óvaldaður gegn
Gísla Heiðarssyni, markverði Viðis. Heimir
renndi boltanum framhjá Gisla og leikar því
jafnir. Næstu minútur voru mjög viðburðarík-
ar. Valsmenn áttu aragrúa af færum og Víðis-
menn mörg þokkaleg þess á milli. Sævar
Jónsson og Guðmundur Þorbjörnsson áttu til
að mynda báðir ágætis markfæri en boitinn
lenti utan ramma i bæði skiptin. Þá var Vii-
berg Þorvaldsson náiægt því að skora en Stef-
án markvörður þurfti að taka á honum stóra
sínum til að verja fast skot hans í horn. Þeir
félagar i Valsliðinu, Guðmundur og Heimir,
fengu siðan mörg upplögð f æri fyrir blé en í öll
skiptin slapp Viðis-markið. Sókn Valsmanna
var mjög beitt. Guðmundur oft upphafsmaður
auk þess sem hann skapaði alltaf usla í Viðis-
vörninni er hann brá sér inn í vítateig þeirra.
Þá mataði Valur Valsson mjög vel frá vinstri
kantinum og segja má að Víðismenn hafi
mátt prísa sig sæla að vera ekki undir í hléi.
t seinni hálfleiknum virtist leikurinn róast
nokkuð. Vaismenn heldur sterkari á miðjunni
og sóknarlotur þeirra voru mjög hættulegar.
Anuað markið kom á 51. mínútu. Valur Vals-
son átti þá eina af mörgum þverscndingum
sinum fyrir Viðismarkið þar sem Guðmundur
Þorbjörnsson var réttur maður á réttum stað
og skoraði af öryggi með skalla af stuttu færi,
2—1.
A 65. mínútu átti Heimir Karlsson glæsilega
' iendmgu frá hægri kanti inn i vftateig Víðis,
bcmt fyrir fætur Guðmundar Þorbjömssonar
sem afgreiddi boitann af mikiu öryggi í mark
Víðis af stuttu færi, 3—1.
Þrátt fyrir tveggja marka forustu var langt
frá því að Valsmenn ætluðu sér að slaka á.
Víðismenn megnuðu nú ekki lengur að halda í
við þá og mörkin hefðu getað orðið fteiri.
Fimm mínútum eftir seinna markið fengu
Valsmenn vítaspyrnu hjá fremur slökum
dómara leiksins, Þóroddi Hjaltalín. Þóroddur
dæmdi þá hendi á cinn Víðismanninn en eftir
kröftug mótmæli og spjall við línuvörð var
þeim úrskurði breytt í aukaspyrnu á Val.
Furðulegt en satt engu að siður. A lokamín-
útunum fór leikurinn að mcstu fram á vallar-
helmingi Víðis en heimaliöinu tókst ekki að
skora þrátt fyrir ailgóðar tiiraunir.
Valsliðið er að margra mati það lið er
mesta möguleika hefur tii að veita Fram
keppni um Islandsmcistaratitilinn. Liðið
getur sýnt mjög góða knattspyrnu á góðum
degi og á iaugardaginn brá oft fyrir mjög
skemmtiiegum sóknarfléttura lijá þeim. Liðið
ieikur einfaida sóknarknattjpyrnu. Boitinn er
látinn ganga út á kantana og siðan er oft
treyst á háar fyrirgjafir. Guðmundur Þor-
björnsson var tvímælalaust maður liðsins í
þcssum leik. Mjög ógnandi hvort sem var á
miðju vallarins eða inni í vítateig Viðis. Valur
Valsson, hinn eldfljóti kantmaður, átti
hverja fyrirgjöfina á fætur annarri í fyrri
hálfleiknum og stóð sig þokkalega í seinni.
Guðni Bergsson var öruggur miðvörður þrátt
fyrir að litið hafi reynt á hann. Sömu sögu er
að scgja um Stefán markvörð. Þá barðist
Ingvar Guðmundsson þokkalega á miðjunni
en hann var útnefndur maður ieiksins af Vals-
liðinu.
Viðisliðið var jafnt í þessum leik. Sumir
leikmanna liðsins iéku þó nokkuð undir getu.
Húnar Georgsson átti ágætan leik í stöðu
vinstri bakvarðar og Gísii lék þokkalega í
markinu. Ahorfendur voru 490.
Lið Vals: Stefán Arnarsson, Þor-
grímur Þráinsson, Grímur Sæmund-
sen, Magni Pétursson, Heimir Karls-
son, Sævar Jónsson, Guðni Bergsson,
Hilmar Harðarson, Valur Valsson,
Guðmundur Þorbjörnsson, Ingvar
Guðmundsson.
Lið Víðis: Gísli Heiðarsson, Rúnar
Georgsson, Klemenz Sæmundsson,
Ólafur Róbertsson, Sigurður
Magnússon, Guðjón Guðmundsson,
Guðmundur Jens Knútsson, Grétar
Einarsson, Gísli Eyjólfsson,
Einarsson (Hjörtur Davíðsson). -fros.
Steingrímur í
aðalhlutverkinu
— þegar KA vann slakt lið ÍBÍ, 4:1, í 2. deild
Frá Stefáni Arnaldssyni, fréttaritara
DV á Akureyri:
KA vann öruggan sigur á slöku liði
ísafjarðar er liðin mættust í 2.
deildinni á Akureyri á föstudags-
kvöldið. Lokatölur urðu 4—1 eftir að
KA hafði gert tvö mörk í fyrri hálf-
leiknum.
Það var Steingrímur Birgisson sem
opnaöi markareikninginn fyrir KA
strax á 6. mínútu. Hann óð þá upp
kantinn öðrum megin og lék upp aö
endamörkum og skoraöi þar úr
þröngri stöðu. Hreiðar Sigtryggsson
markvörður ÍBl, hafði auðsjáanlega
átt von á fyrirgjöf því hann hafði
brugðið sér út úr markteignum. Átta
mínútum seinna var Steingrímur aftur
á ferðinni er hann skoraði af stuttu færi
eftir þvögu í vítateig IBI. KA var mun
Útsölumörk Ragnheiðar
— réðu úrslitum er ÍA vann Þór í 1. deild kvenna
Frá Stefáni Arnaldssyni, fréttaritara
DVáAkureyri:
Akranesstelpurnar halda sínu striki í
1. deild kvenna í knattspyrnu. Á
laugardaginn lék liðið við Þór á Akur-
eyri og vann sigur, 2—1. Liðið þarf nú
aðeins eitt stig úr síðustu tveimur
leikjum til að tryggja sér meistara-
titilinn.
IA lék undan sterkri golu í fyrri
hálfleiknum og sótti mun meira. Eitt
mark leit dagsins ljós. Ragnheiður
Jónasdóttir skoraði eftir slæm mistök
markvaröar Þórs. I síöari hálfleiknum
var jafnræöi með liðunum. Ragnheiður
var aftur á ferðinni fyrir IA á 15.
minútu og aftur var um útsölumark að
ræða, laust skot hennar frá vítateigs-
línu rataöi þá rétta leið framhjá
sofandi varnarleikmönnum. Þórs-
stelpurnar voru þó ekki á þeim
buxunum að gefast upp. Hera
Ármannsdóttir minnkaði muninn fyrir
gestgjafana og Akureyrarliðið fékk
síðan tvö góð marktækifæri til að gera
út um leikinn. Anna Einarsdóttir var
þar að verki í bæði skiptin en henni
brást bogalistin og Akranes hefur enr.
ekki tapaö stigi i deildinni.
-fros.
betra liðið í annars slökum hálfleik
liðanna. Sókn Isfirðinga var bitlaus.
Eina færi þeirra átti Ragnar Rögn-
valdsson en skot hans frá vítateig fór
rétt framhjá.
Isfiröingar komu mun ákveðnari til
leiks í seinni hálfleiknum og á 65.
mínútu náðu þeir að minnka muninn.
Var Rúnar Vífilsson þar að verki.
Kortéri seinna skoraöi KA aftur og
aftur var það Steingrímur sem var í
aðalhlutverki. Honum var brugðið og
Njáll Eiðsson skoraði örugglega úr
vítaspyrnunni. Sex mínútum seinna
skoraði Tryggvi Gunnarsson fjórða
mark Akureyrarliðsins er hann sendi
boltann fram hjá Hreiðari markverði
eftir að hafa leikið á einn varnarmann
iBl: Á lokamínútunni átti Tryggvi
síðan dauðafæri en á einhvern
óskiljanlegan hátt tókst honum að
koma boltanum fram hjá markinu.
Njáll Eiðsson, Erlingur Kristjáns-
son, Friðfinnur Hermannsson og Stein-
grímur Birgisson voru bestu leikmenn
KA-liðsins.
Lið Isfirðinga var mjög slakt. Helst
hægt að hrósa Hauki Magnússyni en
auk hans átti Jóhann Torfason spretti í
fyrri hálfleiknum.