Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Síða 16
16
DV. LAUGAEDAGUR 25. JANÚAR1986.
Nissan Patrol árg. 1984, ekinn 26.000 km. Til sýnis
og sölu í sýningarsal okkar, Rauðagerði.
[SHINGVAR HELGASON HF.
jHHj Sýningarsalurinn/Rjiiiðaoerði, simi 33660
FLUGSKÚLINN FLUGTAK
Fyrirhugað er að hefja bóklegt blind-
flugsnámskeið í janúar.
Væntanlegir nemendur
hafi samband við
skólann í síma 28122.
reykjavíkurflugvelli
Gamla flugturninum, Reykjavíkurflugvelli. Sími28122.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Verkfræðing eða tæknifræðing hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur við áætlanagerð við raforku-
virki.
Kunnátta í Fortan-forritun nauðsynleg.
• Ritara til starfa í innlagnadeild.
Upplýsingar veitir Jón Björn Helgason í síma
686222.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00
mánudaginn 3. febrúar 1986.
FRÖNSKUNÁMSKEIÐ
ALLIANCE FRANCAISE
Fyrri námskeið vorannar hefjast mánudag
3. febrúar.
- 10 vikna námskeið
- Kenntverðuráöllumstigum
- Bókmenntaklúbbur
- Leiklistarklúbbur fyrir þá sem iengra eru komnir
(minnst 6 nemendur, mest 12 nemendur)
- Barnaflokkur (7-12 ára) og
unglingaflokkur (13-16 ára) ef næg þátttaka fæst.
Innritun fer fram á Bókasafni Alliance Francaise
alla virka daga frá kl. 1 5-19.
Nánari upplýsingar í síma 22870.
Veittur er 10% staðgreiðsk.afsláttur og 15% stað-
greiðsluafsláttur fyrir námsmenn.
Munið kvikmyndaklúbbinn. Sýningar (með enskum
texta) á hverju fimmtudags<völdi kl. 20.30 í Regn-
boganum.
Fimmtudaginn 30. janúar: Stórmyndin „Rue Case-
Negres" eftir Euzhan Palcy (1983).
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 78, 83. og 87. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
Miðási 18, Egilsstöðurr, þingl. eign Austurverks hf„ fer fram samkvæmt
kröfu Jóns G. Briem hdl. á eigninni siálfri fimmtudaginn 30. jan. 1986
kl. 10.
Sýslumaðurinn i Suður-Múlasýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á þörungaverksmiðju á Reykhólum I Barðastrandar-
sýslu, þingl. eign Þörungavinnslunar hf„ fer fram eftir kröfu Iðnþróunar-
sjóðs þriðjudaginn 28. janúar 1986 kl. 13.00.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
„Svona vill Flokkur mannsins hafa lífið; eins og Pepsi
Cola,“ sagði Metúsalem Þórsson þar sem hann sat í
sjónvarpsstofunni á Hótel Blönduósi og horfði á Coca—
Cola auglýsingu: Sólbrenndir skrokkar á þilfari segl-
skútu, öldugjálfur við borðstokkinn, sumar og sæla.
57 framboð
Flokkur mannsins hefur verið á
ferðalagi um landið að undanförnu
til að undirbúa framboð vegna
sveitarstjórnarkosninga í vor.
Flokkurinn ráðgerir framboð á
minnst 57 stöðum á landinu og því
er nóg að gera. Helgarblað DV hitti
7 flokksmenn á Blönduósi í vi-
kunni, allir voru þeir galvaskir og
til í slaginn.
70 á Sauðárkróki
„Við erum búin að ná okkur í 17
félaga hér á Blönduósi, 11 á
Hvammstanga og 70 á Sauðár-
króki,“ sagði Helga Óskarsdóttir
flokkanna halda áfram að ráðskast
með sig.“
Tíund?
- Hvemig farið þið að því að
fjármagna svona kosningaferða-
lög. Greiðið þið kannski tíund af
launum ykkar til flokksins?
„Nei, ætli væri ekki nær að tala
um tuttund,11 segir hópurinn einum
rómi og hlær. „Við reynum að vera
hress, það er hluti af stefriunni.
Annars greiðir hver fyrir sig i
svona ferðalögum og ef einhver
verður blankur þá er hlaupið undir
bagga. Við leggjum mikið upp úr
góðum félagsskap. Það má segja
að Flokkur mannsins sé millistig á
verið í Framsóknarflokknum og
bætir svo við: „Ég fæ beinverk af
Framsókn, þess vegna gekk ég til
liðs við Flokk mannsins. Maður
lifir ekki nema í 70 ár á þessari
plánetu.“
Annar sagðist hafa kynnst stefn-
unni á götu úti, drifið sig á fund
og kynnt sér stefnuna betur. Nú
var hann allt í einu kominn í kosn-
ingaferðalag. „Ég kann vel við mig
í þessum félagsskap.“
Viltu í framboð?
Flokkur mannsins notar ekki
hefðbundnar aðferðir við undir-
búning framboðanna 57 vegna
sveitarstjórnarkosninganna.
Metúsalem Þórsson og Helga Óskarsdóttir í broddi fylkingar Flokks mannsins í 10 stiga gaddi á Blönduósi í
vikunni: - Hver vill fara í framboð? DV-mynd GVA.
sem hafði orð fyrir flokknum.
Helga var þekktur fiðluleikari hér
áður fyrr en sinnir nú húsmóður-
störfum og baráttumálum fyrir
Flokk mannsins. „Boðorð okkar er
að fólkið taki völdin og við ætlum
að bjóða fram í sveitarstjórnar-
kosningunum í vor til að fólk geti
valið á milli þess að ráða eigin
málum eða að láta fulltrúa þing-
milli saumaklúbbs og Kiwanis-
klúbbs."
Beinverkur
Þau segja að Flokkurinn þeirra
sé nú til í 52 þjóðlöndum og íslensk-
ir flokksfélagar um 5000 talsins.
Þeir hafa verið sóttir til allra
flokka en ef til vill mest af götunni.
Ein stúlka í hópnum segist hafa
Flokksfélagarnir fara bæ úr bæ og
á milli bæja og spyrja vegfarendur
jafnt sem bændur og búalið hvort
það vilji ekki fara í framboð:
Flokkur mannsins bjóði sæti á
framboðslista sínum hverjum sem
hafa vill.
Sumir vita ekki alveg hverju á
að svara.
-EIR