Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1986, Blaðsíða 8
DV. FÖSTUDÁGUR 21. FEBRÚAR1986 Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd alfarið að flugher Iraks hefði skotið niður vopnalausa farþegaflugvél. írakar héldu áfram gagnsókn sinni gegn innilokuðum sveitum írana á hinum hemaðarlega mikilvæga Faw skaga í gær. íraskur herforingi segir í viðtali við írösku fréttastofuna að hermenn sínir hafi fellt og sært yfir 50 þúsund óvinahermenn frá því gagnsókn hersins hófst þann 9. febrúar síðast- liðinn. íranska fréttastofan, IRNA, segir að á meðal hinna látnu í farþegavél- inni er írakar skutu niður hafi verið Fazlollah Mahallati, háttsettur full- trúi Komeinis úr prestastétt og náinn ráðgjafi. IRNA segir ennfremur að átta þingmenn hafi verið í vélinni, þar á meðal einn, Hassan Cheraghi, stjórnarformaður þekktrar íranskrar fjölmiðlakeðju. íranska fréttastofan segir að hátt- settur ráðgjafi Komeinis og nokk- urra íranskra embættismanna hafi „dáið píslarvættisdauða" í gær er íraskar herþotur skutu niður Fokk- er farþegavél íranska flugfélagsins með 40 farþegum. Yfirstjórn íraska flughersins sagði í gærkvöldi að flugmenn sínir hefðu í gær farið í 715 árasar- og könnunar- ferðir og að víða hefði slegið í brýnu við íranskn herinn'en neitaði því rakar segjast hafa verið sigursælir að undanförnu í stríði sínu við íran. Yfirforingi í her þeirra segir menn sína hafa fellt og sært yfir 50 þúsund óvina- hermenn á skömmum tíma. Starfaði í Aþenu síðan 1983 Háttsettur foringi úr sovésku leyniþjónustunni hefur hlaupist vestur á bóginn með syni sínum og vinkonu en skilið eftir eiginkonu Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, setti í gær þingið í Nýju Delhí, sem mögulega verður það stormasamasta síðan hann kom til embættis fyrir einu og hálfu ári. Yfir vofa fjöldamótmæli vegna verð- hækkana á nauðsynjum, átök milli múslíma og hindúa og ofbeldi of- stækisfullra sikka. Fram til þessa hefur Gandhi baðað sína og annað barn, eftir því sem bandaríska leyniþjónustan lætur uppi. Maðurinn er Viktor Gudarev, sem sig í vinsældum, síðan hann tók við af móður sinni, sem ráðin var af dögum síðla árs 1984. Þessa vikuna hefur þó blossað upp almenn óán- ægja með verðhækkanir á brauði og matarolíu. - Lögreglan handtók í gær 10 þúsund manns, þar á meðal þingmenn, sem reyndu að efna til mótmælagöngu við og inni í þing- húsinu í Nýju Delhí. hafði verið í Aþenu síðan 1983, en sonur hans, Maxim, er aðeins átta ára. Með þeim er sovésk kennslu- kona sem er í ástarsambandi við Viktor. Sagt er að þau séu komin til Bandaríkjanna. Viktor er sagður hafa skilið eigin- konu sína eftir í Aþenu og annað bam þeirra hjóna. Hann hafði starf- að við flotamál í sendiráði Rússa í Aþenu en var ekki á skrá yfir dipló- matana. Áður hafði hann starfað í Nýju Dehlí á Indlandi. Viktor Gudarev þykir einn mesti rekinn, sem komið hefur á fjömr vestrænnar leyniþjónustu lengi, og jafnvel meiri fengur að honum en Sergei Bokhan, aðstoðarstöðvar- stjóra GRU, leyniþjónustu Rauða hersins, frá Grikklandi í maí í fyrra. - Brotthlaup hans ber að á meðan bandaríska leyniþjónustan er ekki enn búin að jafna sig af sinnaskiptum Jurtjenkos, sem í fyrra strauk til Bandaríkjamanna, en strauk síðan frá þeim aftur .og sakaði þá um að hafa rænt sér. Vitaly Júrtjenko virðist samt hafa látið bandarí^cu leyniþjónustunni í té ýmsar upplysingar sem síðan hafa leitt til handtöku nokkurra Banda- ríkjamanna er njósnuðu í þágu Sov- étmanna. Síðasta ár hefur komist upp um þó nokkra Bandaríkjamenn sem njósn- að hafa fyrir Rússa. S-Kórea bjóst við loftárás Ríkisútvarp Suður-Kóreu hélt því fram að óvinaflugvélar mundu ráðast á höfuðborgina Seoul og nágrenni í dag. Öllum deiidum landvarna Kóreumanna var sagt að vera til taks og landsmenn varaðir við. Loftvar- namerki voru gefin og í höfuð- borginni var fólki sagt að ryðja strætin. Nýr ham- borgara- staður á 18 stunda fresti McDonalds-hamborgarakeðj an segist opna í dag afgreiðslustað númer 9000 og er sá staðsettur í Sydney í Ástralíu. Það verður þó ekki lengi nýjasta hamborgara- afgreiðsla McDonalds í heimin- um því að keðjan opnar nýjan stað á átján stunda fresti. Miklar óeirðir hafa verið á Indland að undanförnu vegna verðhækkana á nauðsynjavörum. Mótmælaaögerðir á Indlandi vegna verðhækkana Æ fleiri ríki virðast nú að ætla að sniðganga úrslit forsetakosninganna á Filippseyjum og einangrun Marcosar forseta eykst stöðugt. Á myndinni sjást nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar ganga úr þingsal eftir að meirihluti þingsins hafði lýst Marcos réttkjörinn forseta landsins um siðustu helgi. MARCOS QNANGR- ASTÆ Eftir því sem fleiri ríkisstjórnir fordæma framkvæmd kosninganna á Filippseyjum einangrast ríkisstjórn Marcosar forseta meira. Til þessa hefur þó ekki borið á öðru en dipló- matískri ókyrrð. En ýmislegt bendir til að stjórnir fleiri landa, þar á meðal Bandaríkj- anna, muni ganga lengra vegna hneykslunar á framkvæmd kosning- anna, þar sem Corazon Aquino segist hafa verið rænd sigrínum. Bandaríska öldungadeildin hefur fordæmt framkvæmd kosninganna og ýmsir þingskörungar hafa nú byrjað baráttu fyrir því að tekin verði fyrir efnahagsaðstoð við stjóm- ina í Manila og ein af undirnefndum þingsins hefur raunar þegar greitt því atkvæði að féð verði heldur látið ganga til frjálsra félagasamtaka eða kaþólsku kirkjunnar á Filippseyjum til dreifingar fremur en stjómar Marcosar sem ekki geti talist njóta stuðnings þjóðarinnar. Japan, sem jafnan er tregt til þess að blanda sér í málefni Filippseyja, hefur afráðið að fresta afhendingu 275 milljóna dollara efnahagsaðstoð- ar. - Efnahagsbandalagið segist hafa þungar áhyggjur af fréttum um kosn- ingasvik og ofbeldisverk. - Flest vestræn ríki láta í veðri vaka að þau hafi vanþóknun á vinnubrögðunum á Filippseyjum. - Ástralía hefur iátið svipað í ljós en þó ekki tekið fyrir efnahagsaðstoð. Fyrstu opinberu viðbrögð um- heimsins við kosningu Marcosar munu birtast i næstu' viku, þegar Marcos á að sverja embættiseiðinn, en þá er sendiherrum og öðrum full- trúum erlendra ríkja boðið að vera viðstaddir. Horfur eru á slæmum heimtum boðsgesta. V-Þýskaland og Spánn hafa kallað sendiherra sína heim frá Manila til skrafs og ráðagerða. Sendiherra Sovétmanna í Manila hefur afhent Marcosi hamingjuóskir Gorbatsjóvs, leiðtoga Sovétríkjanna, með kosn- ingasigurinn. Er það eini sendiherr- ann í Manila sem hefur samfagnað Marcosi og vekur það stórfurðu því að meðal skæruliða, sem með vopn- um berjast gegn Marcosstjórninni á Filippseyjum, eru kommúnistar mjög framarlega. Sovésk geim- stöð komin á sporbraut Nýja sovéska MIR geimstöðin er skotið var á sporbaug um jörðu i gær verður ekki notuð til langdvalar af sovéskum geimförum fyrst um sinn að sögn Konstantin Feoktistov, hátt- setts talsmanns geimferðamála í Sovétríkjunum í gærkvöldi. Feoktistov sagði í viðtali við sov- éska sjónvarpið að MIR, er þýðir friður á rússnesku, yrði brátt heim- sótt af geimförum en þeirra verkefni væri aðeins að kanna hvort stöðin starfaði eðlilega og myndu þeir ekki dvelja þar lengur en nauðsyn krefði. Talsmaðurinn sagði að geimstöðin yrði síðar notuð til lengri dvalar geimfara þar sem ein áhöfn tæki við afannarri. Feoktistov, sjálfur hönnuður geim- fara og fyrrum geimfari, sagði enn- fremur að eftir að búið væri að tengja geimstöðina við rannsóknarstofur og vistarverur geimfara er síðar yrðu sendar á braut, yrði Mir sex sinnum stærri að umfangi en aðalhluti henn- ar er sendur var á loft í gær frá geimrannsóknarstöð Sovétmanna í Baikonur í Mið-Asíu. KGB-njósnari flúði til USA Segja 50 þúsund írani fallna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.