Alþýðublaðið - 25.06.1921, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið
O-efið út af Alþýðuflokkuuni.
1921
Laugárdaginn 25, júní.
143 tðiuhl.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfaii og
jarðarför sonar og bróður okkar, Kristins S. Helgasonar.
Móðir og systkini.
Hér með tilkynnist, að skipstjóri Jóhannes Bjarnason frá
Þíngeyri andaðist að heimili sinu, Grundarstíg 8, í dag.
Jarðarförin auglýst siðar.
Reykjavík, 24. júní 1921.
Kona og börn hins látna.
Piltur
sem er ráðvandur og duglegur getur fengið atvinnu við afgreiðslu og
sendiferðir hjá einni af stærri verzlunum bæjarins. Meðmæli nauðsyn-
leg. Umsóknir sendist strax til afgr. þessa blaðs mrkt. .Báðvendni".
Listasýningin.
Málara- og myndgerðalistin hefir
ætíð verið framarlega í röð inenn
ingarmeðala mannkynsins. Hún
hefir átt ítök í þjóðunum síðan
sögur fara af og ýmsir meiAarar
fyrri alda standa enn sem klettur
úr hafinu — síðari tíma raenn hafa
ekki komist til jafns við þá, að
minsta kosti ekki á sumum svið-
um.
Þessara Iista héfir lítið gætt
meðal vor íslendinga til skamms
tfma, en þeim mönnum fer stöðugt
fjölgandi, sem grípa til „léreftsins
og pensiís", og Ifkansmíðin eign-
ast hér líka sfna talsmenn.
Listvinafélag íslands var stofnað
fyrir fáum árum hér í Reykjavfk.
Hefir það staðið fyrir einni lista-
sýningu áður og nú stendur yfir,
þessa dagana, önnur sýningin sem
það efnir til.
Sýningin er f Barnaskólanum
og er opin daglega frá kl. 10—7.
AUs eru á henni tæpar 100
myndir, flest málverk og teikniug-
ar eftir 22 menn.
Mesta athygli munu vekja mynd-
ir Ásgríms Jónssonar: Stóralá f
Hornafirði, Strútur í Borgarfirði,
Esjan að vetrarlagi, Eirfksjökull
og Hafrafell; myndir Brynjólfs
Þórðarsonar: Frá Svínafelli í Ör-
æfum, Frá Kárastöðumm og Ör-
æfajökull; blómamyndir Guðm,
Thorsteinsson og ýmsar teikning-
ar hans; surnar myndir Kjarvals
frá Rómaborg; mynd Þór. B. Þor
lákssonar: Frá Stórasjó, sem vera
mun einhver allra einkennilegasta
myndin'Já sýningunni. Fleiri mynd
ir eru auðvitað, sem fullkomin
Iist er f, t. d. Vornótt Guðm.
Thorsteinssonar og llmator Jóns
Þorleifss, afar einkennileg mynd
og vel gerð. Yfirleitt má segja
um myndirnar að þær séu vel
valdar, og er þarna saniaakomið
ckki svo Iftið safn listaverka, al*
íslenEkra. Er þó meira til, því
þarna eru engin listaverk útskurð-
armanna og sárfá lfkan: ein brjóst-
mynd eftir Rfkarð Jónsson af
Finni Jónssyni, þrjú drengjahöfuð
eftir Nfnu Sæmundsson og brjóst
mynd af ungri stúlku eftir Guðm.
Einarsson.
í húsagerðarlist eru teikningar
eftir Finn Thorlacius og Guðjón
Samúelsson.
Listvinafélagið á þakkir skyldar
fyrir að hafa ráðist í þessa sýn-
ingu, og notar almenningur vænt*
anlega tækffærið til þess að sjá
þarna úrvaiið úr þvf, sem ýmsir
helztu listamenn vorir hafa að
bjóða. Fagrar listir skerpa gáfur
manna og göfga, og því tneir sem
þær eru í betra samræmi.
Listvinur.
Gnllfoss fer vestur og norður
um land á mánudaginn.
Beskytteren fór í gærkvöldi
áleiðis á móti konungsskipunuin,
íslenzk sálarrisemi.
Saltfískstoliurinn á Spáni.
Á þessu herrans ári hefir margt
undarlegt við borið á landi þessu,
en fátt hefir mér þótt furðuiegra
en það, með hve mikilli stillingu
og sálarrósemi menn hafa tekið
áhættunni á þvf, í ræðu og riti,
að tollurinn á íslenzkum fiski sem
fluttur er til Spánar hækki utn
helming frá þvf sem hann er nú.
Það er ekki ólfklegt að menn
yrðu áhugasamari fyrir þessu máli,
ef þeir hugsuðú alment til þess,
að þetta tollhækkunaratriði er í
raun og veru tafl um það hvort
langsamlega stærsti atvinnuvegur
landsins verði rekinn með tjóni
eða ekki, tað um það hvort land
ið rétti við fjárhagslega eða sökkvi
dýpra og dýpra niður f erlent
skuldafen, þar sem með núgild
andi verðiagi á íslenzkum afurðum,
að fiskurinn er sú eina útfiutnings