Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Qupperneq 4
4
DV. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1986.
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
Djúpivogur:
Frá Djúpavogi.
Vaxandi bær með
vatnslögn í ólagi
Aðaláhyggjuefhi næstu hrepps-
nefiidar á Djúpavogi verður án efa að
koma vatnsmálum bæjarbúa í lag.
Vatnslögnin, sem er orðin 20 ára, tók
upp á því að bila í vetur og er nú tal-
in ónýt. Þetta er ákaflega bagalegt þar
sem jafiit íbúar sem atvinnureksturinn
þurfa á miklu vatni að halda á degi
hverjum. Frambjóðendur eru sammála
um að þessu þurfi að kippa í liðinn.
Hins vegar mun viðgerðin verða
nokkuð dýr fyrir hreppinn. Ný leiðsla
kostar um 20 milljónir króna en áætl-
aðar tekjur eru aðeins 15 milljónir.
Flestir eru einnig sammála um að
óhlutbundna kosningin 1982 hafi gef-
ist illa. Nú sé ráð að leggja fram lista.
Athyglisvert er að enginn þeirra teng-
ist hinum stóru stjómmálaflokkum.
Djúpivogur hefúr verið í örum vexti
undanfarin ár og þar búa nú um 420
íbúar.
-APH
Félagshyggjufólk:
Vatnsleiðslan
„Við stefnum að þvi að ný vatns-
leiðsla verði lögð hér í sumar. Einnig
teljum við mikilvægt að lokið verði
við byggingu heimavistar við skól-
ann,“ segir Már Karlsson, efsti maður
á lista Félagshyggjufólks.
Már á sæti í hreppsnefnd og snaraði
fram lista rétt áður en framboðsfrest-
urinn rann út. Annar maður á Iistan-
sumar
um, Reynir Gunnarsson, situr einnig
í hreppsnefndinni.
Már segir að mörg verkefni séu fyrir-
liggjandi hjá hreppnum. Atvinnu-
ástandið á Djúpavogi hafi verið gott
og staðurinn verið í miklum vexti
undanfarin ár. Og trúlega sé ekki
meira byggt á neinum öðrum stað á
Austfjörðum þessa stundina.
-APH
Már Karlsson.
Eysteinn Guðjónsson.
Framfarasinnar:
Viljum opna
hreppsnefndina
„Við viljum opna hreppsnefndina
meira og að vinnubrögðin þar verði
lýðræðislegri. Okkar stefna er að
hreppsnefhdarmenn sitji til dæmis
ekki í nefndum á vegum hreppsins.
Einnig viljum við að fundir hrepps-
nefhdarinnar verði auglýstir opinber-
lega svo fólk hér geti komið og fylgst
með þeim ef það vill,“ segir Eysteinn
Guðjónsson, annar maður á lista
Framfarasinna.
Eysteinn vill einnig að flárhags-
áætlunin verði birt opinberlega. Ýmis
aðkallandi verk standa fyrir dyrum.
Þar ber hæst lagfæringar á vatnslögn
bæjarins og að komið verði á laggim-
ar dagvistun fyrir böm. Á listanum
em menn úr öllum flokkum að sögn
Eysteins.
-APH
Óháðir:
Viljum endur-
skoða fjár-
mál hreppsins
„Við leggjum áherslu á að fjármál
hreppsins verði endurskoðuð svo við
getum gert okkur grein fyrir fjár-
hagsstöðunni,“ segir Þórarinn Pálma-
son, efsti maður á lista óháðra.
Hann segir að óhlutbundnu kosn-
ingamar síðast hafi gefist illa og að
það sé eðlilegra að leggja fram
ákveðna lista.
„ Það verður að koma lagi á vatns-
veitumálin hér. Einnig viljum við að
komið verið upp dagvistun fyrir böm.
Hafist verði handa við byggingu heil-
sugæslustöðvar og málefnum aldraðra
sinnt meira. Að lokum teljum við að
það þurfi að stuðla að fjölbreyttara
atvinnulífi hér í plássinu."
-APH
Þórarinn Pálmason. DV-mynd KAE
Þessir listar eru í framboði: Urslit 1982
Listi féiagshyggjufólks: 1. Már Karlsson 2. Reynir Gunnarsson 3. ívar Björgvinsson 4. Bogi Ragnarsson 5. Bjami Bjömsson 6. Guðmundur Brynjólfsson 7. Kristín Ásbjamardóttir 8. Margrét P. Sigurðardóttir 9. Stefán Aðalsteinsson 10. Eyjólfur Guðjónsson Listi framfarasinna: 1. Ólafur Ragnarsson 2. Eysteinn Guðjónsson 3. Geirfmna Óladóttir 4. Magnús Hreinsson 5. Drífa Ragnarsdóttir 6. Björn Jónsson 7. Jón Þórður Ragnarsson 8. Gísli Borgþór Bogason 9. Eðvald Ragnarsson 10. Hafdís Erla Bogadóttir Listi óháðra: 1. Þórarinn Pálmason 2. Guðrún Kristjánsdóttir 3. Karl Jónsson 4. Ingólfur Sveinsson 5. Bryndís Jóhannsdóttir 6. Baldur Gunnlaugsson 7. Emil Bjömsson 8. Þorsteinn Ásmundsson 9. Steinunn Jónsdóttir 10. Pétur Björgvinsson í kosningunum 1982 fór fram óhlutbundin kosning á Djúpavogi. Það þýöir að enginn listi var boð- inn fram og allir kjörgengir íbúar í kjöri. Á kjörskrá voru 233 og kosningaþátttaka var rúmlega 64%. Eftirtaldir voru kosnir í hrepps- nefnd: Óli Björgvinsson, Ragnar Þorgils- son, Már Karlsson, Karl Jónsson og Reynir Gunnarsson.
Spurt á Djúpavogi:
Hverju spáir þú um úrslit kosn-
inganna á Djúpavogi?
Kjartan Garðarsson verkfræðingur:
- Ég spái því að óháðir fái 2, fram-
farasinnar 2 og listi félagshyggju-
fólks fái 1.
Steinunn Ingólfsdóttir bókari: - Það
er ómögulegt að spá um hver úrslitin
verða. Framfarasinnar koma líklega
best út úr kosningunum.
Haraldur Ingólfsson skrifstofumað-
ur: - Ég spái því að Djúpavogsbúar
kjósi þá menn sem þeir eiga skilið.
Jónina Jónsdóttir ræstingarkona: -
Ég spái bara öllu góðu. Eg er ákaf-
lega lítið inni í pólitík og ég vona
að það ráðist bara góðir menn til
þessara starfa.
Guðný Jónsdóttir bóndakona: - Ég
vil litlu spá um þessi mál því ég er
svo illa að mér í þeim.
Guðjón Emilsson matsmaður: - Get
engu spáð. Það er svo margt óljóst
hvemig þetta verður.