Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Síða 21
„Höfum fengið óskabyrjun“ Iþrótlir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþrottir DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986. DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986. LAUGAVEGI 49, SÍM112024. í SPARKIÐ MEÐ SPÖRTU FRAM OG VÍKINGUR í UNDANÚRSUTIN? Nú fer knattspyrnuvertiðin að hefjast og við Spartverj- ar erum klárir í slaginn. PATRICK Keegan Tacties nr. 38-46, kr. 3.411,- Markmannsbuxur, síöar Markmannsbuxur, stuttar Markmannstreyjur Nr. 140-176 og fullorðinsstærðir ADIDAS Copa Mundial nr. 36-46, kr. 3.417,- PATRICIE Professional nr. 36-45, kr. 2.610,- PATRICK Team nr. 30-35 kr. 1,598,- nr. 36-46 kr. 1.908,- ADIDAS Uwe nr. 30-35, kr. 1.208,- NIKE gervígrasskór kr. 2.497,- Sokkalegghlífar Junior kr. 837,- Senior kr. 936,- Fótboltar no. 4 og 5 Fótboltasokkar Flautur Sokkabönd Hnéhlifar o.fl., o.fl. Hanskar: nr. 6-11 teg. 7070 kr. 474,- teg. 7178 kr. 864,- teg. 7180 kr. 1.224,- teg. 7183 kr. 1.320,- teg. 7186 kr. 1.466,- teg. 7185 kr. 1.520,- teg. 7181 kr. 1.597,- Opið laugardaga kl. 10-14. • Guðríður Guðjónsdóttir hampar hér bikarnum eftir að Fram hafði unnið Stjörnuna í gærkvöldi. DV-mynd Brynjar Gauti. Bikarmn á ný í Safamýrina - Fram varð bikarmeistari í handknattleik kvenna eftir fímm marka sigur á Stjöm- unni, 23-18 Fram tryggði sér í gærkvöldi bikar- meistaratitilinn í handknattleik kvenna er liðið lagði Stjörnuna að velli, 23-18, í Seljaskólanum. Leikur- inn var allan tímann skemmtilega leikinn og gleðilegt er að sjá hversu miklum framförum kvennahand- knattleikurinn hefur tekið á undan- förnum árum. Langt er þó í land enn og munar mest um litla breidd lið- anna. Með sigri sínum vann Fram tvöfalt í handknattleik kvenna í ár en liðið tryggði sér einnig Islands- meistaratitilinn, tapaði ekki leik á árinu. Ungt og vaxandi lið Stjörnunnar hélt aðeins í við íslandsmeistarana fyrstu mínúturnar og það var ekki síst fyrir til- stilli Guðríðar Guðjónsdóttir að Fram náði undirtökin í leiknum. Liðið komst í 6-3 og 7-4 undir miðbik fyrri hálfleiksins en Stjörnustúlkunum tókst að minnka muninn í tvö mörk, 9-7. I leikhléi var staðan 11-8 og enn gat allt skeð. Strax á fyrstu mínútum síðari hálf- leiksins var Ijóst að Framstúlkurnar mundu ekki láta forskot sitt af hendi. Munurinn jókst í 15-11 og síðan 21-16. Þá reyndi Stjarnan að taka ráðandi úti- leikmenn Fram, þær Guðríði og Örnu Steinsen úr umferð en allt kom fyrir ekki. Munurinn hélst til loka og úrslitin urðu 18-23 sem fyrr sagði. Stjarnan réð ekki við stórleik Guðríð- ur. Hún fór á kostum, sérstaklega í síðari hálfleiknum. Þá áttu þær Arna Steinsen og Ingunn Bernódusdóttir ágætan leik. Sigur Fram kom fæstum á óvart, liðið hefur verið einveldi í vetur og unnið alla sína leiki í deild og bikar. Að þessu sinni lék liðið án Sigrúnar Blomsterberg sem enn á við veikindi að stríða en það kom ekki að sök. Margrét Theodórsdóttir þjálfari var besti leikmaður Stjörnunnar. Sérstak- lega lék hún vel í síðari hálfleiknum. þá átti Erla Itafnsdóttir góðan leik. Var oft furðu nösk víð að brjótast í gegn um vörn Fram en leikur þeirra tveggja dugði ekki til. Sjaldan, ef þá nokkurn tímann, hefur verið jafnmikil stemmning á kvennaleik eins og þessum. Nær húsfyllir var í Selja- skólanum og létu áhorfendur vel í sér heyra. -fros á Reykjavikurmotinu í knattspymu. Leikið í kvöld Einn leikur fór fram í Reykjavíkur- mótinu í knattspyrnu í fyrrakvöld. Víkingur var nær öruggur um sæti í undanúrslitum mótsins er liðið sigr- aði Ármann, 2-0. Það var Jón Bjarni Guðmundsson sem skoraði fyrsta mark Víkings en Andri Marteinsson bætti skömmu seinna öðru við. Síð- ari hálfleikur var öllu slakari en Ármenningar voru nálægt því að minnka muninn en Jóni Otta Jóns- syni tókst að verja vítaspyrnu. íslendingar í efstu sætum Skotinn Ralton Way hefur skorað flest stig á EM í körfu eða 40 stig. Pálmar Sigurðsson, Valur Ingimund- arson og Haakon Austerfjörd eru næstir með 39 stig. frinn Tom O. Sullivan er með besta vítanýtingu, hefur fengið 11 skot og hitt úr öllum, Skotinn Graeme Hill hefur fengið 10 skot og einnig hitt úr öllum og næst- ur er Pálmar með 16 skot og 14 í körfu eða 87,5% nýtingu. Ralton Way, Skotlandi, hefur hirt flest fráköst, 25, landi hans, Archibald, er með 15 frá- köst og Torfi Magnússon þriðji með 14 fráköst. -SK Staðan er nú þessi í riðlunum tveim- ur á mótinu: • Kevin Cadle, þjálfari skoska landsliðsins, hefur verið mikið í sviðsljósinu á EM í körfu. Það hefur vakið mikla furðu hvað hann fær að gera á bekknum en hann stend- ur jafnan við hliðarlínuna og sendir sínum mönnum óspart tóninn. f leiknum gegn íslandi í gærkvöldi fékk hann tæknivíti fyrir kjaftbrúk og var það afdrifaríkt fyrir Skota, kostaði þá fjögur stigin sem mun- aði í lokin. DV-mynd Brynjar Gauti. Leikurinn gegn Skotum i tolum: Nafn Skot Hitt % 3 stiga skot Hitt % Víti Hitt % Stig Varnar- fráköst Sóknar- fráköst Pálmar Sigurðsson 7 4 57,1 4 2 50,0 10 9 90,0 23 1 0 Valur Ingimundarson 13 4 30,8 2 0 0,0 8 6 75,0 16 1 1 Guðni Guðnason 9 4 44,4 0 0 0,0 4 4 100,0 12 4 1 Torfi Magnússon 7 1 14.3 1 1 100,0 6 5 83,3 10 3 0 Símon ólafsson 3 0 0,0 0 0 0,0 0 0 0,0 0 4 0 Jón Kr. Gíslason 1 0 0,0 1 0 0,0 0 0 0,0 0 0 0 Matthías Matthíasson 1 0 0.0 0 0 0,0 0 0 0,0 0 0 0 Birgir Mikaelsson 2 2 100,0 0 0 0,0 2 2 100,0 6 2 1 ÞorvaldurGeirsson 1 0 0,0 0 0 .0,0 2 2 100,0 2 0 0 Páll Kolbeinsson 4 2 50,0 1 0 0,0 4 4 100,0 8 1 1 Samtals hjáliði: 48 17 35,4 9 3 33,3 36 ' 32 88,9 75 16 4 A-riðill Víkingur..... Valur........ 1R........... Ármann....... B-riðill Fram.................2 2 0 0 8-1 5 KR...................2 10 14-13 Þróttur..............1 0 0 1 0-4 0 Fylkir...............1 0 0 11-70 Næsti leikur fer fram í kvöld en þá mætast Fylkir og Þróttur. Leikur- inn hefst klukkan 20.30 á gervigras- inu. -fros Rekinn í sturtu írinn, Gerry Corcoran, var rekinn i sturtu í gærkvöldi í leik frlands og Noregs á EM í körfu í Höllinni. Corc- oran mótmælti ákaft greinilegum mistökum annars dómarans sem svaraði með því að vísa kappanum af leikvelli. Norðmenn unnu stóran sigur í leiknum, 106-79, og bar það helst til tíðinda í leiknum að Norðmaðurinn Haakon Austeríjörd skoraði 39 stig fyrir norska iiðið. Hjá írum var Tom 0. Suliivan stigahaæstur með 20 stig. -SK MBiMH - sagði Einar Bollason landsliðsþjáttari eftir sigur íslands á Skotum í gærkvöldi • Pálmar Sigurðsson átti stjörnuleik í gærkvöldi og skoraði 23 stig fyrir ísland gegn Skotlandi. Hér er Pálmar á fullri ferð í leiknum í gærkvöldi. DV-mynd Brynjar Gauti. Eftir mjög slakan leik íslenska landsliðsins í körfuknattleik gegn írum í fyrsta leiknum á Evrópumót- inu í Laugardalshöll áttu ekki margir von á sigri gegn Skotum er liðin léku í gærkvöldi. Islenska liðið sýndi það hins vegar í þessum leik hvers það er megnugt á góðum degi og sigraði 75-71 eftir að hafa haft yflr í leikhléi, 37-32. íslenska liðið hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu og stefnir hraðbyri í úrslitaleikinn gegn Norðmönnum. Grunnurinn að góð- um sigri fsiands í gærkvöldi var feiknalega öflugur varnarleikur, mikil barátta allra leikmanna og hreint frábær vítanýting. fslenska liðið lék lengst af svokallaða pressu- vörn og virtist hún koma Skotunum í opna skjöidu. Pressan var einstak- lega vel útfærð og langt síðan önnur eins vörn hefur sést hjá íslensku landsliði. Allir leikmenn íslenska liðsins börðust sem ljón i þessum leik en slíkt er einmitt sjaldan nauðsyn- legra en í mikilvægum landsleikjum. Þá var það ekki lítið atriði í leiknum í gær að leikmenn íslenska liðsins fengu 36 vítaskot og nýttu 32 þeirra sem gerir 88,9% nýtingu sem er frá- bært og sérstaklega þegar svo mörg skot eru tekin í einum og sama leikn- Mögnuð spenna frá upphafi til enda Leikur þessi var mjög mikilvægur fyrir íslenska liðið eins og reyndar allir leikirnir á móti þessu. Aldrei skildu nema örfá stig að en í leikhléi Frabær vamarieiku h vrtanýting og I bai rát ta - lögðu í gærkvöldi grunninn að góðum sigri íslands gegn Skotlandi. Islenska lands- liðið enn taplaust á Evrópumótinu í körfii „Varnarleikurinn var frábær hjá strákunum allan tímann og 1-3-1 pressan setti Skotana alveg út af laginu. Þetta var virkilega góður leikur hjá liðinu,“ sagði Einar Bollason landsliðsþjálfari í körfuknattleik eftir sigur íslands gegn Skotlandi í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. • Skoska landsliðið sem ísland lagði að velli í gærkvöldi með 75 stigum gegn 71. Áður hafði liðið unnið Portúgal í fyrsta leik mótsins. „Margir af mínum mönnum léku stórvei. Þar má nefna Pálmar sem lék nú eins og hann á að sér, Guðni Guðnason var hreint frábær í síðari liálfleik og Símon var eins og klettur í vörninni. Svona mætti lengi telja. • Við höfum fengið óskabyrjun á mót- inu og nú er næsta mál hjá okkur að sigra Portúgali í kvöld. Það verð- ur hörkuleikur. Síðast þegar við lékum við Portúgal þurfti tvær fram- lengingar til að fá fram úrslit. Ég er bjartsýnn á góð úrslit í kvöld,“ sagði Einar ennfremur. „Nú náðum við að sýna okkar rétta andlit. Vörnin var mjög góð og við náðum að stöðva bestu skyttur Skot- anna. Við bættum sóknina upp með enn betri vörn. Það er feiknalega góður andi í liðinu og allir staðráðn- ir í að gera sitt besta. Ég tel að við eigum 50% möguleika gegn Portúg- ölum í kvöld og verðum að vona það besta. Við höfum sett stefnuna á úr- slitaleikinn gegn Norðmönnum á laugardag," sagði Torfí Magnússon, fyrirliði íslenska landsiiðsins sem, í gærkvöldi lék sinn 110. landsleik fyr- ir íslands hönd. „Ánægður með minn leik“ „Ég er mjög ánægður með mína frammistöðu í þessum leik. Annars unnum við þennan leik með því að leika sem ein heild. Það iéku allir með hausnum. Skotarnir voru mjög erfiðir og þeir léku mjög harðan varnarleik. Tæknivillurnar sem þeir fengu dæmdar á sig höfðu einnig mikið að segja. Ég er mjög bjartsýnn á góð úrslit í kvöld gegn Portúgal. Þeir eru með allt öðruvísi lið en Skotarnir sem á að vera viðráðan- legra fyrir okkur,“ sagði Guðni Guðnason sem átti mjög góðan leik í gærkvöldi. „Tókst að lagfæra veikleikana“ „Leikur okkar að þessu sinni var allt annar og betri en gegn írum í fyrsta leiknum. Við komum rétt stemmdir í þennan leik og okkur tókst að lagfæra þau atriði í leik okkar sem miður fóru í leiknum gegn írum. Við lékum yfirvegað í sókninni og varnarleikurinn var mjög traust- ur. Þetta var mjög góður sigur því Skotarnir eru mun sterkari en írar. Nú þurfum við að koma okkur niður á jörðina og mæta með réttu hugar- fari í leikinn gegn Portúgal í kvöld. Ég vildi óska þess að enn fleiri áhorf- endur mættu í kvöld því við þurfum á þeim að halda,“ sagði Pálmar Sig- urðsson sem að öðrum leikmönnum íslenska liðsins ólöstuðum var bestur gegn Skotum og sýndi oft snilldar- takta. -SK var staðan 37-32 Íslandi í vil og síð- asta karfa fyrirliðans Torfa Magnús- sonar í fyrri hálfleik var hreint sýningaratriði. Torfi fékk knöttinn rétt framan við miðlínu vallarins og sendi hann rakleitt i körfu Skota með ótrúlega fallegu skoti. Siíkt gera menn ekki nema einu sinni á ferlin- um. Allir leikmenn íslenska liðsins stóðu sig vel í gærkvöldi en þeir Pálmar Sigurðsson, Guðni Guðna- son, Páll Kolbeinsson og Birgir Mikaelsson voru þó bestir ásamt Símoni Ólafssyni sem var mjög sterk- ur í vörninni. Pálmar sýndi allar sínar bestu hliðar, Guðni skoraði mjög mikilvægar körfur og Birgir brást ekki þegar mest á reyndi. Og nú er að duga eða drepast í kvöld gegn Portúgal. Síðast þegar þjóðirn- ar léku ætlaði allt um koll að keyra og ekki náðust fram úrslit fyrr en eftir tvær framlengingar. Hvað skeð- ur í kvöld? Stig íslands: Pálmar 23, Valur Ingi- mundarson 14, Guðni Guðnason 12, Torfi Magnússon 10, Púll Kolbeinsson 8, Birgir Mikaelsson 6, Þorvaldur Geirsson 2. Stigahæstur hjá Skotunum var negr- inn Way Ralton en hann skoraði 27 stig og er yfirburðamaður í skoska liðinu. -SK Skellur hjá Anderlecht í Búkarest - Arnór lék síðustu 25 mínútumar Frá Kristjáni Bernburg, frétta- manni DV í Belgíu. Anderlecht átti ekki hina minnstu möguleika gegn Steaua, Búkarest, í undanúrslitum Evrópubikarsins í Rúmeníu. Rúmenarnir Iéku mjög sterkan og agaðan sóknarleik í gær nákvæmlega eins og þeir höfðu leikið agaðan varnarleik í Brussel fyrir hálfum mánuði. Sigruðu, 3-0, og því samanlagt 3-1. Steaua leikur því til úrslita í Evrópubikarnum í fyrsta sinn. í annað skipti sem lið frá Aust- ur-Evrópu leikur til úrslita. Partizan, Belgrad, 1966. Steaua komst fljótt í 2-0 í gær, Piturca skoraði ú 4. mín. Gavrilla Balint á 23. mín. og þá var greinilegt að dagar Anderlecht voru taidir. Rúmenarnir miklu betri. Arnór Guðjohnsen lék síðustu 25 mínút- urnar með Anderlecht. Þjálfarinn Arie Haan hætti þá á allt - tók varn- armanninn Peruzovic út af og setti Arnór inn á en það breytti litlu. Pit- urca skoraði þriðja markið á 72. mín. hsím Zico tilbúinn í slaginn Brasiliski knattspyrnumaðurinn frægi, Zico, hefur náð sér af slæmum hnémeiðslum og er nú tilbúinn í HM-slaginn í Mexíkó í júni. Mun ef að líkum lætur leika með Brasilíu í iandsleik 26. april nk. en Brasilíu- menn eru nú að leita að mótherjum í þann leik eftir að KSÍ sá sér ekki fært að senda islenska landsliðið til Brasilíu. hsím Iþróttir bls. 22 V7S4 Opiö laugardaga. Póstsendum. SPORTVÖRUVERSLUNIN Laugavegi 49, sími 12024.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.