Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Page 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
3
Jákvæðarhorfurí efnahagsmálum:
„Koma má verðbólgunni
vel undir 20 prósent”
— segir forsætisráðherra
Breyttar forsendur í efnahags-
málum hafa gefið vonir um að
hægt verði að koma verðbólgunni
enn meira niður en óætlað var.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra telur að ef skynsamlega
verður haldið á málum séu mögu-
leikar á að koma verðbólgunni vel
undir 20 prósent á þessu ári.
„Ég hef lótið vinna mikið í þess-
um máluð að undanfömu. Niður-
stöðurnar eru þær að horfunar í
eínahagsmálum eru miklu jákvæð-
ari en menn þorðu að spá um fyrir
áramót," sagði Steingrímur Her-
mannsson í viðtali við DV.
Forsætisráðherra sagði að sált-
fiskverð hefði hækkað um 16%,
frystur fiskur í Bandaríkjunum um
5% og einnig hefði verðið hækkað
í Evrópu. Þessar hækkanir gætu
gefið fiskvinnslunni hér á landi
yfir einn milljarð í auknar tekjur
á þessu óri. Þá væri nokkuð aug-
ljóst að olíuverðslækkunarinnar
ætti að fara gæta hér á vordögum.
Forsætisráðherra nefndi einnig
að svo virtist sem dregið hefði úr
þenslu á höfuborgarsvæðinu og
launaskrið þar gengið til baka. Því
væri nú spóð að framfærsluvísitala
myndi hækka mun minna í febrúar
en í janúar og enn minna í mars.
Svipaðar spár væru um byggingar-
visitöluna. Þetta gæti haft þau
áhrif að lánskjaravísitalan lækk-
aði hratt. Nafnvextir myndu því
lækka og greiðslubyrði atvinnufyr-
irtækja ætti eftir að verða léttari.
Horfur í peningamálum væru
einnig góðar. Á síðasta ári hækk-
uðu innlán meira en útlán í fyrsta
skipti síðan 1981. Á síðari hluta
síðasta ór hækkuðu innlánin um
50% en útlónin aðeins um 35%.
Þá væri staða bankanna betri í
heild en áður gagnvart Seðlabank-
anum. Þó væri staða Landsbank-
ans og Útvegsbankans ekki góð.
„Það eru því ýmis teikn á lofti
núna. Ef rétt er haldið á málum er
mögulegt að ná umtalsverðum
árangri í efnahagsmálunum. En
það ræðst mikið af því hvemig til
tekst í yfirstandandi kjarasamn-
ingum. Ef gengið verður að kröfum
ASÍ, eins og þær eru nú, má búast
við að verðbólgan verði ekki undir
40 af hundraði á þessu ári, þrátt
fyrir breyttar aðstæður í efnahags-
málum. Ef hins vegar tekst að
semja um bætt kjör fyrir þá lægst
launuðu, hægfara kaupmáttar-
aukningu og að halda genginu
sæmilega stöðugu þá er margt sem
bendir til þess að hægt verði að
halda verðbólgunni vel undir 20 af
Breyttar aðstæður hafa nú hleypt
nýju blóði í samningamálin. Það
eru fyrst og fremst fyrirsjáanlegar
verðlækkanir á olíu og fiskverðs-
hækkanir í Bandaríkjunum sem
hafa aukið á vonina um að samn-
ingar takist. í dag hefur verið
boðaður samningafundur ASf og
VSÍ.
Þessar breyttu aðstæður geta
orðið þess valdandi að ekki þarf
hundraði. Ef þetta svigrúm verður
notað í aukna þenslu stefnum við
aftur í vaxandi yerðbólgu. Það er
að hækka fiskverð eins mikið og
menn töldu fyrir nokkrum vikum.
Nú er verið að kanna hvaða áhrif
þetta hefur. Ef fer sem horfir er
ljóst að hægt verður að semja ó
mun lægri verðbólguforsendum en
t.d. ASÍ gerir ráð fyrir. f kröfugerð
ASÍ er gert ráð fyrir um 30 prósent
verðbólgu.
Menn, sem DV ræddi við, telja
þó að enn sé langt í endanlega
því til mikils að vinna,“ sagði
Steingrímur.
-APH
samninga. Undanfarið hafa undir-
nefndir starfað og fjallað um lífeyr-
ismál og efnahagsmál. Ljóst er að
samið verður um breytingar á líf-
eyrissjóðsmólum. Ekki þykir þó
líklegt að samið verði um að lífeyr-
isgjöld verði tekin af öllum laun-
um. Líklegra er að tekið verði
fyrsta skrefið í þá átt í þessum
samningum.
-APH
Bjartara yfir
kjarasamningum
Fiskverðshækkun og lækkun olíuverðs auka samningslíkur
Krísu-
víkur-
skóli
seldur
Samtök áhugafólks hafa gert til-
boð í Krísuvíkurskóla og ríki og
sveitarfélög samþykkt söluna. Sam-
kvæmt heimildum DV er markmið
hópsins að efna til sjólfseignarstofn-
unar með það fyrir augum að kaupa
skólahúsið í Krísuvík og reka þar
meðferðarheimili og uppeldis- og
fræðslustofnun fyrir böm og ungl-
inga. Það eru einstaklingar sem hafa
mikla reynslu af uppeldis- og með-
ferðarmálum sem em í þessum
áhugamannahópi og „telja sig sér-
fróða um áfengis- og fíkniefnamál"
eins og heimildarmaður okkar sagði.
Að sögn örlygs Geirssonar í mennta-
málaráðuneytinu hefur ríkið sam-
þykkt að selja sinn hlut í skólanum
en reynt hefur verið að leigja hann
eða selja í tvö til þrjú ár.
Ríkið á 75% eignarhlut í Krísuvík-
urskóla og nokkur sveitarfélög 25%.
Útborgun er nónast engin en eftir-
stöðvar verðtryggðar til langs tíma.
Krísuvíkurskóli er varla nema
fokheldur í dag þótt eitt sinn hafi
þessi bygging verið tilbúin undir
tréverk. Miklar skemmdir hafa verið
unnar á byggingunni.
Verið er að ganga frá samningun-
um þessa dagana en undirbúningur
þessa máls hefur staðið yfir nokkuð
lengi. . ÞG
DV veitir íþróttum kvenna meiri athygli og fiallar oftar um iþróttaatburði
kvenna en önnur dagblöð, samkvæmt könnun Jafnréttisráðs.
„Austfjarðaþoka"
á sjónvarpsskjám
Hornfirðinga
— sem haf a hug á að greiða ekki
reikninga f rá Ríkisútvarpinu
Homfirðingar og fólk í nágranna-
sveitum er ekki ánægt með mynd-
gæði á sjónvarpsskjám sínum, sem
em afar slæm og hafa versnað í
vetur. Á sama tíma og sjónvarp er
slæmt hefur rás 2 í útvarpi verið
tengd þannig að Homfirðingar ná
rásinni. Homfirðingar em undrandi
yfir því að peningar skuli vera notað-
ir í nýja þætti frekar en að bæta það
sem fyrir er. „Við viljum frekar fá
að sjó það litla sem sást í sjónvarpinu
heldur en bæta við annarri útvarpsr-
ás. Menn em orðnir þreyttir ó að sjá
Austfjarðaþoku á sjónvarpsskjám
sínum. Það endar með því að við
neitum að greiða afnotargjöld,"
sagði einn Homfirðingur sem DV
ræddi við.
„Jú, það hafa borist kvartanir frá
Homarfirði, sem er ekki tengdur
örbylgjukerfinu. Örbylgjukerfið end-
ar á Háfelli, austur við Vík í Mýr-
dal,“ sagði Haraldur Sigurðsson,
verkfræðingur hjá Pósti og síma.
Haraldur sagði að ástæðan fyrir
slæmum myndgæðum og truflunum
fyrir austan Vík hefði verið raf-
magnstmflanir. Á þeim tíma, sem
mest gekk á, var unnið við nýja
aðveitustöð við Vík. Þegar vinnan
við aðveitustöðina fór fram var raf-
magn nokkrum sinnum tekið af.
Samfara þessu urðu bilanir á ör-
bylgju. „Þetta er nú allt komið í lag.
Það er svo annað mál að Hornfirð-
ingar telja að bílar tmfli sjónvarp-
ið,“ sagði Haraldur.
- Hvenær er von á því að Horna-
fiörður tengist örbylgju?
„Homafiörður er ekki kominn inn
á áætlun Ríkisútvarpsins, sem sér
um fiármögnun á framkvæmdum.
Allir aðalstaðir á landinu em komnir
í samband við örbylgju. Nú er verið
að vinna við uppsetningu á örbylgju
í ísafiarðardjúpi. Ég veit ekki hvar
Homarfiörður er í forgangsröðinni.
Hef trú á því að hann sé nú ofarlega
á blaði.“ -SOS
Meira fjallað um konur
í íþróttum í DV
— en í hinum blödunum
Samkvæmt könnun Jafnréttis-
ráðs, sem framkvæmd var í nóv-
ember 1982, og sambærilegri könn-
un 1985 er meira fiallað um konur
í íþróttum í DV en í hinum blöðun-
um, þ.e. Morgunblaðinu, Nútíman-
um/Tímanum og Þjóðviljanum.
Axið 1985 er hlutfallslega oftast
vísað til kvenna í fyrirsögnum hjá
DV, eða í 5,2% tilvika, meðan
Morgunblaðið vísar til kvenna í
1,8% tilvika, Nútíminn i 2,4% til-
vika og Þjóðviljinn í 3,5% tilvika.
Varðandi texta, greinar og mynd-
ir er DV í fararbroddi fyrir konur.
DV var það greinilega 1982 með
langhæst hlutfall frétta og mynda
af íþróttaviðburðum kvenna og
1985 er DV enn í þeirri stöðu ásamt
Þjóðviljanum. _KB