Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1986, Side 18
18
DV. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1986.
i Iþróttir íþróttir í íþróttir Í íþróttir
„Ef til vill er páfinn pólskur en
guð er örugglega Brasilíumaður
4
- sagði Pele eftir sigur Brasilíu gegn Póllandi. Sigurs krafist í Brasilíu á HM
„Okkur hefur farið fram með
hverjum leik en eitt tap mundi auð-
vitað eyðileggja okkur. Það er
gaman að sigra stórt en í raun er
það aðeins lokaárangurinn sem
skiptir máli. í metabókum er ekki
spurt um hvað hefði verið réttlátt,
þar er aðeins sagt frá sigurvegu-
rum,“ sagði brasilíski leikmaðurinn
Junior.
Hann segir að brasilísku leik-
mennimir geri sér grein fyrir því að
stuðningsmenn þeirra krefjist sigurs.
„Við höfum unnið fjóra leiki, skorað
níu mörk en ekki fengið eitt einasta
mark á okkur. En ef við töpum á
laugardaginn í 8-liða úrslitum, þó
ekki væri nema 1-0, þá verður
frammistaða okkar álitin hneyksli.
Fyrir Brasilíumenn dugir aðeins að
koma með bikarinn heim, allt annað
er ófullnægjandi,“ sagði Junior.
„Höfum verið heppnir"
„Við erum í stöðugri ffamför en
ég játa það að við höfum verið
heppnir á nokkrum mikilvægum
augnablikum," sagði Edinio, fyrirliði
Brasilíumanna. Lánið lék við Brasil-
íumenn á fyrstu 20. mínútum leiks
þeirra við Pólverja en þá áttu Pól-
verjar tvö skot í markrammann.
„Það getur vel verið að páfinn sé
pólskur en guð er áreiðanlega Bras-
ilíumaðursagði Pele eftir leikinn.
Zico bætir liðsandann
Það að Zico er að verða leikfær
hefur aukið mjög sjálfstraust hjá
leikmönnum Brasilfu. Þá hefur sú
ákvörðun Zico að leyfa Careca að
taka vítið sem Zico fiskaði eflt mjög
liðsandann. Fyrir vikið er Careca
kominn með fjögur mörk og með
góða möguleika í keppninni um
markakóngstitilinn á HM. „Þetta er
enn eitt dæmið um ffábæran per-
sónuleika Zico og sýnir vel hversu
samstilltir við erum. Við höfum að-
eins eitt markmið, að vinna heims-
meistaratitilinn," sagði Careca.
-SMJ
Marokkómenn
vilja HM 1994
• Leikmenn Brasilíu eru hundeltir af stuðningsmönnum sínum í Mexíkó. Hér eru þeir Junior (til vinstri) og Zico að
gefa aðdáendum sinum eiginhandaráritanir í gegnum girðingu sem umlykur æfingavöll þeirra Brasilíumanna.
„Heimsmeistarakeppnin hefur aldrei
verið haldin í Afríku eða hjá þriðja
heims þjóð. Keppnin hefur ávallt verið
háð í Evrópu eða S-Ameríku og ég
held að það sé tími til kominn að gefa
þriðja heims þjóð færi á að halda
keppnina," sagði Abdellatif Semlali,
íþróttamálaráðherra Marokkó, við
fréttamenr. í gær. Lið Marokkó kom
mjög á óvart í keppninni og hefur það
eflt mjög áhuga Hassans konungs í
Marokkó á knattspymu. Hann hefur
því boðist til þess að Marokkómenn
sjái um keppnina 1994.
„Eg hef rætt við Joao Havelange,
forseta FIFA, og hann sagði að FIFA
mundi taka þetta tilboð til alvarlegrar
athugunar. Við höfum allt sem til þarf
í Marokkó. Við höfum góða leikvelli,
úrvals hótel og nýjustu fjölmiðlatæki.
Þá höfum við þegar séð um Afríkuleik-
£uia og keppni milli Miðjarðarhafs-
landanna og ég er viss um að við
ættum ekki í vandræðum með að
halda heimsmeistarakeppnina," sagði
Semlali.
Fram til þessa hefur heimsmeistara-
keppnin verið haldin til skiptis í
Evrópu og S-Ameríku og samkvæmt
því fyrirkomulagi á hún að vera í S-
Ameríku 1994. Þá þykir heimaland
Havelange, Brasiiía, líklegast til að
hreppa hnossið og fá að halda keppn-
ina. Það er því spuming hversu ’nrifínn
Havelange er af því að breyta núver-
andi fyrirkomulagi. -SMJ
Fær Soffía gullverð-
launin i bruðavgjöf?
Manuel Negrete, Mexíkaninn sem
skoraði markið stórkostlega fyrir
Mexíkó gegn Búlgaríu í 16-liða úr-
slitunum, stefíiir að því að gefa
verðandi konu sinni, Soffiu. gull-
verðlaunin á HM á brúðkaupsdag-
inn.
Negrete er mjög vinsæll í Mexíkó
um þessar mundir eftir glæsimarkið
gegn Búlgaríu þegar hann lá flatur
í Ioftinu er hann skaut knettinum í
búlgarska markið frá vítateigslínu.
Pele hefur sagt að þetta mark sé
langfallegasta markið sem enn hefur
verið skorað í Mexíkó og víst er að
mark Negrete, sem er aðeins 1,70
metrar á hæð og vegur 65 kíló, verð-
ur eitt fallegasta mark keppninnar
ef ekki það fallegasta.
-SK
„Þetta vérður óska-
leikur fyrir áhorfendur“
-ánægja ogvonbrigði í bland hjá Brössum að mæta Frakklandi
„Frakkar leika meira og minna á
brasilískan hátt, rólega og eru leiknir
mjög. Þetta verður óskaleikur fyrir
áhorfendur þó hann geti ef til vill tek-
ið nokkuð á taugarnar hjá aðdáendum
okkar,“ sagði Junior, einn kunnasti
leikmaður Brasilíu, eftir að ljóst var
að Frakkar yrðu mótheijar Brasih'u-
manna í átta liða úrslitum. En það var
ánægja og vonbrigði í bland hjá leik-
mönnum Brasilíu.
„Ég hafði mjög hlakkað til að leika
við Italíu. Það var erfiður biti að
kyngja þegar þeir slógu okkur út í
heimsmeistarakeppninni á Spáni fyrir
fjórum árum. Ég hef ekki enn jafhað
mig á því,“ sagði miðherjinn Careca,
sem er markahæstur á HM nú með
fjögur mörk ásamt nokkrum öðrum
leikmönnum.
Flestir leikmanna Brasilíu telja
Frakka þó léttari mótherja en ítali,
eða eins og fyrirliðinn Edinho sagði:
„Ég verð að viðurkenna að það er létt-
ir að losna við heimsmeistarana.
Frakkar spila og leyfa mótherjunum
að spila meðan ítalir eru miklu meira
kerfisbundnir. Italir byggja á sterkri
vöm og treysta á skyndisóknir, auk
þess sem þeir em mun strangari í
gæslunni.“
Junior þekkir fyrirliða Frakka,
Michel Platini, best leikmanna Brasil-
íu eftir að hafa leikið fimm ár með
Roma á Ítalíu. „Frakkar em með mjög
sterka vöm og snjalla framverði eri
fyrst og síðast hafa þeir Platini. Þetta
verður erfiður leikur,“ sagði Junior.
hsím
Þrír Danir í heimsliðinu hjá Clarin
• Morten
Olsen.
Stærsta dagblaðið í Argentínu,
Clarin, valdi heimslið þeirra
leikmanna sem leika í Mexíkó
áður en 16-liða úrslitin hófust.
Þrír Danir em í liðinu, þeir
Morten Olsen, Preben Elkjær og
Michael Laudmp.
Auk dönsku leikmannanna em
þessir leikmenn í liðinu: Mark-
vörðurinn Drid frá Alsír, Argent-
ínumennimir Ruggeri og
Maradona, Bossis, Frakklandi,
Branco, Brasilíu, Michel, Spáni
og Felix Magath frá Vestur-
Þýskalandi. Mörgum kann að
finnast þetta undarlegt val og
víst er að mörg þekkt nöfn vant-
ar í liðið þeirra Argentínu-
manna.
-SK
Elkjær bestur í Mexíkó
fýrir 16-liða úrslitin
- að mati ítalska blaðsins „La Gazzetta dello Sport“
Fyrir 16-liða úrslitin á HM í Mex-
íkó var Daninn Preben Elkjær
Larsen í efeta sæti yfir bestu leik-
mennina á HM í Mexíkó hjá hinu
virta ítalska íþróttablaði,, La Gaz-
zetta dello Sport."
Blaðið gefúr öllum leikmönnum
allra liða einkunn fyrir frammistöð-
una í Mexfkó og eftir riðlakeppnina
var Elkjær í efeta sæti með 7,66 fyr-
ir leikina þijá en hæst gefur blaðið
10 í einkunn fyrir hvem leik. Þrír
Sovétmenn vom jafnir í öðm sæti.
Það vom þeir Rats, markvörðurinn
Dasajev og Jaremtsjuk en þeir vom
með 7,50 í einkunn. Daninn Michael
Laudmp var í fjórða sæti með 7,33
en Frank Amesen kom næstur af
dönsku leikmönnunum í tíunda sæti
með 7,16. Nokkuð einkennilegt að
Morten Olsen skuli ekki vera á með-
al tíu efstu svo vel sem hann lék í
riðlakeppninni.
Preben Elkjær Larsen hefur leikið
frábærlega með danska liðinu á HM
og er nú markahæsti leikmaður
keppninnar ásamt þremur öðrum
leikmönnum sem skorað hafa fjögur
mörk. Hann skoraði sem kunnugt
er þrennu fyrir Dani gegn Umguay.
Sovétmenn í efsta sæti
Þegar einkunnir leikmanna em
lagðar saman hjá einstökum löndum
em Sovétmenn í efsta sæti með 7,15
í einkunn, Danir í öðm sæti með
6,67 og Marokkó í þriðja sæti með
6,49. Brasilíumenn koma síðan í
fjórða sæti með 6,48.
-SK
• Preben Elkjær Larsen er i miklu
áliti hjá ítölum en á Ítalíu hefur hann
leikið í nokkurn tíma.