Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Qupperneq 7
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Þrjár milljónir króna á borðið - og Helgi Þór Jónsson varð í gær stæisti hluthafi Amarflugs Lítt þekktur athafoamaður, Helgi Þór Jónsson, sem er að byggja Hótel Örk í Hveragerði, varð í gær stærsti hluthafi Amarflugs er hann stað- greiddi 43,7 prósent hlut Flugleiða. Helgi Þór hitti Flugleiðamenn að máli í hádeginu, reiddi fram þrjár milljónir króna og gekk út með hluta- bréfin. Flugleiðir hafa þar með losað sig við öll ítök sín í Amarflugi. Flugleiðir áttu 57,5 prósent hlut á ámnum 1978 til 1981 er félagið varð að selja 17,5 prósent hlut til starfsmanna Amar- flugs vegna skilyrðis stjórnvalda fyrir ríkisábyrgð. Við hlutafjáraukningu úrið 1984 óx hlutur Flugleiða úr 40 prósentum upp í tæp 44 prósent. Nafnverð hlutabréfa Flugleiða í Amarflugi var um 21 milljón króna. Helgi Þór Jónsson bauðst í fyrradag til að kaupa þau fyrir um 14 prósent nafnverðs eða þrjár milljónir króna. Fyrir lá boð níu fyrirtækja og ein- staklinga, aðallega i ferðaþjónustu, um að kaupa ný hlutabréf í Amarflugi fyrir 60 milljónir króna gegn því skil- yrði að gömlu hlutabréfin yrðu færð niður í tíu prósent af nafhverði eða seld á því verði. Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, sagði í gær að tilboð Hótel Arkar í Hveragerði hefði gilt til klukkan 11.30 í gær. . „Við urðum að taka ákvörðun. Við tókum hærra tilboðinu," sagði Sigurð- ur. Hinn nýi hlutahafi Amarflugs, Helgi Þór Jónsson, komst lítillega í fréttirn- ar í haust er hann hóf að reisa stærðar lúxushótel í Hveragerði. Hótelið hefur risið ótrúlega hratt upp, er fyrir nokkm orðið fokhelt og verður trú- lega opnað í lok næsta mánaðar. Helgi Þór er 41 árs gamall renni- smiður að mennt. Hann er verktaki að atvinnu. Eitt helsta verkefni hans undanfarin ár hefúr verið viðhald á byggingum álversins í Straumsvík. Hann rekur vélaleigu og á meðal ann- ars stærsta kranabíl á landinu. Helgi Þór er eini eigandi Hótel Ark- ar. Meðal manna gekk sú spuming í gær, þegar fréttist um kaup hans á Amarflugsbréfunum, hvemig hann hefði eignast peninga fyrir þessu. „Hann hefur unnið fyrir þessu sjálf- ur,“ sagði eiginkona hans, Sólveig Sigurgeirsdóttir. „Það hafa margar sögur verið í gangi. Til dæmis sú að einhveijir út- lendingar væm í þessu með honum. Hann hefur verið hjá álverinu og ein sagan hefur verið sú að álverið hlyti að vera í þessu,“ sagði Sólveig og vís- aði þessum sögum á bug. -KMU Helgi Þór Jónsson rennismiður, stærsti hluthafinn í Arnarflugi. HUSGÖGN Rýmingarsala á húsgagnaáklæði, DUGGUVOGI 2 - Sími 34190 - REYKJAVIK kögri, leðurbútum og leðurafklippum í poka. DV-mynd PK ERÞETTA EKKI . RÉTTASPOLAN FYRIR ÞIG Ótvíræö gæöi nýju PANASONIC VHS mynd - banctsspólunn'ar gera hana aö fyrsta valkosti allra VHS tækja eigenda. Hver vill ekki meiri gæði? Kynningarverö á 3ja tíma VHS spólu meö upptökubónus, 3 spólur í pakka á aðeins \ 595.- kr.spólan. UAPIS BRAUTARHOLT 2 SlMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.