Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Síða 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986.
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Missti velin
sprengjur á
íbúðarhúsin?
í Washington velta menn vöngum
yfir því að laskaða sprengjuflugvélin,
sem hrapaði í ljósum logum í Miðjarð-
arhafið eftir að hafa orðið fyrir loft-
vamaskothríð Líbýumanna í loftárá-
sinni aðfaranótt þriðjudags, kunni að
hafa misst einnar smálestar sprengju
sína á íbúðarhverfi í Trípólí.
Mennimir tveir, sem vélinni flugu,
em nú taldir af þvi að áhafhir annarra
flugvéla sáu hana steypast logandi í
hafið.
Hugsanlegt þykir að sprengjan hafi
losnað frá vélinni eftir að eldur kom
upp í henni eða þegar flugmaðurinn
beygði henni snöggt af leið út úr loft-
vamahríðinni en þá hafði vélin þegar
verið hæfð.
Breskur þingmaður hélt því fram í
gær að hann hefði fengið þær upplýs-
ingar hjá bandarísku flugsveitinni að
nokkrar vélanna hefðu snúið frá skot-
mörkum sínum í árásarferðinni án
þess að sleppa skeytum sínum þar eð
flugmennimir hefðu ekki verið ömgg-
ir um að hæfa rétt skotmörk. Þeir
höfðu haft ströng fyrirmæli um að
varpa ekki sprengjunum nema vera
vissir um að hæfa ekki íbúðarhús.
Arás á
sendiráð
Breta
í Beirút
Óþekktir árásarmenn skutu fjór-
um eldflaugum að embættisbústað
breska sendiherrans í Beirút í
morgun.
Sendiherrann, John Gray, hefur
aðsetur í tveggja hæða byggingu
á yfirráðasvæði múhameðstrúar-
manna í Vestur-Beirút. Að sögn
sjónarvotta olli árásin einhverjum
skemmdum á annarri hæð emb-
ættisbústaðarins.
Sendiherrann var ekki við er
árásin var gerð og tvo líbanska
starfsmenn sendiráðsins sakaði
ekki í árásinni.
Gaddafi Líbýuleiðtogi kom fram í
sjónvarpi í gærkvöldi þar sem hann
fordæmdi árás Bandaríkjamanna.
Ávarp Gaddafis í gær eyðir öllum
sögusögnum um dauða eða meiðsl
leiðtogans eftir loftárás Banda-
rikjamanna aðfaranótt þriðjudags.
Orðrómur um uppreisn hersins
gegn leiðtoganum, er komst á kreik
í gær í Líbýu, hefur nú verið borinn
til baka.
Gaddafi í sjónvarpi
Muammar Gaddafi ofursti, leiðtogi
Líbýu, kom fram í sjónvarpi í gær og
er það í fyrsta sinn sem hann sést
opinberlega eftir loftárásina enda var
kominn á kreik kvittur um að hann
hefði særst í árásinni eða jafnvel fallið.
Fordæmdi hann Reagan Banda-
ríkjaforseta og Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands og kallaði þau
bamamorðingja. - Hann missti kom-
unga dóttur sína í árásinni og tveir
bamungir synir hans særðust.
Gaddafi birtist á skjánum í hvítum
fiotabúningi og virtist þreytulegur en
þó við góða heilsu. Hann flutti mál
sitt festulega og yfirvegað. Sagði hann
meðal annars: „Það er öllum ljóst að
við fórum ekki með ófriði á hendur
Bandaríkjamönnum. Það vom þeir
sem komu hingað. Við erum ekki
bamamorðingjar eins og þau em,...við
erum byltingarmenn."
Skömmu á eftir vom götuljós kveikt
í Trípólí sem hefur verið myrkvuð eft-
ir loftárásina.
Hann sagði að með réttu ætti að
draga Thatcher fyrir rétt fyrir barna-
morð og Reagan væri sekur um að
hafa gefið fyrirmæli um að ráðast á
böm og íbúðarhverfi. - „Við höfum
ekki gefið nein fyrirmæli um að myrða
einn eða neinn en við boðum byltingu.
Við munum aldrei hverfa frá stefriu
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
og Hannes Heimisson
Bandaríkjamenn panta
fremur hjá erlendum
flugfélögum
Halldór Valdimarsson, fréttaritari
DV í Bandarikjunum:
Óvenjulítið verður um ferðir
Bandaríkjamanna til Evrópu á
sumri komanda, að sögn ferðaskrif-
stofa hér í Dallas.
Einkum em það borgir sem orðið
hafa fyrir árásum hermdarverka-
manna sem bandarískir ferðamenn
hyggjast augljóslega forðast. Meðal
þeirra eru Róm, Aþena og Kaíró, en
bókanir í ferðir til þessara borga eru
tregari en verið hefúr um langt ára-
bil.
Lítið hefur verið um afturkalianir
bókana síðustu daga, í kjölfar loft-
árásanna á Líbýu. Hins vegar er
töluvert um að þeir sem bókað eiga
far með bandarískum flugfélögum til
Evrópu, óski eftir að bókanimar
verði færðar yfir á erlend flugfélög.
Þótt augljóst sé að óttinn um
hermdarverk eigi hlut að þessum
samdrætti, er hann ekki eina orsök-
in. Bandaríkjadollar stendur fremur
höllum fæti gagnvart Evrópugjald-
miðlum og því ekki eins hagstætt
að ferðast til Evrópu og oft áður.
þá hafa flugfargjöld á innanlands-
leiðum í Bandaríkjunum lækkað
mjög vemlega. Þetta tvennt leggst
saman á eitt um að halda Banda-
ríkjamönnum heima við í sumar.
okkar um sameiningu arabaþjóð-
anna.“
Gaddafi kvað Líbýumenn reiðubúna
til að berjast og falla, jafnvel þótt
Bandaríkin beittu kjamavopnum
gegn þeim. Hann minntist hins vegar
ekki einu orði á fyrri yfirlýsingar um
að svara árás Bandaríkjamanna með
hryðjuverkum á stöðvar þeirra í Evr-
ópu.
Felldu tillögu
forsetans
Halldór Valdimarsson, fréttaritari DV
í Bandaríkjunum:
Tillaga Reagans Bandaríkjaforseta
um 100 milljóna Bandaríkjadala að-
stoð við contra skæmliðahreyfinguna
í Nicaragua, var í gær felld með mikl-
um meirihluta atkvæða í fulltrúadeild
bandaríska þingsins.
Atkvæði gegn aðstoðinni greiddu
flestir þingmenn demókrata svo og
flestir þingmenn repúblikana sem kom
mjög á óvart.
Fréttaskýrendur telja repúblikana
hafa óttast að fulltrúadeildin myndi
samþykkja málamiðlunartillögu með
skilyrðum sem forsetinn gat alls ekki
sætt sig við. Hafi þeir því ákveðið að
fella tillöguna í þeirri von að fá hana
til umfjöllunar í deildinni síðar við
hagstæðari aðstæður.
Ræddi kafbáta og
Wallenbeigvið Rússa
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV í Lundi:
„Ég er ánægður með heimsóknina
og vona að þau hreinskilnu og inni-
legu samtöl er ég átti við leiðtogana
«€
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra
Svía, virðist ánægður með viðræð-
ur sínar og sovéskra leiðtoga í
opinberri heimsókn hins nýja for-
sætisráðherra til Sovétríkjanna,
sem nú er nýlokið.
í Kreml verði til þess að bæta sam-
skipti þjóðanna," sagði Ingvar Carls-
son, forsætisráðherra Svíþjóðar, í gær
að loknum viðtölum sínum við Gor-
batsjov og Ryshkov, tvo æðstu menn
Sovétríkjanna.
Carlsson virðist eftir öllum sólar-
merkjum að dæma hafa verið mjög
ákveðinn í viðræðum sínum við Sovét-
menn og óhræddur við að gera
viðkvæm mál að umtalsefiii.
Meðal mála er hann tók upp má
nefha spuminguna um hvort sovéskir
kafbátar halda sig enn innan sænska
skerjagarðsins og mál Raul Wallen-
bergs. „Ég lýsti því yfir að við krefj-
umst þess að landhelgi okkar sé virt,“
sagði Carlsson.
Um mál Raul Wallenbergs sagðist
Carlsson hafa skýrt hvers vegna Svíar
teldu málið enn brýnt „við álítum að
Wallenberg sé á lífi þar til sönnur
hafa verið færðar fyrir hinu gagn-
stæða“.
Carlsson lagði einnig fram lista með
nöfiium aðila innan Sovétríkjanna
sem óskað hafa eftir því að fá að flytj-
ast til Svíþjóðar. „Við höfúm góðar
vonir um að öll þau mál leysist farsæl-
lega,“ sagði Carlsson.