Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1985, Blaðsíða 24
76
DV. LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985.
Hún náði ekki í neitt þeirra á
laugardagssíðdegi. Er hún hafði
hringt margoft ákvað hún að fara
heim til Pats. Um sexleytið kom hún
að húsi hans en enginn svaraði. Hún
hringdi til foreldra hans en þeir vissu
ekkert um hann. Hún var áhyggju-
full: Sendiferðabíll Pats var í inn-
keyrslunni. Jámhliðið, sem vanalega
var dregið fyrir er Pat var að heiman,
var ólæst.
Pat lá á gólfinu
Hún hringdi í systur sína og þær
fóru saman að húsi Pats til að ganga
úr skugga um að allt væri í lagi.
Þangað komu þær klukkan 6.45 og
þrátt fyrir að tekið væri að dimma
var húsið almyrkvað. Og þó, glitta
sást í sjónvarpstæki fyrir innan.
Stúlkumar stóðu fyrir utan og
veltu málum fyrir sér. Þær vom
ósköp fegnar er, bíll staðnæmdist hjá
húsinu og faðir Pats steig út. Það
var ekkert einfalt mál að fara inn
því Pat hafði komið fyrir ýmsum
tækjum og tólum til að koma í veg
fyrir innbrot. Jámhliðið var engu að
síður opið og því reyndu þau að opna.
Ekkert sást markvert inn um glugga
að framan. Faðir Pats lyfti kærustu
hans upp að glugga á bak við svo
að hún gæti skyggnst um. Hún hróp-
aði upp yfir sig. Hún kjökraði að Pat
lægi á eldhúsgólfinu. Krakkamir
sáusthvergi.
í flestum tilfellum hefði verið
hringt á lögregluna er hér var komið
sögu. En það var ekki svo einfalt
þegar Pat var annars vegar. Þau
ræddu í snarhasti hvað ætti til
bragðs að taka. Þau vissu öll að Pat
stóð í eiturlyfjaviðskiptum. Þau
vissu ekki nákvæmlega hvað hann
var með en engu að síður var ljóst
að lögreglan kæmist á snoðir um
það. En þau áttu fárra kosta völ. Pat
lá bjargarlaus á gólfinu og þau
komust ekki inn! Þau hringdu á
lögregluna.
Systir kæmstunnar hringdi. Til að
lögreglan kæmi strax á staðinn full-
yrti hún að maður hefði verið myrtur
enda þótt ekki væri það ljóst.
Þegar Lindsey May lögreglumaður
kom á staðinn var Curtixs Kramer,
starfsbróðir hans, þegar'farinn að
príla upp hlið hússins til að geta
fúllvissað sig um að maður lægi á
eldhúsgólfinu.
Lindsay May var ekki vanur að
tvínóna við hlutina. Hann sparkaði
þegar upp bakhurðinni. May og
Kramer huguðu þegar að manninum.
Hann lá á maganum og var höfuð
hans í blóðpolli. Hann hafði verið
skotinn í höfúðið með hlaupvíðri
byssu. May fann ekkert lífsmark.
Drengur á lífi
Kramer lagði hönd skyndilega á
herðar Mays og bað hann að þegja.
Þeir heyrðu þungan andardrátt, lík-
astan hrotum, innan úr húsinu.
Lögreglumennimir bmgðu vasaljós-
um sínum á loft og héldu í átt að
þeim stað sem hljóðin komu frá. Þeir
fundu unglingsstrák í dyragættinni
að dagstofúnni. Hann hafði verið
skotinn í höfuðið með hlaupvíðri.
byssu. En hann var á lífi. May fann
'loks ljósrofann og nú baðaðist stofan
ljósi. Kramer hljóp út og sá sjúkrabíl
renna í hlað.
Hjúkmnarmenn tóku drenginn að
sér en lögreglumennimir héldu
rannsókn sinni áfram. Þeir fundu
nokkrum andartökum síðar unga
stúlku, lítið eitt yngri en drenginn.
Hún hafði verið skotin á sama hátt.
Hún reyndist látin.
Engu stolið
Nú kom fyrsti rannsóknarlögreglu-
maðurinn á staðinn. Bradley Zeigler
horfði haukfránum augum yfir vett-
vang víganna. Hann ýtti hattinum
aftur á höfuðið, rótaði í vasanum,
dró upp sveran vindil og ítalska
eldspýtu. Hann kveikti á henni með
því að strjúka henni eldsnöggt við
dyrakarminn og skjótt myndaðist
ieykjarmökkur í kringum hann.
Zeigler vissi hvers bæri að leita og
reynsla hans af fjölmörgum morð-
málum gæddi hann innsæi: hann
vissi hvar átti að leita. Hann sendi
óbreyttu lögreglumennina út til að
leita vegsummerkja utan dyra. Sjálf-
ur fann hann skammbyssu sem Zeigl-
er hafði haft til taks en ekki náð að
nota. Á örskammri stundu fann hann
það sem hann leitaði að, skothylki.
Eitt fann hann á eldhússtól, eitt í
bókaskáp, kúlugat var á eldhús-
veggnum og enn eitt skothylki. Zeigl-
er lyfti skothylki upp að ljósi. Bros
færðist yfir andlit hans. Strákamir á
rannsóknarstofunni höfðu verk að
vinna.
Vettvangsrannsóknin leiddi fleira
í ljós eins og venslafólk Pats hafði
óttast: dóp og margs konar eiturlyf
og ýmis verkfæri eiturlyfjasala. Áð
auki fann Zeigler stórfé í seðlavöndl-
um, alls 9.900 dali.
Þjófavarnakerfi
Rannsóknarmenn veittu því strax
athygli að ekkert benti til verulegra
átaka. Tvær manneskjur voru látnar
og ein að dauða komin en engu að
síður var flest með eðlilegu móti.
Engu virtist hafa verið stolið, ekki
einu sinni digrum fjársjóði sem lá á
glámbekk.
Hár fundust á vesti sem hin látna
stúlka var í. Þau voru sett í sérstak-
an poka og send í rannsókn. Þau
reyndust ekki vera af höfði hennar.
Fleiri kúlur fundust.
Faðir Pats staðfesti að það væri
sonur hans, Patrick G. Mitchell,
þrjátíu og fjögurra ára gamall og
eigandi hússins, sem lægi látinn í
eldhúsinu. Stúlkan var dóttir Pats,
Bobby Jo Mitchell Herriford, þrettán
ára að aldri.
Drengurinn, sem nú var á leið á
spítala, var 15 ára gamall sonur Pats.
Lögreglumennirnir May og Kramer
komu tómhentir aftur að húsinu.
Þeir höfðu rætt við nágranna Pats
en í ljós kom að það ár sem hann
hafði búið í hverfinu hafði enginn
kynnst honum. Nágrannamir héldu
að þetta væri maður sem vantreysti
öðrum. Þjófavamarkerfi af því tagi
sem hann hafði var algjörlega óþekkt
í þessum friðsæla smábæ. Saksókn-
ari, Know Coungy, gaf út yfirlýsingu
þess efnis að manndrápin stæðu í
sambandi við eiturlyfjasölu.
Hvar var byssan keypt?
Krufning leiddi í ljós að árásin
hefði átt sér stað á milli hádegis og
klukkan 4 síðdegis laugardaginn 21.
apríl 1984.
Drengurinn hafði verið fluttur til
sjúkrahúss ekki allfjarri í þyrlu.
Nauðsynlegt reyndist að skera upp
heila hans. Aðgerðin hafði tekist vel
én aðgerð á heila er geysilega erfið
og oftar en ekki bíður sjúklingurinn
þess ekki bætur enda þótt hann haldi
lífi.
Zeigler ákvað strax að komast að
því hvar hin hlaupvíða byssa - 45
kalíber - hafði verið keypt. Það vom
ekki svo margir í Galesburg og ná-
grenni sem komu til greina. Ef byss-
an var þá keypt þar.
EITURLYFJASALINN
NEITAÐI
OG TÝNDI LÍFI
Hún skildi ekkert í
þessu. Hún hafði
hringt í Pat, kær-
astann sinn, á föstu
degi til að skipu-
leggja páskahelg-
ina. Dóttir hans og
sonur voru komin
í bæinn til að eyða
helginni með
þeim. Þau höfðu
ætlað í búðir því
Pat vildi gefa börn-
um sínum ný föt
fyrir páskana.
Heimili Pat Mitchells. Þarna týndi hann lífi ásamt dóttur sinni. Sonur | hans bjargaðist naumlega.
Sérstæð sakamál - Sérstæð sakamál - Sérstæð sakamál