Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1986, Qupperneq 37
Sviðsliós
Dagbókin góða
Glenda Jackson og Ben Kingsley eru væntanleg á fjalirnar í nýrri kvikmynd sem
ber nafnið Dagbók skjaldbökunnar. Harold Pinter gerði handritið og byggði á
skáldsögu eftir Russel Hoban. Engin smánöfn og árangurs samvinnu þessara
margfrægu listamanna er beðið með eftirvæntingu.
Michael
Jackson
er að verða geðveikur - segja
vinir hans. Frægðin hefur farið
svo illa með hann að andleg
velferð höfðingjans er í hættu.
Hann hefur nú ekki áhuga á
öðrum hlutum en leikföngum.
Þar eru ýmsar Oisneyverur i
sérstöku uppáhaldi enda hefur
Jackson ávallt haft orð á sér
fyrir að vera smekkmaður. Það
breytist ekkí þótt sáiarlifið sé i
rúst. Sátfræöiaðstoð hefur Jack-
son enga fengið enda viöur-
kennir hann ekki aðra úr þeirri
grein en Galdrakarlinn í Oz.
MH
DV. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1986.
Áhorfendum leiddist ekkert, Bryn-
hildur Ósk Sigurðardóttir, Jóhanna
Stefánsdóttir, Kristín Lára og Guð-
rún Margrét Guðjónsdóttir. I baksýn
Bergdís Kristjánsdóttir og Sólrún
Sveinsdóttir.
Sönghópur sem útskrifaðist í mars
54. Sigríður Jóhannsdóttir, Magne
Auðuns, Ásdís Ólafsdóttir, Áslaug
Sigurbjörnsdóttir og Sigríður Theo-
dóra Guðmundsdóttir.
Ása St. Atladóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans, sýnir
hugsanlegan framtíðarbúning hjúkr-
unarfræðings. Hann er að sjálfsögðu
geislaheldur. Búningurinn er hann-
aður á Borgarspítalanum og ekta
eins og allir aðrir slíkir á sýning-
unni. í baksýn Guðrún Margrét
Þorsteinsdóttir, sem kynnti, íklædd
kennslukonusamstæðu.
Fulltrúar hópsins frá 58, Hólmfríður
Ólafsdóttir og Hertha W. Jónsdóttir.
Formaður Hjúkrunarfélags íslands,
Sigþrúður Ingimundardóttir, flytur
ávarp.
Tina Turner
Ólyginn
sagði...
Díana
prinsessa
komst á sexílistann lika. Ekki
sist fyrir aö vera aðdáanleg
blanda af saklausri mey og
skækju...! Elisabet Bretadrottn-
ing hefur ekki gefið frá sér stunu
eða hósta um máliö.
var einna elst á listanum. Hún
er að sögn biaöslns meira sexi
með hverju árinu og menn biða
spenntir eftir þvi að elliárin
hreinlega sprengi sexískalann.
Hressar
hjúkkur
1 vor verða útskrifaðir í síðasta
skiptið nemar frá Hjúkrunarskóla
íslands og af því tilefni var haldin
herleg árshátíð í Broadway. Nemar
skólans frá upphafi voru boðnir vel-
komnir og svo mikil örtröð var í sölu
miða á hófið að grípa varð til sér-
stakra takmarkana. Til að mynda
dugði nú ekki lengur að vera maki,
þeim var allra náðarsamlegast út-
hlutað aðgangi að fagnaðinum að
borðhaldi loknu. Hjúkkur beggja
kynja voru á einkavakt þetta kvöld-
ið, bannað að dotta á verðinum og
ekki annað að sjá en menn skemmtu
sér alveg undir drep. Meðfylgjandi
DV-myndir tók Kristján Ari þegar
fögnuður makalausra hjúkrunar-
fræðinga stóð sem hæst.
Tvær hressar,
Katrín Pálsdóttir og
Guðrún Einarsdóttir.
Sigrún Stefánsdóttir tvistar í fyrsta
starfsbúningi Borgarspitalans.
0