Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Blaðsíða 14
14
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
Menning Menning Menning Menning Menning
Þekktir
listamenn
og efnilegir
nýliðar
Eins og getið var um fyrir síðustu
helgi verða Menningarverðlaun DV
veitt áttunda sinni fimmtudaginn 20.
febrúar. í þau sjö skipti sem verð-
launin hafa komið til afhendingar
hafa þau fallið í skaut meira en 40
aðilum, bæði einstaklingum og stofn-
unum. Þeirra á meðal hafa verið
margir þekktustu listamenn þjóðar-
innar sem og efnilegir nýliðar.
Bókmenntaverðlaunin hafa hlotið
þau Ása Sólveig, Sigurður A. Magn-
ússon, Þorsteinn frá Hamri, Vilborg
Dagbjartsdóttir, Guðbergur Bergs-
son, Thor Vilhjálmsson og Álfrún
Gunnlaugsdóttir.
Leiklistarverðlaun hafa verið veitt
Stefáni Baldurssyni leikstjóra,
Kjartani Ragnarssyni, leikara og
leikskáldi, Oddi Bjömssyni leik-
skáldi, Hjalta Rögnvaldssyni leik-
ara, Bríeti Héðinsdóttur leikstjóra,
Stúdentaleikhúsinu og Alþýðuleik-
húsinu.
Myndlistarverðlaun hlutu Gallerí
Suðurgata 7, Ríkharður Valtingojer
grafíklistamaður, Sigurjón Ólafsson
myndhöggvari, Ásgerður Búadóttir
vefari, Helgi Þorgils Friðjónsson,
listmálari og grafíker, Jóhann Briem
listmálari og Jón Gunnar Árnason
skúlptör.
Tonlistarverðlaunin hafa komið í
hlut Þorgerðar Ingólfsdóttur kór-
stjóra, Helgu Ingólfsdóttur sembal-
Hópmynd er ekki til af tyrstu handhöfum Menningarverölaunanna, þeim Ásu Sólveigu,
Stefáni Baldurssyni, Friörik Þór Friörikssyni, f.h. Galleris Suðurgötu 7, Gunnari Hanssyni
og Þorgerði Ingólfsdóttur. Hér er mynd af hópnum, sem tók á móti verðlaununum 1980
: f.v. Manfreö Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson, Sigurður A. Magnússon,
Manúela Wiesler, Helga Ingólfsdóttir, Richard Valtingojer og Kjartan Ragnarsson.
Menningarverðlaunin 1981. Aftari röð f.v. : Oddur Bjömsson, Hákon Hertevig, Gunnar
Guönason, Jón Ásgeirsson. Fremri röð f.v. : Þorsteinn frá Hamri, Sigurbjörg Sverris-
dóttir (f.h. Sigurðar Sverris Pálssonar) og Sigurjón Ólafsson.
Menningarverölaunin 1982. F.v. : Árni Kristjánsson, Ásgerður Búadóttir, Jón Þórisson,
Birna Bjömsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir og Anna Rögnvaldsdóttir (f.h. Hjalta Rögn-
valdssonar).
^oreyrhvga^ Gerist Áskriftarsíminn áskrifendur! á Akureyri er 25013
ATHUGIÐ! Tekið er á móti smáauglýsingum í síma 25013 og á afgreiðslunni, Skipagötu 13. Afgreiðsla okkar Skipagötu 13 er opin virka daga kl. 13—19 og laugardaga kl. 11 — 13. —
— Blaðamaður|^g^^|^|á Akureyri, Jón G. Hauksson, hefur aðsetur á sama stað. Vinnusími hans er 26613, heimasími 26385.
VIÐ FÆRUM YKKUR
DAGLEGA
Afgreiðsla — auglýsingar Skipagötu 13 — Akureyri. Sími 25013.
Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason:
Yfirborðsleg
umfjöllun um
flókið mál
Athugasemdir við ritdóm
Gunnlaugs A. Jónssonar
um Kirkjuritið
Gunnlaugur A. Jónsson guðfræð-
ingur og blaðamaður skrifar ritdóm
í DV þann 16nda janúar síðastliðinn
um nýútkomið Kirkjurit, sem fjallaði
um Kirkju og stjómmál.
í ritdómi sínum nefnir Gunnlaugur
grein er ég skrifaði og nefndi: Um
kristna trú og stjórnmál hvað er
hinum lúthersku heimilt? Víst er það
ágætt að kirkjuritið fái umfjöllun á
hinum almenna blaðavettvangi en
þó vil ég leyfa mér að gera stutta
athugasemd varðandi umfjöllun eða
öllu heldur umfjöllunarleysi Gunn-
laugs er snertir áðurnefnda grein
mína.
Gunnlaugur Jónsson segir í skrif-
um sínum að ég „hnýti í Morgun-
blaðið“ og að það mætti túlka sem
enn eitt dæmið um vinstri sveiflu í
íslenskri prestastétt; hin meinta
„hnúta“ í garð Moggans er á hinn
bóginn hvergi útskýrð eða rakin í
grein Gunnlaugs.
Ég vil frábiðja mér og vara við svo
yfirborðslegri umfjöllun um flókin
mál. Víst er það í lagi þó að Gunn-
laugur telji að ég hnýti í Morgun-
blaðið þegar ég gagnrýni kæruleysis-
lega og beinlínis ranga túlkun þess
á fáeinum setningum úr einu rita
Lúthers, en þá þætti mér eðlilegra
að slík ályktun birtist sem niður-
staða af efnislega rökstuddri at-
hugun á innihaldi greinar minnar
en ekki sem fullyrðing út í bláinn
án útskýringa eða rökfærslu. Þetta
eru varla fræðimannsleg vinnu-
brögð, Gunnlaugur?
Sr. Þorbjörn Hlynur Ámason.
Annars er mér Morgunblaðið eng-
inn sérstakur hjartaverkur og lút-
herstúlkun þess var alls ekki við-
fangsefni greinar minnar í Kirkjuri-
tið, þótt ég tæki af því dæmi um
alvarlegan misskilning á lútherskri
kenningu.
En svo áfram sé haldið með nöldr-
ið þá þykir mér miður að sjá ályktun-
ina sem Gunnlaugur dregur af gagn-
rýni minni á Morgunblaðið: „ ... og
munu vafalaust margir sjá í því enn
eitt merkið um „vinstri sveiflu" í
íslenskri prestastétt." Af hverju? Er
það dæmi um „vinstri sveiflu" þó að
guðfræðingur bendi á misskilning
Morgunblaðsmanna varðandi
stefnumál Martins Lúthers? Hvað á
svona rakalaus dilkadráttur eigin-
lega að þýða? Hvað ef Morgunblaðið
lýsti stuðningi við frumvarp Þor-
valds Garðars Kristjánssonar um
takmörkun á rétti til fóstureyðinga
og ég tæki upp pennann og syngi
Morgunblaðinu lof fyrir afstöðu
þess. Væri það þá dæmi um hægri
sveiflu í íslenskri prestastétt? Varla.
Eymamerkingar og frasatal, þessi
einkennismerki pólitískrar umræðu
hér á landi, eru til vandræða og
óþurftar í guðfræðilegri umræðu og
gagnrýni. Því lýsi ég vonbrigðum
með þessa tætingslegu grein Gunn-
laugs Jónssonar þó ekki sé hún al-
vond; en við meiru var að búast af
honum.