Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1986, Síða 5
DV. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1986.
5
Fréttir Fréttir
„Það ríkir ákveðin stöðnun í ferðamálum," segir Sigurður Skúli Bárðarson.
Sigurður S. Bárðarson, Hótel Stykkishólmi:
Yfirfullt í Reykja-
vík? tómt útí á landi
„Það eru miklir toppar og djúpar
lægðir í okkar rekstri einsog í íslensku
etnahagslífi almennt. Við erum stór-
fyrirtæki á bæjarmælikvarða á sumrin
en það dregur mjög úr starfseminni
yfir vetrarmánuðina. Eftir að rekstur-
inn var endurskipulagður 1981 hefiir
reksturinn staðið undir lánum,“ sagði
Sigurður Skúli Bárðarson, hótelstjóri
á Hótel Stykkishólmi í samtali við DV.
Náttúruunnendur fjölmennir
Hótel Stykkishólmur heldur upp á
tíu ára afinæli sitt á næsta ári en það
var ekki fyrr en í fyrra að skólastarf-
semi að vetrum flutti annað. Þá var
rekstrinum breytt, veitingaaðstaða
bætt, komið upp bar sem hefur starfe-
leyfi yfir háannatímann og síðast en
ekki síst hannaðar nýjar innréttingar.
„Það er fólk af ýmsum toga sem
kemur hingað. Hingað koma venjuleg-
ir ferðamenn sem ætla fyrir jökul eða
í eyjamar á Breiðafirðinum. Náttúru-
unnendur eru fjölmennir, ekki síst
fuglaskoðarar og steinasaftiarar. Við
verðum varir við helgatraffik frá miðj-
um maí, bæði einstaklinga á einkabíl-
um og starfemannahópa á rútum sem
eru á ferð um Nesið. Hluti af gestum
okkar kemur svo í afslöppun og til að
skoða okkar sérstaka bæ. Okkur bætt-
ist liðsauki í að laða þessa ferðamenn
hingað með bátnum Brimrúnu í vor
en hann býður upp á skemmtilegar
skoðunarferðir um Breiðafjörð og það
gerir einnig flóabáturinn Baldur.
Einnig má nefna Norska húsið svo-
kallaða en þar hefur heimili Áma
Thorlacius, kaupmanns og frumkvöð-
uls í þilskipaútgerð, verið fært í
upphaflega mynd.
Of fáar ráöstefnur
Við erum enn sem komið er með
alltof fáar ráðstefhur en erum famir
að hasla okkur völl á því sviði enda
teljum við okkur hafa nijög góða að-
stöðu til þess. Við höfum tvo sali,
annan fyrir stærri ráðstefnur, allt að
300 manns, og svo 30 manna sal. Sam-
keppnin er mjög hörð á þessum
markaði. Við höfúm alls 30 tveggja
manna herbergi sem flest hafa síma.
Svo höfúm við nýuppgerðan veitinga-
stað og bar, auk setustofu og ókeypis
sánu.“
Mörgum virðast hotel spretta upp
eins og gorkúlur, bæði í höfuðborginni
og í nágrenni hennar. Hótel hafa risið
og em að rísa í Keflavík og Hvera-
gerði og í Reykjavík er verið að byggja
tvö hótel auk viðbyggingar Hótel
Sögu. Hvemig lítur hótelstjóri úti á
landi á málin?
„Það em sumir hræddir við svo
hraða uppbyggingu. En ef litið er aftur
í tímann þá var sama uppi á teningn-
um þegar verið var að byggja Sögu
og Hótel Loftleiði. Ég á ekki von á
öðm en að samfara auknu framboði á
gistirými verði mikið markaðsátak
sem skilar sér vonandi í auknum
ferðamannastraumi. Ég vona líka að
hann skili sér til landsbyggðarinnar."
Ákveðin stöðnun
-En hvemig líst Sigurði Skúla á
ferðamálin um þessar mundir?
„Það em kannski stór orð en það
ríkir ákveðin stöðnun í ferðamálun-
um. Flugleiðir og Amarflug eiga
langstærstan þátt í því að vinna mark-
aði erlendis og innanlands. Ferða-
málaráð ætti að hafa forgöngu í
þessum málum en það fær ekkert fjár-
magn til þessara hluta.
Það er hjakkað í sama farinu í ferða-
málunum. Útlendingar sem koma til
landsins era settir upp í rútu í Reykja-
vík, keyrðir um nágrennið og skilað
aftur á hótel í Reykjavík. Það er ekk-
ert gert í því að dreifa farþegum sem
koma til Keflavíkur til landsbyggðar-
innar. Ég get nefnt þér sem dæmi að
farþegar sem vom að koma hingað á
ráðstefnu vom fljótari að komast
hingað með flugi en samferðamenn
þeirra vom að komast með rútu inn á
Loftleiðahótelið.
Á meðan hótelin em yfirfull í
Reykjavík er tómt úti á landi og lítið
gert í málunum. Útlendingar em oft-
ast áfjáðari í að skoða náttúrufegurð
landsbyggðarinnar en bæjarbraginn í
Reykjavík. Samt er þeim neitað um
hótelpláss í Reykjavík vegna þess að
allt er fullt og ekki hvattir til að reyna
hótelin úti á landi. Ég held að héma
verði að gera átak,“sagði Sigurður
Skúli, hótelstjóri Hótel Stykkishólms,
að lokum.
ás.
Veitingastaður hótelsins hefur verið innréttaður á smekklegan hátt.
Rattan HÚSGÖGNIN KOMIN
Bœttu hljóminn í bílnum með kraftmagn-
ara og tónjafnara og fóðu þér sambyggðan
roadstar AD'4270 2x25WÖtt!
AUTO-HiFi
AD-4270 Extra fíach 7-Band Boottmr-
Equalizer, 2 x 25 Watt.
3.450,- kr.
AD-4275 7-Band Boostor-Eqoallzmr, 4.980,- kr.
eðaroadstar AD-4275 2x25 wött.
Til að njóta söngs og tals sem best rs-4oo 2.300,- kr.
höfum viðroadstar RS-400 20 watta hötalarana
2 770. kr sem eru sérhannaðir til að skila manns-
röddinni sem best og aftur í
bílinn setjumvið t.d, tvöföldu
roadstar AD-3245 40watta hötalarana eða
roadstar RS-910 15W0tta
hötalarana.
2.590,- kr.
Höfum stórkostlegt úrval hátalara,
magnara, segulbanda og fi. í bílinn1
á hagstœðu verði. Sjón er sögu ríkari
komdu og líttu á úrvalið, við tökum vel á móti þér.
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800