Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Síða 18
70
DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985.
Nauðungaruppboð annað og síðasta á Brekkubæ 12, þingl. eign Magnúsar Ólafssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans, Búnaðarbanka Islands og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Njálsgötu 16, þíngl. eign Pálma Árna Gestssonar og Soffíu Vagnsdóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri miðvikudag- inn 11. desember 1985 kl. 15.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Ingólfsstræti 21B, þingl. eign Björgvins Björgvinssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 13.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð annað og síðasta á Logafold 126, þingl. eign Arnars Sigurbjörnssonar og Sigrúnar Sverrisdóttur, fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 11.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Laugavegi 38B, þingl. eign Gunnars Þorsteinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt- unnar í Reykjavík á eígninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 15.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 86., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Mjóuhlíð 8, þingl. eign Hallgríms S. Sveinssonar og Bjargar Sveinsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri miðviku- daginn 11. desember 1985 kl. 16.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Óðinsgötu 8B, þingl. eign Kjartans Jónssonar og Láru B. Ásmundsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Björns Ólafs Hallgríms- sonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Laugavegí 132, þingl. eign Hannesar Elíssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 13.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 86., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Laugavegi 39, þingl. eign Hafnarbíós hf., fer fram eftir kröfu Gjaldheimt- unnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
rvifT PFYTTTB
j y Æj ÆSl JL Aí JL JLYJm JL JLjL j Jfa a ■ ■
ÉG GERÐI ÞAГ
Frá fímmtán ára aldri reykti John
Galbraith sína þrjá pakka á dag.
Hann varð sér úti um lungnakrabba
sem dró hann til dauða árið 1983.
Ekkja hans, Elayne, er ekki sátt við
þau málalok og stefnir sígarettu-
framleiðandanum R.J. Reynolds
Tobacco Company.
„Hann var svo háður sígarettunni
að hann gat ekki metið áhættuna
samfara reykingum eins og frjáls
maður,“ segir Elayne. „Hann tók
jafnvel af sér súrefnisgrímuna af og
til til þess að fá sér reyk.“ Frú Gal-
braith krefst 400.000 dollara í skaða-
bætur. Henni er full alvara og ætlar
að láta reyna á það hver sé réttur
fómarlambanna gagnvart eiturfram-
leiðendunum. Um 30 málaferli af
svipuðum toga eru í uppsiglingu í
Bandaríkjunum.
Endaiok tóbaksiðnaðarins?
Lögfræðingar R.J. Reynold „líta
málið alvarlegum augum“. „Ef við
töpum málinu verða það endalok
tóbaksiðnaðarins, en hann færir nú
ríkinu 23 milljarða dollara á ári í
tekjur og veitir auk þess rúmlega 2
milljónum manna atvinnu." Flóð-
bylgja málsókna mun svo skella á
tóbaksframleiðendum, enda deyja
árlega 350.000 Bandaríkjamenn af
völdum reykinga.
Afkastamikill mannvinur
En er raunhæfur möguleiki á að
Reynolds tapi málinu. Það eina sem
mælir með því er að lögfræðingur
gömlu konunnar er Melvin Belli,
einhver nafntogaðasti lögfræðingur
Bandaríkjanna og þótt víðar væri
leitað. Hann varði hagsmuni fjöl-
skyldnanna frá Bophal á Indlandi í
malferlunum gegn Union Carbide.
Hrói höttur var aftur á ferð í máli
farþega Boeing þotunnar, sem skotin
var niður yfir Sovétríkjunum. Þar á
hann í höggi við ekki ómerkari aðila
en stjómvöld í Sovétríkjunum og
Kóreu, kóreska flugfélagið og síðast
en ekki síst CIA. Þegar lyfjafyrirtæki
setja á markað lyf, sem síðar reynist
verða sjúkrahúsum dýrkeypt, þegar
Melvin Belli fær að þrýsta á kýlin.
Belli er einn af þessum „vinum litla
mannsins" sem leiðir „vondu kall-
ana“ fyrir lög og dóm. En hann er
einnig lögfræðingur stórstjarna á
borð við Mae West, Errol Flynn^
Lönu Turner og fleiri. Hann var,
verjandi Jack Ruby sem myrti,
„morðingja" John F. Kennedy.
1597 dollarar gegn engum
„Ég hef unun af starfi mínu,“ segir
Belli, sem orðinn er 78 ára gamall.
Einhvem tíma fékk Belli kvef þar
sem hann sat í „upphitaðri stúku“
og horfði á kappleik. Sem vonlegt
var þótti honum hastarlegt að fá
kvef þama í stúkunni, enda hafði
hann borgað miðann dýru verði.
Hann lögsótti því íþróttafélagið.
Daginn eftir dómsúrskurðinn mátti
lesa þessa fyrirsögn í blöðunum:
„Melvin Belli sigrar San Fransisco
Giants með 1597 dollurum gegn
engum".
Hverjum sigri fagnar Belli með því
að hleypa af fallbyssu sem hann
hefur uppi á þaki á bústað sínum í
San Fransisco. Á fimmtíu ára ferli
hefur byssan drunið oft og Melvin
er fyrir löngu orðinn milljónamær-
ingur.
Á harma aö hefna
Belli ætlar ekki að taka neina
þóknun fyrir málsóknina gegn Reyn-
olds. Það stafar þó ekki eingöngu af
því hvað honum finnst gaman að
standa í málaferlum heldur býr að
baki viss hefndarhugur. Fyrir 25
árum varð hann að láta í minni
pokann í fyrsta málinu sem höfðað
var gegn tóbaksframleiðanda. Rétt-
arhöldin fóru fram í Louisiana en þar
er tóbaksræktin einn meginatvinnu-
vegurinn. „Það var vonlaust mál að
sigra,“ segir Belli. Nú verður það
heldur enginn hægðarleikur. „Þetta
er ríkt hérað. Borgin Montecito er
alltof nálægt. íbúamir, sem em
Gömul ekkja í
Bandarikjrnium ætlar
að lögsækja einn
stærsta tóbaksfram-
leiðanda heims. Um
30 málsóknir í sama
dúr standa fyrir dyr-
um. Lögfræðingur
sækjanda er víðfræg-
ur og hefur unnið
marga frækna sigra á
löngum ferli. Nær
hann að knésetja R.J.
Reynolds samsteyp-
una?