Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Page 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986.
31
Sandkorn Sandkorn
Vill fá
nafnið
Sönghópurinn Hálft í
hvoru hefur notið mikilla
vinsælda undanfarin ár.
Hann hefur skipað sér
traustan sess í músíklífinu,
enda skipaður úrvalsfólki.
Og nú er von á nýrri plötu
í safnið. Hún mun vera í
pressun úti í London og
vafalaust bíða margir
spenntir. En það er ekki
málið...
Einn þeirra sem stofnaði
Hálft í hvoru á sínum tima
er Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson skáld með meiru.
Hann yfirgaf svo hópinn
Gísli í Hálft í hvoru.
þegar hans timi var kom-
inn. Raunar er Gísli Helga-
son sá eini sem eftir er af
upprunalega flokknum.
En einhverja bakþanka
virðist Aðalsteinn hafa
fengið. Nú hefur hann
nefnilega gert kröfu um að
fá nafnið Hálft i hvoru og
raunar sótt um einkaleyfi á
því til iðnaðarráðuneytis-
ins. Aðalsteinn mun hafa
átt hugmyndina að þessari
nafngift í upphafi og vill
greinilega eiga hana út af
fyrir sig. En hætt er við að
sú hugdetta mælist illa fyrir
hjá hinum fjölmörgu að-
dáendum sönghópsins
Hálft í hvoru.
Erlendur Einarsson.
Skiljanleg
mistök
Mogganum urðu á dulítil
mistök um helgina. Þá
sagði hann frá nýrri kvik-
mynd sem Eyvindur Er-
lendsson kvikmyndagerð-
armaður hyggst gera á
næstunni.
En svo ofarlega er Sam-
bandið í huga þeirra
Morgunblaðsmanna að Ey-
vindur var sífellt nefndur
Erlendur Einarsson í gegn-
um alla fréttina. Þessi
mistök verður þó að virða
þeim til vorkunnar. Kvik-
myndin heitir nefnilega
„Erindisleysan mikla“.
Póstbáturinn
mokfiskar
Nokkur hundruð kíló af
pósti og 60 tonn af þorski.
Þetta er það sem póstbát-
urinn Anný SU 71 frá
Mjóafirði hefur haft upp úr
krafsinu frá áramótum.
Áhöfnin hefur veitt
þorskinn en Mjófirðingar
séð um að skrifa bréfin.
1 Fiskifréttum er greint
frá þessum sérkennilega
póstbáti. Mun hann vera
eini báturinn á Austijörð-
um sem hefur fiskað eitt-
hvað að ráði! Að sögn Egils
Stefánssonar, eiganda
Annýar, hafa póstflutning-
arnir þó tafið bátinn tals-
vert frá veiðum. Er farið
með póst til Neskaupstaðar
tvisvar i viku og hefur
áhöfnin þá náð einu eða
tveim hölum i leiðinni. Er
nú svo komið að báturinn
er að verða búinn að fylla
kvótann. Má því búast við
að fiskilyktin af bréfum
Mjófirðinga dvíni þegar líða
tekur á árið.
Skammgóður
vermir
Sundlaugin i Laugardal,
vin reykvískra sunddýrk-
enda, hefur nú verið opnuð
með tilþrifum. Miklar end-
urbætur hafa verið gerðar
á svæðinu, meðal annars
komið upp nýrri búnings-
aðstöðu fyrir sundgesti. Og
svo hefur verið tekinn í
gagnið heljarmikill pottur,
sem ætlað er að slaka á fínu
taugunum í þeim stress-
uðu.
En sjaldan launar kálfur
ofeldi, eins og þar stendur.
Fastagestir í Laugardaln-
um éru, sumir að minnsta
kosti, hundóánægðir með
búningsaðstöðuna. Segja
þeir hana þrönga og mun
óþægilegri heldur en þá
sem fyrir var. Og svo þegar
þeir ætluðu í nýja pottinn
til að liggja úr sér ólundina,
þá var hann svo heitur að
þeir hefðu ekki þurft nema
þriggja minútna suðu til
viðbótar.
Til þess að róa menn þyk-
ir okkur rétt að upplýsa að
þeir þurfa ekki að líða þess-
ar píslir lengi. Laugardals-
laugin verður nefnilega
ekki opin nema rétt fram
yfir kosningar. Þá verður
henni lokað aftur. Þetta er
þó ekki eingöngu kosninga-
brella, því laugin sjálf mun
svo illa farin af alkalí-
skemmdum að aðkallandi
er orðið að gera við hana.
En menn geta þó altént
fengið sér kosningabað áð-
ur en skellt verður í lás.
Kosningar í
Moskvu
Og ein fyrir þá sem komn-
ir eru í ham
Það voru borgarstjórnar-
kosningar í Moskvu.
Alexander gamli Poshkin
sinnti borgaralegri skyldu
sinni og fór á kjörstað. Þeg-
ar hann hafði gefið upp
nafn sitt fékk hann í hend-
ur lokað umslag, sem
honum var sagt að setja í
kjörkassann.
„En fæ ég þá ekki einu
sinni að vita hverja ég
kýs?“ spurði hann.
„Ertu snargalinn, mað-
ur,“ sagði þá kosninga-
stjórinn. „Þetta er leynileg
kosning.“
Umsjón:
JóhannaS.
Sigþórsdóttir
Ámi Sighvatsson, rafvirki og söngvari:
Seldi verkstæðið
og för í sóngnám
„Fram til ársins 1982 var ég með
rafvélaverkstæði. Þá seldi ég það og
fór til Ítalíu að læra söng sem þótti
hreint ekki gáfulegt uppátæki. Ég
lét það ekki á mig fá og var við söng-
námið meira og minna þar til á
síðasta ári. Þá kom ég heim og hef
unnið jöínum höndum við rafvirkjun
og söngkennslu síðan.“
Ámi Sighvatsson heitir maðurinn
sem lagði þessa lykkju á lífsleiðina.
Það vom auðvitað óperumar sem
löðuðu hann til Ítalíu. „Sá sem hefur
hug á að stúdera ítalskar óperur,
ítalskan söng og sönghefð fær hvergi
jafhgott tækifæri til þess og í landinu
sjáliu. Þess vegna lét ég verkstæðið
og fór þangað að læra.“
í landi ópemnnar lærði Ámi hjá
sópransöngkonunni Ratti sem margt
söngfólk íslenskt þekkir eftir að hún
var við raddþjálfun hjá Pólýfón-
kómum. Ámi nam einnig hjá
tenómum Ferraro sem þekktur er
fyrir flutning á óperum Verdis. Það
kom m.a. í hlut hans að syngja Ót-
hello í sjónvarpsþáttunum góð-
kunnu um Verdi.
Á morgun, uppstigningardag, efiiir
Ámi til tónleika í Njarðvíkurkirkju
í samvinnu við Tónlistarfélag Kefla-
víkur og nágrennis. Með rafvikjun-
inni kennir Ámi söng við Tónlistar-
skóla Keflavíkur og annast
raddþjálfun hjá Karlakór Keflavík-
ur.
Þótt Ami haldi nú fyrstu einka-
tónleika sína er hann fjarri því að
vera nýgræðingur í sönglistinni.
Árið 1961 hóf hann söngnám hjá
Sigurði Demetz og gekk fyrir hvatn-
ingu hans í Þjóðleikhúskórinn. Með
í Mífanó söng Ámi m.a. hlutverk Belcore í Ástardrykknum eftir Donizetti.
kómum söng Ami í hartnær tuttugu
ár. Hann fór á þeim tíma einnig með
ýmis hlutverk í óperum hjá Þjóðleik-
húsinu.
Þegar íslenska óperan var stofhuð
fékk Ámi leyfi frá Þjóðleikhúskóm-
um til að syngja með kór óperunnar.
Hann var þá í námi hjá Önnu Júlí-
önu Sveinsdóttur í Söngskólanum.
Þaðan lá leiðin svo til Italíu. Þar
lauk hann náminu með þvi að syngja
hlutverk Belcore í Ástardrykknum
eftir Donizetti ásamt samstúdentum
sínum.
Á tónleikunum í Njarðvíkurkirkju
á morgun byrjar Ámi á að syngja
íslensk og þýsk lög. Eftir hlé taka
óperuaríumar við. Undirleikari er
Þóra Fríða Sæmundsdóttir. Tónleik-
amir hefjast kl. 16.00. -GK
Ámi Sighvatsson lét drauminn ræt-
ast og fór til Ítalíu að læra söng eftir
að hafa stundað rafvirkjun árum
saman.
DV-mynd GVA
FYRIRTÆKI - EINSTAKLINGAR
Urethan sprautunarvél til sölu meö öllu tilheyrandi.
Upplagt tækifæri fyrir einstaklinga. Selst á góðum
kjörum. Upplýsingar í síma 97-1788 og 1688.
ÍBÚAR í LAUGARNESHVERFI
Þann 10. maí stöndum við saman og hreinsum lóðir
okkar í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar.
Ruslapokar verða afhentir í Laugarnesskóla og Lauga-
lækjarskóla laugardaginn 10. maí kl. 10-12. Hreinsun-
ardeild borgarinnar tekur ruslapokana sem settir verða
út við götu.
Foreldrafélögin í
Laugarnesskóla og
Laugalækjarskóla.
Vinnuskóli Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkurtekurtil starfa um mánaðamót-
in maí-júní nk.
I skólann verða teknir unglingar fæddir 1971 og 1972
sem voru nemendur í 7. og 8. bekk grunnskóla Reykja-
víkur skólaárið 1985-1986.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðningarstofu Reykjavík-
urborgar, Borgartúni 1, sími 18000, og skal umsókn-
um skilað þangað fyrir 23. maí nk.
Vinsamlegast hafið með nafnskírteini eða önnur skil-
ríki.
Vinnuskóli Reykjavíkur
Nissan Cedric disil, með mæli, árgerö 1985. Glæsivagn frð Nissan,
ekinn 27 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, 6 cyl., útvarp/segulband, origin-
al aukadekk á teigum. Ath. skipti á ódýrari bil. Verð 840.000.
Nissan Cherry 1500 turbo árg. 1984, ekinn aðeins 15 þús. km, 5
gíra, bein innspýting, útvarp/seguiband, álfelgur, gullfallegur sport-
bill. Ath. skipti á ódýrari bil. Verð 395.000.
Mercedes Benz 230E árg. ‘82, ‘83, ‘84. Þessir bilar eru með flest
öllum fylgihlutum, s.s. vökvastýri, sjálfskiptingu, beinni innspýtingu,
centrallæsingum, sóllúgu o.fl. Ýmis skipti. Verð frá 690.000.
ATH., NÚ VANTAR 0KKUR NÝLEGA BÍLA Á SÖLU-
SKRÁ. HÖFUM KAUPENDUR AÐ SUBARU ÁRGERÐ
1985.