Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Síða 12
12 D V. MIÐVIKUD AGUR 29. JANÚAR1986. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjórí og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKUR H F. - Áskriftarverð á mánuði 450 kr. Verð I lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Sveiflan stóð íár Skoðanakannanir hafa um langt skeið beint athygli að Alþýðuflokknum og formanni hans, sem var kjörinn fyrir rúmu ári. Kannanir DV hafa sýnt mjög merkilega sveiflu á fylgi flokksins. Fvlgið rauk upp, töluvert lengi eftir formannsskiptin. Nl /irðist sveiflan á enda. Fylgi flokksins er aftur komið niður í það að vera hið sama og í síðustu þingkosningum. Lítum nánar á þessa þróun. Fylgi Alþýðuflokksins hrakaði mjög eftir síðustu kosningar. Augljóst var, að forystumenn flokksins höfðuðu ekki til kjósenda. Þó hefði átt að vera lag, þegar Alþýðuflokkurinn var í stjórnarandstöðu og hafði verið um skeið. Fylgi flokks- ins var aðeins um átta prósent í könnun DV í október 1983. Það var þá nærri fjórum prósentustigum undir kosningafylginu. Fylgi flokksins minnkaði enn mikið. Það var komið niður í sex prósent í október 1984. Harðar kjaradeilur höfðu staðið. Alþýðubandalagið bætti við sig og græddi á deilunum. En Alþýðuflokknum mistókst að ná til kjósenda. Þetta breyttist við for- mannsskiptin í Alþýðuflokknum, þegar Jón Baldvin Hannibalsson felldi Kjartan Jóhannsson. Svo sem veður getur skipazt á einni nóttu, rauk fylgi Alþýðuflokksins fljótlega upp í tuttugu prósent. Fylgið minnkaði síðan lítið eitt en hélzt nálægt tuttugu prósentum í DV-könn- unum allt þar til í september síðastliðnum. Alþýðuflokk- urinn var um alllangt skeið annar stærsti flokkur lands- ins samkvæmt skoðanakönnunum. Nú gerðist það í könnuninni í september, að fylgi flokksins fór niður í Qórtán og hálft prósent og varð svipað fylgi Framsóknar og Alþýðubandalags. Skoðanakönnunin, sem DV gerði nú um síðustu helgi, sýnir enn hrakfarir Alþýðuflokks- ins. Fylgi hans er nú hið sama og var í síðustu kosning- um og flokkurinn orðinn minni en Framsókn og Al- þýðubandalag og að komast á stig með Samtökum um kvennalista. Þetta er að vísu ekki fall alla leið til þess, sem var rétt áður en Jón Baldvin tók við formennsku. En engu að síður hlýtur þetta að sýna mikil mistök formannsins að undanförnu. Hann hefur misst tökin á kjósendum. Jón Baldvin hefur sagt margt viturlegt um efnahags- og þjóðmál, enda auðveldara í stjórnarand- stöðu. En tök hans hafa fyrst og fremst byggzt á klókind- um hins æfða stjórnmálamanns við leikbrögð. Nú hlýtur Jón Baldvin enn að fara af stað og reyna að ná sér á strik, áður en hann fellur í sömu gröf og fyrirrennari hans, Kjartan Jóhannsson. Þótt tap Alþýðuflokksins sé athyglisverðast við skoð- anakönnunina nú vegna þess, sem á undan er gengið, vekur margt annað eftirtekt. Fylgi Framsóknar fer heldur vaxandi að nýju eftir slæmt skeið. Þó er fylgið enn langt undir kosningafylgi þess flokks. Bandalag jafnaðarmanna hefur að undanförnu tapað helmingi síns fylgis. Sá flokkur var lengi í lægð en efldist við frjálshyggjuskrif foringja. Nú hefur dregið úr áhuga á þessum flokki eftir klofning. Sjálfstæðisflokkurinn var í ládeyðu fyrri hluta síðasta árs en efldist eftir lands- fund. Alþýðubandalagið er enn í lægð. Samtök um kvennalista auka fylgi sitt mikið. Mjög margir kjósendur eru eðlilega óánægðir með alla flokkana. Enn getur verið langt til kosninga, og enn reynir á, hvort einhver flokkur vinnur sér eitthvað sérstakt til ágætis. Haukur Helgason. ,,Þar með verður ekki tekið frekar mark á Seðlabankanum en flokksályktunum Sjálfstæðisflokksins.4 Seðlabankinn undirdeild í Sjálfstæðisflokknum Seðlabankinn er umdeild stofnun. Kemur þar margt til. Eitt er það að aðalbankastjóri bankans hefur jafnan stillt sér í fylkingarbrjóst í umdeildustu málum þjóðarinnar á síðustu áratugum, stóriðjumálun- um, og verið í fyrirsvari fyrir þá sem hafa kosið erlenda stóriðju. Sú stefna hefur nú beðið skipbrot í hafsjó reynslunnar en fram- kvæmd hennar hefur valdið íslend- ingum stórfelldu tjóni og veldur dag hvem sem við borgum orku- reikningana okkar. Þrátt fyrir þetta er þjóðinni mikilvægt að eiga traustan mið- banka, Seðlabanka, sem sér um tiltekin atriði í bankamálum og peningamálum þjóðarinnar. Með stofnun Seðlabankans var honum afhent gengisskráningarvaldið. Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðis- flokkurinn beittu sér fyrir þeirri örlagaríku ákvörðun sem var umdeild á sínum tíma og er enn umdeilanleg. Hitt verður ekki síður til þess að draga úr trausti manna á Seðlabankanum að margir hafa talið stefnu hans mjög misvísandi að því er varðar almenna peninga- málastjóm og að hann hafi seilst langt inn á starfssvið viðskipta- bankanna. Þá er vaxtastefna hans harðlega gagnrýnd á seinni árum. Seint á árinu 1982 kom til ágrein- ings milli Seðlabankans og ríkis- stjómarinnar um hækkun vaxta. Ríkisstjómin hafði ekki samþykkt hækkun vaxta, en Seðlabankinn tilkynnti vaxtahækkunina án samþykkis ríkisstjómarinnar. Þetta gerði Seðlabankinn á grund- velli ótvíræðra lagaheimilda. Mín afstaða var og er sú að þessum lagaheimildum hafi átt að breyta í þá vem að ríkisstjómin hefði skil- yrðislaust úrslitavald um vaxtaá- kvarðanir. Hefur Alþýðubandalag- ið talið rétt að breyta Seðlabank- anum í þessa vem og fyrir forgöngu Alþýðubandalagsins 1979 voru rekstrar- og afurðalán atvinnuveg- anna skilin eftir í höndum ríkis- stjómarinnar. Þegar deilan kom upp 1982 kaus Framsóknarflokkur- inn að hafa þá skoðun að taka ætti vaxtaákvarðanimar af Seðla- bankanum á sama hátt og Al- þýðubandalagið. Kom sú skoðun fram í umræðum um málið af hálfu formanns Framsóknarflokksins. Aðrir hafa ekki stutt þessa afstöðu Alþýðubandalagsins. Þannig hafa Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn slegið skjaldborg um úrslitavald Seðlabankans í þessum efnum, Alþýðubandalagið hefur verið á móti, en Framsóknarflokk- urinn skiptir um afstöðu af og til. Framsókn snýr viö blaðinu Þegar Framsóknarflokkurinn fór í ríkisstjórn með Sjálfstæðis- flokknum sneri hann við blaðinu, fyrst með því að samþykkja nær algjört vaxtafrelsi handa við- skiptabönkunum sumarið 1984. Sú ákvörðun hafði í för með sér kafla- skipti í íslenskum stjómmálum Kjallarinn SVAVAR GESTSSON FORMAÐUR eins og bent var á í Tímanum á dögunum. En hér var þó ekki látið staðar numið: Síðastliðið vor voru knúin fram á alþingi lög um við- skiptabanka sem gefa þeim algjör- lega frjálsar hendur um vaxtaá- kvarðanir og núna liggja fyrir þinginu tillögur frá ríkisstjóminni um að Seðlabankinn verði í raun- inni sviptur öllum möguleikum til þess að hafa áhrif á vaxtastigið. Þannig hefur þá Framsóknarflokk- urinn framkvæmt fyrirheit sjn frá því fyrir kosningarnar 1983: í stað þess að koma vaxtaákvörðunum á ný til ríkisstjómarinnar hafa vaxtaákvarðanir verið færðar svo langt frá ríkisstjóm landsins að hún er framvegis svo að segja ómyndugur aðili í þeim efnum. Nú tekur steininn úr Þegar slíkt ægivald er komið í hendur bankanna undir forystu Seðlabankans veltur á öllu að Seðlabankinn njóti almenns trausts. Til þess ber stjórnvöldum að gera viðeigandi ráðstafanir, meðal annars þegar ráðnir eru bankastjórar Seðlabankans. Því miður hefur núverandi ríkisstjóm ekki borið gæfu til þess að gæta að sér í þessum efhum. Þannig var ráðning Tómasar Ámasonar mjög umdeild fyrir fáeinum mánuðum. Þó hafði Tómas það fram að færa að hann hefði verið yfirmaður Seðlabankans í þrjú ár sem við- skiptaráðherra og verið fjármála- ráðhera á annað ár. Auk þess hafði hann um árabil starfað sem for- stjóri Framkvæmdastofnunar rík- isins. Engu að síður var ráðning hans umdeild og varð ekki til þess að auka tiltrú á Seðlabankanum. En flestum fannst þó nóg komið. En nú tekur steininn úr: Ráðning Geirs Hallgrímssonar er kafla- skipti í sögu Seðlabankans. Með þeirri ráðningu er verið að veikja tiltrú fólks á Seðlabankanum. Ekki vegna þess að Geir sé verri en aðrir þingmenn eða ráðherrar íhaldsins heldur vegna þess að hann er frá- farandi formaður Sjálfstæðis- flokksins og forystumaður hans í áratugi. Þar með verður ekki tekið frekar mark á Seðlabankanum en flokksályktunum Sjálfstæðis- flokksins. Þar með hefur Seðla- bankinn dæmt sig algjörlega úr leik sem ráðgjafi ríkisstjórna og alþingis í efnahagsmálum. Með ákvörðun um að ráða Geir Hall- grímsson hefur núverandi ríkis- stjórn ákveðið að Seðlabankinn verði enn umdeildari en áður og það sem meira er: óhjákvæmilegt verður við stjórnarskipti að gera kröfur um að forráðamenn Seðla- bankans víki fyrir hæfum mönnum með víðtæka faglega yfirsýn. Með ráðningu Geirs Hallgríms- sonar í Seðlabankann lítur landa- kort Sjálfstæðisflokksins í banka- málum þannig út: Seðlabankinn: Geir Hallgríms- son, fyrrverandi formaður Sjálf- stæðisflokksins, alþingismaður og ráðherra um árabil og borgarstjóri í Reykjavík. Formaður bankaráðs: Jónas Rafnar, fyrrverandi þing- maður Sjálfstæðisflokksins. Útvegsbankinn: Lárus Jónsson, fyrrveranndi þingmaður Sjálfstæð- isflokksins og formaður íjárveit- inganefhdar á vegum íhaldsins. Formaður bankaráðs: Valdimar Indriðason, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. Landsbankinn: Jónas Haralz, einn aðalhugmyndafræðingur íhaldsins í efnahagsmálum um áratugi, efnahagssérfræðingur við- reisnarstjómarinnar. Formaður bankaráðs: Pétur Sigurðsson, al- þingismaður Sjálfstæðisflokksins. Þarf frekari vitna við: Sjálfstæð- isflokkurinn lítur á þjóðbanka sem sína einkaeign rétt eins og Ríkisút- varpið eða Lánasjóð íslenskra námsmanna eða Reykjavíkurborg. Það er kominn tími til að þessum flokki valdahrokans verði settur stóll fyrir dymar. Yfirgangur íhaldsins er óþolandi. Ráðning Geirs Hallgrímssonar í Seðla- bankann er punkturinn yfir i-ið. Svavar Gestsson. „Óhjákvæmilegt verður við stjórnar- ^ skipti að gera kröfur um að forráða- menn Seðlabankans víki fyrir hæfum mönnum með víðtæka faglega yfirsýn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.