Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1986, Qupperneq 5
DV. FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986.
5
Vinsældir Davíðs Oddssonar borgarstjóra auka fylgi Sjálfstæðis
flokksins í Reykjavik.
Stjórnmál
SAMSTAÐA UM
KOSNINGAALDUR
—sjálf stæðismenn vilja kjósa í maí
Meirihluti virðist vera með því
að kosningaaldur verði 18 ár í
komandi bæjarstjórnárkosningum
og kosið verði annan laugardag í
júní, eða 14júní.
Þessi ákvæði er að finna í frum-
varpi um sveitarstjórnir sem enn
hefur ekki hlotið afgreiðslu Al-
þingis. Samstaða er innan allra
flokka um að flýta afgreiðslu þess.
Afstaða Sjálfstæðisflokksins er
ekki alveg í samræmi við afstöðu
hinna flokkanna. Friðrik Sophus-
son, Sjálfstæðisflokki, skýrði frá
því að hans flokkur væri hlynntur
því að ákvæði frumvarpsins um
nýjan kosningaaldur yrði notað.
Hins vegar vilja sjálfstæðismenn
að haldið verði við ákvæði núgild-
andi laga um kosningadag, sem er
31 maí. Hann sagði að þessi afstaða
byggðist á því að stærri kaupstaðir
hefðu miðað áætlanir sínar við
þennan dag og því ekki eðlilegt að
kjósa annan laugardag í júní.
-APH
Karvel Pálmason
aftur á þing
Karvel Pálmason, þingmaður Sighvatur Björgvinsson hefur
Alþýðuflokksins, mun taka sæti á gegnt störfum Karvels þennan
Alþingi að nýju nk. mánudag. Eins tíma. Hann hverfur nú af þingi og
og kunnugt er hefur Karvel átt við mun einbeita sér að starfi sínu sem
slæm veikindi að stríða og hefur framkvæmdastjóri Norræna fé-
af þeim sökum ekki getað sinnt lagsins.
þingstörfum á yfirstandandi þingi. -APH
Styðjum
Jón Baldur Lorange
Við viljum minna á ungan mann sem býður
sig fram í 2. sætið á framboðslista Alþýðuflokksins
vegna borgarstjórnarkosninganna í vor - Jón
Baldur Lorange.
Jón Baldur er fæddur í Reykjavík 26. apríl
1964. Hann lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla
islands árið 1983. Á skólaárunum stundaði hann
ýmis störf til sjós og lands.
Hann gerðist strax herra yfir tækninni -tölvunni
- og hefur unnið sleitulaust að því að þjálfa
æsku landsins í notkun hennar. Jón Baldur star-
far nú sem tölvukennari hjá grunnskólum borgar-
innar og sér um Tölvuver Æskulýðsrás Reykja-
víkjavíkur. Hann hefur og samið kennslubók í
tölvufræði. Auk þessa er hann skrifstofustjóri Is-
lensku hljómsveitarinnar. Hann hefursinntfélags-
málum af áhuga og hefur m.a. setið í stjórn
Taflfélags Seltjarnarness í tvö ár.
Jón Baldur er fjölhæfur ungur maður sem
sinnir störfum sínum af krafti og trúnaði afnaðar-
maður, sem hefur verið valinn til ýmissa trúnaðar-
starfa fyrir Alþýðuflokkinn. Hann er í stjórn Félags
ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og hefur tekið virkan þátt í starfi þess og situr m.a. fyrir hönd
FUJ í fulltrúaráði flokksins í Reykjavík.
Jón Baldur Lorange er, eins og sjá má af þessu stutta yfirliti, maður sem ekki lætur sitja við
orðið tóm heldur gengur til verks af ákveðni og festu. Æskan, tæknin og menningin, allt á
sinn sess hjá Jóni Baldri.
Fullur áhuga og nýrra hugmynda bíður hann eftir að takast á við vandamál morgundagsins
- vinna að þeim fyrir þig, unga fólkið, borgina og þjóðina alla.
Stuðningsmenn.
P.s. prófkjörið er opið öllum stuðningsmönnum Alþýðuflokksins.