Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Qupperneq 18
70 DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Brekkubæ 12, þingl. eign Magnúsar Ólafssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans, Búnaðarbanka Islands og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Njálsgötu 16, þíngl. eign Pálma Árna Gestssonar og Soffíu Vagnsdóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri miðvikudag- inn 11. desember 1985 kl. 15.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Ingólfsstræti 21B, þingl. eign Björgvins Björgvinssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 13.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Logafold 126, þingl. eign Arnars Sigurbjörnssonar og Sigrúnar Sverrisdóttur, fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 11.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Laugavegi 38B, þingl. eign Gunnars Þorsteinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt- unnar í Reykjavík á eígninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 15.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 86., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Mjóuhlíð 8, þingl. eign Hallgríms S. Sveinssonar og Bjargar Sveinsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri miðviku- daginn 11. desember 1985 kl. 16.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Óðinsgötu 8B, þingl. eign Kjartans Jónssonar og Láru B. Ásmundsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Björns Ólafs Hallgríms- sonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Laugavegí 132, þingl. eign Hannesar Elíssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 13.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 86., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Laugavegi 39, þingl. eign Hafnarbíós hf., fer fram eftir kröfu Gjaldheimt- unnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 11. desember 1985 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. rvifT PFYTTTB j y Æj ÆSl JL Aí JL JLYJm JL JLjL j Jfa a ■ ■ ÉG GERÐI ÞAГ Frá fímmtán ára aldri reykti John Galbraith sína þrjá pakka á dag. Hann varð sér úti um lungnakrabba sem dró hann til dauða árið 1983. Ekkja hans, Elayne, er ekki sátt við þau málalok og stefnir sígarettu- framleiðandanum R.J. Reynolds Tobacco Company. „Hann var svo háður sígarettunni að hann gat ekki metið áhættuna samfara reykingum eins og frjáls maður,“ segir Elayne. „Hann tók jafnvel af sér súrefnisgrímuna af og til til þess að fá sér reyk.“ Frú Gal- braith krefst 400.000 dollara í skaða- bætur. Henni er full alvara og ætlar að láta reyna á það hver sé réttur fómarlambanna gagnvart eiturfram- leiðendunum. Um 30 málaferli af svipuðum toga eru í uppsiglingu í Bandaríkjunum. Endaiok tóbaksiðnaðarins? Lögfræðingar R.J. Reynold „líta málið alvarlegum augum“. „Ef við töpum málinu verða það endalok tóbaksiðnaðarins, en hann færir nú ríkinu 23 milljarða dollara á ári í tekjur og veitir auk þess rúmlega 2 milljónum manna atvinnu." Flóð- bylgja málsókna mun svo skella á tóbaksframleiðendum, enda deyja árlega 350.000 Bandaríkjamenn af völdum reykinga. Afkastamikill mannvinur En er raunhæfur möguleiki á að Reynolds tapi málinu. Það eina sem mælir með því er að lögfræðingur gömlu konunnar er Melvin Belli, einhver nafntogaðasti lögfræðingur Bandaríkjanna og þótt víðar væri leitað. Hann varði hagsmuni fjöl- skyldnanna frá Bophal á Indlandi í malferlunum gegn Union Carbide. Hrói höttur var aftur á ferð í máli farþega Boeing þotunnar, sem skotin var niður yfir Sovétríkjunum. Þar á hann í höggi við ekki ómerkari aðila en stjómvöld í Sovétríkjunum og Kóreu, kóreska flugfélagið og síðast en ekki síst CIA. Þegar lyfjafyrirtæki setja á markað lyf, sem síðar reynist verða sjúkrahúsum dýrkeypt, þegar Melvin Belli fær að þrýsta á kýlin. Belli er einn af þessum „vinum litla mannsins" sem leiðir „vondu kall- ana“ fyrir lög og dóm. En hann er einnig lögfræðingur stórstjarna á borð við Mae West, Errol Flynn^ Lönu Turner og fleiri. Hann var, verjandi Jack Ruby sem myrti, „morðingja" John F. Kennedy. 1597 dollarar gegn engum „Ég hef unun af starfi mínu,“ segir Belli, sem orðinn er 78 ára gamall. Einhvem tíma fékk Belli kvef þar sem hann sat í „upphitaðri stúku“ og horfði á kappleik. Sem vonlegt var þótti honum hastarlegt að fá kvef þama í stúkunni, enda hafði hann borgað miðann dýru verði. Hann lögsótti því íþróttafélagið. Daginn eftir dómsúrskurðinn mátti lesa þessa fyrirsögn í blöðunum: „Melvin Belli sigrar San Fransisco Giants með 1597 dollurum gegn engum". Hverjum sigri fagnar Belli með því að hleypa af fallbyssu sem hann hefur uppi á þaki á bústað sínum í San Fransisco. Á fimmtíu ára ferli hefur byssan drunið oft og Melvin er fyrir löngu orðinn milljónamær- ingur. Á harma aö hefna Belli ætlar ekki að taka neina þóknun fyrir málsóknina gegn Reyn- olds. Það stafar þó ekki eingöngu af því hvað honum finnst gaman að standa í málaferlum heldur býr að baki viss hefndarhugur. Fyrir 25 árum varð hann að láta í minni pokann í fyrsta málinu sem höfðað var gegn tóbaksframleiðanda. Rétt- arhöldin fóru fram í Louisiana en þar er tóbaksræktin einn meginatvinnu- vegurinn. „Það var vonlaust mál að sigra,“ segir Belli. Nú verður það heldur enginn hægðarleikur. „Þetta er ríkt hérað. Borgin Montecito er alltof nálægt. íbúamir, sem em Gömul ekkja í Bandarikjrnium ætlar að lögsækja einn stærsta tóbaksfram- leiðanda heims. Um 30 málsóknir í sama dúr standa fyrir dyr- um. Lögfræðingur sækjanda er víðfræg- ur og hefur unnið marga frækna sigra á löngum ferli. Nær hann að knésetja R.J. Reynolds samsteyp- una?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.