Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1986, Blaðsíða 21
ittir_________________Iþróttir___________________Iþróttir__________________Iþróttir___________________Iþróttir
DV. FIMMTUDAGUR 15. MAI 1986.
keppnistaðnum í keppninni. Bílarnir
>g Alain Prost, til vinstri, hefur tekið
mn og Prost eru félagar í keppninni.
Helgi ekki lög-
legur með Víði?
Missir ef til vill af fyrstu leikjunum í 1. deild
Svo getur farið að Helgi Bentsson,
sem lék með Keflvíkingum sl. sumar
en hefur nú gengið til liðs við Víði í
Garðinum, geti ekki leikið með í fyrstu
leikjum Víðis í 1. deildar keppninni
sem hefst á laugardag. Helgi hefur
ekki fengið send félagaskipti frá félag-
inu sem hann æfði og lék með í
Vestur-Þýskalandi síðastliðinn vetur.
Knattspymusamband íslands hefur
sent vestur-þýska knattspyrnusam-
bandinu bréf þar sem beðið er um að
félagaskiptin hjá Helga verði sam-
þykkt og send hingað. Ekkert svar
hefur borist enn og óvist er á þessu
stigi málsins hvort það berst í tæka
tíð. Stutt er í að keppnin heíjist í 1.
Helgi Bentsson.
deild og margir leikir fram undan.
• Það yrði mikið áfall íyrir Víðis-
menn ef Helgi gæti ekki leikið með
þeim í upphafi Islandsmótsins vegna
þessa máls. Víðir leikur þrjár leiki á
næstu dögum eins og reyndar 1. deild-
ar liðin öll.
Ekki er vitað á hveiju stendur, hvort
félagið, sem Helgi lék með i Þýska-
landi, hefui- eitthvað brugðist og ekki
sent félagaskiptin til vestur-þýska
sambandsins eða hvort bréf þess hefur
lent á einhverjum flækingi þar. Það
er þó ólíkt Þjóðverjum. En einhver
mistök hafa orðið. Eins og staðan er
í dag hefur vestur-þýska sambandið
ekki gengið frá málinu og sent það til
KSÍ. SOS
Völler sá um Holland
„ Rudi, Rudi,“ hrópu áhorfendur í
Dortmund í hvert skipti sem miðheiji
Werder Bremen, Rudi Völler, kom við
knöttinn í landsleik V-Þýskalands og
Hollands í gærkvöld. Völler, sem hefur
verið slasaður mest allt keppnistima-
bilið, átti stórleik í þýska liðinu.
Skoraði tvö fyrstu mörkin í 3-1 sigrin-
um á Hollandi og sýndi og sannaði í
leiknum að hann getur orðið meðal
þeirra bestu á HM í Mexikó.
Völler, sem skoraði eina mark
Þýskalands í landsleik við Júgóslava
nýlega, skoraði fyrsta markið í gær á
39, mín. Skallaði í mark með hnakkan-
um eftir homspymu Lothar Matt-
haeus. Fyrir markið hafði þýska liðið
heldur átt í vök að verjast. Völler skor-
aði aftur á 42.mín. Sneri baki í markið,
þegar hann fékk knöttinn frá Briegel.
Sneri sér snöggt i þéttskipuðum víta-
teignum og sendi knöttinn neðst í
markhomið. Johnny Van’t Schip
minnkaði muninn i 2-1 á 8o. mín. en
á lokamínútunni skoraði Herget
þriðja mark V-Þýskalands. hsím
írar koma með sterkt lið
Það er ljóst að írar koma með geysi-
sterkt lið hingað til lands á þriggja
landa mótið sem fram fer i Reykjavík
dagana 25. til 29. maí. Það er 20 manna
hópur sem Jackie Charlton hefur valið
til fararinnar. Allir leikmenn liðsins
eru atvinnumenn.
Lið írlands, sem leikur hér, verður
þannig skipað:
Markverðir
Gerry Payton, Fulham
Pat Bonner, Celtic
Varnarmenn
Chris Houghton, Tottenham
Jim Beglin, Liverpool
John Anderson, Newcastle
Mick McCarthy, Man. City
Mark Lawrenson, Liverpool
Kevin Moran, Man. United
Paul McGrath, Man. United
Miðvallarleikmenn
Liam Brady, Inter Milano
Ronnie Whelan, Liverpool
Kevin Sheedy, Everton
Ray Houghton, Oxford
Gerry Murphy, Chelsea
Lian O’Brian, Shamrock Rovers
Framlínumenn
John Aldridge, Oxford
Frank Stapleton, Man. United
Michael Robinson, QPR.
Tony Galvin, Tottenham
Það er ljóst að Jackie Charlton ætlar
sér stóra hluti með þetta lið og greini-
legt að írar leggja mikið upp úr þvi að
ná góðum árangri i mótinu.
Tékkar, sem verða þriðja þjóðin í
mótinu, mæta einnig með sitt sterk-
asta lið. Þeir eru að yngja upp og ætla
sér stóra hluti í framtíðinni.
-SMJ
Webster til
Þórs á Akureyri
Leikur með Þór næstu tvö árin
Ingi Björn Albertsson.
Skorar Ingi
Bjöm aftur
í Garðinum?
„Það verður að sjálfsögðu farið suð-
ur í Garð með þvi hugarfari að vinna
þar sigur. Okkur tókst það á síðasta
keppnistimabili og vonandi verður nú
engin breyting þar á,“ sagði Ingi Björn
Albertsson, þjálfari og leikmaður FH-
liðsins.
Það var einmitt Ingi Björn sem skor-
aði sigurmark FH gegn Viði í fyrra,
eina mark leiksins í Garðinum í fyrsta
leik liðanna i 1. deildar keppninni 1985.
SOS.
„Ég hef ákveðið að leika með Þór á
Akureyri næsta vetur. Ég hlakka mik-
ið til að fara norður og veit að við
eigum eftir að gera góða hluti á næsta
keppnistimabili,“ sagði körfuknatt-
leiksmaðurinn hávaxni, Ivar Webster,
í samtali við DV í gærkvöldi. Ivar lék
sem kunnugt er með Haukum á síð-
asta vetri en hefur nú ákveðið að
flytjast til Akureyrar.
„Mér líst mjög vel á þetta. Það eru
margir ungir og efnilegir strákar í
Þórsliðinu og ég veit að þeir eru til-
búnir að leggja mikið á sig til að ná
árangri. Hvað sjálfan mig varðar þá
er ég þegar byrjaður að æfa og lyfti
mikið. Ég ætla mér að gera stóra hluti
með Þórsurum næsta vetur,“ sagði
Hlaupið í
þágu Afríku
Afríkuhlaupið verður haldið hér á
landi sunnudaginn 25. maí. Undir-
búningur að hlaupinu er unninn af
„Sport Aid“ sem m.a. var stofnað af
Bob Geldof sem stóð fyrir „Live Aid“
tónleikunum. Málefnið er hið sama;
að safna fé handa hungruðum i Afr-
iku.
Hér á landi starfar sérstök fram-
kvæmdanefnd i tilefni hlaupsins.
Fjársöfnun fer fram með þeim hætti
að barmmerki og bolir með áletrun
söfnunarinnai’ verða boðnii- til sölu.
Síðan hlaupa allh- með og taka þannig
þátt í þessum einstæða íþróttaviðburði
um leið og þeir leggja góðu málefiii lið.
Um þijátiu þúsund barmmerkjum
verður dreift til íþróttafélaga um land
allt.
Reiknað er með að Afrikuhlaupið
fari fram i u.þ.b. 160 stórborgum í 49
löndum. -SMJ
ívar Webster sem mun leika með Þór
í það minnsta tvö næstu keppnistíma-
bil.
Bylting hjá Þórsurum
Koma ívars til Þórs ætti að geta
markað tímamót í sögu körfuknatt-
leiksins á Akureyri. Þórsarar hafa
verið í nokkrum öldudal undanfarin
ár og ekki náð að hrista af sér slenið.
Veikasti hlekkur liðsins hefur verið
miðheijastaðan sem Webster tekur nú
að sér og það er greinilegt að Þórsarar
verða ekki auðsigraðir næsta vetur,
hvort sem þeir leika í 1. deild eða úr-
valsdeild. Það fer eftir þvi hvort tillaga
um breytt keppnisfyrirkomulag næsta
vetur verður samþykkt á komandi árs-
þingi KKÍ. ' -SK.
•ívar Webster leikur með Þór á
Akureyri næsta vetur.
russon fylg-
^jamönnum
nni á laugardag
ekki á Akranesi þegar leikurinn fer
fram því leikurinn á Laugardalsvelli
verður á sama tíma.
Sigurður er í leikbanni - þarf að taka
út eins leiks bann sem hann var dæmd-
ur í á síðasta keppnistímabili. Hann
fær því það hlutverk að njósna um
Eyjaliðið en Skagamenn leika í Vest-
mannaeyjum á miðvikudag í 2. umferð
íslandsmótsins. SOS.