Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Síða 5
DV. LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1986. 5 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Newsweek um eyðingu ósonlagsins: Geigvænleg áhrif á umhverfi okkar - sjór hækkar, hiti eykst, fiskimið í hættu Yfirborð sjávar gæti hækkað allt að fjórum metrum, hitastig hækkað um eina og hálfa gráðu hér á landi og fiskimið horfið eða færst til hér við land á næstu áratugum ef eyðing ósonlagsins heldur áfram. Þetta kemur fram í grein i nýjasta tölu- blaði Newsweek. Klórflúorkolefni er helsti ógnvald- ur ósonlagsins en 700 þúsund tonn af því berast út í andrúmsloftið ár- lega. Ósonlagið heldur 99% útfjólu- blárra geisla frá yfirborði jarðar. Ekki eru allir á eitt sáttir um hversu hratt ósonlagið eyðist. Svartsýnasta spá gerir ráð fyrir að á síðustu fimm árum hafi það minnkað um 2,5%. Bandaríska umhverfismálastofhun- in telur að þetta geti haft þau áhrif að 15 þúsund manns umfram það sem nú er fái banvænan húðkrabba. Vísindamenn hafa miklar áhyggj- ur af eyðingu ósonlagsins, ekki síst veldur það miklum heilabrotum að svo virðist sem gat myndist í það yfir suðurskautinu í október ár hvert. Afleiðingar eyðingar óson- lagsins Erfitt er að meta afleiðingar eyð- ingar ósonlagsins á lífríki jarðar. Hækkun hitastigs er alvarlegasta vandamálið. Hér á síðunni er greint frá afleiðingum þess ef jöklar bráðna og yfirborð sjávar hækkar. En það er ekki eina afleiðingin. Talið er að innbyrðis skipting milli tegunda gæti breyst þar sem sumar lífrænar verur þola betur aukningu útfjólublárra geisla og hækkun hita- stigs en aðrar. Newsweek greinir frá því að blágrænir þörungar (algae) gætu orðið ráðandi í hafinu og sótt að svifi sem flestir matfiskar nærast á. Lirfur sumra fiska gætu orðið illa úti. Talið er að ef magn útfjólublárra geisla eykst um fimmtung muni 5% lirfa ansjósa deyja. Örlítil aukning slíkra geisla gæti minnkað magn svifs í sjónum en segja má að öll líf- keðja jarðar byggist á því. Keðju- verkanir gætu orðið tröllauknar. Áhrif breytingar loftslags Vísindamenn hafa löngum varáð við því að koltvísýringsmagn and- rúmsloftsins minnki og valdi því að hitastig fari hækkandi. Klórflúor- kolefni bætir gráu ofan á svart. Óttast er að vegna þessa muni hita- stig jarðar hækka að meðaltali um rúmlega 1,5 til 4,5 gráður á selsíus til ársins 2030. Áhrif á veðurfar að öðru leyti gætu verið umtalsverð. Hækkun hitastigs er því miður ekki að öllu leyti af hinu góða. Hvirfilbylir verða æ algengari og þeirra verður vart víðar. Hitastig mundi hækka þrefalt á við heimsmeðaltal við norður- og suðurpóla og líkur eru á því að úr- koma þar myndi aukast allmikið. Á sama tíma gætu hveitisvæði um mið- bik hnattarins þomað ískyggilega. Hitamunur milli miðbaugs og pól- anna myndi minnka og fyrir vikið myndu fæðuefni úr hafdjúpum síður komast upp á yfirborð með lóðrétt- um straumum. Matfiskur fengi því minna æti. Klórflúorkolefiii er meðal annars notað í „spray" ýmiss konar. þ.á m. svitalyktareyði, til kælingar, loft- ræsíingar, í framleiðslu plastfroðu og fleira. Bandaríkjamenn íhuga nú að banna notkun þessa efnis en ýmsir em tregir til þess, svo lengi sem vís- indamenn eru ekki fyllilega sam- mála um hættu af völdum þess, segir í grein Newsweek. -ás. Bessastaðir yrðu á eyju „Ef hæð sjávar hækkaði um 4 metra gæti Reykjavík klofnað í tvennt er svæðið frá höfriinni og að Skeijafirði færi undir vatn,“ sagði Ásgeir Sveinsson, kortagerðamaður hjá Land- mælingum íslands, í samtali við DV. Sjávarhæð gæti hækkað um 60 sentímetra til fjögurra metra um árið 2100 samkvæmt spá Banda- rísku umhverfismálastofhunar- innar, að því er bandaríska vikuritið Newsweek hermir. Mun fyrr, eða árið 2030, er reikn- að með að yfirborð sjávar hafi hækkað um 90 sentímetra. „Seltjamarnes færi að miklu leyti undir vatn, Bessastaðir yrðu líklega á eyju. Stórir hlutar þéttbýhs gætu farið undir vatn. Höfh í Homafirði, Stokkse\TÍ og Eyrarbakki væru vafalaust i talsverðri hættu. ekki síst vegna illvígs brims og sjávarfalla. Hafhir víðast hvar um landið yrðu ónothæfar ef ekkeit væri að gert,“ sagði Ásgeir. Hækkun sjávar gæti haft gríð- arlega alvarlegar afleiðingar víða um heim. Niðurlönd og Bangladesh væm í stórhættu. Reikna má með að þéttbýlis- svæði. eins og Kaíró. höfuðborg Egyptalands, New. Orleans í Bandaríkjunum og Sacramento- dalur i Kalifomíu, fæm undir vatn, að því er segir í Newsweek. -ás. Fiskimiðin gætu færst - segir Hreinn Hjaitarson ,Ef hitastig hækkaði um eitt og hálft stig gæti veðurfar orðið svipað og á Skotlandi," sagði Hreinn Hjart- arson veðurfræðingur í samtali við DV. „Um önnur áhrif evðingar óson- lagsins er erfiðara að segja. Breyt- ingar á hafstraumum em mögulegir. Fiskgengd fer mikið eftir straum- mótmn. Bestu fiskimiðin eins og hér við Island em þar sem heitur og kaldur sjór mætast. Straummótin gætu færst til og kannski frá íslands- miðum og eitthvað annað. Ég hef ekki trú á að útfjólubláir geislar hafi áhrif á svif í sjónum. Svifið fylgir birtustigi og færi því líklega dýpra að fæðu- og súrefnis- skilyrðum uppfylltum. Forsenda þess að lífið kviknaði í sjónum var að sjórinn gleypir útljólubláa geisla. Ef hitastig hækkar sem þessu nem- ur gæti fylgt því aukin úrkoma og þoka og það er ekki víst að það bætti hag okkar. Hætt er við að þessi byggð á Seltjarnarnesi yrði í hættu ef yfirborð sjávar hækkaði um fjóra metra. Tekið skal fram að myndin er tekin á fjöru. DV-mynd PK SPURNINGAKEPPNIN 7.VIKA Dregið þann 26. júní 1986. Skilið inn svörum i síðasta lagi þann 25. júní 1986 SPRENGISANDUR *+>f>f>f)f>f>f*>f>f>f>f>f>f)f>f>f>f>f>f>f)f)f>f>f>f>f>f>f>f>f>f^ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Ef þú kaupir einn hamborgara ★ í (venjulegan) færðu annan frítt gegn ★ { afhendingu þessa miða. * $ Gildir til og með 25. júní 1986 ★ ¥-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k*-k-k-k-k-k-k-k ★*★-**★ Frímiði ókeypis SÚPER MATUR • Um hvaða skarð ii^ur Austurlandsvcgur milli Vegahnjúks og Sauúahnjúks? Dl I »í hvaúa kvikmynd niltast Svinka o>; Ki’rmit? rx C ^ •Hvaó var þýska lýóvi-ldiú kallaú Ivrir valdatöku I litlvrs? ®*Hvaúa listamaúur kitúí altaristollu Ivrir kirkjuna i Kclu á Skaga. st-m sóknarnelndin halnaúi? © • Hver var lluj’maúur í Ivrsla bunaslvsi i Ilu^vél? <D • Hver si^raöi i 15 oj» 30 kílómetra skíöagöngu karla á Skíöamóti Islands áriö 1985? d © © Nafn: Heimili: Póstnr.: Staður: Aldur: Sími: 7. VIKA Aðalvinningur. Sólarferð með ferðaskrifstofunni Pólaris. Spennandi spurningakeppni á Sprengisandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.