Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Side 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
SkiDuleg
herferð
gegn lélegum vörumerkingum
„Við erum að undirbúa herferð og
ef ekkert breytist geri ég ráð fyrir
að þessar vörur verði einfaldlega
teknar af markaðnum. Innflytjend-
um ber að merkja þær vörur sem
þeir flytja inn, ef þær innihalda eit-
urefni, eða eru merktar sem hættu-
legar heilsu manna, hið sama gildir
auðvitað um innlenda framleiðend-
ur,“ sagði Þórhallur Halldórsson,
forstöðumaður heilbrigðiseftirlits
Hollustuvemdar.
Nú er tæpt ár síðan heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra birti auglýs-
ingu um merkingu nauðsynjavara
sem innihalda eiturefni, hættuleg
efni eða önnur þau sem geta verið
skaðleg heilbrigði manna. Svo virð-
ist sem þessi tilmæli séu virt að vett-
ugi og ákvæði auglýsingarinnar
þverbrotin. Mjög sjaldgæft er að sjá
íslenskar merkingar á innfluttum
vörum, þrátt fyrir greinargóðar að-
varanir á erlendu tungumáli. Vörum,
sem innihalda hættuleg efni, er stillt
upp á áberandi og aðgengilegum
stöðum og í mörgum verslunum má
jafnvel sjá vítissóda í hillum þar sem
böm ættu auðvelt með að ná til.
Oddur R. Hjartarson hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykj avíkursvæðis-
ins sagði að mjög erfitt væri að fást
við þessi mál og til að ná einhverjum
árangri þyrfti að gera stórátak.
„Okkur er fyllilega ljós sú hætta sem
þessar vanmerkingar hafa í för með
sér, en því miður verður að segjast
að innflytjendur og innlendir fram-
leiðendur hafa ekki tekið málaleitan
okkar eins vel og við höfðum vonast
til. Þetta tekur mjög langan tíma þvi
fyrst þarf að hafa uppi á innflytjanda
sem svo þarf iðulega að leita sér
upplýsinga erlendis um innihald
vömnnar, en jafnvel þeir sem taka
vel í fyrirspumir okkar bregðast
seint og illa við. Innlendir framleið-
endur em skárri, þótt ýmislegt vanti
enn upp á að merkingar séu góðar.“
Oddur sagði að mikið væri nú rætt
um að taka upp staðlaðar merkingar
Efnahagsbandalagsins, en það er
einfalt kerfi merkinga sem segir
nákvæmlega til um þau efni sem em
hættuleg í viðkomandi vömtegund.
Það er rik ástæða til að leggja
mikla áherslu á þessi mál því dæmin
sýna að vanræksla getur haft í för
með sér alvarlegar afleiðingar. Góð-
ar merkingar í verslunum eru því
nauðsynlegar, en þær stoða samt sem
áður lítið ef farið er með vömna
heim og henni stungið inn í vaska-
skápinn eða annan þann stað sem
börn ná auðveldlega til. Merkingun-
um er fyrst og fremst beint til fullorð-
inna svo þeir meðhöndli vöruna í
samræmi við aðvaranimar. Það er
því brýnt hagsmunamál neytenda að
merkingar séu skýrar og skilmerki-
legar og að þessum málum verði
komið í viðunandi horf. -S. Konn.
Kloiduli <i> S6itsielr.sunar
k ekki tít
,um cotkuo 4 «****»«»-
lynr v»«i0t«9an UPP’
rtiín tull- fll
K mvo'iS BJ6U Komas*. upp
3«ÍU« vð’Jf írsrq.;'
IrmtíavÉS ooraa meSvsru®.
zmm JMSC&J *>mm
•' ■*’ * - s tmm *
■ ' r : *. ,í,i m .:-,
•i* m
Uppþvottavélaefnið Upp frá Frigg er það eina á markaðinum sem merkt er viðeigandi hættumerkingu. Við hliðina
á Upp í hillum verslana eru innflutt efni gjörsamlega ómerkt á íslensku og - einnig innlend framleiðsla sem ekki er
merkt eins og vera ber. Frigg virðist hafa leyst merkingavandamálið á tilvalinn hátt með því að prenta límmiða sem
límdir eru á umbúðirnar sem til voru. Þetta gætu innflytjendur einnig gert og ætti það að veia skýlaus krafa neyt-
endaað gengið sé eftirþví aðþessi hættulegu efni verði merktmeðíslenskum texta. -A.Bj. py mvn(j qya
Ferðast um
Bandaríkin
—á ódýrum fargjöldum
Frá janúarbyrjun hafa Samvinnu-
ferðir Landsýn boðið Islendingum
upp á sérstök fargjöld til Bandaríkj-
anna. Þessi fargjöld hafa mælst mjög
vel fyrir og þeir 200 farmiðar, sem
upphaflega voru til sölu, seldust upp
á skömmum tíma.
Það er Delta flugfélagið í Banda-
ríkjunum sem býður þessi fargjöld
og eftir að ljóst varð hve mikil eftir-
spurnin var ákvað félagið að láta
skrá nýtt fargjald sem ekki hefur
áður verið boðið og vegna þeirrar
nýbreytni geta allar ferðaskrifstof-
urnar nú boðið viðskiptavinum sín-
um upp á ódýra ferð til Bandaríkj-
anna.
DV hafði samband við Auði
Björnsdóttur, forstöðumann utan-
landsdeildar Samvinnuferða til að fá
nánari upplýsingar um ferðirnar. „Sá
kvóti, sem við fengum í upphafi, er
löngu uppseldur og því hefur Delta
ákveðið að hafa áframhald á þessu
og bjóða nú nýtt fargjald með brott-
för frá íslandi og Skandinaviu. Delta
flugfélagið er gamalt og rótgróið
félag sem var stofnað upp úr alda-
mótum, enda þarf mikla útsjónar-
semi til að halda velli á bandaríska
fargjaldamarkaðinum þvi þetta er
algjör frumskógur og samkeppnin
mjög hörð.“
Fargjaldið, sem hér um ræðir,
kostar 149 $ eða 6.330,- innan Banda-
ríkjanna auk 17.020,- sem er apex-
fargjald út úr landinu. Þetta fargjald
gildir .til 21. mars en er eðlilega háð
breytingum á gengi. Dvölin í Banda-
ríkjunum má minnst vara í 7 daga
og mest í 60 daga og bóka verður
með hálfsmánaðar fyrirvara út úr
landinu en viðkomustaði i Banda-
ríkjunum með viku fyrirvara.
Inn í þessum 23.350,- krónum er flug
til Qögurra staða í Bandaríkjunum
en hægt er að bæta við allt að 4
viðkomustöðum með því að greiða
30 $ aukalega fyrir hvern stað sem
bætist við. Auður sagði að henni
virtist sem mjög stórt hlutfall þeirra
sem keyptu fyrstu 200 miðana hefði
ekki farið nema af því að svo hag-
stætt fargjald var í boði og margir
hefðu verið að fara til útlanda í fyrsta
sinn. Hún sagði að viðkomustaðirnir
hefðu verið dreifðir um öll Bandarík-
in, en þó hefði nokkkuð stór hluti
haft viðkomu á vesturströndinni.
Eins og áður sagði geta nú allar
ferðaskrifstofurnar boðið þetta far-
gjald, sem gildir til 21. mars. Þá er
bara að öngla saman aurunum, koma
vegabréfsárituninni í gott lag og þá
blasir fyrirheitna landið við,
-S.Konn.
Mynd Ragnar Th.
snmulHHM
SOLUBOÐ
vöruveró í lágmarki