Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1986, Blaðsíða 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1986.
■ /
Utlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Fulltrúadeild Bandarikjaþings hefur nú samþykkt viðskiptabann á Suður-Afriku. Ekki er talið liklegt að öldunga-
deildin staðfesti það. Ástandið í Suður-Afriku versnar með hverjum deginum og má nú heita að þar riki borgara-
styrjöld.
Bandaríkin banna S-Afríku viðskipti:
Viljum
forðast
blóðbað
- segja demókratar
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær einróma að setja
hömlur á viðskipti við Suður-Aínku.
Talið er að þetta sé gert til að ekki
þurfi að koma til þess að Bandaríkin
samþykki refsiaðgerðir gagnvart
Suður-Afríku.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar komu
mörgum demókrötum mjög á óvart,
en þeir voru mjög ánægðir með nið-
urstöðuna.
Tip O’Neal, forseti fylltrúadeildar-
innar, sagði að úrslitin væru sigur.
Nú heíðu Bandaríkin fordæmt kyn-
þáttaaðskilnaðarstefhuna á
áhrifaríkasta hátt sem mögulegt
væri.
Demókratar skoruðu á Reagan
forseta að láta af andstöðu sinni við
refsiaðgerðir og „lána siðferðilegan
stuðning síns háa embættis og mik-
illa persónuvinsælda til handa
málstað sem meirihluti þjóðarinnar
tryði á.“
Heimildir segja að fulltrúadeildin
hafi, með því að samþykkja svo
harðar aðgerðir, gert málamiðlun í
málinu erfiðari því öldungadeildin á
eftir að gera upp hug sinn í málinu.
Dan Burton, repúblíkani í fulltrúa-
deildinni, sagði fréttamönnum að
repúblíkanar hefðu greitt atkvæði
með versta frumvarpinu til að
tryggja það að frumvarpið færi ekki
i gegnum öldungadeildina.
Hann sagði að hann teldi að þær
takmörkuðu refsiaðgerðir, sem Re-
agan setti gegn Suður-Afríku í
september, hefðu ekki fengið nægi-
legan tíma til að virka.
Frumvarpið, sem fulltrúadeildin
samþykkti í gær, hefði í för með sér
að ekkert bandarískt fyrirtæki mætti
eiga nokkur viðskipti við Suður-
Afríku. Undanskilin væru viðskipti
með gull og platinum, sem hafa
hemaðarlegt mikilvægi.
Reagan hefur undanfarin fimm ár
verið á móti refsiaðgerðum til að fá
Suður-Afríkustjóm til að láta af að-
skilnaðarstefnu sinni. Hann segist
hafa meiri trú á að beita þrýstingi
bak við tjöldin.
Margir em á þeirri skoðun að
stefha Reagans hafi bmgðist. Það
er kominn tími til að prófa aðra
stefhu, sagði Howard Wolpe, þing-
maður sem álítur að refsiaðgerðir
séu eina vonin sem eftir sé til að
ekki bijótist út stríð í Suður-Afríku.
Nú þegar báðir aðilar segjast hafa
imnið atkvæðagreiðsluna f þinginu
er erfitt að spá um ffamhaldið. Menn
em þó frekar á þeirri skoðun að er-
fitt verði að finna málamiðlunar-
gmnn milli fulltrúadeildarinnar og
öldungadeildarinnar.
Reagan vill auka
skæruliðaaðstoð
HaHáár Vakiimarsson, DV. DaBas:
Reagan Bandaríkjaforseti gerir um
þessar mundir ítrekaðar tilraunir til
að afla stuðnings við efnahagslega og
hemaðarlega aðstoð við skæmliða er
í dag beijast gegn vinstrisinnuðum
stjómvöldum í tveim heimshlutum.
Annars vegar reynir forsetinn enn
að fá bandaríska þingið til að aðstoða
contra-skæruliðahreyfinguna sem
berst gegn stjómvöldum í Nicaragua.
Að auki vill forsetinn auka stuðn-
ingi við afganska skæmliða sem
beijast gegn stjómarher og sovésku
herliði þar í landi.
Reagan fullyrðir að stjómarhemum
í Nicaragua hafi undanfama daga
borist mikið af hergögnum frá Sovét-
ríkjunum og því sé nú meiri þörf en
nokkm sinni áður að contrahreyfingin
fái stuðning frá Bandaríkjamönnum í
baráttu sinni fyrir lýðræði, eins og
forsetinn orðaði það.
Fulltrúar afganskra skæmliða hafa
undanfama daga átt viðræður við
Reagan, Bush varaforseta og aðra
háttsetta Bandaríkjamenn í Hvita
húsinu í Washington.
Lítið sem ekkert hefur verið gert
opinbert um þær viðræður en talið er
að Afganir vilji fá Ioftvamavopn frá
Bandaríkj amönnum.
Færeyjar:
DV eitt vinsælasta blaðið
Eðvaiö T. Jónsaan, DV, Þórshofn:
Islenska dagblaðið DV er um þessar
mundir einn vinsælasti erlendi ffétta-
miðilhnn í Færeyjum.
Gífúrleg sala hefur verið á blaðinu
að undanfomu og virðist það rifið út
um leið og það er lagt fram í blaðahill-
ur í stórversluninni FML í Þórshöfh,
sem er eini staðurinn í Færeyjum þar
sem hægt er að kaupa blaðið í lausa-
sölu.
Mikill fjöldi fslendinga stundar um
þessar mundir vinnu í lengri eða
skemmri tíma í Þórshöfii og nágrenni
og jafhfram er mikið af íslensku ferða-
fólki í Færeyjum á þessum árstíma.
Fjöldi Færeyinga kaupir blaðið
einnig reglulega.
DV hefur þó yfirleitt alltaf selst upp
hver sem árstíminn er, jafri vel þó verð-
ið sé töluvert hærra en á færeyskum
dagblöðum.
Vegna roksölunnar undanfarið og
þrábeiðni fastra viðskiptavina hefur
stórverslunin ákveðið að stórauka það
upplag af blaðinu er framvegis verður
á boðstólum svo hægara ætti nú að
verða um vik hjá bæði íslendingum
og Færeyingum að fylgjast með gangi
mála á Fróni.
Bretar og Bandaríkjamenn
beittu neitunarvaldi
Bandaríkin og Bretland beittu í lands fordæmdi árás á angólskt land
gær neitunarvaldi gegn tillögu um en gæti ekki samþykkt svona tillögu
efnahagslegar refsiaðgerðir gegn vegna þess að hún skyldaði ríki til
Suður-Affíku í Öryggisráði Samein- að beita refsiaðgerðum gegn Suður-
uðu þjóðanna. Afríku.
Frakkar sátu hjá við atkvæða- í júlí á síðasta ;iri sátu Bandaríkin
greiðsluna um tillögu sem einnig fól og Bretland hjá við atkvíeðagreiðslu
í sér fordæmingu á árás Suður-Afr- um tillögu sem mælti með aðgerðum
íku á hafriarborgina Namibe þann gegn Suður-Afríku.
5. júní síðastliðinn. „Við erum andvígir eíhahagsleg-
Strax eftir atkvæðagreiðsluna um refeiaðgerðum vegna þess að þær
sagði Peter Maxey, fulltrúi Breta í ná ekki tilgangi sínum,“ sagði Max-
Óryggisráðinu, að. ríkisstjóm Bret- ey í gær.
týndrar unglingsstúlku
Halldór Vakfcnaisscn, DV, DaDas:
Bandarískir fjölmiðlar gerðu nú í
vikunni allnokkurt veður út af
bandarískri unglingsstúlku er sögð
var týnd í sováska heilbrigðiskerf-
inu.
Stúlkan er á skólaferðalagi með
skólasystkinum og kennurum um
Austur-Evrópu, þar á meðal Sovét-
ríkin.
Um helgina fékk stúlkan astma-
kast, þá stödd í Moskvu, og var flutt
þar á sjúkrahús. Sögðust foreldram-
ir engar fréttir fá af stúlkunni, aðrar
Jmögulegt væri að ná sfmasam-
bandi við deildina þar sem hún
liggur, ferðafélögum hennar væri
meinað að heimsækja hana og nán-
ast væri eins og þetta kommúnist-
íska heilbrigðiskerfi hefði gleypt
hana.
Faðir stúlkunnar fór um helgina
ffarn á það að fá vegabréfsáritun til
Sovétríkjanna í því skyni að finna
dóttur sína og koma henni heim til
Bandaríkjanna. Þótti fjölmiðlum
það með ólíkindum að þegar komið
var fram á miðjan mánudag haföi
áritunin ekki emi verið afgreidd.
Vegabréfsáritunin kom síðan auð-
vitað rétta boðleið og fregnir bárust
af því að stúlkan væri á batavegi.