Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1986, Síða 11
DV. MÁNUDAGUR10. FEBRÚAR1986
11
5. Margeir Pétursson- Maxim Dlugy 6. CurtHansen- 0-1
Nick de Firmian jafnt
7. Jóhann Hjartarson- Lev Alburt 8. JónL. Ámason- 0-1
Walter Browne 9. Karsten Rasmussen- jafnt
Robert Byme 10. Friðrik Ólafsson- Jafnt
Ron Henley 11. Harry Schússler- jafnt
John Fedorowicz 12. JounyYrjölá- 1-0
William Lombardy 1-0
Skák
Jón L. Ámason
Nú höfðu Norðurlandabúar hvítt
á oddatöluborðum en hvíti liturinn
varð ekki sérlega notadrjúgur.
Schussler einum tókst að sigra eftir
miklar flækjur í Benóní-vöm
Bandaríkjamannsins, sem fórnaði
hverjum manninum á fætur öðrum
landskeppni
iírvalslida:
Forseti íslands, menntamálaráð-
herra og borgarstjórinn í Reykja-
vík voru meðal gesta við upphaf
Visa-landskeppninnar milli úrvals-
liða Norðurlanda og Bandaríkj-
anna sem háð var í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð um helgina.
Eftir að kór skólans hafði sungið
nokkur lög setti Einar S. Einarsson
keppnina og Þröstur Ámason,
nýbakaður Skákmeistari Reykja-
víkur, lék íyrsta leikinn fyrir
Bandaríkjamanninn Seirawan
gegn Ulf Andersson frá Svíþjóð.
Teflt var á 12 borðum, tvöföld
umferð og flestar skákanna vom
þrungnar baráttu. Eftir fyrri
keppnisdaginn hafði sveit Norður-
landa einum vinningi betur en
Bandaríkjamönnum tókst að
minnka muninn seinni daginn og
liðin skildu að lokum hnífjöfn,
12-12.
Fjölmargir áhorfendur lögðu leið
sína í Hamrahlíðarskóla til þess
að fylgjast með meisturunum að
tafli og var mál manna að keppnin
hefði verið hin skemmtilegasta.
Lítum nánar á úrslit á einstökum
borðum og gang skákanna.
Fyrri umferð:
Bandarikin - Norðurlönd 5,5-6,5
1. Yasser Seirawan-
Ulf Andersson jafnt
2. Lubomir Kavalek-
Bent Larsen jafnt
3. Larry Christiansen-
Helgi Ólafsson 0-1
4. Joel Benjamin-
Simen Agdestein 0-1
5. Maxim Dlugy-
Margeir Pétursson jafnt
6. Lev Alburt-
Curt Hansen jafnt
7. Walter Browne-
Jóhann Hjartarson 1-0
8. RobertByme-
Jón L. Árnason jafnt
9. RonHenley-
Karsten Rasmussen jafht
10. John Ferorowicz-
Guðm. Sigurjónsson 1-0
11. BorisKogan-
Harry Schussler 0-1
12. William Lombardy-
Jouni Yrjölá jafnt
Spennandi umferð og mikil barátta
í skákunum nema e.t.v. þeirri sem
fyrst var lokið, milli Byrne og Jóns
L. Árnasonar. Byme, margreyndur
í Sikileyjarvörninni, jafnaði taflið
næsta auðveldlega og var hér um
bil kominn með frumkvæðið. Á 1.
borði þjarmaði Ulf Andersson,
aðstoðarmaður og þjálfari Seiraw-
ans, að lærlingnum og hafði greini-
lega unun af því að reyna að
kreista fram vinning úr fremur líf-
vana stöðu. Sat við borðið sem
fastast en varð þó á endanum að
sættast á jafntefli. Þá var Bent
Larsen hætt kominn gegn Kavalek
í „vitlausri skák“, að því er Larsen
sagði sjálfur.
Helgi, Agdestein hinn norski og
Svíinn Schússler lögðu gmnninn
að sigri norðanmanna en tveir ís-
lendinganna máttu sætta sig við
tap. Guðmundur hafði prýðilega
stöðu gegn Fedorowicz en braust
fram á röngu augnabliki á kóngs-
vængnum í stað þess að beina
spjótum sínum að hinum helmingi
skákborðsins, að því er gáfumenn
töldu. Jóhann lenti hins vegar í
ógöngum gegn Browne en í tíma-
hrakinu hefði allt getað gerst -
þeir höfðu hvor aðeins um 5 mínút-
ur á síðustu 20 leikina. Browne
engdist sundur og saman eins og
hans er vani og vakti kátínu þeirra
sem til sáu. Jóhann hafði hugann
kannski fullmikið við andstæðing-
inn, sem oft hefur orðið honum til
Eima við skákborðið. Svo fór að
hann lék sig beint í mát.
Mannsfóm Helga.
Schússler og Kogan urðu síðastir
Hnífjafnt eftir
spennandikeppni
til að ljúka sinni skák. Schússler
tefldi vandað og vel og krækti sér
í peð og síðan annað. Þá hefði
Kogan getað gefíst upp en hann
þráaðist við og hætti ekki fyrr en
Schússler hafði króað drottningu
hans inni í horninu.
Norðurlandameistarinn Simen
Agdestein og Joel Benjamin, fyrr-
verandi undrabarn, tefldu þrótt-
mikla og fjöruga skák. Agdestein
stýrði beint í flækjur með því að
fóma manni fyrir frelsingja tvo
samstæða. Annars vakti skákin
enga sérstaka athygli áhorfenda
fyrr en í lokin er Norðmaðurinn
reytti fjaðrirnar af mótherjanum.
En sú skák, sem mest var fylgst
með í Hamrahlíðarskóla á laugar-
dag, var milli Helga og Christian-
15. -Rb4! 16. axb4 axb417. Re4
Eftir 17. Rbl c3 18. Hd4 getur
svartur unnið manninn aftur með
18. -b3 19. Dxb3 c2 en sterkara er
18. -Bxb5! Því að hvíti riddarinn
gerir ekki mikinn usla á heima-
reitnum.
17. -b318. Rxf6 + Bxffi 19. Dbl c3
Nú á hvítur ekki annars úrkosti
en að gefa skiptamun til baka og
þá heldur svartur vinningsfærum
án þess að vera í mikilli hættu
sjálfrir. Annar freistandi möguleiki
var 19. -Bxb5!? sem virðist einnig
gefa svörtum yfirhöndina. T.d. 20.
Rd6 c3 21. Dxb3 Ba4! 22. Db4 (22.
Dxb7 cxd2 23. Bxf8 Dxfö og ekki
gengur 23. Rxd2? vegna 23. -Hc2;
eða 22. Da3 cxd2 23. Bxfö Hc3! 24.
Db4 Hb3) cxd2 23. Bxfö Bc3! 24.
31. -cl=D!32. Rel
Jafngildir uppgjöf en 32. Hxcl
Hxcl + 33. Bfl Ddl! var vonlaust.
32. -Dcd2 33. Bd3 g6 34. h4 Dd5 35.
Dg4 Dxe5 36. Rf3 Def4
Heppilegt!
37. Dxf4 Dxf4 38. Bfl Hcl 39. g3
Hxfl + !
- Og Christiansen gafst upp.
Seinni umferð
Norðurlönd-Bandaríkin 5,5-6,5
1. Ulf Andersson-
Yasser Seirawan jafnt
2. BentLarsen-
Lubomir Kavalek 0-1
3. Helgi Ólafsson-
Larry Christiansen jafnt
4. Simen Agdestein-
Joel Benjamin jafnt
þar til hann gafst upp. Skák Mar-
geirs varð snemma jafnteflisleg
eftir mikil uppskipti en Margeir
tefldi kæruleysislega og heims-
meistari unglinga náði af honum
peðum og knúði fram sigur.
Og Jóhann tapaði aftur, nú fyrir
■Alburt. Skák þeirra var ein sú
skemmtilegasta í seinni umferð-
inni. Alburt fórnaði liði og náði
hættulegum frelsingjum sem Jó-
hann gætti sín ekki á sem skyldi.
Eftir rúma 50 leiki lýsti Jóhann sig
sigraðan.
Friðrikslapp
fyrir horn
Bent Larsen fékk snemma erfiða
stöðu gegn Kavalek og sat uppi
með fjölmarga peðaveikleika í
endatafli. Kavalek tefldi óaðfinn-
anlega og knúði Danann bjartsýna
til uppgjafar. Þeir voru einir eftir
uppi á sviði er Larsen lék af sér í
hinsta sinn. Þar með höfðu Banda-
ríkjamenn snúið við blaðinu og náð
aðjafna metin í keppninni.
Á síðasta borði fór Yijölá hinn
finnski létt með Lombardy en öðr-
um skákum lauk með jafntefli.
Mesta spennan var í skák Friðriks
og Henleys. Friðrik lagði of mikið
á stöðuna í vinningstilraun og
Henley náði yfirhöndinni auk þess
sem Friðrik var orðinn krappur á
tíma. Á síðustu sekúndunum náði
Friðrik að þráskáka og bjarga sér
fyrir horn. Þóttust áhorfendur þar
greina „gömlu Friðriks-taktana“
Hann er greinilega enn fimur í
fingrunum þrátt fyrir æfingaleysi.
Keppninni var slitið í gærkvöldi
með boði menntamálaráðherra,
Sverris Hermannssonar. Fram-
kvæmd keppninnar var öll til fyrir-
myndar undir öruggri stjóm Einars
S. Einarssonar. Auk hans unnu
Högni Torfason, Ólafur Ásgríms-
son, Þorsteinn Þorsteinsson og
Þráinn Guðmundsson að undir-
búningi hennar.
JLÁ
Bent Larsen og Lubomir Kavalek eigast viö á Visa-skákmótinu.
sen. Helgi hleypti taflinu upp með
mannsfórn í 15. leik og fékk í stað-
inn dágóð færi. Bandaríkjamaður-
inn gaf skiptamun til baka en Helgi
hélt eftir sterkum frelsingja og eftir
ónákvæmni mótherjans gerði hann
laglega út um taflið.
Hvítt: Larry Christiansen
Svart: Helgi Ólafsson
Drottningarbragð.
1. d4 Rffi 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3
Be7 5. Bf4 9-0 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5
8. a3Rc69.b4!?
Ný tilraun í þessari þekktu stöðu.
9. -Be7 10. Dc2 Bd7 11. Be2 Hc8 12.
0-6 dxc4 13. Hadl De8 14. Hd2 a5 15.
b5
Da3 dl = D 25. Bxdl Bxdl 26. Bxg7
Bxf3 27. Bxc3 Bxg2! og svartur
verður peði yfir.
20. Hxd7 Dxd7 21. Dxb3 c2 22. e4 Hc3
23. Da4 Hfc8 24. Bcl h6 25. e5 Be7
26. Dg4 Kh8 27. Dh5? Ba3! 28. Dg4
Hvítur kastar dýrmætum tíma á
glæ en nú fyrst gerði hann sér ljóst
að eftir 28. Bxh6 gxh6 29. Dxh6 +
Kg8 30. Rg5 cl = D 31. Dh7+ Kfö
32. Dh8+ Ke7 33. Dffi+ Ke8 34.
Dh8+ Bfö vinnur svartur.
28. -Bxcl 29. Hxcl Hb3 30. De4
abcdefgh
30. -Hbl! 31. Hxbl
Ef 31. De3 þá 31. -Hc3! 32. Df4
Ddl+ og vinnur vegna mátsins í
borðinu.
8
7
6
5
4
3
2
1
abcdefgh