Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1985, Qupperneq 42
42 DV. MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER1985. Grunnskóli Reyðarfjarðar Kennara vantar til starfa i eldri bekki veturinn '85—'86. Æskilegar kennslugreinar: Handmennt stúlkna, tungumál, raungreinar, almenn kennsla og sérkennsla. Mjög ódýrt og gott húsnœði fyrir hendi. Flutningsstyrkur greiddur. Upplýsingar gefur skólastjóri í sima 97-4247 eða 97-4140. Skólanefnd. FÓTAAÐGERÐIR FÓTASIMYRTING 400 KR. Hjördís Hinriksdóttir fótaaðgerðafræðingur, Laugavegi 133, v/Hlemm, sími 18612. nýitónlistarskólinn FRÁ NÝJA TÓNLISTARSKOLANUM Innritun nemenda fyrir næsta skólaár fer fram í skólan- um frá miðvikudegi 4. sept. til föstudags 6. sept. kl. 17 — 19. Nemendur frá í fyrra komi miðvikudag og fimmtudag og staðfesti umsóknir sínar frá í vor með greiðslu á hluta skólagjaldsins. Tekið verður á móti nýjum umsóknum föstudaginn 6. sept. á sama tíma. Innritun í forskóla, fyrir börn á aldrinum 6—8 ára, verður alla dagana frá kl. 17—19. Skólinn verður settur sunnudaginn 15. sept. kl. 17.30. FRA GRUNNSKOLUM REYKJAVÍKUR Nemendur komi í skólana fimmtudaginn 5. september nk. sem hér segir: 9. bekkur komi kl. 9. 8. bekkur komi kl. 10. 7. bekkur komi kl. 11. 6. bekkur komi kl. 13. 5. bekkur komi kl. 13.30. 4. bekkur komi kl. 14. 3. bekkur komi kl. 14.30. 2. bekkur komi kl. 15. 1. bekkur komi kl. 15.30. Fornámsnemendur í Réttarholtsskóla komi kl. 13. Forskólabörn (5 og 6 ára), sem hafa verið innrituð, verða boðuð í skólana símleiðis. Nýtt íþróttahús á Akranesi Frá Haraldi Bjarnasyni á Akranesi: Aö loknum leik IA og Vals í 1. deild- inni á miövikudagskvöld var tekin fyrsta skóflustungan aö nýju íþrótta- húsi IA á íþróttavallarsvæöinu á Jað- arsbökkum. Þaö var Ríkharður Jónsson, fyrrum formaöur IA og knattspyrnukappi á ár- um áöur, sem skóflustunguna tók aö viðstöddum mörgum knattspyrnuunn- endum. Magnús Oddsson, formaöur IA, sagði fyrst frá hugmyndum lA um notkun hússins og lýsti hinu væntan- lega íþróttahúsi sem veröur 24x50 metrar aö stærö og meö 9 metra loft- hæö auk þess sem í húsinu verður 32 fermetra pláss fyrir félagastarfsemi. Þrátt fyrir að á Akranesi sé eitt stærsta íþróttahús landsins er þörfin fyrir annað hús orðin mjög brýn og hef- ur ástandið veriö þaö slæmt undanfar- in ár aö Iþróttabandalagiö hefur engan veginn fengiö þá æfingatíma sem þörf hefur verið á. Hiö nýja hús IA verður fyrst og fremst notað til æfinga, enda veröa áhorfendastæöi engin, en gamla húsiö við Vesturgötu mun áfram þjóna leikj- um og keppni. Ný útisundlaug í Breiðholti Að undanförnu hafa staöiö yfir fram- sm að dýpt. Hófust framkvæmdir viö kvæmdir við nýja útisundlaug viöFjöl- hana í apríl sl. Er verktími áætlaöur brautaskólann í Breiðholti. f jórir til fimm mánuðir. Sundlaugin til- Laugin er 8x12,5 metrar og 70—90 heyrir mannvirkjum Fjölbrautaskól- ans í Breiöholti. Kemur hún til meö aö nýtast fyrst og fremst sem kennslu- laug. Einnig er gert ráö fyrir aö hún veröi opin almenningi og þá sérstak- lega börnum. Hönnuðir laugarinnar eru Guðmund- ur Þór Guömundsson arkitekt, Teikni- stofan Oöinstorgi, Verkfræöistofa Guö- mundar og Kristjáns, Rafteikning sf. og Reynir Vilhjálmsson. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Stöður hjúkrunarfræðinga við eftirtaldar heilsugæslu- stöðvar eru lausar til umsóknarnú þegar: Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Breiðdalsvík. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Eyrarbakka. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Þórshöfn. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð Suð- urnesja, Keflavík. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf í hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt- inu. 28. ágúst 1985, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Arsfundur Nordel í Reykjavík: Upplýsingamiðlun í raforkumálum „Með þátttöku í Nordel fá Islending- ar beinan aögang aö þeirri tækni og þekkingu sem beitt er og þróuð í Nordel-samstarfinu og kemur aö góð- um notum við rekstur raforkukerfisins hér á landi. Jafnframt greiöir þátttaka íslands í samstarfinu fyrir streymi upplýsinga milli Islands og annarra landa á öörum sviöum raforkumála. ” Svo segir í frétt frá ársfundi Nordel sem haldinn var í Reykjavík í vikunni og lauk í gær. Nordel eru samtök for- ystumanna helstu raforkufyrirtækja og -stofnana á Noröurlöndunum fimm. I samtökunum eru f jórir meðlimir frá hverju landi. Arsfundirnir eru haldnir til skiptis á Noröurlöndunum. Fyrir Is- lands hönd sátu fundinn fulltrúar Landsvirkjunar, Orkustofnunar, Raf- magnsveitu ríkisins og Rafmagnsveitu Reykjavíkur, einn frá hverjum aöila. Milli raforkukerfa Noröurlandanna fjögurra, annarra en Islands, eru öflug tengsl, háspennulinur og neðansjávar- strengir sem gera þaö mögulegt aö flytja raforku milli þessara landa á þann veg aö vinnslukostnaöur raforku í löndunum f jórum verði eins lágur og mögulegt er. Auk innbyrðis tengsla þessara þjóöa er Finnland tengt viö raforkukerfi Sovétríkjanna með sér- stökum búnaöi og Danmörk tengd V estur-Þýskalandi. Slikur samrekstur víðáttumikilla raforkukerfa krefst háþróaörar tækni og hafa tU dæmis Svíar verið leiöandi í heiminum á sumum sviöum þeirrar tækni. Má þar nefna raforkuflutning með háspenntum rafstraumi en það er eina nothæfa tæknin til að flytja raf- orku um langan veg neðansjávar. I Miö-Evrópu eru starfandi hliöstæö samtök. Sátu tveir fulltrúar þaöan fundinn hér en alls voru þar 30 manns. -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.