Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1986, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1986, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Forráðamenn lífeyrissjóða VR ogSambandsins: Höfum ekki neitað að auka framlag okkar „Það hefur ekki staðið á okkur að auka fjármagn til húsnæðismála til að greiða fyrir í yfirstandandi kjara- samningum," sagði Guðmundur H. Garðarsson, stjórnarformaður lífeyr- issjóðs verslunarmanna, í viðtali við DV. í útvarpsfréttum í gær var full- yrt að lífeyrissjóðir verslunarmanna og Sambandsins hefðu neitað því að auka kaup sín á verðbréfum Hús- næðisstofnunar. Þessir tveir sjóðir hafa aðeins varið 5 til 12% af ráðstöf- unarfé sínu til þessara verðbréfa- kaupa. „Þessi frétt útvarpsins er algjör- lega úr lausu lofti gripin. Mér brá i brún þegar ég heyrði þessa frétt því það hefur ekki verið gerð nein sam- þykkt i stjóm sjóðsins með eða á móti þessu máli. Það verður væntan- lega tekin ákvörðun fljótlega um afstöðu sjóðsins. I þeim umræðum, sem þegar hafa farið fram, hafa menn hér verið frekar jákvæðir heldur hitt,“ sagði Margeir Daníelsson, framkvæmdastjóri Samvinnulífeyr- issjóðsins. Hann benti jafnframt á að sjóðurinn verði 40% af sínu ráð- stöfunarfé til fjárfestingarsjóða sam- kvæmt samkomulagi við fjármála- ráðuneytið. „Ég vil vekja athygli á því áð 60 til 70% af ráðstöfunarfé Lífeyrissjóðs verslunarnmanna er varið til hús- næðismála og það er rangt að við stöndum ekki við okkar hlut í fjár- mögnun húsnæðiskerfisins. Það sem menn eru nú að deila um eru aðferðir og kerfi. Við höfum verið andvígir því að það verði ein stofnun sem sjái um allar lánveitingar til húsnæðismála. Þessar breytingar auka ekki fé til húsnæðismála en skapa bara bákn og miðstýringu. Við sjáum því ekki að þessi leið leysi betur þessa fjáröflun. Það er frekar að hún sé til skaða,“ sagði Guðmund- ur H. Garðarsson. Hann sagði að sjóðurinn notaði um 8 til 12% til kaupa á verðbréfum frá byggingar- sjóðunum. Um 60% væru síðan lán- uð beint til félagsmanna. „Ég tel að með þessu fyrirkomulagi sé fólki betur borgið, bæði hvað varðar fjármögnun og þarfir,“ sagði Guðmundur. -APH Sverrir Hermannsson: „EKKERT SÆTI LAUST í STJÓRN LÍN” Guðmundur Einarsson, Bandalagi jafnaðarmanna, vætir kverkarnar eftir ræðuhald og slær á iétta strengi með starfsfélaga sínum og pólitiskum andstæðingi Eyjólfi Konráði Jónssyni, Sjálfstæðisflokki. „Það er ekkert sæti laust í stjórn lánasjóðsins," sagði Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra þeg- ar hann var spurður hvers vegna hann hefði ekki enn .skipað Guð- mund Auðunsson fulltrúa Stúdent- aráðs i stjórn LÍN í stað Ólafs Arnar- sonar. „Ég hef ekki enn fallist á lausnarbeiðni Ólafs. Það hefur verið sagt að forsendur fyrir setu hans séu brostnar. Ef svo er held ég að það séu brostnar forsendur fyrir setu fleiri stjórnarmanna í þessari stjórn. Ég vil að það gildi ein regla um alla í sjóðnum." „Við höfum leitað eftir áliti lög- fræðinga á því hvort þetta standist og þeir segja ákvörðun Sverris bæði ólöglega og bera vott um fádæma valdníðslu," sagði Björk Vilhelms- dóttir, formaður Stúdentaráðs, þegar ummæli Sverris voru borin undir hana. „Við skiljum ekki hvað verið er að blanda Ragnari Árnasyni eða öðrum stjórnarmönnum inn í setu okkar fulltrúa. Við skipum ekki Ragnar Árnason. Ef Sverrir hefur eitthvað við setu hans að athuga þá verður hann að eiga það við hann eða fjármálaráðuneytið sem Ragnar er fulltrúi fyrir. En mér vitanlega hefur menntamálaráðherra aldrei farið fram á það við Ragnar að hann segi af sér. Guðmundur Auðunsson er réttkjörinn okkar fulltrúi en ekki Ólafur Arnarson. Eins og staðan er í dag eiga stúdentar engan fulltrúa í stjórn LlN eins og þeim ber sam- kvæmt lögum um sjóðinn," sagði Björk. -VAJ Kvennalistakonur bjóða f ram í vor Frá Regínu Thorarensen, fréttarit- ara DVáSelfossi: Selfosskonur í Samtökum um kvennalista á Suðurlandi tóku þá ákvörðun á félagsfundi nýlega að bjóða fram til bæjarstjórnarkosninga í vor. Fundurinn ályktaði að stór- auka þyrfti áhrif kvenna á öllum sviðum samfélagsins, ekki síst í bæjar- og sveitarstjórnarmálum. Markmið með sérstöku framboði Kvennalista er einkum að vinna að bættu samfélagi, þar sem allar konur, karlar og börn eru jafnvirt og jafn- rétthá. Einnig að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum og hvetja um leið konur til að rísa upp á öllum sviðum og taka mið af sínum eigin viðhorfum. Má benda á að af 189 kjörnum fulltrúum í Suðurlandskjördæmi við síðustu bæjar- og sveitarstjórnar- kosningar eru aðeins 20 konur. Á Selfossi er núna ein kona af níu bæjarfulltrúum. Þessum hlutföllum verða konur að breyta - og það með hraði! I framkvæmdanefnd Kvennalistans á Suðurlandi eiga eftirtaldar konur sæti: Valgerður Freid, Rannveig Óladóttir, Svanheiður Ingimundar- dóttir, Guðrún Sveinsdóttir og Ólafía Sigurðardóttir Óheimilt að ráða kennara án réttinda Samkomulag er nú meðal stjórnar- flokkanna um að afgreiða frumvarp um lögverndun og starfsréttindi kennara. Frumvarp um þetta efni var lagt fram á Alþingi í gær. Samkvæmt þessu frumvarpi er óheimilt að setja eða ráða kennara sem uppfyllir ekki þau menntunar- skilyrðir sem krafist er. Þessi skil- yrði verða þau sömu og í gömlu lögunum, en samkvæmt þeim var hægt að gera undanþágu á þessu atriði. I frumvarpinu er gert ráð fyrir bráðabirgðaákvæði fyrir þá kennara sem hafa starfað án réttinda og þeim gefið tækifæri til þess að afia sér þeirra á næstu árum. Einnig er gert ráð fyrir að heimilt sé að ráða rétt- indalausa kennara þar sem ókleift reynist að fá réttindamann í starfið. í þessu sambandi er gert ráð fyrir sérstökum undanþágunefndum. Þá verður sett á laggirnar matsnefnd sem fallar um hvort umsækjendur hafi tilskilin réttindi. Fyrir grunn- skólastigið sitja í þessari nefnd full- trúar tilnefndir af Kennaraskóla ís- lands og Bandalagi kennarafélaga og fyrir framhaldsskólastigið fulltrú- ar skipaðir af Háskóla íslands og Bandalagi kennarafélaga. -APH „Afsögn Ólafs skrípaleikur” — segir formaður Félags vinstri manna í Háskólanum „Ég sit áfram meðan ekki er búið að skipa nýjan fulltrúa," sagði Ólaf- ur Arnarson á fundi í hagsmuna- nefnd Stúdentaráðs í gær. Á fundinum var gerð hörð atlaga að Ólafi fyrir að sitja sem fastast í stjórn lánasjóðsins þrátt fyrir að Stúdentaráð hafi samþykkt á hann vantraust og líti ekki lengur á hann sem fulltrúa sinn. Ólafur var spurður að því hvort hann gerði sér grein fyrir að ráðslið- ar vildu frekar hafa sæti stúdenta- fulltrúans autt en að hann sæti í því og sagðist hann gera sér grein fyrir því. Þá var Ólafur spurður að því hvort hann vildi sitja í óþökk Stúd- entaráðs. Svaraði hann því játandi og sagðist skilja seinagang ráðherra þar sem stutt væri í kosningar í Háskólanum. „Ef Sverrir vill að ég sitji fram yfir kosningar þá geri ég það,“ sagði Ólafur. Ólafur Sigurðsson, formaður Fé- lags vinstri manna í Hl, sem nú mynda meirihluta í SHl ásamt um- bótasinnum, sagði greinilegt að af- sögn Ólafs Arnarsonar hefði verið skrípaleikur frá upphafi. „Ef Ólafi hefði verið einhver alvara með upp- sögninni þá hefði hann átt að hættá að sækja fundi. Það myndi þrýsta á ráðherra að skipa nýjan fulltrúa. En Ólafur situr sem fastast og greiddi meira að segja atkvæði gegn því í stjórn LÍN að okkar fulltrúi fengi að sitja fundi þar til formleg tilnefn- ing bærist frá ráðherra en fordæmi er fyrir slíkri málsmeðferð." Sagðist Ólafur vilja nota tækifærið og skora á Vöku, félag lýðræðissinn- aðra stúdenta, að víkja Ólafi úr fé- laginu. „Maður, sem þverbrýtur allar lýðræðishefðir eins og Ólafur hefur gert, getur ekki átt heima í félags- skap sem beinlínis kennir sig við lýðræði," sagði Ólafur Sigurðson. -VAJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.