Alþýðublaðið - 25.06.1921, Side 1

Alþýðublaðið - 25.06.1921, Side 1
Alþýðublaðið O-efið út af Alþýðuflokkuuni. 1921 Laugárdaginn 25, júní. 143 tðiuhl. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfaii og jarðarför sonar og bróður okkar, Kristins S. Helgasonar. Móðir og systkini. Hér með tilkynnist, að skipstjóri Jóhannes Bjarnason frá Þíngeyri andaðist að heimili sinu, Grundarstíg 8, í dag. Jarðarförin auglýst siðar. Reykjavík, 24. júní 1921. Kona og börn hins látna. Piltur sem er ráðvandur og duglegur getur fengið atvinnu við afgreiðslu og sendiferðir hjá einni af stærri verzlunum bæjarins. Meðmæli nauðsyn- leg. Umsóknir sendist strax til afgr. þessa blaðs mrkt. .Báðvendni". Listasýningin. Málara- og myndgerðalistin hefir ætíð verið framarlega í röð inenn ingarmeðala mannkynsins. Hún hefir átt ítök í þjóðunum síðan sögur fara af og ýmsir meiAarar fyrri alda standa enn sem klettur úr hafinu — síðari tíma raenn hafa ekki komist til jafns við þá, að minsta kosti ekki á sumum svið- um. Þessara Iista héfir lítið gætt meðal vor íslendinga til skamms tfma, en þeim mönnum fer stöðugt fjölgandi, sem grípa til „léreftsins og pensiís", og Ifkansmíðin eign- ast hér líka sfna talsmenn. Listvinafélag íslands var stofnað fyrir fáum árum hér í Reykjavfk. Hefir það staðið fyrir einni lista- sýningu áður og nú stendur yfir, þessa dagana, önnur sýningin sem það efnir til. Sýningin er f Barnaskólanum og er opin daglega frá kl. 10—7. AUs eru á henni tæpar 100 myndir, flest málverk og teikniug- ar eftir 22 menn. Mesta athygli munu vekja mynd- ir Ásgríms Jónssonar: Stóralá f Hornafirði, Strútur í Borgarfirði, Esjan að vetrarlagi, Eirfksjökull og Hafrafell; myndir Brynjólfs Þórðarsonar: Frá Svínafelli í Ör- æfum, Frá Kárastöðumm og Ör- æfajökull; blómamyndir Guðm, Thorsteinsson og ýmsar teikning- ar hans; surnar myndir Kjarvals frá Rómaborg; mynd Þór. B. Þor lákssonar: Frá Stórasjó, sem vera mun einhver allra einkennilegasta myndin'Já sýningunni. Fleiri mynd ir eru auðvitað, sem fullkomin Iist er f, t. d. Vornótt Guðm. Thorsteinssonar og llmator Jóns Þorleifss, afar einkennileg mynd og vel gerð. Yfirleitt má segja um myndirnar að þær séu vel valdar, og er þarna saniaakomið ckki svo Iftið safn listaverka, al* íslenEkra. Er þó meira til, því þarna eru engin listaverk útskurð- armanna og sárfá lfkan: ein brjóst- mynd eftir Rfkarð Jónsson af Finni Jónssyni, þrjú drengjahöfuð eftir Nfnu Sæmundsson og brjóst mynd af ungri stúlku eftir Guðm. Einarsson. í húsagerðarlist eru teikningar eftir Finn Thorlacius og Guðjón Samúelsson. Listvinafélagið á þakkir skyldar fyrir að hafa ráðist í þessa sýn- ingu, og notar almenningur vænt* anlega tækffærið til þess að sjá þarna úrvaiið úr þvf, sem ýmsir helztu listamenn vorir hafa að bjóða. Fagrar listir skerpa gáfur manna og göfga, og því tneir sem þær eru í betra samræmi. Listvinur. Gnllfoss fer vestur og norður um land á mánudaginn. Beskytteren fór í gærkvöldi áleiðis á móti konungsskipunuin, íslenzk sálarrisemi. Saltfískstoliurinn á Spáni. Á þessu herrans ári hefir margt undarlegt við borið á landi þessu, en fátt hefir mér þótt furðuiegra en það, með hve mikilli stillingu og sálarrósemi menn hafa tekið áhættunni á þvf, í ræðu og riti, að tollurinn á íslenzkum fiski sem fluttur er til Spánar hækki utn helming frá þvf sem hann er nú. Það er ekki ólfklegt að menn yrðu áhugasamari fyrir þessu máli, ef þeir hugsuðú alment til þess, að þetta tollhækkunaratriði er í raun og veru tafl um það hvort langsamlega stærsti atvinnuvegur landsins verði rekinn með tjóni eða ekki, tað um það hvort land ið rétti við fjárhagslega eða sökkvi dýpra og dýpra niður f erlent skuldafen, þar sem með núgild andi verðiagi á íslenzkum afurðum, að fiskurinn er sú eina útfiutnings

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.